Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 13

Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 13
Svendborg. Bær við hið bláa haf. Úr höfninni sigla skipin og skemmti- bátar vagga á sundinu eða eru bundnir við bryggju. Bíða þar eigenda sinna. Haust í aðsigi og sólin hellir geislum yfir grænar strendur og rúst- rauð húsþökin. Svendborg er sjómannabær. Þar hafa sæfarar reist sér ból. A Tásinge hinumegin Svendborgarsundsins býr íslensk fjölskylda. Hann er skipstjóri. Fer um heimsins höf. Hún er húsmóðir og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á söng. Hún semur einnig lög og ljóð. Sum þeirra tileinkar hún sjónum og söknuði eftir eiginmanni á hafinu. Hún sækir einnig texta í smiðju íslenskra skálda. Og nú hefur hún gefið út aðra hljómplötu sína. Gullý Hanna Ragnarsdóttir frá Akureyri hefur hitt í mark meö nýju plötunni því lag- ið „Kærlighed ved fórste blik“ hefur vermt efstu sæti danskra vinsældalista að undan- förnu. Gullý Hanna hefur búið í Svendborg síðastliðin fimmtán ár. Hún fluttist til Dan- merkur um miðjan áttunda áratuginn ásamt eiginmanni sínum Gísla Guðjónssyni, skip- stjóra, sem þá hafði fengið starf sem stýri- maður hjá dönsku skipafélagi. Gullý Hanna hefur verið í hlutverki sjómannskonunnar eins og svo margar aðrar konur í þessum suðurfjónska bæ. En söngurinn ætíð verið skammt undan og er aðal áhugamál hennar. Hún semur meirihluta laga á plötum sínum sjálf og einnig hluta textanna. Ljóðagerð ýmissa höfuðskálda íslensku þjóðarinnar er henni einnig hugleikin og nokkur ljóð íslenskrar bókmenntahefðar hafa orðið henni tilefni til þess að taka gítarinn fram og semja lög. Fyrir tveimur árum gaf hún út sína fyrstu hljómplötu þar sem hún flutti eigin lög og einnig annarra. Á nýju plötunni eru átta lög eftir hana sjálfa. Þótt lagið „Ást við fyrstu sýn“ hafi átt svo greiðan aðgang að hlustendum danskra útvarpsstöðva er lagið „Með kveðju til æskustöðvanna" raun- verulegt titillag plötunnar en texti þess er eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Lagið tileiknar hún Akureyri. Gullý sækir meðal annars efni í sinn innri mann og nánasta umhverfi. í texta sínum um laugardags- kvöld á Tásinge fjallar hún um daglegt líf sjómannskonunnar. Lífið sem orðið hefur henni öðru fremur að yrkisefni. „Ég sit hér alein heima og vonast eftir þér. Það er svo tómlegt inni og myrkrið sígur að. Laugardagur líður eins og svo oft fyrr og haustið knýr á mínar dyr. Gönguferð f húminu með hundinn mér við hlið. Það er svo rótt og hljóðlátt í götunni er ég bý. Laugardagur líður eins og svo oft fyrr og haustið knýr á mínar dyr. Þú ert svo langt í burtu ég hvísla nafn þitt blítt og langt er liðið síðan ég hef í faðmi þínum hvílt. Ég loka fyrir sjónvarpið og tek gítarinn fram, því bráðum fer að vetra og þú kemur minn vinur heim. Ég geng með mínar hugsanir með vindinn í mitt fang. Ég týni nokkrar rósir og fer með hundinn heim. Laugardagur líður eins og svo oft fyrr og haustið knýr á mínar dyr.