Dagur - 31.08.1991, Page 13

Dagur - 31.08.1991, Page 13
Laugardagur 31. ágúst 1991 - DAGUR - 13 t- I Af erlendum vettvangi Hvað farast margir í umferðarslysum? Flesta daga lesum við í blöðum fréttir af umferðarslysum, og fregnir af þeim klingja í eyrum, þegar hlustað er á útvarp eða horft á sjónvarp. Hvað skyldu það vera margir á ári, sem missa lífið í öllum þessum slysum, bæði þeim, sem við heyrum af, og þeim, sem hvergi er getið. Skýrslugerð um umferðarslys er sjálfsagt mismunandi nákvæm í hinum ýmsu löndum jarðar og hætt við að víða komi ekki allt fram. Og ótaldir eru allir þeir, sem slasast en halda þó lífi. Millj- ónir búa við örkuml ævilangt og víða verður allt líf þeirra sam- felld sorgarsaga. Samkvæmt opinberum skýrsl- um fórust 393.000 manns í umferðarslysum árið 1989 og skiptast þannig eftir heimsálfum: Evrópa 119.549 dánir, Ameríka 78.482, Asía 141.458, Afríka 49.307 og Ástralía 3.676. Talið er, að 8.3 milljónir manna hafi á sama ári hlotið beinbrot eða aðra alvarlega áverka af völdum um- ferðarinnar. Víst er, að allar þessar tölur eru fremur of lágar en háar. Og ótalinn er allur sá fjöldi dýra, sem verður umferðinni að bráð. Þau eru margfalt fleiri en Árið 1989 fórust 393 þúsund manns í umferðarslysum. Það eru 1077 á dag. Og tala slasaðra margföld. mennirnir. Vélknúin farartæki hafa marga kosti, en þau taka sinn toll. Lífið er oft lagt að veði. (Byggt á Fakta 5/91. - i>.J.) KristaJl eitrar drykkina Vísindamenn við læknadeild Columbia-háskólans í Bandaríkj- unum hafa sýnt fram á, að menn eiga á hættu að verða fyrir blý- eitrun ef vín eða sterkir drykkir er geymt í fínum flöskum úr kristal sem inniheldur blý. Eftir aðeins fjögurra mánaða geymslu í kristalsborðflösku hafði blýinnihald í portvíni aukist úr 89 í 5331 þúsundustu úr milli- grammi í lítra. Koníak, sem geymt var í gamalli borðflösku frá því áður en almennt var farið að nota blý við glerframleiðslu, innihélt aftur á móti aðeins 68 þúsundustu úr milligrammi af blýi í lítra eftir heilt ár. í Englandi er ekki leyfilegt að meira en 50 þúsundustu úr milli- grammi af blýi séu í hverjum lítra drykkjarvatns. í Bandaríkjunum hafa yfirvöld lagt til, að mörkin verði lækkuð niður í 15 þúsund- ustu úr milligrammi í lítra. Það er ávaxtasýran í víni og sterkum drykkjum sem dregur til sín blýoxíð, sem glerfram- leiðendur blanda í sandinn og pottöskuna þegar framleiða á gæðavöru. Vísindamennirnir komust einnig að því, að vín getur dregið til sín blý úr venjulegu kristalsglasi. Hættan af blýeitrun af þeim sök- um telst þó miklu minni en þegar flöskurnar eiga í hlut, því að vín eða sterkir drykkir standa sjaldn- ast svo lengi í glasi að hætta sé á „Fínir" drykkjusiðir, þar sem vinið er borið fram í dýrum kristalsflösk- um, geta verið heilsunni hættulegir. Vínandi dregur til sín blý úr krist- alnum á ótrúlega skömmum tíma. að blýinnihaldið fari yfir hættu- mörk. (Fakta 5/91. - Þ.J.) Vogar Sveitasæla og rómantík! Með ys og þys stórborgarinnar innan seilingar. Vogar eru miðsvæðis milli Hafnarfjarðar (20 mín. akstur) og Keflavíkur (10 mín. akstur). Til sölu: Tvær íbúöir ásamt bílskúrum í fallegu parhúsi. Hvor íbúð er 96 fm, þ.e. 3-4 herb. (sólstofa) auk 30 fm bílskúrs. Húsinu veröur skilaö fullbúnu aö utan, aö innan frágengiö holræsi og vélslípuð gólfplata. Afhending fljótlega. Verð kr. 4.950.000. Einnig tvær íbúðir í parhúsa-þyrpingu meö bílskúrsrétti. Hvor íbúð er 76 fm, 3 herb. (sólstofa). Húsinu verður skilaö fullbúnu aö utan, að innan frágengiö holræsi og vélslípuð gólfplata. Afhending fljótlega. Verð aðeins kr. 3.100.000. Vogaverk hf. Sími 92-46747 eftir kl. 20.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.