Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 20

Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 20
20 - DAGUR - Laugardagur 30. nóvember 1991 Bílar Citroen XM Mælar eru skýrir og vel staðsettir og í stýrishjólinu miðju eru takkar til að stjórna útvarpinu. Vélin skilar sínu nokkuð vel, þótt bíllinn sé þungur. Citroen hefur lengi haft nokkra sérstöðu meðal bílaframleið- enda. Citroen bílar hafa verið tæknilega frábrugðnir öðrum bíl- um og útlit þeirra hefur einnig verið óvenjulegt, nær undantekn- ingalaust bæði fallegt og nýtísku- legt, en jafnframt „klassískt". Það er reyndar ekki að undra því einn þekktasti „bílaarkitekt" heims hinn ítalski Bertone hefur oftast lagt þar gjörva hönd á plóginn. Einn þeirra bíla sem nú teljast til klassískra ökutækja er Citroen DS, sem kom fyrst á markaðinn 1955 og var framleiddur í 20 ár. Þá tók við Citroen CX og síðan Citroen XM. Vökvafjöðrunin sem Citroen hefur haft einkaleyfi á allt til þessa dags náði fyrst hylli bílkaupenda í DS bílnum. Vökva- kerfið hefur þróast verulega í tímans rás, ýmsir gallar hafa ver- ið lagfærðir og kerfið fullkomn- að. Eg hef þó ekki hingað til ver- ið einlægur aðdáandi Citroen bíla, hefur þótt frágangur of lak- ur og vökvakerfið of mjúkt við sumar aðstæður og of hart við aðrar. Nýjasta gerð af stærsta bíl Citroen heitir Citroen XM. Lið- lega tvö ár eru liðin frá því að bíllinn kom á markaðinn og hlaut þá verulega athygli enda var fyrirrennarinn, Citroen CX, orð- inn talsvert aldurhniginn. Nokkr- ar gerðir eru til af Citroen XM, bíllinn fæst með 3 gerðum bens- ínvéla og einni díselvél. Bíllinn sem ég fékk til umráða var með 2,0 lítra bensínvél og sjálfskipt- ingu og hann var einnig í útgáfu sem nefnist Ambiance, en þeirri nafngift fylgir mikill útbúnaður til þæginda og öryggis. Skemmst er frá því að segja að ég mátti endurskoða frá grunni hugmyndir mínar um Citroen að loknu stefnumóti við þetta glæsi- lega, rúmgóða og vel búna franska ökutæki. Citroen XM er stór bíll. Rýmið bæði fyrir fólk og farangur er mikið og vel búið. Sætin eru nú stinn og styðja vel við þá sem í þeim eru og óvenju gott rými er fyrir 3 farþega í aftursæti. Allar hurðir eru stórar og opnast vel og afturhlerinn er þannig útbúinn að innan við hann er aukarúða sem kemur í veg fyrir að norðangarr- inn kæli farþegana niður í núll ef opna þarf farangursrýmið. Stjórn- tækin eru staðsett eins og vera ber, og þau auðveld í notkun og er þá af sem áður var hjá Citroen. Mælar eru einnig skýrir og vel staðsettir. Útsýnið er mjög gott enda gluggafletir stórir. Eina undantekningin er útsýnið aftur úr bílnum sem er svolítið þröngt. Bíllinn sem ég ók var hlaðinn rafdrifnum þægindum svo sem sjálfvirku hitakerfi, fjarðstýrðri samlæsingu, rafstýrðum og hituð- um framsætum, rafstýrðum spegl- um og rúðum, svo eitthvað sé nefnt. Þá er ótalið útvarp sem stjórna má frá tökkum á miðju stýrishjólinu? (Líklega ekki eins vitlaust og það lítur út fyrir.) Frágangur Frakka er nú all- góður en þó e.t.v. ekki alveg óaðfinnanlegur. Þægindin í Citroen XM eiga þó enn frekar rætur sínar að rekja til fjöðrunar og aksturseiginleika. Vökvakerfið, sem stýrir fjöðrun- inni, hemlunum og stýrinu, vinn- ur afar vel í þessum stóra bíl. Fjöðrunin hefur tvær stillingar (Hydractive) mjúka og stífa. Sú mýkri ljær bílnum ótrúlega mýkt, einkum á stórum, grófum ójöfn- um. Hraðahindranir væru t.d. fullkomlega gagnslausar ef allir ækju Citroen XM. Hinn harði titringur á ákveðinni gerð malar- vega sem mér hefur hingað til fundist lýta fjöðrunareiginleika Citroen er nú nær alveg horfinn og veghljóð er afar lítið. Stífari stillingin er ætluð til meiri tilþrifa í akstri á krókóttum vegum og veitir ökumanni staðfastari til- finningu fyrir veginum. Ennfrem- ur vinnur vökvakerfið á árang- ursríkan hátt gegn þyngdarlög- málinu og kemur nær alveg í veg fyrir að bíllinn hallist í beygjum. Það er eiginlega ótrúlegt hvað hægt er að bjóða þessum stóra bíl krappar beygjur án þess að hann missi veggrip