Dagur - 21.11.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 21. nóvember 1991 - DAGUR - 5
Fundur FUF á Akureyri um atvinnumál:
Frumskilyrði að lækka
fjármagnskostnað
- „sjávarútvegurinn verður að fá tækifæri til þess að skila arði og
fysilegt verði fyrir almenning að leggja fé í sjávarútvegsfyrirtæki,“
sagði Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra
„Unga fólkið í landinu er
bundið á klafa hárra skuld-
bindinga til langs tíma en ekki
er að sama skapi hugsað um að
tryggja því atvinnu,“ sagði
Halldór Asgrímsson, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra og
varaformaður Framsóknar-
flokksins á fundi Félags ungra
framsóknarmanna á Akureyri
um atvinnumál í fyrrakvöld.
Halldór lagði þunga áherslu á
að frumskilyrði í efnahags- og
atvinnumálum landsmanna
væri að draga úr óhóflegum
fjármagnskostnaði. Halldór
sagði að ennfremur yrði að
skapast eining um stefnu í sjáv-
arútvegsmáluin því ótækt sé að
undirstöðuatvinnuvegur þjóð-
arinnar búi við það öryggis-
leysi sem ágreiningur um
stjórnun fiskveiða skapar. Þá
sé einnig nauðsynlegt að fyrir-
tæki í sjávarútvegi skili arði og
viðskipti með hlutabréf í þeim
fari fram á almennum fjár-
magnsmarkaði.
Halldór sagði að ýmsir erfið-
lcikar blasi nú við í atvinnumál-
um landsmanna og deildar mein-
ingar séu um hvort eða með
hvaða hætti ríkisvaldið eigi að
hafa afskipti af málefnum
atvinnulífsins. Hann sagði að
haustið 1988 hefði það orðið
hlutskipti ríkisvaldsins að bjarga
sjávarútveginum frá því að stöðv-
ast og benti á að stöðvun sjávar-
útvegsins á þeim tíma hefði þýtt
mun meira tap fyrir banka, sjóði
og þjóðarbúið í heild heldur en
þær fjárhæðir sem varið var til
skuldbreytinga og endurskipu-
lagningar. Þessar aðgerðir séu nú
kallaðar sukk og óráðsía af
núverandi ráðamönnum. Halldór
ræddi síðan um hvað kosti að
nota peninga í dag. Raunvextir
óverðtryggðra lána séu nú 15,8%
og fyrirtæki geti því annað hvort
ekki notfært sér lánsfjármagnið
eða séu að kikna undan vaxta-
greiðslum.
Halldór ræddi nokkuð um hús-
bréfakerfið og sagði að gefin
yrðu út húsbréf fyrir um 15 millj-
arða króna á þessu ári. Heildar
sparnaður í landinu væri hins
vegar aðeins um 30 milijarðar og
því væri spurning hvort íslenska
þjóðfélagið hefði efni á að nota
svo mikla fjármuni í þennan til-
tekna málaflokk á svo skömmum
tíma. Þar við bætist að afföll af
húsbréfum séu allt að 22 til 24%
Halldór Ásgrímsson.
þannig að þeir 15 milljarðar sem
útgefnir væru yrðu aðeins um 12
milljarðar í raun. Ríkisstjórnin
hefði einnig mælst til þess að
Seðlabankinn mæti húsbréf
aðeins að hálfvirði sem peninga
og ættu margir í erfiðleikum með
að skilja þann hugsunarhátt er að
baki því byggi. Halldór sagði að
grundvallaratriði sé að halda
atvinnuvegunum gangandi og á
meðan svo væri ekki gæti þjóðin
ekki lagt svo mikla fjármuni í
húsnæðismálin. Halldór sagði að
nú hefði opnast markaður fyrir
húsbréfin á erlendum fjármagns-
mörkuðum þar sem þau fengjust
keypt á nafnverði og segði það
ekkert annað en að erlend fjár-
festingarfyrirtæki eigi aðgang að
mun ódýrara fjármagni en hér sé
á boðstólum.
