Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 21. nóvember 1991 Fréttir Félag dráttarbrauta og skipasmiðja: Stjómvöldum ekki stætt á að horfa á miUjarðaverke&ii flutt úr landi - vill draga úr eða fella niður lánveitingar Fiskveiðasjóðs til nýsmíða eða breytingaverkefna erlendis Félag dráttarbrauta og skipa- smiðja hefur nú ítrekaö kröfur sínar um að íslenskum skipa- smíðastöðvum verði tryggð viðunandi almenn rekstrarskil- yrði og að erlendum ríkis- styrkjum til skipasmíða verði mætt með óbeinum aðgerðum. Meðal þeirra atriða sem félag- ið leggur til er að dregið verði verulega úr eða felld alveg nið- ur lán Fiskveiðasjóðs til ný- smíða eða breytingaverkefna og að skip smíðuð á íslandi fái aukakvóta úr Hagræðingar- sjóði. Bent er á að á sama tíma og í smíðum erlendis eru skip fyrir að minnsta kosti 5 millj- arða stefnir í 20 milljarða við- skiptahalla. Verkefnastaða innlendra stöðva sé afleit og starfsmönnum aðildarfyrir- tækja félagsins hafi fækkað um 150 á þremur og hálfu ári. í ályktun skipasmíðamanna segir að stjórnvöld hafi horft aðgerðarlaus á þessa þróun og ekkert aðhafst til þess að stuðla að því að sú skipasmíði sem nú er erlendis fyrir íslendinga geti farið fram innanlands. Óskiljanlegt og ólíðandi sé að íslensk stjórnvöld láti viðgangast að milljarðaverk- efni séu flutt úr landi án þess að látið sé reyna á getu íslenskra skipasmíðastöðva til að annast þau. Bent er á að ríkisstyrkir til skipasmíðastöðva í nágranna- löndum séu enn eitt helsta vanda- mál íslensks skipaiðnaðar og ekki hafi verið hlustað á þær kröfur félagsins að þessum ríkisstyrkj- um mætti mæta með ýmsum óbeinum aðgerðum sem ekki hefðu í sér útgjöld fyrir hið opin- bera og íþyngdi ekki íslenskum útgerðum. Félagið hafi bundið miklar vonir við að með samning- um um EES fengist lausn á því í gær var stailurinn brotinn undan „Landnetnunum“ höggmynd Jakobs S. Jónassonar, en þau Helgi magri og Þórunn hyrna eru á leið til Eng- lands þar sem þau verða steypt í brons. Mynd: Golli vandamáli sem ríkisstyrkir til skipasmíða í Evrópulöndum eru. Þessar vonir hafi brugðist því samningurinn tryggi ekki íslensk- um skipasmíðastöðvum sömu vörn gagnvart ríkisstyrkjum ann- arra þjóða eins og skipasmíðar innan Evrópubandalagsins búi við. Auk framangreindra aðgerða er bent á að reglur um úreldingu eldri skipa vegna smíði á nýjum þurfi að breyta þannig að þær verði hagstæðari innlendri skipasmíði. Þá þurfi að breyta tafarlaust úreldum lögum frá 1922 sem banna erlendum skip- um að landa afla sínum hér á landi. „Að lokum skal ítrekað að í ljósi hinnar alvarlegu stöðu í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar er stjórnvöldum ekki lengur stætt á því að horfa aðgerðalaust á að milljarðaverk- efnum við skipasmíðar sé beint til útlanda. Islenskur iðnaður hefur góða möguleika á að ann- ast þessi verkefni og því vekur það furðu að á sama tíma og stjórnvöld tala um neyðaraðgerð- ir vegna erfiðleika í sjávarútvegi gera þau ekkert til að nýta þessi tækifæri til innlendrar atvinnu- sköpunar," segir í ályktun ný- afstaðins aðalfundar Félags drátt- arbrauta og skipasmiðja. JÓH íþróttamiðstöð á Blönduósi: Lokað útboð í afgangiim - tekin í notkun næsta vetur Bæjarstjórn Blönduóss sam- þykkti á fundi sínum sl. þriðju- dag að lokaö útboð skyldi fara fram innan tíðar á þeim verk- þáttum sem Ijúka á við innan árs í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Fyrir liggur ákvörðun um að taka húsið svo til fullklárað í notkun skólaárið ’92-’93. Bæjarstjórnin samþykkti að eftirtaldir aðilar fengju útboðs- Núerkomið að því herrar mínir! Heitasta herrakvöld sem haldið hefur verið á Norðurlandi verður í 1929 laugardagskvöldið 23. nóvember Hljómsveitin Loðin rotta heldur uppi fjörinu Húsið opnað kl. 21.30 með fordrykk og öðcMJJlJystisemdum Brennandi dagskrá, heit sýning með TQ^mftOTjéVipy k£ u:*-_ ________i:„’.ViVjúÍ*._■a.V’kí’i.’j_i • Pantið miða tílmanlega í vikunni, takmarkaður fjöldi Forsala hefst á kl. 18.00 í dag, fimmtudag. F ri^rn ú^ákö'fri um .. Stóé^^t^jir '^^ður Gröndal og Ingóffijír, Gúðjónsson sjá um líflega kynningu A miðnætti eru allar konur velkomnar í 1929 Þær verða ekki fyrir vonbrigðum Fullt hús af karlpeningi Tania hin danska kemur aftur fram kl. 01.30 með létta sýningu Miðaverð kr. 1800 á sýningu og dansleik Miðaverð kr. 1200 eftir miðnætti Föstudagur: Loðin rotta • Miðaverð kr. IOOO Allar pizzur 9“ á kr. 600 og 12“ á