Dagur - 29.10.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 29. október 1991
Fréttir
Myndir: Golli
Jón Baldvin Hannibalsson á fundi á Akureyri um Evrópskt efnahagssvæði:
EES-samningurinn er gott landsbyggðarmál
Samningurinn um Evrópskt
efnahagssvæði er gott lands-
byggðarmál og hann er tíma-
mót í atvinnusögu Islendinga.
Árangur af samningavið-
ræðunum um EES er meiri og
betri en menn höfðu fyrirfram
þorað að vona. Umsagnir for-
svarsmanna hagsmunaaðila í
sjávarútvegi og fleiri atvinnu-
greinum staðfesta að samning-
urinn er góður fyrir Island.
Hann færir íslendingum sókn-
arfæri á tímum versnandi lífs-
kjara og stöðnunar í atvinnulífi
þjóðarinnar.
f sem stystu máli má segja að
þetta hafi verið boðskapurinn í
yfirgripsmikilli ræðu Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, utanríkis-
ráðherra, á kynningarfundi utan-
ríkisráðuneytisins um samning-
inn um Evrópskt efnahagssvæði í
Alþýðuhúsinu á Akureyri sl.
sunnudag.
Samningur um
gagnkvæman hag
Að vonum talaði Jón Baldvin
hvað mest um þann þátt samn-
ingsins um Evrópskt efnahags-
svæði er snýr að sjávarútvegin-
um. Hann tíundaði nákvæmlega
jákvæða þætti samningsins gagn-
vart sjávarútveginum en rakti
síðan hvað íslendingar hefðu
þurft að leggja að mörkum til
þess að knýja þessa niðurstöðu
fram. Jón Baldvin lagði áherslu á
að þau ummæli væru ekki eftir
sér höfð að íslendingar hefðu
fengið allt fyrir ekkert.
„Vissulega er þessi samningur
um gagnkvæman hag. Hitt er
engu að síður mat Evrópubanda-
lagsins og reyndar samstarfsaðila
okkar í EFTA að samningsárang-
ur okkar hafi orðið betri en menn
hefðu þorað að gera sér vonir
um,“ sagði Jón Baldvin.
„Varðandi starfsskilyrði fisk-
vinnslunnar á íslandi er þessi
samningur fyrst og fremst lands-
byggðarmál, af þeirri einföldu
ástæðu að sjávarútvegurinn er
fyrst og fremst á landsbyggðinni.
Nú er spurningin hvort atorku-
samt fólk í fiskvinnslunni á lands-
byggðinni getur nýtt sér þau tæki-
færi sem þessi samningur býður
upp á. Aðlögunartíminn er til 1.
janúar 1993, en við þurfum að
hefja undirbúninginn strax,“
bætti utanríkisráðherra við.
Skipasmíðarnar
Jón Baldvin greindi frá ýmsum
öðrum efnisþáttum samningsins.
Meðal annars nefndi hann að
skipasmíðar hafi verið erfitt mál.
„Evró^ubandalagsþjóðirnar
beita verulegum ríkisstyrkjum í
skipasmíðaiðnaði. Það gera sum-
ar EFTA-þjóðirnar einnig eins
og Noregur og Finnland. Krafan
var sú að EFTA-ríkin féllu frá
eða afsöluðu sér rétti til niður-
greiðslna og styrkja í skipasmíða-
iðnaði, en Evrópubandalagið
vildi framfylgja sinni eigin áætlun
um að gera það í áföngum á löng-
um tíma. Niðurstaðan varð sú að
Evrópubandalagið lýsir því yfir
að það muni árið 1993, í
samráði við EFTA-ríkin, afnema
tilskipun til þess arna. Þetta er
fyrirheit en ekki ófrávíkjanleg
skuldbinding. Hvernig til tekst í
þessu efni getur skipt miklu máli
fyrir stað eins og Akureyri,“
sagði Jón Baldvin.
Ríkiseinokun á áfengi
Hann nefndi einnig að mikil tog-
streita hefði verið um ríkiseinok-
un á innflutningi á áfengi. Eink-
um hefði þetta mál verið mikið
hjartans mál fyrir frændur okkar
Norðmenn. „Um þetta var mikil
og erfið barátta vegna þess að
Evrópufólk skilur hvorki upp né
niður í hugtakinu ríkiseinokun á
brennivíni. í huga þess er brenni-
vín eins og hver önnur vara og er
verslað með það í smásöluversl-
unum. En fyrir órofa samstöðu
bindindissinnaðra Norðurlanda-
búa, þ.e.a.s. okkar íslendinga,
Norðmanna, Finna og Svía, sem
allir eru þekktir á heimsvísu fyrir
stakt bindindi, þá tókst okkur að
fá það niðurneglt að þessi
„mónópólía“ væri af félagslegum
ástæðum en ekki viðskiptahindr-
un.“
Straumur útlendinga
til íslands?