“ Lífið er meira en hin langa bið Þannig hljóðar texti Gullýar Hönnu við lag- ið „Det er en lórdag aften“ í lauslegri þýð- ingu en hún semur flesta texta sína á dönsku. Blaðamaðurinn Helle Juhl segir meðal annars í grein um Gullý Hönnu, sem birtist í tímaritinu Femina á síðastliðnu sumri, að líf hennar snúist um biðina eftir manninum, sem kemur heim af sjónum og rekur undirtóninn í textum hennar að lífi sjómannskonunnar. Hún leggur einnig áherslu á það hlutverk sitt með því að flytja lag Jóhanns Helgasonar, Söknuð, á nýju plötunni og hefur snúið texta Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar á dönsku. „Jeg savn- er dig“. En í lífi Gullýar Hönnu leynist margt fleira en hin langa bið þótt hluti af textum hennar fjalli um tómleikann en einnig von- ina sem fylgir því að eiga sér ástvin á hafinu víðs fjarri heimahögum. En hver þátturinn er sterkari í fari hennar. Þáttur sjómanns- konunnar og húsmóðurinnar á Tásinge við Svendborgarsund, sem hinn danski blaða- maður hreifst svo af eða þáttur lagahöfund- arins og söngkonunnar, sem nú vermir „Dansktoppen". Við ræddum þetta á kvöldgöngu á Troense Strandvej í vikunni áður en platan hennar „Með kveðju til heimahaganna" kom út. Gullý Hanna stansaði og horfði um stund út á sjóinn og bátana sem spegluðust í haf- fletinum í mildu tunglsljósinu. „Ætli þeir skipti mér ekki nokkuð jafnt á milli sín,“ sagði hún og bætti síðan við að líklega styrktu þeir hvor annann. „Gengum syngjandi um göturnar og gerðum símaat“ En aftur til fortíðarinnar. Til bæjarins sem Gullý Hanna sendir kveðjur með þessari nýju plötu. Syðri brekkan á Akureyri á Laugardagur 30. nóvember 1991 - DAGUR - 13 )) Ætli ég sé ekki dálítill strákur í mér • 11 • • •• 1 Q A K1U nrltl rr P A1 r/l A Frx 1 D n rt f" 11 rl'Pmie kaJmilií’lííi lionnor hiii !/■£« r q m L /| n eoil/ir I cl/rifo m ornon 1 iÁlol/r\rf T íAnr ol/l/i i;al f,, L *-n Ar, A nnv mnlx. tí - segir Akureyringurinn og söngkonan Gullý Hanna Ragnarsdóttir, sem býr í Svendborg á Suður-Fjóni og er nú á „Dansktoppen“ með eitt laga nýrrar plötu sinnar sjötta og sjöunda ártugnum. Hávaxin stelpa að leika sér með strákunum. Örlítið hærri en flestir þeirra. En gefur þeim ekkert eftir í ærslagangi hinna daglegu leikja. Hún seg- ist alltaf hafa leikið sér meira með strákum en stelpum sem barn. „Ég var ekkert sér- lega kvenleg í þá daga. Fremur óvær og erf- ið í bernsku og hávaðasöm í skóla. Ég kom oft heim óhrein og illa útlítandi eftir ærsl og leiki í hverfinu, sem þá var að byggjast og var fullt af spýtnabraki og moldarhaugum. Lítill vandi var að finna spýtubúta og við stunduðum skilmingar í grunnum og hálf- byggðum húsum. Mæður vinkvennanna gengu jafnvel svo langt að vara dætur sínar við mér. Þær skyldu ekki vera með henni Gullý. Hún leikur sér alltaf með strákunum. En ég átti líka góðar vinkonur. Við mynd- uðum ágæta klíku og brölluðum ansi oft sitthvað saman. Við gengum meðal annars syngjandi um göturnar og elskuðum að gera símaat." En þessi ævintæýraþrá, sem fékk útrás í ærslum og leikjum í hverfi framtíðar- innar á syðri brekkunni átti sér meiri fram- tíð í lífi Gullýjar Hönnu. Hún hefur fylgt henni í gegnum tíðina og stutt hana til að ryðja áhugamáli sínu leiðina til veruleikans. Helga Haraldsdóttir á Akureyri er æskuvinkona Gullýar Hönnu. Hún segir að þær hafi hist fyrst fimm eða sex ára gamlar. „Ég var á sleða með yngri systur minni niðri í Laugagötu og hitti þá þessa stelpu, sem einnig var með systur sinni á sleða. Við fór- um að tala saman og þá kom í ljós að hún var að flytja í hverfið." Helga lýsir Gyllý Hönnu sem mjög hlýrri