Dagur - 28.12.1991, Side 7
Laugardagur 28. desember 1991 - DAGUR - 7
Fréttaannáll árið 1991
Það er við hæfí um áramót að líta um öxl og rifja upp
liðna atburði. Dagur hefur að venju, að aðstoða lesend-
ur sína við upprifjunina með því að stikla á stóru varð-
andi fréttir sem birst hafa í blaðinu það ár. Hér á eftir
fer slík upprifjun þar sem hver mánuður er tekinn
saman. Eflaust mun einhver sakna frétta í annál sem
þessum, enda er ekki hægt að minnast á allt sem skrifað
var um, en taka verður viljann fyrir verkið og vonum
við að einhver fróðleikur hljótist af.
Janúar
í miklu óveðri l'yrslu daga ársins raskaðist flugumferð verulega. Starfsmenn
flugvalla höfðu því í mörg horn að líta við að svara spurningum farþega en
það var ekki fyrr en 5. janúar sem byrjað var að fljúga milli Rcykjavíkur og
Akureyrar.
3. Segja má að útsíður Dags hafi
verið undirlagðar fréttum af
óveðri og áhrifum þess fyrstu
daga ársins. Þennan dag segir frá
miklu eignatjóni á Siglufirði í af-
takaveðri aðfaranótt 2. janúar og
þá er líka rætt við Ólaf Gauta
Sigurðsson, 17 ára pilt sem féll
100 metra í Burstafelli í Vopna-
firði á gamlársdag. Þá segir líka
að fæðingum á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri hafi fjölgað
mjög á árinu áður.
4. Áframhaldandi norðangarri,
veðurguðir hamla allri flugum-
ferð og mikið eignatjón í Húna-
vatnssýslum, segir í fyrirsögnum
á forsíðu. Á Húsavík varð að
skammta rafmagn til fyrirtækja
og íbúðahverfa og bændur not-
uðu haugsugur og dráttarvélar til
þess að knýja mjaltakerfin í
Reykjahverfi.
5. Óhemju tjón varð á línum
Laxárvirkjunar í óveðrinu undan-
farna daga og sömuleiðis ríkti
ófremdarástand í Eyjafirði vegna
rafmagnsbilana en tugir staura
brotnuðu og línur slitnuðu vegna
ísingar. Sömu sögu var að segja
af fleiri svæðum og þennan dag
segir veðurspáin, að veðrið verði
vont áfram.
6. Haft er eftir rafveitustjóra
ríkisins, að tjónið á rafveitukerf-
inu hafi verið það mesta frá upp-
hafi, en samkvæmt talningu brotn-
uðu 490 rafmagnsstaurar á Norð-
urlandi. Dökk mynd er dregin
upp í skýrslu Brunamálastofnun-
ar um Krossanesbrunann og
kemur þar fram hörð gagnrýni á
þá aðila sem báru ábyrgð á fyrir-
tækinu og uppbyggingu þess. Á
baksíðu segir að fjöldi farþega
sem beðið höfðu eftir að komast
með flugi til Reykjavíkur frá því
fyrir áramót, hafi ekki komist
fyrr en laugardaginn 5. janúar,
en daginn eftir var aftur orðið
ófært og enn einhverjir sem biðu
flugs. Þennan dag segir líka frá
því að á bensínstöðvum á Akur-
eyri hafi verið mikil eftirspurn
eftir gasi, rafhlöðum og vasaljós-
um frá fólki á rafmagnslausum
bæjum í nágrenninu.
10. Starfsmenn Viking Brugg
á Akureyri komu að vinnustað
sínum innisigluðum vegna tug-
milljóna króna vanskila fyrir-
tækisins við ríkissjóð. Þá voru
trillukarlar á Norðurlandi áhyggju-
fullir vegna nýafstaðinnar úthlut-
unar veiðiheimilda og funduðu
um málið á Akureyri.
11. Júgurbólga veldur stór-
tjóni hjá kúabændum og Orku-
stofnun hyggst bora í Öxarfirði
næsta sumar til þess að afla gagna
um gas og háhita.
12. Sagt er frá því að Slipp-
stöðina vanti 5-10 stálsmiði og
haft er eftir Sigurði Ringsted, að
verkefnastaða næstu mánaða
stefni í að verða góð. Þá er líka
til athugunar að stofna hlutafélag
um rekstur Eyjafjarðarferjunnar
Sæfara.
