Dagur - 21.11.1991, Page 3
Fimmtudagur 21. nóvember 1991 - DAGUR - 3
4-
■
»
»
Fréttir
Lokið verði byggingu hringvegarins:
missir vinnu
- segir í greinargerð með nýrri þingsályktunartillögu
Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar og Eyjólfs Konráðs Jónssonar
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta kanna nú
þegar möguleika á því að Ijúka
iippbyggingu hringvegarins á
næstu tveimur árum. Þjóð-
hagsleg hagkvæmni fram-
kvæmdarinnar verði könnuð
sérstaklega, svo og hagkvæmni
þess að vinna verkið nú þegar
fyrirsjáanlegur er mikill sam-
dráttur í allri verktakastarf-
semi. Þá verði reynt að leggja
mat á hvaða ný sóknarfæri
skapast í atvinnulífi lands-
manna við þessa framkvæmd.
Stefnt verði að því að niður-
stöður þessarar könnunar liggi
fyrir það snemma að hægt
verði að hefja framkvæmdir á
næsta sumri ef niðurstaða gef-
ur tilefni til.“ Flutningsmenn
að þingsályktunartillögu þess-
ari, sem nýkomin er fram á
Alþingi eru Jóhanncs Geir Sig-
Meindýraeyðirinn á Húsavík:
„Farinn að glíma við flest“
- segir Árni Logi, og veiðir jafnt
minka sem mölflugur
Það er nóg að gera hjá mein-
dýraeyðinum á Húsavík, Arna
Loga Sigurbjörnssyni, og í
mörgu að snúast. í haust hafa
14 minkar verið drepnir í
Húsavíkurlandi, þar af hefur
Árni Logi náð 13, en löndun-
argcngið náði einum um borð í
togaranum Júlíusi Havsteen.
Árni segir að þetta sé þriðja
árið í röð sem mikið veiðist af
mink í bænum en þeir hafi aldrei
verið fleiri. Hann segist vita af að
minnsta kosti einum mink enn í
bæjarlandinu, en í sumar hafi þar
verið tvö greni, annað í Norður-
garði en hitt á móts við Laugar-
dal.
Gott árferði veldur aukinni
viðkomu ýmissa kvikinda sem
fólk er ekki par hrifið af að hafa í
eða við híbýli sín. í sumar segist
Árni hafa eytt 14 geitungabúum í
sýslunni, þar af níu á Húsavík. í
haust var mikið að gera við að
úða grenitré á Húsavík, eftir að
þangað barst sitkalús.
Árni hefur einnig unnið við að
sótthreinsa hús fyrir bændur, þar
sem skorið hefur verið niður
vegna riðuveiki.
»Ég er farinn að glíma við
flest,“ sagði Árni, en hann segist
m.a. hafa útrýmt óþrifum sem
komið hafa á stofublóm. Hann
segist vilja benda fólki, sem glími
við silfurskottur eða mölflugu, á
að gott sé að láta eitra og svæla
hús áður en farið sé í jólahrein-
gerningarnar. Hann sagðist hafa
svælt vegna silfurskottna í nýjum
húsum, en þær flyttust oft á milli
með fólki, leyndust í húsgögnum
og víðar og því eins gott að vera
vel á verði. IM
„Opið hesthús“ á
Hólum nk. suiumdag
Næstkomandi sunnudag, 24.
nóvember kl. 13.30 til 16.00,
verða nemendur hrossarækt-
arbrautar og forráðamenn
Bændaskólans á Hólum með
„opið hús“ á Hólum, sem
kannski væri réttara að kalla
„opið hesthús“. Kynnt verður
starfsemi hrossaræktarbrautar-
innar, uppbygging námsins og
sýndar í verki þær aðferðir sem
beitt er við kennsluna. Að Iok-
inni sýningu og kynningu býð-
ur Bændaskólinn upp á kaffi í
mötuneyti skólans.
Undanfarin ár hefur kennsla í
alhliöa hrossabúskap, hrossarækt
og reiðmennsku verið stóraukin
við Bændaskólann á Hólum.
Mjög góð aðstaða er á Hólum til
að stunda þessa kennslu, gott
hesthús, reiðkennsluhús og
aðstöðurými. Auk þess er mikið
samstarf við Hrossakynbótabú
ríkisins, sem bændaskólinn sér
um rekstur á, og stóðhestastöðv-
ar Norðurlands, sem er samstarfs-
verkefni Bændaskólans og hrossa-
ræktarsambanda á Norðurlandi.
