Dagur - 30.11.1991, Blaðsíða 21
Laugardagur 30. nóvember 1991 - DAGUR - 21
llNGLINGASÍÐAN
íris Guðmundsdóttir
ómstundostarf
Flestir unglingar eiga sér tómstundir. Sumum hentor að eyða þeim heima
hjó sér í ró og næði yfir góðri bók eða tónlist en aðrir vilja vinna í félags-
skap með öðrum. I bænum er starfandi fjöldinn allur af félögum og
klúbbum fyrir þó sem kjósa að taka þótt í einhverskonar félagsstarfi.
íþrótta- og tómstundaróð er með mörg nómskeið í gangi og fleiri eiga
eftir að hefja göngu sína í vetur. Reynt er að hafa úrvalið sem fjölbreytilegast
svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Flest nómskeiðanna eru ætluð fyrir
unglinga og eru þau nónast öll haldin ó vegum félagsmiðstöðvanna.
MálmsmíðQnámskeið
í LundarskólQ
Leiklistarnámskeið
í Dynheimum
Á námskeiðinu eru 25 stelpur og kennari
þeirra er Felix Bergsson, sem er nýútskrifað-
ur frá leiklistarskóla í Skotlandi.
Felix segir að tilgangur með svona nám-
skeiði sé að kenna leikræna tjáningu og að
kynna leikhús. Hann segir að það sé einnig
mikilvægt að stelpumar læri að skoða sjálfar
sig og lífið á annan hátt en þær eru vanar.
Reyna að líta tilveruna hlutlausari augum.
Til að þjálfa stelpumar í þessu voru þær
sendar út í bæ þar sem þær áttu að finna sér
einhverja manneskju sem þær áttu að skoða
með nýju viðhorfi og koma svo til baka og
leika það sem þær skynjuðu.
„Þetta var ótrúlega áhugavert og fyndið
og ég held að þær hafi haft gaman og gott af
þessu,“ segir Felix.
Á meðan á heimsókninni stóð var ýmis-
legt gert t.d. voru stelpurnar látnar lesa ljóð
tvær og tvær saman og leitast var við að láta
þær túlka textann. Tilgangurinn er að þjálfa
þær í að tala (lesa) hátt og skýrt. Síðan var
svokallað „spunaverkefni". I hverjum hópi
voru fjórar saman og verkefnið sem þær
fengu var „í sandkassa.“ Hver hópur leysti
þetta vel af hendi og hinir sem horfðu á
skemmtu sér konunglega.
Felix er ánægður með hópinn sem hann
segir að sé kröftugur og skemmtiegur en
hann saknar þess að hafa enga stráka.
- Opnar þetta námskeið einhverjar leiðir
fyrir stelpurnar?
Felix: „Flestar þeirra koma til með að
mynda kjarnann í leikklúbbnum Sögu þar
sem þær munu keppa um hlutverk í leikriti
sem sett verður upp eftir áramótin. Stelpum-
ar sem ekki fá hlutverk koma til með að
starfa að undirbúningi og því sem til fellur til
að halda leikklúbbnum starfandi. Það verða
næg verkefni fyrir alla.“
Kolbrún, Helga og Sigríður. Kolbrún er að byrja á nælu sem hún ætlar að gefa í jólagjöf,
Sigríður er að aðstoða hana og Helga er að klippa út silfur í hálsmen.
- Hverfinnst ykkur mesti vandinn við að smíða og hanna skartgrip?
Kolbrún: „Mér finnst erfitt að velja form en það er um að gera að nota hugmyndaflugið
og vera ekki hræddur við að prófa - þá gengur þetta vel.“
Helga: „Mér finnst erfitt að lóða saman og þvo eftir pússivélina en að öðru leyti er þetta
ekki svo erfitt.“
Gullsmíðastarfið heillar þær ekki en þeim þykir gaman að eiga hluti sem þær hafa smíðað
sjálfar.
Þröstur, Eydís og Helga.
LjósmyndQnámskeið
í Glerárskóla
Kennarar á ljósmyndanámskeiðinu eru Þór-
hallur og Golli.
Krökkunum er kennt að frantkalla og
stækka svarthvítar myndir sem þau taka
sjálf. Þau þurfa að taka myndir bæði úti og
inni til að átta sig á mismun á birtu. Þegar
mynd er framkölluð er hún sett í 7 mínútur í
framkallara , 5 sek. í stoppara, 2 mín. í fixer
og 10-15 mín. í skol (látið liggja í stanslausu
vatnsrennsli). Að lokum eru myndimar
þurrkaðar.
