Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 1
74. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 21. nóvember 1991
222. tölublad
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Aflabrögð í október:
Ekki upp á
marga fiska
Aflabrögð í októbermánuði
síðastliðnum voru ekki glæsi-
leg og samdráttur í öllum
landshlutum miðað við sama
mánuð í fyrra. A Norðurlandi
bárust 9.778 tonn af físki á
land í október á móti 18.449
tonnum í október 1990, en þá
voru loðnuskipin reyndar búin
að ná í rúm 8.000 tonn og
skekkir það myndina því ekki
veiddist gramm af loðnu í sl.
október.
Mikill samdráttur var í þorsk-
og ýsuveiðum hjá norðlenskum
skipum og bátum í október mið-
að við sama mánuð árið á undan.
Hins vegar veiddist meira af ufsa
og karfa, en lítum á aflatölur fyr-
ir október. Svigatölurnar standa
fyrir sama mánuð 1990:
Þorskur 2.476 (4.712), ýsa 280
(776), ufsi 3.030 (2.208), karfi
1.629 (1.259), steinbítur 104
(86), grálúða 627 (170), skarkoli
107 (139), annar botnfiskur 175
(128), loðna 0 (8.052), rækja
1.274 (691) og hörpudiskur 76
(228).
Eins og sjá má á þessum tölum
yfir októberafla á Norðurlandi er
töluverður samdráttur í botn-
fiskafla en rækjan hefur tekið
kipp milli ára.
Samdrátturinn er augljós bæði
hjá bátum og togurum en smá-
bátarnir halda sínu. Þeir veiddu
600 tonn á móti 542. Munar þar
mestu að ufsaaflinn jókst úr 25
tonnum í 237 og voru Grímsey-
ingar iðnir við kolann, þ.e.
ufsann. SS
Samningafundi í kjaradeilu ófaglærðra í mjólkursamlögum KEA og KÞ og viðsemjenda þeirra, sem hófst kl. 10 í
gærmorgun, lauk á sjötta tímanum í gær án þess að samningar tækjust. Boðað hefur verið til annars fundar á Akur-
eyri í dag. Þessi mynd var tekin í upphafi sáttafundarins í gær. Fyrir borðsendanum er Guðlaugur Þorvaldsson,
ríkissáttasemjari, á vinstri hönd fulltrúar Vinnumálasambands Samvinnufélaganna, en á hægri hönd fulltrúar
starfsmanna mjólkursamlaganna auk fulltrúa Iðju á Akureyri og Verkalýðsfélags Húsavíkur. Mynd: Golli
Vatnsútflutningsfyrirtækið Akva:
Kaupir vélarsamstæðu fyrir
pökkun á plastflöskur
Á fundi stjórnar Kaupfélags
Eyfírðinga í gær var samþykkt
að veita vatnsútflutningsfyrir-
tækinu Akva, sem er dóttur-
fyrirtæki félagsins, heimild til
að kaupa vélarsamstæðu gerir
mögulegt að pakka vatninu á
plastflöskur. Hingað til hefur
Akva flutt út vatn á pappa-
fernum.
Um er að ræða fjárfestingu
upp á um 25 milljónir króna í vél,
fylgibúnaði og breytingum á
húsnæði. Vélasamstæðan verður
væntanlega tekin í notkun í mars
næstkomandi og undir vorið er
reiknað með að byrjað veröi aö
flytja út vatn frá fyrirtækinu á
plastflöskunum.
Þórarinn E. Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Akva, segir að
þessi vélakaup auki möguleikana'
á markaðssetningu á vatninu.
„Þetta stækkar andlitið á okkur
Snjór er nokkur á Sölvadal
neðan Tungu- og Hraunár-
eyra, en þar innaf er nær
snjólaust. Beit er ágæt fyrir
hross á dalnum,“ sagði Hrólfur
Eiríksson bóndi að Eyvindar-
stöðum í Eyjafjarðarsveit.
Nýverið gerðu bændur í Sölva-
dal leiðangur inn dalinn til að
huga að kindum. Á Tungu- og
Hraunáreyrum voru fimm ær og
tvö lömb sem flutt voru til
byggða á snjósleðum því ekki var
hægt að reka skepnurnar vegna
snjóa. Kindurnar voru í góðum
holdum.
„Nær snjólaust er á framdaln-
líður vel
um. Svo lítill er snjórinn að við
gátum ekki borið okkur um á
sleðunum. Snjórinn neðst á daln-
um er ekki storkinn þetta er
aðeins þunn skel og púðursnjór
undir. Jörðin er lungamjúk og
útigangshrossum líður hið besta
enda beit næg,“ sagði Hrólfur
Eiríksson. ój
vestan hafs, breikkar plássið sem
við fáum í hillum verslana og
opnar okkur betri leið inn í heim-
ilisneysluna. Þetta skapar því
grundvöll til að fara að auglýsa
meira vöruna. Hér er að hefjast
annar kaflinn í þessum útflutn-
ingi,“ sagði Þórarinn.
Nú þegar hefur Akva aflað sér
tilboða í bæði nýjar og notaðar
pökkunarvélar og reiknar Þórar-
inn með að á næstu dögum verði
samningur gerður um kaup á vél.