Nám við Bændaskólann tekur
tvö ár og er hluti þess verknám
hjá bændum/tamningamönnum,
eða þrír mánuðir. Auk þess hefur
verklegi þáttur námsins í skólan-
um sjálfum verið stóraukinn
þannig að skólinn er í dag öflug-
asti reiðskóli landsins, samhliða
kennslu í hrossarækt og hrossa-
búskap.
urgcirsson og Eyjólfur Konráð
Jónsson.
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögunni er bent á að nú
þegar liætt liefur verið við bygg-
ingu álvers á Keilisnesi skapist
alvarlegt ástand í verktakastarf-
semi í landinu, fjöldi fólks muni
missa vinnu sína og öflugur
tækjakostur annaðhvort úreldist
ónotaður eða verði seldur úr
landi fyrir lítið verð. Þá er bent á
að hjá flestum þjóðum sé af-
kastamikið samgöngukerfi talin
vera ein meginforsenda fyrir efl-
ingu atvinnulífs og viðskipta.
Með því að Ijúka byggingu hring-
vegarins norður um land, um
Akureyri, Möðrudalsöræfi og til
Egilsstaða annars vegar en austur
um Hornafjörð og sunnanverða
Austfirði til Egilsstaða hins
vegar, verði lokið einum mesta
áfanga í samgöngusögu íslend-
inga. Bent er á að þessi fram-
kvæmd muni skapa ný skilyrði
fyrir ísland sem ferðamannaland
og möguleika Norður- og Austur-
lands til þess að taka á móti
ferðamönnum, sem koma beint
frá útlöndum. Þá er einnig bent á
í greinargerðinni að útflutningur
á ferskum og unnum fiskafurðum
krefjist aðgangs að greiðum sam-
göngum til útlanda og að ineð
bættum samgöngum viö Austfirði
skapist aðstæður fyrir útskipun-
arhöfn þar en sigling frá Aust-
fjörðum til Evrópu tekur um sól-
arhrings skemmri tíma en frá
suðvesturhorni landsins. Flutn-
ingsmenn tillögunnar telja að við
núverandi aðstæður sé sjálfsagt
að kanna hvort hér sé um þjóð-
hagslega hagkvæma framkvæmd
Stjóm Kaupinannafélags Akur-
eyrar og Kaupfélag Eyfirðinga
hafa ákveðið breytingar á opn-
unartíma í deseinber, að öðru
leyti en á sunnudögum sem nú
er til athugunar. Auk hefð-
bundins opnunartíma verða
verslanir opnar sem hér segir:
Æflngar eru hafnar hjá Leik-
félagi Blönduóss á barnaleik-
ritinun Gosa í leikgerð Brynju
Benediktsdóttur. Brynja leik-
stýrir verkinu sjálf og að sögn
Jóns Inga Einarssonar, for-
manns félagsins, er ætlunin að
t'rumsýna í janúar.
„Við ætlum okkur að æfa fram
í miðjan desember, gera hlé yfir
jólin og frumsýna síðan í janú-
ar,“ segir Jón Ingi.
Jón Ingi segir að nokkuð vel
hafi gengið að manna verkið
þrátt fyrir að alltaf sé erfiðara að
að ræða og ef svo er sé fyllilega
raunhæft að taka erlent lán til
þess að fjármagna hana. ÞI
14. desember verður opið milli
klukkan 10 og 18. Fimmtudaginn
19. desember verður opið til kl.
22 um kvöldið og laugardaginn
21. desember verður opið milli 10
og 22. Mánudaginn 23. desem-
ber, Þorláksmessu, verður opið
milli kl. 9 og 23 en á aðfangadag
verður opið fyrir hádegi, eða
milli kl. 9 og 12. “ JÓH
koma fólki í gang á haustin en á
vorin. í sýningunni eru níu aðal-
leikarar, en um þrjátíu manna
hópur stendur að uppsetning-
unni.
„Ég held áhugi fyrir leiklist sé
alltaf fyrir hendi hér á Blönduósi.
Hinsvegar er það alveg ljóst að
við erum í bullandi samkeppni
við alla aðra afþreyingarmiðla.
Spurningin er bara að koma með
eitthvað sem höfðar til fólksins
og við höfum ekki sett upp
barnaleikrit í fjölda mörg ár svo
við vonum að áhorfendur skili
sér,“ segir Jón Ingi. SBG
Jólaverslunin:
Opmmartími verslana ákveðinn
Laugardagana 7. desember og
Leikfélag Blönduóss:
Gosi á íjalirnar í janúar
JÓLATILB OÐ
Bökunarvörur Niðursoðið grænmeti Niðursoðnir ávextir
Kynnum:
Euro Disney leik Coca Cola
fimmtudag kl. 15-18
föstudag kl. 14-19
laugardag kl. 10-14
TILBOÐ
Lambagrillkótilettur
698 kr. kg.
stórlmliVk^ösverdi