eða valdi ökumanni vandræðum. í báðum stillingun- um heldur vökvakerfið bílnum alltaf í sömu hæð frá vegi án tillits til hleðslu og svo er auðvitað hægt að hækka og lækka bílinn ef menn vilja, allt upp í „slyddu- jeppahæð". Við þetta allt má svo bæta stýri sem verður nákvæmara með vaxandi hraða og hemlakerfi með læsivörn (ABS). Samanlagt hefur þetta í för með sér aksturs- eiginleika sem eru með því al- besta og öruggasta sem undirrit- aður hefur reynt. Citroen XM er rásfastur eins og „eimlest" og liggur eins og „klessa" við nær allar aðstæður. Citroen XM fæst með nokkr- um vélargerðum, þ.á m. 3,0 lítra V-6 sem vafalaust er helst sam- boðinn aksturseiginleikum bíls- ins. XM-inn er allþungur og því hafði ég nokkrar efasemdir um að 2 lítra vél væri fullnægjandi. En vélin skilar sínu nokkuð vel, þó hlutverkið sé þungt. Hún er dálítið hávær og hefur fremur grófan gang, en það heyrist eigin- lega aldrei inni í bílnum, heldur einungis úti og það skapraunar því ekki ökumanni eða farþegun- um að öðru jöfnu. Auðvitað er viðbragðið og hröðun ekki eins og í sportbíl en þó alveg viðun- andi og eiginlega er bíllinn miklu léttari og liprari í akstri en búast má við miðað við stærðina. Bíll- inn sem ég ók var sjálfskiptur og ég er viss um að beinskipting skil- ar betur því sem vélin býr yfir. Sjálfskiptingin er þó líklega fremur viðeigandi í svona lúxus- kerru, sem hlaðin er þægindum. Hún er 4 þrepa, vinnur ágætlega, hefur mjúkar skiptingar og er þægileg í notkun. Aksturinn í Citroen XM var mér óvænt ánægja. Forverinn, Citroen CX, var að sönnu ágætur bíll og vissulega óvenjulegur, en þó langt frá því að vera jafn ánægjulega óvenjulegur og XM. Bíllinn er stór, rúmgóður og hlaðinn þægindum og hefur frá- bæra aksturseiginleika. n , - - 1 . . T — Óska eftir að ráða vant sölufólk Bæði dag- og kvöldvinna. Góö sölulaun. Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags merkt „Sölu- fólk“ fyrir 5. desember. fl n á u U F fjórðungssjúkrahúsið IOCiJ ÁAKUREYRI /leinatæknir óskast Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. msóknarfrestur er til 10. desember 1991. pplýsingar veitir yfirmeinatæknir í síma 96-22100. jórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Móðir okkar, KRISTBJÖRG SVEINSDÓTTIR, Hafnarstræti 15, Akureyri, sem lést 22. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 13.30. Börn hinnar látnu. Ástkær eiginkona mín, tengdadóttir, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BJÖRG GUÐNADÓTTIR, verður jarðsungin miðvikudaginn 4. desember kl. 14.00 frá Svalbarðskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Sigfús Árelíusson, Lára Þorsteinsdóttir, Lára Kristín Sigfúsdóttir, Halfgrímur Haraldsson, Hafsteinn Sigfússon, Eygló Kristjánsdóttir, Halldór H. Sigfússon, Svana Jónsdóttir, Sigrún H. Sigfúsdóttir, Ari Fossdal, Sólveig Sigfúsdóttir, Reynir Jónsson og barnabörn. Gerð: Citroen XM 1.0 Injection (Ambiance), 5 manna, 5 dyra fólksbíll, vél að framan, framhjóladrif. Vél og undirvagn: 4 strokka, fjórgengis bensínvél, vatnskæld, yfirliggjandi knastás, bein eldsneytis-innspýting, slagrými: 1998 cm3, borvídd: 86,0 mm, slaglengd: 86,0 mm, þjöppun 8,8:1,122 hö við 5600 sn/mín, 170 Nm viö 4000 sn/mín. Hvarfakútur (katalysator). Drif á framhjólum, 4-þrepa sjálfskipting. Sjálfstæð fjöðrun að framan með þríhymdum þverarmi að neðan , McPherson-legg og vökva-loftfjöðrun. Að aftan langsarmar með vökva-loftfjöðr- un. Handvirk hæðarstilling og sjálfvirk hleðslujöfnun. Aflstýri, aflhemlar, diskar að framan og aftan, hemlalæsivörn, hand- bremsa á framhjólum. Hjólbarðar 205/60 R 15 V, eldsneytis- geymir 80 lítra. Mái og þyngd: Lengd 470,8 cm; breidd 179,4 cm; hæð 138,2 cm; hjólahaf 285,0 cm; sporvídd 152,0/144,7 cm; eigin þyngd ca. 1.377 kg; hámarksþyngd 1845 kg. Framleiðandi: Citroen (PSA), Frakklandi. Innflytjandi: Globus hf., Reykjavík. Umboð: Bifreiðaverkstæði Gunnars Jóhannssonar, Akureyri. Verð: Ca. kr. 2.370.000.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.