15. Iðja, félag verksmiðju-
fólks og Lífeyrissjóður Iðju,
gerðu kröfu um lögtak í Viking
Brugg vegna skulda fyrirtækisins
við Iðju. Krafan var tekin fyrir
hjá bæjarfógeta, en lögtakinu var
frestað. Verksmiðjan er á þess-
um tíma, enn lokuð. Þá segir að
daginn áður hafi verið haldin
friðarstund í flestum grunnskól-
um vegna yfirvofandi stríðshættu
við Persaflóa. Skíðasvæðið í
Hlíðarfjalli var opnað 13. janúar
og var mikil aðsókn gesta á fyrsta
degi.
16. Sverrir Leósson, formaður
Útvegsmannafélags Norðurlands
segir mönnum hægt og bítandi
vera að blæða út vegna loðnu-
veiðibannsins sem staðið hafði
frá því í desember og sjávarút-
vegsráðherra framlengdi daginn
áður um óákveðinn tíma.
Um 500 raflínustaurar brotnuöu í
ísingarveðrinu sem gekk yfir í byrj-
un janúar. Slæmt ástand skapaðist
víða vegna rafmagnsleysis, sérstak-
lega í sveitum, en starfsmenn raf-
veitna áttu annríkt við að koma lín-
um í nothæft lag. Endanleg viðgerð
á línuin stóð fram á sumar.
17. Á útsíðum eru fengin við-
brögð við loðnuveiðibanninu og
kemur mönnum saman um að út-
litið sé svart, erfitt verði að
standa við skuldbindingar hjá
verksmiðjum og Bjarni Bjarna-
son, skipstjóri Súlunnar EA segir
að sjávarútvegsráðherra verði að
skera á hnútinn.
18. Bjórverksmiðja Viking
Brugg hefur verið opnuð á ný eft-
ir tíu daga lokun, en fyrirtækið
gerði upp skuldir sínar við ríkis-
sjóð. Þá er sagt frá því að verð á
vinsælustu fasteignunum á Akur-
eyri nálgist verðlag á sambærileg-
um eignum í Reykjavík.
19. Eftir tíu ára hvíld, fór
Hekla að gjósa og féll gjóska frá
henni víða á Norðurlandi.
22. Enn gerir veður usla á
Norðurlandi og geysaði fárviðri á
Akureyri daginn áður. Nokkuð
tjón varð á húsum og bifreiðum
en vindhraði á Akureyrarflug-
velli mældist mestur 105 hnútar
eða tæplega 200 km á klukku-
stund. Þá sökk bátur á Hofsósi í
óveðrinu og sjómanns frá Greni-
vík var saknað eftir að trilla hans
fannst mannlaus við Gjögurtá.
Þá hvetur ríkisstjórn íslands
landsmenn til að spara eldsneyti
vegna stríðsins við Persaflóa en
óttast var að heimsmarkaðsverð
á olíu ryki upp.
24. Ríkisendurskoðun kemst
að þeirri niðurstöðu, að hlutur
ríkisins í Þormóði ramma hf. á
Siglufirði, hafi verið seldur á allt
of lágu verði. Fjármálaráðherra
er gagnrýndur harðlega fyrir
hvernig staðið var að sölunni.
25. Það vorar á Norðurlandi í
byrjun Þorra og mældist hiti á
Akureyri 10 gráður. Eyfirskir
kartöflubændur stokka upp dreif-
ingarkerfi sitt og framkvæma á
við flugvelli á Norðurlandi fyrir
tæpar 100 milljónir króna á ár-
inu.
29. Kylfingar halda Þorramót
í golfi í veðurblíðunni sem talið
var harla óvenjulegt miðað við
árstíma. Þá gengur vel hjá Leik-
félagi Akureyrar og Ættarmótið
eftir Böðvar Guðmundsson
stefndi í að verða vinsælasta verk
sem sett hefur verið upp hjá leik-
húsinu.
30. Meirihluti bæjarstjórnar
Akureyrar var harðlega gagn-
rýndur fyrir fjárhagsáætlun sem
nýlega var lögð fram. Minnihluti
bæjarstjórnar segir marga lausa
enda í áætluninni og að ekkert
bólaði á nýsköpun. Þá hamlar
hafís loðnuleit á vestursvæðum
en þar telja sjómenn að nokkuð
sé um loðnu, sem er andstætt því
sem fiskifræðingar hafa lialdið
fram.