manneskju en einn- ig miklum grallara. „Ég sakna hennar oft - ekki síst grallarans í henni,“ segir Helga. Hún rifjaði upp ýmis strákapör þeirra frá fyrri árum og sagði að leikirnir í grunnum og á moldarhaugum hverfisins væru síst orð- um auknir hjá vinkonu sinni. Gullý Hanna hefði stundum verið fljótfær og orðhvöt en ætíð hefði verið stutt í gamansemina og hlýjuna undir niðri. Helga sagði að ekki hefði komið sér á óvart þegar Gullý Hanna hóf opinberan söngferil sinn. Söngurinn hafi alla tíð átt djúpar rætur í henni og þær vin- konurnar hafi oft sungið saman sér til gam- ans á unglingsárunum. „Af moldarhaugum í sveitina“ Eftir bernskusumurin á byggingarárum syðri brekkunnar tók sveitin við. Gullý Hanna var mörg sumur í sveit. Strax og skólanum lauk á vorin var hún farin. Engin bönd héldu henni og hún segist eiga margar góðar minningar frá þessum sumrum. Hún var á nokkrum sveitabæjum á bernsku- og unglingsárunum; Tungufelli í Svarfaðardal á tíunda og ellefta ári, síðan tvö sumur á Stóruvöllum í Bárðardal og tvö sumur á Bustarfelli í Vopnafirði. Gullý Hanna kveðst búast við að ævintýraþráin hafi togað sig í sveitina og lífið þar hafi alltaf átt vel við sig. Sveitadvölin hafi því einnig átt þátt í að viðhalda ævintýramennskunni, sem hófst með þátttöku í leikjum strákanna á moldar- haugum og í húsgrunnum á syðri brekkunni á Akureyri. Hún hafði sveitina í huga þegar hún samdi lag við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi um póstmanninn. Manninn sem flutti dreifbýlisfólkinu fregnir fyrr á tímum. Að loknu gagnfæðaprófi fór Gullý Hanna til náms við Húsmæðraskólann á ísafirði. Þar upplifði hún hið hefðbundna húsmæðra- nám áður en það vék fyrir kröfum breyttra tíma. Gullý Hanna ræddi um tímann á ísa- firði. Skemmtilegan tíma þótt hún hafi ákveðið að láta ekki staðar numið á ævin- týrabrautinni og stofna til bús og barna við svo búið eins og algengt var á þessum árum. Haustið eftir ísafjarðardvölina hélt hún til Noregs og settist þar á skólabekk í Lýðhá- skóla. „Du kom sejlende ind i mit Iiv“ Noregsdvölin varð þó ekki upphafið að bú- setu Gullýar Hönnu á erlendri grund. Hún lenti síðar í þeim ævintýrum er leiddu hana til Danmerkur og urðu þess valdandi að hún settist að á Tásinge á Suður-Fjóni. Hún réð sig sem þernu á Gullfoss og eftir sumarið á sjónum tók líf hennar nýja stefnu. Þar hófst hið eiginlega lífsævintýri Gullýjar Hönnu Ragnarsdóttur sem danskir útvarpshlust- endur hafa kosið í fyrsta sæti vinsældalista dægurtónlistarinnar. Ævintýrið byrjað á siglingum á milli Reykjavíkur, Edinborgar og Kaupmannahafnar sumarið 1971. Gullý Hanna segir að fljótlega eftir að hún kom um borð í Gullfoss hafi hún tekið eftir myndarlegum pilti um borð sem meðal ann- ars vann við að spúla dekkið. Trúlega hafi hann tekið eftir sér um svipað leyti því þau hafi fljótlega horfst í augu og augnaráðið orðið að ást við fyrstu sýn. Gullý Hanna lýs- ir fyrstu kynnum af eiginmanni sínunt á nýju plötunni „Kærlighed ved fprste blik“. í upp- hafi textans segir hún hann hafa komið sigl- andi inn í líf sitt og síðar spyr hún áheyrand- ann hvort hann trúi á ást við fyrstu sýn. Svar hennar „Det g0r jeg, Det g0r jeg...