kr. 750 Snyrtilegur klæðnaður Borðapantanir í síma 24199 gögn í hendur: Hjörleifur Júlíus- son, Pípulagnaverktakar hf., Sig- urjón og Hlynur, Stígandi hf. Að sögn Guðbjarts Á. Ólafs- sonar, tæknifræðings Blönduós- bæjar, er ytri frágangi á húsinu lokið, en einungis búið að full- klára anddyri og skólastofur inn- an dyra. Hann segir að enn sé verið að kanna ýmsa kosti varð- andi innréttingar og annað og m.a. sé ekki búið að ákveða hvort sett verður upp sauna eða gufubað, né hvort útbúin verði sér blaðamannastúka. Veturinn ’92-’93 segir Guðbjartur að öllu eigi að vera lokið nema bún- ingsklefum tengdum sundlaug sem verða tilbúnir undir tréverk og þá sé ráðgert að taka húsið í notkun. Ákvörðun um byggingu íþrótta- miðstöðvar á Blönduósi var tekin á hundrað ára afmæli bæjarins árið 1976. Framkvæmdir hófust hins vegar ekki fyrr en árið 1984. Húsið er með 1000 fermetra gólffleti í sal og áhorfendapöllum fyrir 400 manns. Guðbjartur sagði að eflaust mætti reikna með að fullbúið yrði kostnaður við byggingu hússins og búnað þess kominn í um 200 milljónir króna, framreiknað. SBG Fóstrufélag íslands: Krefst leiðrétt- ingar á launum Á fundi í Fóstrufélagi íslands 19. nóvember sl. var svohljóð- andi kjaramálaályktun samþykkt: „Fjölmennur fundur um kjara- mál í Fóstrufélagi íslands, hald- inn þann 19. nóvember 1991 að Grettisgötu 89 krefst þess að við- semjendur félagsins, ríki og sveitarfélög axli þá ábyrgð að ganga strax til samninga unt veru- legar leiðréttingar á launum fóstra, enda 3 mánuðir liðnir frá því að samningar runnu út. Fundurinn felur samninga- nefnd Fóstrufélags íslands að fylgja fast eftir kröfugerð félags- ins.“ SS Akureyri: Bæjarmála- ■ Bæjarráð hefur vegna framkominnar tillögu sem samþykkt var á fundi hafnar- stjórnar nýlega, falið hafnar- stjóra og starfsmanni atvinnu- málanefndar að gera bæjar- ráði grein fyrir þeim mögu- leikum sem nú eru til staðar að veita erlcndum aðilum þjón- ustu. Einnig hvaða breytingar þurfi að gera rn.a. á lögum frá 1922 um rétt til fiskvciða í landhelgi svo hægt sé að auka framboð á þjónustu viö erlenda aðila. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá Hestamannafélaginu Létti, þar sem mótmælt er uppsetningu rimlahliða við Lögmannshlíðarkirkju og við Rangárvclli vegna slysahættu. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarverkfræðings. ■ Á l'und bæjarráös nýlcga komu Helgi M. Bergs, stjórn- arformaður Heílsugæslustöðv- arinnar og Guðmundur Sig- valdason, framkvæmdastjöri, Rætt var unt erfiða greiðslu- stöðu Heilsugæslustöðvarinn- ar végna stofnkostnaðarskulda ríksins frá fyrri árum og skulda við Akureyrarbæ vegna sjúkraflutninga. É Bæjarráði hefur borist erindi frá Sálarrannsóknarfé- laginu á Akureyri, þar scm leitað er liðsinnis Akureyrar- bæjar til kaupa á húsnæði fyrir starfsemi félagsins. Bæjarráð vísaði erindinu til afgrciðslu fjárhagsáætlunar. É Bygginganefnd hefur veitt leyfi til að láta rífa húsið nr. 86b við Hafnarstræti og einnig íbúðarhúsið að Mýrarlóni, ásamt áföstu fjósi og hlöðu. ■ Stjórn veitustofnana hefur borisl erindi frá Hestamanna- félaginu Létti, þar scm þess er fariö á leit að Rafveita Akur- eyrar komi upp raflýsingu á reiðleiðinni suður frá Breið- holtshvérfi að Hamraborgum. Stjórnin hefur falið rafveitu- stjóra að gera áætlun um kostnað við slíka rafjýsingu. ■ Menningarinálaneínd ræddi á fundi sínum nýlega um fyrir- hugaða Ijóða- og smásagna- keppni vegna vinabæjaviku næsta sumar. Gerð var grein fyrir hugmyndum og sam- þykkt að fela undirbúnings- nefnd vinabæjavikunnar að auglýsa samkeppnina. M íþrótta- og tómstunda- ráði hefur borist bréf frá Hauki Berg, forstöðumanni Sund- laugar Akureyrar og Unni Gísladóttur, starfsmanni laug- arinnar, þar sem þau segja upp störfum sínum við sund- laugina frá og nteð 1. nóvem- ber. ■ íþrótta- og tómstundaráði hefur borist bréf frá Auðunni Eirtkssyni, f.h. Sundfélagsins Óðins, þar sem hann fer þess á leit að fá aðstöðu í Sundlaug Akureyrar til námskeiðshald í ungbarnasundi. Ráðið sam- þykkir að verða við ofan- greindu erindi og felur fram- kvæmdastjóra ráðsins í sam- ráði við forstöðumann sund- laugarinnar frekari framgang málsins. ■ Atvinnumálanefnd hefur samþykkt að veita Járntækni hf. styrk að upphæð 450.000,- til útfærslu á hugmyndum að úrsláttarbúnaði til að slá úr frystipönnum unt borð í frysti- toguruni og frystihúsum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.