Dagur - 09.10.1991, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. október 1991 - DAGUR - 5
Ostameistari íslands 1991:
Verðlaunakeðjan fór frá
KEA til Dalamanna
- norðlenskir ostameistarar sigursælir
Ostameistari íslands 1991 var
krýndur sl. föstudag í Reykja-
vík við upphaf Ostadaga hjá
Osta- og smjörsölunni. Titill-
inn fór til Elísabetar Svansdótt-
ur, ostameistara hjá Mjólkur-
samlaginu í Búðardal, fyrir
ostinn Dalabrie en hann hlaut
hæstu einkunn í dómum á 77
ostategundum frá sjö mjólk-
ursamlögum. Næstu tvö árin
ber Elísabet glæsilega verð-
launakeðju sem var gefin 1989
þegar Oddgeir Sigurjónsson,
ostameistari hjá Mjólkursam-
lagi KEA, hlaut sama titil.
Norðlenskir ostameistarar
fengu fjögur verðlaun af þeim
sjö sem afhent voru.
Osta- og smjörsalan hefur á
undanförnum árum staðið fyrir
Ostadögum annað hvert ár en
þess á nrilli tekið þátt í alþjóðleg-
um ostasýningum. Mjólkursam-
lögin sjö sem framleiða ost taka
þátt í keppninni um titilinn
„Ostameistari íslands" og að
þessu sinni fóru 77 ostategundir á
dómpallinn. Sem fyrr segir var
það Dalabrie þeirra Dalamanna
sem fékk hæstu einkunn, 13,10,
og er það ein hæsta einkunn sem
gefin hefur verið hér á landi.
Jöfn og hörð keppni
í flokki smurosta
Ostunum var skipt í þrjá flokka
og fyrir 1. flokk, eða föstu ost-
ana, fékk Haukur Pálsson, osta-
meistari hjá KS á Sauðárkróki,
gullverðlaun fyrir Kúmen-Maribo
en osturinn fékk 12,58 í einkunn.
í öðru sæti varð Hernrann Jó-
hannsson, ostameistari hjá KÞ á
Húsavík, með Gouda 26% sent
fékk einkunnina 12,32. Bronsið
fór til Oddgeirs Sigurjónssonar
hjá KEA á Akureyri fyrir Skóla-
ostinn sem fékk 12,22 í einkunn.
í 2. flokki voru smurostar og
þar var mjótt á mununum. Tvær
tegundir fengu verðlaun og gullið
fór til Björgvins Guðmundsson-
ar, ostameistara hjá Smurosta-
gerð Osta- og smjörsölunnar, fyr-
ir Napoli-Myrju en hún fékk ein-
kunnina 12,93. Oddgeir hjá KEA
hlaut svo silfrið fyrir Mysinginn
sem fékk 12,92 í einkunn. Myglu-
ostar voru síðan í 3. flokki og þar
hlaut aðeins einn ostur verðlaun,
sjálfur verðlaunaosturinn, Dala-
brie frá Búðardal.
Verðlaunin voru aflient í Osta-
og smjörsölunni sl. föstudag eins
og áður sagði og þar flutti Hall-
dór Blöndal, landbúnaðarráð-
herra, ávarp auk þess sem hann
afhenti verðlaunin til ostameist-
aranna. Á laugardag og sunnu-
dag var svo opið hús hjá Osta- og
sntjörsölunni að Bitruhálsi þar
sem ostameistararnir kynntu osta
sína og fólk gat m.a. fengið að
srnakka verðlaunaostana.
„Verðum að eiga
sterkt come-back næst“
Eftir verðlaunaafhendinguna
hitti blaðamaður Dags að máli þá
Oddgeir Sigurjónsson og Hauk
Pálsson sem hafa verið sigursælir
ostameistarar á undanförnum
árum. Oddgeir var fyrst spurður
hvort hann væri svekktur yfir því
að hafa misst titilinn yfir til Dala-
manna. „Nei, Dalamenn eiga
verðlaunin skilið og við verðum
að játa okkur sigraða. Við verð-'
um bara að eiga sterkt „come-
back“ næst,“ sagði Oddgeir og
bætti við: „Ostarnir hafa aldrei
verið jafn góðir og nú og það er
orðið erfiðara að gera upp á milli
þeirra. Einkunnin hækkar sífellt í
kjölfar aukinnar samkeppni,
menn eru alltaf að reyna að gera
betur en hinn. Hæsta einkunn,
sem er 15, er ekki gefin nenta
með algjörri fullkomnun. Þetta
er lífræn framleiðsla þannig að
við erum aldrei að vinna með
sama hráefnið.“
Líklega síðasta keppnin
hjá Hauki Pálssyni
Haukur Pálsson, ostameistari hjá
Mjólkursamlagi Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki, er
rneðal reyndustu ostameistara
Iandsins og í spjalli við Dag sagð-
ist hann vera ánægður með gullið
að þessu sinni. „Ég er ekkert
svekktur þó ég hafi ekki fengið
keðjuna því ég fékk hæstu eink-
unn í föstu ostunum og er sáttur
rneð það,“ sagði Haukur. Hauk-
ur varð ostameistari 1982 og aftur
1985 auk þess að hafa fengið
fjölda annarra verðlauna. Fræg-
astur er hann fyrir Kúmen-Maribo
ostinn en er það rétt að Haukur
sé að hætta í „ostabransanum“?
