Dagur - 11.09.1991, Blaðsíða 1
Vel í fö 1 klæddur <§>§0: itum frá B,RNMARm lernabudin
1 | HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
íþróttahússbygging í Ólafsfirði:
Bæjaryfírvöld bjóða Leiftri
rammasamning' um framkvæmdirnar
Bæjaryfirvöld í Ólafsfirði hafa
nú viðrað þá hugmynd við
íþróttafélagið Leiftur að gerð-
ur verði rammasamningur við
félagið um byggingu íþrótta-
húss í bænum. Þessi samningur
verði svipaður þeim sem gerðir
hafa verið um áþekkar fram-
kvæmdir á Akureyri og í
Reykjavík. Leiftursmenn hafa
ekki svarað bæjaryfirvöldum
en margir eru þeirrar skoðunar
að þetta beri að skoða mjög
alvarlega enda væri neikvætt
svar merki um að íþrótta-
áhugafólk hafi í raun ekki
áhuga á að húsið rísi á næstu
árum.
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hafði
samþykkt að útboð á byggingu
íþróttahússins færi fram í haust.
Bjarni Grímsson, bæjarstjóri,
segir að rammasamningar milli
Akureyrarbæjar og KA og Þórs
hafi breytt nokkru um þessi
áform og menn vilji kanna mögu-
leikana á að Ólafsfjarðarbær geri
hliðstæðan samning við Leiftur
Vinnumiðlunarskrifstofan:
í lok ágúst voru 156 skráðir
atvinnulausir hjá Vinnumiðl-
unarskrifstofunni á Akureyri,
sem er nokkru lægri tala en í
júlí. Þá voru atvinnulausir á
skrá 221.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á
Akureyri hefur atvinnulausum
gengið betur að fá vinnu í ágúst-
mánuði en oft áður. Sextíu og
sjö karlar og áttatíu og níu kon-
ur voru atvinnulaus um síðustu
mánaðamót. Skipting milli
starfsgreina er á þann veg að 15
verkamenn ög 39 verkakonur
eru án vinnu. Sé litið til
verslunarfólks, þá eru 16 versl-
unarmenn og 14 verslunarkonur
á atvinnuleysisskrá. Svipaðar
tölur er að finna hjá iðnverka-
fólki. Fjórtán iðnverkamenn
eru á skráog 29 iðnverkakonur.
„Útlitið er heldur betra.
Færri leita til okkar en oft áður.
Þessa dagana fjölgar vöru-
bifreiðastjórum á skrá og sjó-
mönnum fækkar,“ sagði við-
mælandi Dags á Vinnumiðlun-
arskrifstofunni. ój
Grenivík:
um íþróttahússbygginguna.
Framkvæmdir Leiftursmanna við
knattspyrnuvöllinn undirstriki
einnig að verkleg framkvæmd af
þessum toga sé vel sett í höndum
félagsmanna.
Með rammasamningi, éf af
verður, skuldbindur Ölafsfjarð-
arbær sig til að greiða ákveðinn
hluta af byggingarkostnaðinum á
ákveðnu árabili. Þessi prósentu-
tala hefur verið 75% í ramma-
samningum Akureyrarbæjar.
Hlutur Leifturs yrði þá að veru-
legu leiti fjármagnaður með sjálf-
boðavinnu félagsmanna en rætt
er um að Leiftur verði, hvað
þessa framkvæmd varðar, sam-
nefnari fyrir íþróttahreyfinguna í
Ólafsfirði. Bygginarframkvæmd-
ir yrðu þá í höndum félagsins.
Grafið hefur verið fyrir
íþróttahúsinu og hönnunarvinnu
er lokið. Aðspurður segir Bjarni
Gímsson að seinkun þurfi ekki
að verða á framkvæmdum, frá
því sem áætlað var, þó neikvætt
svar fáist frá Leiftri. Sú samþykkt
bæjarstjórnar um að bjóða húsið
út í haust standi en nú bíði bæjar-
yfirvöld svars Leifturs varðandi
rammasamning. JÓH
Franikvænidir við Ráðhústorg á Akureyri standa yfir af fulluin krafti.
Mynd: Golli
Aimar áfangi Dalvíkurskóla
var tekinn í notkun í gær
- Tónlistarskólinn flyst úr Gimli í gamla skólahúsið
Boðin út smíði
tveggja íbúða
í þessari viku verður boðin út
smíði tveggja íbúða í kaup-
leigukerfinu á Grenivík.
Önnur íbúðin er þriggja her-
bergja, 89 fermetrar, og hin
fjögurra herbergja, 103 fer-
metrar að stærð.
Um er að ræða parhús, sem
verður byggt á horni Stórasvæð-
is og Miðgarða, beint á móti
í gærkvöld varð endanlega
Ijóst að KA-menn halda sæti
sínu í Samskipadeildinni í
knattspyrnu. Stjarnan gerði
þá jafntefli 1:1 við ÍBVíEyj-
um og Stjarnan hefði þurft að
sigra til að eiga möguleika á
að lialda sæti sínu.