Jón Baldvin vék síðan að ýmsum
brennandi spurningum, sem
menn hafa velt mikið fyrir sér í
kjölfar samninganna í Lúxem-
borg.
„Er einhver hætta á því að
ísland fyllist nú af útlendingum
eða að landið tæmist af íslending-
um?“, spurði Jón Baldvin, og
hann svaraði: „Fyrirvarinn sem
við settum í upphafi með vísan til
norræna vinnumarkaðarins er
núna í öryggisákvæðinu, studdur
sérstakri yfirlýsingu íslenskra
stjórnvalda við hvaða skilyrði
honum yrði beitt. Hann er ótví-
ræður og afdráttarlaus. Það er á
valdi íslenskra stjórnvalda að
stöðva slíkan innflutning ef þeim
bíður svo við að horfa og þeirri
ákvörðun verður ekki vísað til
gerðardóms annarra aðila. Af
þessu þurfa menn ekki að hafa
áhyggjur. Ég hef hins vegar
áhyggjur af því að ef við náum
ekki tökum á okkar efnahags-
stjórn, þá skapist sú hætta að
okkur haldist lítt á þeim tugþús-
undum íslendinga, sem notið
hafa stuðnings rausnarlegasta
námslánasjóðs í heimi til þess að
nema erlendis."
Hvað með
„óðöl feðranna“?
Jón Baldvin sagði að menn hefðu
af því nokkrar áhyggjur að er-
lendir kaupsýslumenn gætu eftir
að EES-samningurinn öðlast
gildi, keypt upp „óðöl feðranna",
þ.e. hérlendar jarðir og auðlind-
ir.
Utanríkisráðherra sagði að
menn hefðu orðið sammála um
að til þess að fyrirbyggja fjárfest-
ingar erlendra aðila hér væri unnt
í fyrsta lagi að herða forkaupsrétt
sveitarfélaga, í öðru lagi að
styrkja hann með forkaupsrétti
ríkisins, í þriðja lagi að herða
kröfu um búsetuskyldu hins
erlenda aðila í landinu og í fjórða
lagi með að herða ákvæði um
nýtingarskyldu jarðnæðis.
„Með þessu teljum við að er-
lendir fjármagnseigendur, sem
vilja kaupa laxveiðiá, eða ein-
hverja náttúruperlu, geti það
ekki,“ sagði Jón Baldvin.
Tvíhliða viðræður við EB?
Utanríkisráðherra sagði að oft
hefðu heyrst raddir um að réttara
hefði verið að taka upp tvíhliða
viðræður við Efnahagsbandalag-
ið í stað þess að fylkja liði með
hinum EFTA-ríkjunum í viðræð-
um um Evrópska efnahagssvæð-
ið. „Úr því sem komið er skiptir
það engu máli, en það var alltaf
röng leið að fara í tvíhliða við-
ræður. Aðildarflokkar fyrri ríkis-
stjórnar voru sammála um það og
sömuleiðis núverandi stjórnar-
flokkar. Hverjir borguðu að-
göngumiðana að þessum hag-
stæðu samningum? Hverjir borg-
uðu veiðiheimildir? Það gerðu
Norðmenn. Hverjir greiddu
aðgöngumiðann að því er varð-
aði Alpana? Það gerðu Alpa-
þjóðirnar. Hverjir hefðu borgað
aðgöngumiðann fyrir okkur ef
við hefðum farið í tvíhliða við-
ræður? Ég held að ég þurfi ekki
að segja meira um það,“ sagði
Jón Baldvin.
Um þá gagnrýni að EES-samn-
ingurinn múri íslendinga inni í
viðskiptum við aðrar þjóðir sagði
Jón Baldvin að það væri einfald-
lega rangt. Samningurinn hindr-
aði íslendinga síður en svo í að
gera viðskiptasamninga við önn-
ur lönd.
ísland eyland í
samstarfí Evrópuríkja?
Jón Baldvin sagði að ýmsir hefðu
uppi efasemdir um gildi EES-
samningsins fyrir ísland ef öll hin
EFTA-ríkin gengju inn í Efna-
hagsbandalagið. Én staðreyndin
væri sú að samningurinn stæði
óhaggaður hvað ísland varðaði
eftir sem áður. „Þessir samningar
eru gerðir við hvert einstakt
aðildarríkja EFTA. Ef Evrópu-
bandalagið stækkar, þá breytir
það ekki því að við höfum leyst
brýnustu vandamál okkar í sam-
skiptum við EB. Þá spyrja menn:
„Er þetta ekki fyrsta skrefið til
aðildar að EB?“ Sumir segja það.