“ er síð- an endurtekið sem einskonar viðlag í laginu sem hljómað hefur í efstu sætum á vinsælda- listum danskra útvarpsstöðva að undan- förnu. „Þeir fluttu okkur til Danmerkur - með viðkomu á Akureyri“ Síðan þetta sumar hafa leiðir þeirra Gullýar 'Hönnu og Gísla legið saman. Haustið eftir hóf hann nám í Stýrimannaskólanum en hún fór að starfa á skrifstofu Skipadeildar Sambandsins sem nú heitir Samskip. „Ég fór því ekki langt frá sjómennskunni. Var aðeins á þurru landi,“ segir hún og brosir og horfir aftur út á sundið undan Tásinge. „Ég held að þeim hjá skipafélaginu hafi líkað ágætlega við mig. Að minnsta kosti fluttu þeir okkur ókeypis frá Reykjavík til Dan- merkur þegar við yfirgáfum landið. Meira að segja með viðkomu á Akureyri,“ segir Gullý Hanna á sinn sérstaka og glettnislega máta. s „Eg er líka kjarklaus og myrkfælin“ Ef af hverju Danmörk? spyr ég þegar við erum snúin heim á leið á kvöldgöngunni. Þeirri leið sem Gullý Hanna segist ganga svo oft á vetrkvöldum. „Mig hafði alltaf langað til að búa í ein- hverju Norðurlandanna og tækifærið gafst þegar Gísli fékk vinnu, sem stýrimaður hjá dönsku skipafélagi árið 1975. Við bjuggum í fyrstu í Ollerup hér á Suður-Fjóni. Gísli var á sjónum og dvalirnar heima voru skammar. Ég var því mjög oft ein með eldri drenginn okkar sem þá var á fjórða ári. Þrátt fyrir að þessi ævintýraþrá hafi búið í mér hef ég allt- af verið fremur kjarklaus í aðra röndina og sérstaklega myrkfælin. Ég hef aldrei getað losað mig til fulls við þann ótta sem fylgir myrkrinu. Þarna var ég. Alein með barnið í ókunnu landi og þessi ótti tók að ásækja mig. Ég lokaði mig inni og lífið varð sífellt erfiðara. En við vorum með nokkuð gott húsnæði og að lokum ákvað ég að leigja her- bergi út. Ég var heimavinnandi á þessum tíma og hafði því ekki sömu tækifæri til þess að blanda geði við fólk og til dæmis námsmenn. Við bjuggum í Ollerup til 1980 en fórum þá að leita eftir öðru húsi og fund- um það að lokum hér á Tásinge.“ íslenskur Onedin í Suðurskautsísnum En líf Gullýar Hönnu hefur ekki alltaf verið að kveðja og bíða endurfunda. „Farvel og pá gensyn“. Hún hefur einnig farið í sigling- ar með manni sínum. Langa leiðangra um heimshöfin. „Á meðan drengirnir voru litlir og ekki bundnir við skóla var auðveldara að taka sig upp og vera lengri tíma í burtu. Ég fór þrisvar í langferð með honum og þá tók- um við drengina með. í eitt skiptið til Ástralíu. Sú ferð tók um hálft ár og skömmu eftir að við mæðginin fórum frá borði fór Gísli með skipið til Suðurpólsins. Þar sat hann fastur í ís um tíma og í frétta- sendingum var talað um þennan íslenska Onedin í Suðurskautsísnum en Onedin er nafn á frægum sjónvarpssjóara, sem margir íslendingar muna eflaust eftir. Hann var ljóshærður eins og Gísli. Síðan fórum við fjölskyldan með honum í siglingu til Suður- Ameríku og Afríku auk þess sem ég hef far- ið með honum í nokkrar Grænlandsferðir.“ Hvernig líkaði grallara af syðri brekkunni og sveitakonu úr norðlenskum dölum og fjörðum að vera til sjós. Ekkert nema hafið og himinninn fyrir stafni vikum saman og vera auk þess með tvo litla drengi með sér um borð. „Þetta voru yndislegir tímar. Ég hef aldrei verið sjóveik og mér leið mjög vel. Ég fann heldur ekki fyrir neinum erfiðleikum með að hafa drengina hjá mér við þessar heimilislífi hennar. Því lífi sem hún sækir svo margar myndir til í tónlistarsköpun sinni. Gullý Hanna segir það stjórnast mikið af vinnutíma eiginmannsins. Þar sem hann sé oft langtímum saman í burtu, oft nokkra mánuði í einu, reyni þau að taka sér frí sam- an þegar hann er í landi og hreinlega njóta þess að vera heima. „Ég hef ekki unnið úti fasta vinnu nema í um þrjú ár af sextán hér f Danmörku," segir Gullý Hanna. „Ég hef gaman af því að hafa mikið að gera en ég er ekki fyrir stanslausa streitu. Auk þess hent- ar starf frá níu til fimm sjómannskonunni illa.