Krökkunum finnst mjög gaman og segj-
ast hafa lært mikið á þessu námskeiði. Þegar
námskeiðinu lýkur geta þau svo nýtt sér að-
Heiða og Heiðrún.
stöðuna sem er í skólanum en þar er allt sem
til þarf til að framkalla.
Þetta er þriðja námskeiðið sem haldið er í
málmsmíðum og hefur aðsókn á þau öll ver-
ið mjög góð. Leiðbeint er í undirstöðuatrið-
um í meðferð nýsilfurs, kopars og messings
sem felur í sér að saga málminn, lóða saman
með einföldum tinkveikingum, slípa og
„pólera“. Að því loknu er hluturinn tilbúinn.
Munimir sem stelpumar eru að smíða
núna eru mjög skemmtilegir og fallegir og
gefa tískuskarti ekkert eftir. Hugmyndimar
eru alfarið frá þeim sjálfum komnar. Á síð-
ustu námskeiðum hafa margir áhugaverðir
munir verið smíðaðir allt frá skarti upp í
skúlptúra og oft á tíðum er erfitt að sjá að um
er að ræða byrjendur í málmsmíðum.
Katrín. Hér er Katrín að pússa kross sem hún
var að ljúka við að smíða. Hún segir að það
sé ekki erfitt að pússa í slípibekknum þó
stundum verði hluturinn mjög heitur.
- Finnst þér erfitt að smíða skartgripi?
„Þetta er auðveldara en ég hélt en rosa-
lega ntikil nákvæntnisvinna og til að fá hlut-
inn fallegan þarf mikla vandvirkni."
Plötusnúðanámskeið
í Dynheimum
I gegnum tíðina hefur plötusnúðarstarfið
heillað marga og hafa færri en vildu komist
að. Það hefur nefnilega ekki þótt við hæfi að
hver sem væri fengi að „fikta“ í tækjunum.
Til að bregðast við því var ákveðið að efna
til námskeiða fyrir þá sem hefðu áhuga á að
læra að umgangast tækin. En þau eru bæði
viðkvæm og vandmeðfarin. Til að fá að spila
í félagsmiðstöðvunum þarf viðkomandi að
framvísa skírteini sem er afhent í lok nám-
skeiðsins. Nú er svo kontið að þetta er eitt
vinsælasta námskeiðið á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs.
í þetta skiptið eru Jón Baldvin Ámason
og Þorgríntur Hallsteinsson kennarar.
- Hvað þurfa krakkarnir að lœra til þess
að þau geti orðið plötusnúðar?
Jón: „Þau þurfa fyrst og fremst að kunna
fullkomlega á tækin, hvernig á að tengja þau,
stilla og umgangast enda viðkvæm og dýr
tæki. Síðan þurfa þau að geta spilað tónlist-
ina og skipt á milli laga án þess að eyða
myndist, kynnt lögin og sig sjálf. í lok nám-
skeiðsins verður síðan próf, bæði skriflegt
og verklegt. Krakkamir þurfa að geta staðið
skil á því sem ég nefndi áður og ef þau fá
undir 5 í einkunn þá eru þau fallin. Þau sem
ná og fá skírteini geta síðan spilað í félags-
miðstöðvunum.“
En hvað segja krakkamir?
Þóra Kristín: „Mér finnst rosalega gam-
an en við mættum fá að spila nteira. Eg er
svolítið smeyk við að skemma tækin en ég er
alveg að verða búin að læra á þau.“
Ásgeir: „Mér hefur ekki þótt sérstaklega
gaman og langar ekkert til að verða plötu-
snúður en ætla samt að prófa að spila í ein-
hverri félagsmiðstöðinni.“
Baldvin: „Mig langar til að verða plötu-
snúður á skólaböllunum í Gagganum og þá
nýtist þetta námskeið mér vel.“
- En kvíðið þið ekki prófinu?
Erlingur: „Nei en ég er samt ekki nægi-
lega vel undirbúinn en vona að þetta fari
vel.“
Birgir: „Mér finnst erfitt að tala í hljóð-
nemann og kvíði því.“
Eva og Freydís: „Nei alls ekki.“
1