Febrúar
3. Mjólkurkýrnar á Brakanda í
Skriðuhreppi í sérflokki á síðasta
ári, segir í fyrirsögn, þær mjólk-
uðu mesta magn sem sögur fara
af hérlendis árið áður.
5. En geysar óveður og varð af
mikið tjón á skíðasvæði Akureyr-
inga í Hlíðarfjalli, gríðarlegt
eignatjón varð líka á Blönduósi
og þakplötur, bílar, hænur og
heyvagn fuku um bæjarstæðið á
Koti í Svarfaðardal. Þá varð
sömuleiðis mikið tjón á Dalvík,
Grenivík og á Hofsósi og nær-
sveitum.
6. Brunamálastjóri segir and-
varaleysi forráðamanna Krossa-
nesverksmiðjunnar hafa boðið
upp á eldsvoða og telur hann að
full ástæða hafi verið til að reyna
að stöðva rekstur verksmiðjunn-
ar. Þá var talið að útlitið á næstu
grásleppuvertíð yrði gott og að
mun hærra verð fengist fyrir
hrognin.
7. Snjóleysi hamlar skíðafólki
á Akureyri að iðka íþrótt sína og
fékk ívar Sigmundsson, „Fjall-
kóngur“ dularfulla sendingu með
flugi frá Siglufirði. Reyndist það
vera kassi fullur af siglfirskum
snjó sem Kristján Möller sendi
honum í kjölfar frétta um snjó-
leysið.
8. Góð tíðindi berast úr ullar-
iðnaðinum því sagt er að 40
manns vanti til starfa hjá Álafossi
á Akureyri í kjölfar samninga við
Rússa.
9. Áframhaldandi hlýindi gera
að verkum að gróður tekur við
sér og sjá mátti allt að 15 cm há
grös í túnum. Þá voru menn farn-
ir að setja sumardekkin sín aftur
undir bíla sína. En Sigurlaug
„spákona“ á Kárastöðum spáði
því að trúlega myndi kólna um
miðjan febrúar og að marsmán-
uður yrði svalur. Reyndist hún
bara hafa nokkuð rétt fyrir sér
varðandi þetta.
13. íslensk refa- og minnka-
skinn seljast á góðu verði á skinna-
uppboði í Kaupmannahöfn og
var hækkunin mun meiri en menn
höfðu þorað að vona. Þá er á for-
síðu ljósmynd af norðlenskum
þokkadísum sem hyggjast keppa
með sér í Fegurðarsamkeppni
Norðurlands. Vöðvadýpt og fitu-
þykkt mæld með hljóðmynda-
tækni segir líka í fyrirsögn á for-
síðu sama dag. Þar er ekki átt við
aðferðir dómnefndar í fegurðar-
samkeppninni heldur tækni sem
notuð er við val á líflömbum.
14. Loðnuveiðibanninu aflétt
af sjávarútvegsráðherra og leyfir
hann veiðar á 175 þúsund tonn-
um til viðbótar. Ekki var talið
líklegt að mikið magn bærist til
Norðurlands.
15. Deilur um fiskverð rísa á
Raufarhöfn og segir stjórnarfor-
maður Fiskiðjunnar að þeir geti
vel leigt kvótann og farið í frí ef
þeir vilja, en hugsa verði lengra
fram í tímann.
19. Fyrsta loðna ársins berst til
Krossaness eftir rúmlega 40 tíma
siglingu af miðunum. Loðnuverð
var hátt og kepptust verksmiðj-
urnar um bátana. Þá eru húsnæð-
Golfvöllur Akureyringa er venjulegast á kafl í snjó í janúar en svo var ekki
í ár. Kylflngar þurftu því ekki að láta kylfur sínar rykfalla yflr vetrarmánuð-
ina og tóku þeir upp þá nýbrcytni að efna til Þorramóts í golfí.
Snjóleysi var oft í fréttum síðastliðinn vetur cnda er slíkt ástand ekki vinsælt
hjá skíðamönnum. Kristjáni Möller á Sigluflrði þótti nóg um ástandið í Hlíð-
arfjalli og sendi félaga sínum Ivari Sigmundssyni, forstöðumanni Skíðastaða
í Hlíðarfjalli, kassa fullan af snjó ef það mætti bæta úr ástandinu.