Aðeins ein umferð er eftir af
íslandsmótinu og KA-menn
hafa lilotið 22 stig cn Stjarnan
17 og fylgir því Víði í 2. deild.
Þrátt fyrir að falldraugurinn
kaupféiaginu. Önnur íbúðin
verður í almenna og hin í
félagslega kaupleigukerfinu,
Gert er ráð fyrir áð þessar íbúð-
jr verði til afhendingar urn ára-
mótin 1992/1993.
í næsta mánuði verða afhent-
ar kaupleiguíbúðir, sem fyrir-
tækið Stuðlaberg er að ljúka við
frágang á. Þær íbúðir hafa þeg-
ar verið seldar. óþh
sé mettur er æsispennandi loka-
umferð framundan í deildinni.
KR og Fram gerðu einnig jafn-
tefli í gærkvöld, 2:2, og Frarnar-
ar eru því áfram í 2. sæti, með
jafnmörg stig og Víkingur, 34,
en lakara markahlutfall. Fram-
arar leika gegn ÍBV í Reykjavík
á laugardag en Víðir og Vtking-
ur mætast í Garðinunt. KA-
menn taka hins vegar á móti
KR-ingum á Akureyrarvelli.
JHB
Gærdagurinn markar ákveðin
tímamót í starfi Dalvíkurskóla,
en þá var tekinn í notkun annar
áfangi nýja skólahússins. Þessi
áfangi er 700 fermetrar að
gólffleti og í honum eru sex
kennslustofur, stjórnunarrými,
vinnuaðstaða fyrir kennara og
bókasafn.
„Þetta er mikil breyting,"
sagði Þórunn Bergsdóttir, skóla-
Ökumenn fá að renna gegnum
Strákagöng um helgina en
vegna endurbóta hafa þau ver-
ið lokuð nema kvölds og
morgna að undanförnu. Fram-
kvæmdum miðar vel og sagði
Björn Valdimarsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði, útlit fyrir að
verklok gætu orðið fyrr en
áætlað var.
ístak hf. sér um framkvæmd-
irnar í Strákagöngum og sam-
kvæmt áætlun á verkinu að vera
lokið fyrir 18. október, en nú eru
menn að gæla við verklok í byrj-
un mánaðarins.
stjóri Dalvíkurskóla í gær, en þá
voru að hefjast fyrstu kennslu-
stundirnar í nýju kennslustofun-
um. Með þessu viðbótarrými
flyst allt bóklegt nám upp í nýja
skólahúsið, en verkleg kennsla
verður í gamla skólahúsinu og
kjallara heimavistar. Þetta hefur
það einnig í för með sér að Tón-
listarskólinn flytur starfsemi sína
úr allt of þröngu húsnæði í Gimli
Aðspurður sagði Björn að
flestir sættu sig við að fara veginn
um Siglufjarðarskarð, sem er
þokkalega fær öllum bílum ef
varkárni er gætt. Mörgum þykir
reyndar skemmtilegt að fara
þessa leið, en kannski ekki dag-
lega.
Af bæjarlífinu var allt gott að
frétta sagði Björn. Framkvæmd-
um á vegum bæjarins lýkur í
þessum mánuði og haustbragur
færist yfir.
„Ef fiskifræðingarnir verða
góðir við okkur þá veröum við
hressir," sagði Björn. SS
í eldra hús Gamla skóla.
Til stóð að sjávarútvegsdeildin
flytti starfsemi sína í Gamla skóla
þegar rýmkaðist þar um, en Þór-
unn segir að ekki verði af þeim
flutningum í bili. Sjávarútvegs-
deildin verði áfram til húsa í
Ráðhúsi Dalvíkur og nýju hús-
næði, sem verið sé að innrétta á
efstu hæð húss Kaupfélags Ey-
firðinga.
Þórunn segist afar ánægð með
hvernig til hafi tekist með bygg-
ingu og frágang annars áfanga
nýja skólahússins. Tréverk hf.
var aðalverktaki við bygginguna,
en undirverktakar voru Blikkrás
hf. á Akureyri, sem annaðist
smíði og uppsetningu loftræsti-
kerfis, Rafvélar á Dalvík, sem
sáu um lagningu rafmagns í
húsið, Híbýlamálun á Dalvík
annaðist málingarvinnu og Valur
Harðarson á Dalvík sá um pípu-
lagnir.
Þrátt fyrir þennan nýja áfanga
er vart meira en háif sagan sögð í
uppbyggingu Dalvíkurskóla.
Þórunn segir að gert sé ráð fyrir
að skólinn verði byggður upp í
fimm áföngum, en óljóst sé hve-
nær hann verði fullbúinn. Sam-
kvæmt tíu ára áætlun, sem Þór-
unn lagði fyrir bæjaryfirvöld á
Dalvík í fyrra, er miðað við að
skólinn verði fullbúinn árið 2000.
Væntanlega ráða fjárveitingar
mestu um hvort hægt verður að
standa við hana. óþh
Knattspyrna:
KA-menn áfram í 1. deild
- Stjarnan fallin eftir jafntefli í Eyjum
Framkvæmdir við Strákagöng:
Verklok gætu orðið
fyi’r en áætlað var
- göngin verða opin um helgina