“ Gísli var á sjó og hélt skipi sínu þessa daga, sem Gullý Hanna var að undirbúa útkomu nýrrar hljómplötu sinnar, við akkeri undan strönd Frakklands og beið fyrirmæla skipafélagsins um hvert skyldi næst halda. Skipafélög nota gjarnan þessa aðferð að láta skipin liggja við akkeri á meðan beðið er eftir farmi til þess að spara hafnargjöld. Gullý Hanna vinnur nú fulla vinnu utan heimilis auk tónlistarinnar. Auk þess að sinna starfi sínu á spítalanum í Svendborg frá níu til fimm, varð hún að taka þátt í hluta skipulagningarinnar varð- andi kynningu plötunnar. Draumurinn uppfylltur Platan kom út á föstudegi. Kynning á útgáf- unni hófst um borð í víkingaskipi, safngrip, sem var siglt frá smábátahöfninni í Svend- borg til Luneborgar, bæjar norðar á hinni fjónsku strönd, þar sent kynningin hélt áfram með blaðamannafundi. Um borð voru tónlistarmenn, sem unnu að plötunni með Gullý Hönnu auk blaðamanna. Kvöld- ið fyrir plötukynninguna átti Gullý Hanna skrifa gjarnan 120 jólakort. Líður ekki vel ef ég næ ekki að senda öllum kveðju en það er dálítið erfitt að finna tíma til þess að sinna þessu. Ég hef einnig mjög gott sam- band við skólasystkini mín. Ég hef hitt þau nokkrum sinnum á undanförnum árum. Þegar við vorum tuttugu og tuttugu og fimm ára gagnfræðingar og síðan hélt árgangurinn minn - 49 árgangurinn, upp á sameiginlegt fertugsafmæli í golfskálanum á Akureyri. Mér finnst eins og tíminn hreinlega skrúfist til baka er við hittumst. Ég man að þegar ég kom heim fyrir tuttugu ára afmælið þá svaf ég lítið síðustu næturnar fyrir tilhlökkun. Ég skynja mjög sterkt þessar hlýju móttök- ur frá gömlum vinum og skólasystkinum. Þær hafa ef til vill meiri þýðingu fyrir mig af því ég bý svo langt í burtu. Mér finnst sér- stakur andi vera yfir 49 árgangnum og ég er stolt yfir því að eiga svona samrýmda skóla- félaga. Ég er einnig stolt yfir heimkynnum mínum og stolt yfir því að vera íslending- Gullý Hanna er tilfinningamanneskja. Hún hefur meðal annars samið lag við ljóð Hugrúnar, Fillipíu Kristjánsdóttur, um móður drykkjumannsins og flytur það á hinni nýju plötu. í ljóðinu er að finna raun- sæja lýsingu á konu sem tapað hefur því eina sem hún átti á vit Bakkusar konungs en býður og lætur ekki af voninni um að dreng- urinn hennar losni úr viðjum þeirra örlaga og snúi til baka. „Ég hef verið spurð hvers vegna ég hafi valið þetta ljóð. Mér finnst það fallegt. Vonin í því höfðar til mín og hefur haft mikil áhrif á mig. Ég veit að margar mæður eiga þessa sorg í hjarta sínu.“ Víkingaskipið leggur úr höfn í Svendborg áleiðist til Luneborgar þar sem kynning plötunnar fór fram með blaðamannafundi. aðstæður. Við höfðum góða íbúð í skipinu og Gísli hefur alltaf verið mikið fyrir að sinna þeim.