Halldór ræddi einnig um núll-
stefnuna og það hugarfar sem
ríkt hcfði gagnvart sjávarútvegin-
um. Að ekki mætti myndast
hagnaður af rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja. Nauðsynlegt sé að
fyrirtæki í sjávarútvegi skili arði
og að viðskipti með hlutabréf í
þeim fari fram á almennum fjár-
magnsmarkaði.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
sagði að þrátt fyrir árásir á byggð-
astefnuna hefði margt áunnist á
undanförnum árum. Hann
minnti meðal annars á gjörbylt-
Jóhanncs Gcir Sigurgeirsson.
ingu í samgöngum þjóðarinnar,
bæði innanlands og á milli landa,
eflingu framhaldsskólakerfisins
um allt land og uppbyggingu
heilsugæslunnar á landsbyggð-
inni. Hann sagði að nú væri reynt
að færa klukkuna til baka aftur til
ársins 1988 áður en þáverandi
stjórnvöld gripu til margvíslegra
aðgerða til þess að forða undir-
stöðuatvinnuvegunum frá hruni.
Nú væri að skapast trúnaðar-
brestur á milli stjórnvalda og
fólks úti um byggðir landsins sem
meðal annars mætti rekja til
ýmissa ummæla forsætisráðherra
að undanförnu.
Jóhannes Geir ræddi um
álmálið og varpaði því fram hvort
iónaðarráðherra ætli sér nú að
sitja með hendur í skauti fram á
miðjan áratuginn eða jafnvel
lengur. Hann sagði að forráða-
menn Atlantsálsfyrirtækjanna
hefðu pólitíska framtíð ráðherr-
ans í höndum sér þar sem hann
hefði lagt mikið undir í þessu
máli.
Margar fyrirspurnir komu fram
á fundinum og beindist athygli
manna einkum að erfiðri stöðu
atvinnulífsins um þessar mundir
og sýnilegu áhugaleysi stjórn-
valda til þess að takast á við
vandann og leita leiða til þess að
skapa atvinnuvegunum viðun-
andi rekstrarskilyrði. Þ1
Kjallarinn:
Annar Muti karaoke-
keppninnar í kvöld
í kvöld verður fram haldið
undanúrslitakeppni Norður-
landsineistaramótsins í karaoke
söng í Kjallaranum í Sjallan-
um. Fyrsti hluti keppninnar fór
fram sl. fimmtudag og þá bar
Sigrún Steinarsdóttir sigur úr
býtum.
11 keppendur mættu til leiks
fyrsta kvöldið og sýndu mikil
tilþrif, reyndar mismikil eins og
gengur. Sigrún tryggði sér sigur-
inn eftir spennandi keppni en
hún söng bítlalagið 1 Saw Her
Standing There. 1 öðru sæti lenti
Díana Hermannsdóttir frá
Bakkafirði með gamla Patsy
Cline laginu Walking After
Midnight. Þessar tvær syngja til
úrslita í Sjallanum 5. janúar og
sigurvegarar í þeirri keppni halda
síðan til Reykjavíkur viku seinna
og keppa um Islandsmeistaratitil-
inn í karaoke 1991 í Ölveri í
Glæsibæ.
Keppnin í kvöld hefst kl. 22.
Upplýsingar og skráning eru í
síma 22770.
Köku- og munabasar
Kvenfélagið Iðunn heldur köku- og munabasar í
Laugarborg sunnudaginn 24. nóvember kl. 15.30.
Margt góðra muna til sölu.
Kaffisala frá kl. 15.
Nefndin.
Frostrásin FM 98,7
Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri.
Góð tónlist allan sólarhringinn ★ Getraunir ★ Auglýs-
ingar * Fréttapunktar ★ og ótalmargt skemmtilegt.
Frostrásin FM 98,7
Sími 11657 * Útvarp með sál.
Gúmmí og nælonslöngur
STRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
Viltu vera
sjálfstæður?
Til sölu matvöruverslun í Innbænum
í fullum rekstri.
Góð velta.
Upplýsingar í síma 25655 milli kl. 16 og 18.
r--------------------- \
Bókaútgáfan
Skjaldborg og
Sögufélag Eyfirðinga
Hafnarstræti 90, Akureyri
Afgreiðslan verður opin 21.-29. nóv.
kl. 11-18 virka daga.
★
í desember verður afgreiðslan opin frá
kl. 10 og fram á kvöld eins og aðrar sölubúðir.
★
Allar fáanlegar útgáfubækur
beggja fyrirtækjanna verða til sölu
og einnig fleiri af eldri bókum
á mjög lágu verði.
^Skjaldbwé
Hafnarstræti 90, Akureyrf^^"
s________________________________/