„Já, ég reikna með að þetta sé
síðasta keppnin sem ég tek þátt í.
Ég er kominn á sjötugsaldurinn
og það þarf að hleypa yngri
mönnunum að,“ sagði Haukur
Pálsson að lokum í samtali við
Dag, fullkomlega sáttur við upp-
skeru dagsins. -bjb
Norðlensku ostameistararnir nieð viðurkenningar sínar, f.v. Oddgeir Sigur-
jónsson frá KEA, Hermann Jóhannsson frá KÞ og Haukur Pálsson frá KS.
Myndir: bjb
Ostameistararnir sem fengu verðlaun á ostadögum Osta- og smjörsölunnar um helgina ásamt Óskar H. Gunnarssyni
forstjóra Osta- og smjörsölunnar, Halldóri Blöndal landbúnaðarráðherra og Ólafí A. Kristjánssyni yfírdótnara í
keppninni. Ostameistararnir eru f.v. Oddgeir Sigurjónsson frá KEA, Elísabct Svansdóttir Ostameistari íslands, frá
Mjólkursamlagi Búðardals, Haukur Pálsson frá KS, Björgvin Guðmundsson frá Osta- og smjörsölunni, og
Hermann Jóhannsson frá KÞ.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra afhendir Hauki Pálssyni gullverðlaun
fyrir Kúmen-Maribo ostinn frá KS.
Oddgeir Sigurjónsson frá KEA fékk silfurverðlaun fyrir Mysing og brons-
verðlaun fyrir Skólaost og hér afltendir Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra honunt viðkenningu fyrir árangurinn.
Handknattleikur
Æfingatafla
Meistaraflokkur karla:
Mánud. kl. 19.00-20.30 Skemman
Þriöjud. kl. 20.30-22.00 Höll
Miövikud. kl. 17.00-18.00 Skemman
Fimmtud. kl. 19.00-20.45 Höll
2. flokkur karla:
Þriöjud. kl. 22.00-23.00 Höll
Fimmtud. kl. 20.45-22.00 Höll
3. flokkur karla, 15 og 16 ára:
Þriðjud. kl. 22.00-23.00 Höll
Fimmtud. kl. 20.45-22.00 Höll
Sunnud. kl. 16.00-17.00 Höll
4. flokkur karla 13 og 14 ára:
Mánud. kl. 17.00-18.00 Skemman
Fimmtud. kl. 20.00-21.00 Glerárskóli
Sunnud. kl. 15.00-16.00 Höll
5. flokkur karla 11 og 12 ára:
Þriðjud. kl. 19.00-20.00 Glerárskóli
Sunnud. kl. 14.15-15.45 Glerárskóli
6. fl. karla 9 og 10 ára:
Þriðjud. kl. 18.00-19.00 Glerárskóli
Sunnud. kl. 15.45-17.30 Glerárskóli
2. flokkur kvenna 17 og 18 ára:
Miðvikud. kl. 18.00-19.00 Skemman
Sunnud. kl. 15.00-16.00 Skemman
3. flokkur kvenna 15 og 16 ára:
Miðvikud. kl. 18.00-19.00 Skemman
Sunnud. kl. 15.00-16.00 Skemman
4. flokkur kvenna 13 og 14 ára:
Þriðjud. kl. 20.00-21.00 Glerárskóli
Fimmtud. kl. 19.00-20.00 Glerárskóli
Byrjendaflokkur 9 ára og yngri:
Mánud. kl. 17.00-18.00 Glerárskóli
Sunnud. kl. 13.15-14.15 Glerárskóli