“ Gullý Hanna sækir albúm með fjölskyldumyndum frá þeim tíma og við flettum þeim yfir kaffinu að göngutúrnum um Troense Strandvej loknum. Albúmin eru einn þáttur í lífi Gullýjar Hönnu. Hún er safnari og á síðunum rná rekja sögu hennar - næstum lið fyrir lið. Hún geymir líka öll bréf. Hún segist elska að fá bréf að heiman. Sérstök stemmning sé ætíð á aðfangadagskvöld að opna og lesa öll bréf sem hafi borist. „Það er stór hátíðleg stund.“ Gullý segir að allt þetta lesmál sem hún hefur fengið til sín á þessum 16 árum í Danmörku sé að verða nokkuð plássfrekt og eiginmanninum finnist stundum alveg nóg um. „Gaman af því að hafa mikið að gera en er ekki fyrir stanslausa streitu“ En áður en skilið er við sjómannskonuna í Svendborg og farið að tala um tónlistar- manninn á sama bæ berst spjallið yfir kvöld- kaffi með „lagkage“ á íslenska vísu að leið til Luneborgar. Að leggja síðustu hönd á undirbúning og ég slóst með í förina. Gullý Hanna kvaðst hafa sungið frá því hún man eftir sér og lengi hafa verið búin að ganga með þann draum að gefa út plötu þegar hún lét slag standa fyrir tveimur árum og réðst í útgáfu fyrstu plötunnar. Hún sagðist lengi hafa verið óákveðin hvort hún ætti að leggja í þetta en eiginmaðurinn hafi hvatt sig óspart og sagt að ekki væri eftir neinu að bíða með að ráðast í þetta verk- efni. „Ég gaf „Dr0mmen“ út sjálf en ég hef útgefanda að „Hilsen til mins hjemstavn“. „Elska að vera frændrækin“ Eftir því sem árunum erlendis fjölgar verð- ur hún var við meiri söknuð eftir heimaland- inu. „Ég gæti vel hugsað mér að búa hálft árið heima og hinn helminginn hér.“ Og plötumslagið ber merki þessara tilfinninga því á bakhlið þess er mynd sem eiginmaður hennar tók í Eyjafirði. „Ég hef oft haft heimþrá og sakna vina og kunningja minna heima á Islandi. Ég elska að vera frændræk- in og samband mitt við æskuvinkonurnar er mjög gott og tryggt. Gefur mér mikið. Ég Gullý Hanna hefur samið lög við nokkur Ijóða Jónasar Hallgrímssonar og Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, sem hún segir að sé sitt uppáhaldsskáld. Á nýju plötunni eru tvö laga hennar við ljóð Davíðs, Minn- ing og Póstmaðurinn, en á fyrri plötu sinni flutti hún einnig lög við nokkur ljóða hans. Tónlist Gullýjar Hönnu er létt og grípandi. Hún fylgir hefðbundnum vísnasöng á köfl- um en spinnur oft léttari þráð inn í lög sín, sem veldur því að þau falla vel að mildri rödd hennar. Þótt hún hafi farið aðeins meira út í poppið á þessari plötu vill hún alls ekki kalla sig poppsöngkonu. En hvað segir Gullý Hanna um framhald- ið. Ætlar hún að vinna að þriðju plötunni. „Ég er ekki hætt,“ segir hún eldsnöggt og trúlegt er að hún kveði sér hljóðs á nýjan leik í lögum og ljóðum - jafnvel innan skamms. „Ég get verið hræðilega ákveðin“ Okkur dvaldist í Luneborg fram eftir kvöldi. Ganga þurfti frá ýmsum lausum endum varðandi morgundaginn og Gullýju Hönnu fannst greinilega að samstarfs- mennirnir gætu hraðað sér meira. „Ég ætla ekki að vera hér í allt kvöld,“ sagði hún hátt á íslensku og ákveðnin í röddinni leyndi sér ekki. Danirnir skynjuðu alla vega hljómfall- ið og málin tóku að leysast. A leiðinni til baka ræddum við um persónuna Gullýju Hönnu Ragnarsdóttur. „Ég er eflaust marg- breytileg,“ sagði hún um leið og hún beindi nýja bílnum sínum inn á aðalveginn til Svendborgar. „Ég get verið hræðilega ákveðin - eins og áðan. Ég ætlaði alls ekki