Tölur úr sjúkraskýrslum á Vogi kynntar:
Áfengisneysla hefur aukist en
misnotkun fíkniefna minnkað
- vímuefnaneysla hefur þó aukist meðal ungmenna
í j»ær var haldinn á vegum
SAÁ blaðamannafundur á
sjúkrahúsinu Vogi um umfang
áfengis- og vímuefnavandans
síðustu átta ár og hvert stefnir í
þeim málum. Kynntar voru
niðurstöður tölulegra upplýs-
inga úr sjúkraskýrslum sjúkl-
inga á Vogi sl. 8 ár, eða frá
1984-1990, og var þetta í fyrsta
sinn sem tölur síðustu þriggja
ára voru birtar. í þessum töl-
um kemur margt athyglisvert
fram.
Á árinu 1990 dvöldust 1.514
einstaklingar á Vogi, 1.133 karlar
og 381 kona. Meðalaldur einstakl-
inga var 36,2 ár og voru konur
heldur yngri en karlar. Þetta eru
svipaðar tölur og fyrir síðustu ár.
Það kemur hins vegar skýrt fram
að einstaklingum í yngsta aldurs-
hópnum, 20 ára og yngri, hefur
fjölgað. Þeir voru 53 (4%) árið
1985 en 92 (6%) árið 1990 og
höfðu aldrei verið fleiri. Sífellt
fleiri nýliðar á Vogi tilheyra líka
þessum yngsta hópi.
í þeim tölum sem kynntar voru
kemur líka fram að áfengisneysla
íslendinga var mun meiri árin
1989 og 1990 en árin þar á undan
og er þessi aukning rakin til
bjórsins. Þykir einsýnt að áfeng-
isneysla unglinga hefur aukist
mjög eftir að leyft var að selja og
brugga bjór á íslandi.
Neysla kannabisefna hjá þeim
sem komið hafa á Vog hefur
minnkað á tímabilinu. Hún var í
hámarki 1985 þegar 315 einstakl-
ingar höfðu neytt kannabisefna
daglega og upp í vikulega í eitt ár
en hefur síðan minnkað árlega og
í fyrra var talan komin niður í
217 einstaklinga. Sama þróun er í
misnotkun á amfetamíni, misnot-
endur voru flestir 1985 eða 217
talsins en þeim hefur fækkað
hægt og bítandi og voru 122 á síð-
asta ári.
Þeir sem misnota kannabis
voru 21% af heildarfjölda ein-
staklinga á Vogi 1985 en 14,4%
1990. En þótt kannabisneytend-
um hafi fækkað samkvæmt þess-
um tölum er merkjanleg aukning
í aldurshópnum 15-19 ára og sér-
staklega meðal kvenna. 18 stúlk-
ur af 36 (50%) sem komu á Vog
1990 misnotuðu kannabis en 12
stúlkur af 31 (38,7%) árið 1989.
SS
Norðurland:
Hitastig ofan
við frostmark
Glóandi hálka var á vegum
noröanlands í gær og áttu bíl-
stjórar í miklum erfíöleikum
með að halda farartækjum sín-
um í réttum skorðum.
Veðurstofa íslands spáir áfram
hlýviðri fyrir Norðurland. Er líð-
ur á daginn snýst til skammvinnr-
ar norðanáttar með skúrum á
Norður- og Norðausturlandi en
slyddu til fjalla. Hitastig á lág-
lendi verður á bilinu tvær til fimm
gráður.
Þormóður rammi hf.:
Heíðbundnar upp-
sagnir fjrir jól
Þormóður rammi hf. á Siglu-
fírði hefur sagt upp fastráðn-
ingarsamningum við hluta af
starfsfólki sínu, en þetta er
gert vegna stöðvunar togar-
anna um jól og áramót.
„Þetta er hefðbundin aðgerð.
Uppsagnarfresturinn er einn
mánuður. Þar sem togararnir eru
ekki á sjó um hátíðarnar verður
að koma til þessa. Fólkið kemur
aftur til starfa um miðjan janúar
þegar togararnir koma til löndun-
ar,“ sagði Róbert Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma hf. ój
Hitaveita Sauðárkróks:
Lagning í Skarðs-
og Staðarhrepp
Hugmyndir varðandi lagningu
Hitaveitu Sauðárkróks í
Skarðs- og Staðarhrepp komu
lítillcga til umræðu á bæjar-
stjórnarfundi á Sauðárkróki sl.
þriðjudag. M.a. kom fram að
um 48 þús. tonn af vatni þyrfti
til að þjóna 40 lögbýlum í
hreppunum tveimur.
Hilmir Jóhannesson, formaður
veitustjórnar, gerði grein fyrir
fundargerð veitustjórnar og
skýrði út fyrir öðrum bæjarfulltrú-
um að leiðir væru margar og
kostnaður misjafn eftir því. Sem
dæmi tók hann að ef lögð yrði æð
frá Hitaveitunni alla leið að
Kjartansstaðakoti og Sæmund-
arhlíð tekin með, þá mætti reikna
með 20 mínútulítrum á hvert
þeirra 40 lögbýla sem á þessu
svæði eru og yrði mánaðargreiðsla
þá um 15 þús. krónur fyrir hvern
notanda.
Hilmir sagði ljóst að kaupa
yrði dælur og annan búnað til að
koma vatninu alla þessa leið ef af
þessu yrði og trúlega yrði þá líka
að mælavæða í bænum. Hann
sagði að þessi mál væru öll í
athugun og t.d. væri beðið eftir
niðurstöðum mælinga sem gerðar
voru í sumar á borholum Hita-
veitunnar. Eftir að auglýst
dagskrá bæjarstjórnarfundarins
var tæmd var fundinum lokað og
samkvæmt heimildum Dags voru
þessi mál þá rædd frekar. SBG