Svisslendingar líta svo á og Aust-
urríkismenn einnig. Eg vil
spyrja: Hvað yrði um ísland, eina
landið sem hefði ekki slíkan
samning, ef það hefði ekki toll-
frjálsan aðgang fyrir sjávarafurð-
ir, hefði ekki leyst vandamál sín í
samskiptum sínum við Evrópu-
bandalagið og væri eitt landa
þegar öll hin Norðurlöndin væru
gengin í EB. Hver væri þá staða
okkar í norrænu samstarfi. Er þá
ekki líklegt að upp hefðu komið
kröfur frá forsvarsmönnum ís-
lensks atvinnulífs um að við ætt-
um engra annarra kosta völ en að
ganga í EB? Ég hef lýst þeirri
skoðun minni að svo lengi sem
Evrópubandalagið rekur hina
sameiginlegu fiskveiðistefnu, þá
er ég á móti aðild íslands að því.
Ég er hins vegar alveg sannfærð-
ur um að með því að ná þessum
samningi höfum við létt af þrýst-
ingnum á íslenskt atvinnulíf um
að ganga inn í EB, þegar hin
EFTA-ríkin væru komin inn.“
Hefur Jón Baldvin Iesið
EES-samninginn?
Að aflokinni framsögu utanríkis-
ráðherra gafst fundarmönnum,
sem voru töluvert margir, kostur
á að bera fram fyrirspurnir um
ýmislegt er að samningnum lýtur.
Fram komu margar og athygl-
isverðar fyrirspurnir. Einungis
nokkurra er getið hér.
Ragnhildur Jónsdóttir spurði
m.a. hvort utanríkisráðherra
hefði lesið allan þennan viða-
mikla samning í gegn, því ef
marka mætti reynslu af smáaletr-
inu hjá tryggingarfélögunum, þá
væri ekki ólíklegt að einhver
mikilvæg ákvæði, sem snertu
Islendinga, hefðu farið fyrir ofan
garð og neðan.
Jón Baldvin kvaðst hafa lesið
samninginn ítarlega, enda hefði
hann haft tvö ár til þess. Hann
tók það fram að sjálfur EES-
samningurinn væri tiltölulega
viðráðanlegt plagg að umfangi.
Olafur Halldórsson spurði
m.a. um hvort eitthvað væri í
EES-samningnum varðandi veið-
ar á sjávarspendýrum.
Jón Baldvin sagði ekkert í
samningnum um veiðar á sjávar-
spendýrum eða viðskipti með
afurðir sjávarspendýra.
Tryggvi Gíslason spurði utan-
ríkisráðherra af hverju hann
segði ekki bæði kost og löst á
EES-samningnum.
Jón Baldvin sagðist hafa á
þessum fundi og víðar rætt bæði
það sem hann teldi gott við samn-
inginn og ýmis mál sem menn
hefðu áhyggjur af, t.d. innflutn-
ing fólks og fjárfestingar útlend-
inga hér.
Þjóðaratkvæðagreiðsla
Tryggvi spurði Jón Baldvin einn-
ig af hverju væri ekki efnt til leið-
beinandi þjóðaratkvæðagreiðslu
um samninginn.
Jón Baldvin sagði að í samn-
ingnum væru engar kvaðir um
breytingu á stjórnskipan íslenska
lýðveldisins. í honum væri ekkert
framsal á löggjafar-, fram-
kvæmda-, eða dómsvaldi. „Við
förum að lögum og reglum ís-
lenska ríkisins sem segir að ef
ekki er um að ræða milliríkja-
samning, sem felur í sér breyt-
ingu á stjórnarskrá, þá skuli
leggja hann fyrir Alþingi," sagði
Jón Baldvin.
Jón Þór Gunnarsson spurði
um hvaða vöruflokkar í sjávarút-
vegsgeiranum nytu ekki tollfríð-
inda innan EES.
í svari utanríkisráðherra kom
fram að þar væri um að ræða
skelfisk, aðallega humar, reyktan
fisk, lagmeti að hluta, vítamín-
blandað fiskimjöl, sem notað er í
dýrafóður, og lax. óþh
Rskmiölun Norðurlands á Dalvík - Rskverö á markaöi vlkuna 20.10-26.10 1991
Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verð Meöalverð (kr/kg) Magn (kg) Verömæti
Hlýri 56 56 56,00 627 35.112
Karfi 24 15 23,24 319 7.414
Keila 25 17 22,05 184 4.058
Lúöa 200 90 136,25 40 5.450
Steinbítur 60 40 54,04 2.397 129.538
Ufsi 57 50 53,88 3.414 183.952
Ýsa 102 60 86,73 4.639 402.324
Ýsa, smá 75 75 75,00 200 15.000
Þorskur 100 64 79,17 28.988 2.295.056
Þorskur, smár 78 50 69,35 10.975 761.139
Samtals 74,14 51.783 3.839.038
Dagur birtlr vlkulega töflu yfir flskverö hjá Ftskmlölun Noröurlands á Dalvík og greinlr þar frá verölnu
sem fékkst í vikunni á undan. Þetta er gert f Ijósi þess aö hlutverk fiskmarkaöa i verömyndun
islenskra sjávarafuröa hefur vaxtð hrööum skrefum og þvi sjálfsagt að gera lesendum blaösins
kleift aö fylgjast með þróun markaðsverös á fiski hér á Norðurlandi.