að fara að hanga þarna í allt kvöld. Þeir voru ekkert að flýta sér að ljúka þessu. En ég er líka viðkvæm - get grátið. Ekki síst þegar ég sé að einhverjir eiga erfitt. Svona andstæður eru til í mér. Alveg eins og með ævintýraþrána - ég er stundum hræðilega kjarklaus - til dæmis hef ég aldrei getað losnað við ntyrkfælnina. En ég hef alla tíð haldið mínum stíl í þeim breytileika, sem annars hefur einkennt líf mitt og sá stíll breytist ekkert. Ég hef aldrei látið tísku- sveiflur á hverjum tíma hafa áhrif á hann.“ „Ætli ég sé ekki dálítill strákur í mér“ Ég minnist stelpu - einhvern tímann á æsku- árunum - um verslunarmannahelgi - á leið um Skagafjörð - fyrir neðan Varmahlíð mætti ég henni - einni á ferð - gangandi - með engan farangur. Ég rifjaði þetta atvik upp í bílnum á leið- inni frá Luneborg. Dálítið dæmigert. Ef til vill ekki fyrir sjómannskonuna í Svendborg. Eða dægurlagasöngkonuna á Tásinge sem nú er á „Dansktoppen". En dæmigert fyrir grallarann af syðri brekkunni á Akureyri. „Ég var alltaf haldin ævintýraþrá. Mér fannst svo spennandi að ferðast á puttanum. Ég hafði húkkað far með einhverjum strák- um úr Reykjavík, sem voru á svörtum amerískum kagga. Þeir veltu bílnuin í Vatnsskarðinu og þar með lauk samskiptum mínum við þá. Já - ég var með lítinn eða engan farangur með mér. Ég fékk síðan far á puttanum til Siglufjarðar og þaðan heim til Akureyrar eftir einn eða tvo daga. Reykjavíkurferðin snérist í öfugra átt. Ég man einnig eftir því að ég fór með einni vin- konu minni á puttanum til Vopnafjarðar og við sátum í grenjandi rigningu á vörubíls- palli.“ Gullý Hanna heldur mikið upp á fjólu- bláan lit. Klæðist gjarnan fötum þar sem fjólan er áberandi. Heimili hennar ber einnig vott um að þarna sé um ákveðið persónulegt einkenni að ræða. Fjólubláu og bleiku hlutirnir eru áberandi. Smáhlutir sem veita hýbýlunum hlýju - matar- og kaffistell að fataskápunum ógleymdum. „Ég held mikið upp á fjólubláa og bleika litinn. Hann er orðinn eitt af einkennum mínum,“ segir Gullý Hanna. Gestkvæmt var á heimili Gullýjar Hönnu þetta síðasta kvöld fyrir plötukynninguna og eins og íslenskri húsmóður sæmir varð fólk að þiggja veitingar. Engu líkara var en kjúklingarnir fjölguðu sér sjálfir í ofninum og síðar um kvöldið kom vinkona hennar Bergþóra Árnadóttir, söngkona, ásamt dönskum sambýlismanni. Þau eru búsett á Jótlandi og komu til að vera viðstödd plötu- kynninguna að morgni. Og síminn hringir án afláts. Samstarfsmenn - útgefandinn - Danmarks radio. Hún á að mæta þar klukk- an sex að morgni. Gullý Hanna hefur greini- lega rétt fyrir sér þegar hún segist geta notið þess að hafa mikið að gera. Þrátt fyrir að liðið sé fram á nótt er enn verið að störfum. Dálítið íslenskur vinnutími. Og hún kann greiniiega vel við sig innan um tónlistar- og tæknimenn, sem tengjast plötuútgáfunni á einhvern hátt. Stelpan sem lék sér með strákunum í húsgrunnum og á moldarhaug- um í bernsku og gekk í öll verk með strák- unum á sveitabæjum í æsku var greinilega að verki með tónlistarstrákunum. Er það ekki rétt? Og ekki stendur á svari Gullýjar Hönnu. „Þegar ég var í Vopnafirði þá vann ég alltaf sömu verk og strákarnir - ætli ég sé ekki dálítill strákur í mér.“ Viðtal: Þórður Ingimarsson

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.