Dagur - 09.10.1991, Síða 12
HfiðHK
Akureyri, miðvikudagur 9. október 1991
heimsendingar-
þjónusta alla daga
Sunnudaga til fimmtudaga
kl. 12.00-22.30
Föstudaga og laugardaga
Hádegis-
tilboð
ullu dugu
kl. 12.00-04.30 glerárgötu 20 « » 26690 AlvÖrU VeÍtÍllgahÚS
Þjófar gripnir á Dalvík
Þeir hafa verið matarþurfi
þjófarnir er brutust inn í Vig-
dísi BA 77, er liggur í Dalvík-
urhöfn. Málið er upplýst og fer
rétta boðleið.
Aðfaranótt þriðjudags var
brotist inn í Vigdísi BA 77, þar
sem skipið liggur í Dalvíkurhöfn.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík,
eru skemmdir ekki miklar. Þjóf-
arnir stálu tóbaki, tölvu, vöfflu-
járni og sviðahausum. Þrír ungir
menn voru teknir í gærmorgun
vegna gruns um að vera valdir að
innbrotinu. Um miðjan dag í gær
höfðu þeir viðurkennt verknað-
inn og málið verður sent áfram
rétta boðleið. ój
Fiskiðjan-Skagfirðingur:
Flæðilína í notkun
á næsta ári
Fiskiðjan-Skagfirðingur mun
að öllum líkindum taka í notk-
un flæðilínu í frystihúsi sínu á
Sauðárkróki á næsta ári. Einar
Svansson, framkvæmdastjóri,
segir samt ekki búið að ákveða
af hvaða gerð flæðilínan verði,
en búið sé að skoða flæðilínur
bæði hér á landi og í Færeyj-
um.
„Við höfum verið að skoða
þessi mál alvarlega núna að
undanförnu og ég myndi segja að
miklar líkur væru á að við færum
í að setja upp flæðilínu í frysti-
húsinu á næsta ári. Allar línur
sem eru á markaðnum hafa verið
skoðaðar og væntanlega munum
við stefna á að taka þá flæðilínu
sem talin er best í dag. Aftur á
móti er framþróunin svo hröð í
þessu núna að sjálfvirkni línanna
eykst stöðugt og við viljum nátt-
úrlega helst fara eins langt og við
komumst í því, ef við förum út í
þessa breytingu á annað borð,“
segir Einar Svansson.
Að sögn forsvarsmanna Fisk-
iðjunnar er flæðilínan fljót að
borga sig upp og afkastaaukning
mikil við að taka hana í notkun.
Athugað með
markað fyrir skó
og bjór í Svíþjóð
Undirrituö hefur verið viljayfir-
lýsing milli Slippstöövarinnar
hf. á Akureyri og sænska fyrir-
tækisins Rectus/EIas um fram-
leiðslu á tækjum til skólp-
hreinsunar. Þetta kom m.a.
fram í máli Heimis Ingimars-
sonar, formanns atvinnumála-
nefndar á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær.
Fram kom hjá Heimi að á veg-
um Rectus/Elas væri nú m.a.
unnið að markaðssetningu ytra á
skóm frá Strikinu og bjór frá
Víking-Brugg.
Þá upplýsti hann að 13. októ-
ber nk. væru væntanlegir til
Akureyrar aðilar frá sænskri
ferðaskrifstofu, sem sérhæfir sig í
vetrarferðum, til þess að kynna
sér aðstæður hér.
Einnig kom fram í máli Heimis
að innan skamms verði gengið frá
stofnun ferðaskrifstofu í bænum
með aðild KEA, Flugfélags
Norðurlands, Hölds, Sérleyfis-
bíla Akureyrar og Ferðaskrifstof-
unnar Nonna. Hlutafé skrifstof-
unnar verður 20 milljónir sem
greiðist á fjórum árum. óþh
Við slíka breytingu segja þeir
einnig að laun fiskvinnslufólks
hækki og vinnuaðstaða batni til
mikilla muna. SBG
Hvítar fjallahúfur á Norðurlandi eru til vitnis um að vetur er í nánd. Þessi mynd var tekin austur yfir Eyjafjörð og
gefur hér að líta Rauðuvík á Árskógsströnd. Mynd: Golli
, Umhverfisdeild Akureyrarbæjar:
Utivistarsvæði við Klettagerði
í biðstöðu vegna mótmæla íbúa
í síðustu viku var haldinn
borgarafundur með íbúum við
Klettagerði og nágrenni og
fulltrúa Umhverfisdeildar
Akureyrarbæjar vegna fram-
kvæmda deildarinnar við opið
svæði við Klettagerði. Fram-
kvæmdir höfðu verið stöðvað-
ar eftir að mótmæli bárust frá
íbúum.
Að sögn Árna Steinars
Jóhannssonar, umhverfisstjóra,
var niðurstaða fundarins sú að
framkvæmdir við útivistarsvæðið
verða settar í salt fram á vor. í
rauninni hefði ekki staðið til að
gera meira í ár, en málið kæmi
aftur upp á yfirborðið við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Á umræddu svæði var búið að
setja undirstöður undir verönd
en hugmyndin var að hafa þarna
notalegan og skjólgóðan áning-
arstað. Örn Ingi Gíslason, fjöl-
listamaður og íbúi við Kletta-
gerði, átti hugmyndina að skipu-
lagi svæðisins og sögusagnir voru
á kreiki um að hann ætlaði að
nota það í eigin þágu. Árni Stein-
stefnt að gerð áningarstaða víða um bæinn
ar segir það af og frá.
