Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 17
Laugardagur 28. desember 1991 - DAGUR - 17
Aramótabrennur á
Að vanda kveðja Norðlend-
ingar gamla árið með viðeig-
andi bálköstum. Dagur hefur
tekið saman yfirlit yfir brennur
vítt og breitt um Norðurland.
Hvammstangi
Björgunarsveitin Káraborg
stendur fyrir áramótabrennu og
verður hún á Höfða. Þar verður
einnig hefðbundin flugeldasýning
Skagaströnd
Að venju verður efnt til hefð-
bundinnar áramótabrennu á veg-
um félagasamtaka á melunum
ofan kauptúnsins.
Blönduós
Að venju verður áramótabrenna
á Blönduósi að Miðholti og
einnig ber að geta brennu að
Bakkakotsmelum á þrettándann
en sú brenna er á vegum Vorboð-
ans í Engihlíðarhreppi.
Sauðárkrókur
Sauðkrækingar halda sína árlegu
áramótabrennu. Það er Sauðár-
króksbær sem stendur fyrir að
brenna gamla árið út á viðeigandi
hátt.
Akureyri
Á Akureyri verður ein gamlárs-
brenna í ár. Hún verður skammt
sunnan Gúmmívinnslunnar.
Stefnt er að því að kveikja í
brennunni um kl. 20 á gamlárs-
kvöld.
Eyjafjarðarsveit
Fyrsta ár hins nýja sveitarfélags
verður brennt út með áramóta-
brennu sem haldin verður norð-
an og neðan við íþróttahúsið á
Hrafnagili. Þeim sem luma á
góðu efni í brennuna er bent á að
koma því á brennustaðinn hið
fyrsta.
Ólafsfjörður
Það eru kiwanismenn sem hafa
umsjón með gamlársbrennu í
Ólafsfirði. Þeir ráðgera að
kveikja í brennunni, sem er stað-
sett fyrir vestan Ósinn, um kl. 20
á gamlárskvöld.
Dalvík
Eins og mörg undanfarin ár verð-
ur kveikt í áramótabálkesti aust-
ur á sandi á gamlársdag. Verði
veður skaplegt er gert ráð fyrir að
tendra bálið um kl. 16.30. Ef að
líkum lætur sjá skátarnir um að
staðfesta áraskiptin með kyndlum
í Böggvisstaðafjalli.
Siglufjörður
Ef veður leyfir er gert ráð fyrir að
kveikt verði í áramótabrennu á
innri höfninni um kl. 20.30 á
gamlárskvöld. Það er Siglufjarð-
arbær sem stendur fyrir brenn-
unni.
Hrísey
Áramótabrenna er fastur liður í
Hrísey og verður brennan ofan
þorpsins sem fyrr. Gert er ráð
fyrir að tendra bálið um kl.
16.30.
Húsavík
Sótt hefur verið um leyfi fyrir
einni áramótabrennu á Húsavík.
Það er Húsavíkurbær og íþrótta-
félagið Völsungur sem standa
fyrir brennunni og verður hún
norðan við bæinn, á hefðbundn-
um stað rétt hjá skeiðvellinum.
Kveikt verður í brennunni kl. 20.
Mývatnssveit
Iþróttafélagið Eilífur í Mývatns-
sveit stendur fyrir áramóta-
brennu á íþróttavellinum við
Reykjahlíðarþorp. Kveikt verður
í brennunni um kl. 21. Reiknað
er með að smábrenna verði við
Álftagerði, en heimafólk á
bæjunum þar er vant að safnast
saman við bálköst á gamlárs-
kvöld^ Oft eru einnig smábrenn-
ur á fleiri stöðum stöðum í sveit-
inni og víða í Suður-Þingeyjar-
sýslu mun fólk vant að vera með
smábrennur um kvöldið.
Kópasker
Samkvæmt venju verða Kópa-
skersbúar með áramótabrennu
og reikna með að kveikja í henni
um kl. 21.
Raufarhöfn
Á Raufarhöfn verður áramóta-
brenna að venju á Höfðanum.
Þórshöfn
Áramótabrennan verður á hefð-
bundnum stað innan við þorpið.
Vopnafjörður
Áramótabrennan á Vopnafirði
verður með hefðbundnum hætti
og er kösturinn á Búðaröxl. ój
Norðurlandi
Öska viðskiptavinum mínum
glébilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þakka viðskiptin á árinu.
Svalbarðseyri
Frá æflngu í Gígjökli.
Flugbj ör gunar s veitin
á Hellu 40 ára
Um þessar mundir eru 40 ár frá
stofnun Flugbjörgunarsveitarinn-
ar á Hellu. Ákveðið var að stofna
sveitina eftir að flugvélin Geysir
fórst á Bárðarbungu. Þá kom í
ljós þörfin á að ávallt væru til
staðar öflugar björgunarsveitir,
sem brugðist gætu við í erfiðum
neyðartilfellum.
Sveitin hét í fyrstu Flugbjörg-
unarsveit Rangæinga, en síðar
var nafninu breytt. Fyrirmynd að
stofnun sveitarinnar var sótt til
Reykjavíkur, en þar hafði nýlega
verið stofnuð flugbjörgunarsveit.
Flugbjörgunarsveitirnar voru
strax í byrjun sérhæfðar í björg-
un fólks úr flugslysum, en hafa
ávallt unnið jafnhliða að öðrum
björgunarstörfum. Sveitin á
Hellu leggur sérstaka áherslu á
þjálfun félaga í hálendis- og
öræfaferðum, enda sinnir hún
útköllum á hálendinu oft á ári
hverju.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
er með best búnu björgunarsveit-
um landsins. Hún á öfluga snjó-
bifreið, tvær björgunar- og
sjúkrabifreiðar, vörubifreið og
fjóra vélsleða. Þá á sveitin margs
konar annan búnað m.a. ágætan
fjarskiptabúnað. Tæplega 100
félagar eru í sveitinni. Nýlega var
lokið við byggingu 450 fm björg-
unarstöðvar að Dynskálum 34,
Hellu. Nýja björgunarstöðin,
sem er í alla staði vel búin, hýsir
alla starfsemi sveitarinnar.
Sveitin hélt upp á afmælið m.a.
með því að bjóða öðrum björg-
unarsveitum á svæðinu til samæf-
ingar, sem þótti takast ágætlega.
Formaður er Óskar Jónsson
framkvæmdastj óri.
Flugeldasala í Hamri
Opið:
Laugardag 28. desember kl. 10—18
Sunnudag 29. desember kl. 10—18
Mánudag 30. desember kl. 13—23
Þriðjudag 31. desmber kl. 9—16
Jólatrésfagnaðu r
laugardaginn 28. desember kl. 15
Gamlárskvöld
Opið hús í Hamri eftir miðnætti
Gleðileg jól
farsælt komandi ár!
íþróttafélagið Þór
4**1