„Örn Ingi fékk aldrei neitt
svæði og það stóð ekki til. Þetta
er opið svæði og hugmyndin var
að skapa þarna starfsvettvang
fyrir athafnasama unglinga í
unglingavinnunni hjá okkur, en
það kom upp óánægja meðal
íbúanna og málið er í biðstöðu og
skoðun í framhaldi af því,“ sagði
Árni Steinar.
Hann sagði að Umhverfis-
deildin hefði verið að velta fyrir
sér hvernig hægt væri að nýta
ýmis opin svæði og hugmyndir
hefðu t.d. komið upp um áning-
arstaði fyrir eldra fólk, þar sem
það gæti tyllt sér niður á bekki og
hvílt sig. Einnig hefðu aðilar í
ferðaþjónustu lagt áherslu á gerð
slíkra áningarstaða.
„Möguleikarnir liggja víða um
bæinn og við erum að skoða þá.
Okkar umhverfisstefna hefur á
síðustu tíu árum byggst á því að
fara í grófum dráttum um allan
bæinn, en núna getum við farið
að skoða hlutina í öðru ljósi með
fínheit í huga. Síðustu tvö árin
höfum við búið okkur undir að
Hitaveitufélag Miðfirðinga: Nvia dælustöðin
komin í gasmið
Ný dælustöð Hitaveitufélags Miðflrðinga á Laugabakka var tengd um síðustu helgi og er nú komin í gagnið löngu áður en til stóð, en ekki var reiknað með að hægt væri að taka hana í notkun fyrr en um næstu ára- mót. Hitaveitufélag Miðfirðinga er sameignarfélag hitaveitu Hvamms- tanga og hitaveitu Laugabakka, en heitu vatni er dælt frá Lauga- ö o bakka og út á Hvammstanga. Að sögn Bjarna Þórs Einarssonar, sveitarstjóra Hvammstanga- hrepps, á með tilkomu þessarar nýju dælustöðvar, að komast á jafnari þrýstingur og betri vatns- nýting, en gamla dælustöðin var að miklu leyti handstýrð. Hin nýja dælustöð er aftur á móti með fullkominn stýribúnað og kostnaður við hana um 22 millj- ónir króna samkvæmt áætlun. SBG
gefa bænum meiri lit með því að
efla ræktunarstöð okkar og fara
meira út í fjölær blóm og skraut-
runna. Þetta sést allt á næstu
fimm árum,“ sagði Árni Steinar.
SS
Framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar 1992-1994:
Rekstrargjöld verði
bundin ákveðnu
hlutfaJli skatttekna
- áætluninni vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn
Bæjarstjórn Akureyrar af-
greiddi í gær til síðari umræðu
áætlun um rekstur, fjármál og
framkvæmdir í bænum á árun-
um 1992-1994. Halldór Jóns-
son, bæjarstjóri, fylgdi áætlun-
inni úr hlaði á bæjarstjórnar-
fundi í gær og lagði á það
áherslu að hún væri stefnu-
markandi plagg, sem lýsti í
stórum dráttum þeim áhersl-
um, sem bæjarstjórn Akureyr-
ar ætlist til að fylgt verði varð-
andi rekstur, fjármál og fram-
kvæmdir á næstu þrem árum.
Fram kom að áætlunin verður
kynnt deildarstjórum og for-
stöðumönnum hinna ýmsu
stofnana bæjarins á næstunni.
í máli bæjarstjóra kom fram að
eitt af meginmarkmiðum þessar-
ar áætlanagerðar væri að rekstr-
argjöld yrðu bundin sem ákveðið
hlutfall af skatttekjum og gert
væri ráð fyrir að það yrði ekki
hærra en 71%. „Þetta þýðir í
reynd að nýmæli í rekstri eða
breytingar á núverandi rekstri,
sem í eðli sínu ættu að leiða af sér
hækkun rekstrargjalda, verða því
aðeins tekin upp að skatttekjur
bæjarins aukist, eða hægt verði
að ná fram hagræðingu, sparnaði
eða breytingu í núverandi
rekstri, þannig að svigrúm skap-
ist til nýs eða breytts þjónustu-
framboðs. Ég tel að þetta mark-
mið sé afar mikilvægt og í reynd
nauðsynlegt að gæta þess vel að
hlutfall rekstrargjalda af skatt-
tekjum hækki ekki takmarkalítið
á hverju ári,“ sagði Halldór.
Hann sagði annað mikilvægt mark-
mið með áætluninni vera að lækka
langtímalán bæjarins, önnur en
lán til bygginga félagslegra íbúða,
um sem næst 5 prósent á ári.
Gert er ráð fyrir að verja 412
milljónum króna í gjaldfærða
fjárfestingu á næstu þrem árum.
Þar af verði 220 milljónum varið
til gatna, holræsa og umferðar-
mála.
Til eignfærðar fjárfestingar
verði hins vegar varið 748 millj-
ónum króna. Stærstu liðir í þeirri
tölu eru íþróttamál með 130
milljónir og sambýli aldraðra
með 127 milljónir króna.
í lok ræðu sinnar sagði bæjar-
stjóri að mikilvægt væri að auka
tekjur bæjarins, en til þess að það
mætti verða, væri nauðsynlegt að
íbúum fjölgaði og atvinnulífið
efldist. Áfram yrði að leita leiða
fyrir nýmæli í atvinnustarfsem-
inni á Ákureyri, til þess að skapa
traustari grunn fyrir enn sterkari
byggð á svæðinu. óþh