Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 8

Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 28. desember 1991 Fréttaannáll ársins leysismörk. A sama tíma er mik- ill áhugi'á hlutabréfum U.A. á Verðbréfamarkaði íslandsbanka. 22. Fimmtán ára gömul stúlka hljópst að heiman og umfangs- mikil leit var gerð að henni á Akureyri. Hún kom fram í skólanum daginn eftir. Fóður- verksmiðja ístess skilar hagnaði af reglulegri starfsemi árið áður, en jafnframt segir að tapaðar kröfur geri að verkum að heildar- rekstrardæmið sýni tap. Þá dreg- ur nær alþingiskosningum og utankjörfundakosning er hafin. 23. Ú.A. tekur upp viðræður við áhafnir í sjómannadeilunni og í annarri frétt segir, að aðeins einn ísfisktogari Ú.A. nái lands- meðaltali þegar hásetahlutur er annars vegar. 26. Fyrsti togari Ú.A. stöðvast vegna uppsagnanna hjá Ú.A. og vantar tólf menn til að Harðbak- ur komist út. Þá er þennan dag undirritaður rammasamningur um byggingu íþróttahúss á félags- svæði K.A., en áætlað var að taka húsið í notkun fyrir 1. októ- ber. Þá segir að rækja sé á borði stjórnar Byggðastofnunar, ekki með kaffinu, heldur er áætlað að úthluta rækjuvinnslustöðvum i landinu, 200 milljónum króna samkvæmt ákvörðun Alþingis til að hlaupa undir rekstrarvanda fyrirtækjanna. 27. Mikilvægt skref var stigið í uppbyggingu Háskólans á Akur- eyri þegar heimiluð var stofnun gæðastjórnunarbrautar og segir forstöðumaður rekstrardeildar þessa ákvörðun í samræmi við björtustu vonir. Á baksíðu segir af sannkölluðum farfugli, en þar var á ferðinni svissneskur tjald- ferðalangur sem stakk tjaldi sínu niður á stéttinni við tjaldstæði Akureyringa, langt utan hefð- bundins ferðamannatíma. Þá eykur Fjallalamb hf. á Kópaskeri verðmæti lambakjöts um 50% með því að selja úrbeinað og hlutað lambakjöt til veitingahúsa og mötuneyta. Apríl 3. Páskahátíðin er nýafstaðin og fyrsta frétt er um stórbruna á Klöpp á Svalbarðsströnd þar sem íbúðarhús fór illa í bruna. Mikið annríki var hjá Slökkviliði Akur- eyrar um páskana. Þá er komin aukin harka í deilu Ú.A. og sjó- mannafélagsins og hafa stöður háseta á ísfisktogurum verið aug- lýstar lausar. 4. Starfsfólk Fiskiðjusamlags Húsavíkur safnar undirskriftum og vill kauphækkun í takt við hækkun á aflahlut sjómanna á Kolbeinsey, en útgerðarfyrirtæk- ið samdi við þá um hækkun heima- löndunarálags nokkrum dögum fyrr. Þá er farið að gæta tauga- veiklunar vegna komandi kosn- inga og var Framsóknarflokknum bannað að auglýsa á strætisvögn- um Akureyrarbæjar. 5. Samningar í sjómannadeil- unni við Eyjafjörð eru í höfn og virðast allir aðilar ánægðir með niðurstöðuna sem sögð er marka tímamót í sögu Verðlagsráðs. Þá segir í fyrirsögn á forsíðu að þing- menn verði að mæta með sól- gleraugu; ekki er það vegna veðurblíðu á Norðurlandi, held- ur svo þeir þurfi ekki að horfast í augu við kjósendur. Vildu sumir sveitastjórnarmenn meina að þingmenn hafi gert í bólið sitt þegar þeir skiptu 100 milljónum króna milli sveitarfélaga vegna loðnubrests og töldu skiptinguna ámælisverða. 9. Kaupfélag Eyfirðinga skil- aði góðum hagnaði árið 1989 en stjórnarformaður KEA segir Stórum áfanga var náð í samgöngusögu landsmanna í mars þegar göngin gegnum Ólafsfjarðarmúla voru formlega vígð. Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra og Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri, hjálpuðust að við að klippa á borðann og vígja þar með þetta mikla mannvirki. Fjóla Pálmadóttir var krýnd Ungfú Norðurland í febrúar og fær hér kórónuna eftirsóttu. ismál Slökkviliðs Akureyrar leyst með kaupum Akureyrarbæjar á Árstíg 2. Áætlað er að Slökkvi- liðið flytji í nýja húsnæðið fyrir áramót. 20. Óvenjulegt tíðarfar með litlum snjó dregur úr komu ferða- manna norður um heiðar og aðrar afleiðingar voru m.a. að meiri ásókn var eftir reiðhjólum en skíðum í verslunum. 22. Óvenjulegur þjófnaður var kærður á Akureyri, þegar bíl- stjóri hjá BSO kærði ökumann Glæsibíla fyrir farþegaþjófnað. Farþeginn, sem var Bandaríkja- maður, var grunlaus um stríðið milli stöðvanna og taldi sig sitja í bílnum sem hann hafði pantað. 23. Húsvíkingar munu líklega leggja leið sína oftar í fatahreins- un bæjarins en áður, því þar hef- ur verið ákveðið að opna áfeng- isverslun á komandi vori. Þá virðast atvinnulausir ekki vilja vinna í fiski á Sauðárkróki. 26. Fjóla Pálmadóttir, nýkjör- in Ungfrú Norðurland, brosir breitt við lesendum Dags á for- síðu og ný hringrotstilfelli finnast á átta bæjum kartöfluræktenda í Eyjafirði. Þá er áformað að opna skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og segir fvar Sigmundsson brekk- urnar ekki þola einn hlákudag. Allar þrær á Siglufirði eru fullar af loðnu en Krossanes gat ekki tekið við meiru í bili. 27. Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki skilar hagnaði árið áður í kjölfar rekstrarbata og Dalvíkurbær hefur 130 milljónir króna til ráðstöfunar samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun. 28. Spurt er á forsíðu, hvort veitingahúsið Uppinn hafi fengið greiddar 5 milljónir króna fyrir það eitt að skipta um bjórtegund, en hörð samkeppni ríkti á milli Viking Brugg og Vífilfells á Akureyri í bjórstríði. Þá fæddust fimm börn, þar af tvennir tvíbur- ar, á einni viku í Svarfaðardal, sem gerði að verkum að dalbúum fjölgaði um 2% í einni svipan. 1. Samgöngubyltingu er fagnað í sérstakri útgáfu af Degi, daginn sem Múlagöngin voru vígð. Tal- að er um stórvirki í íslenskri vegagerð og Bjarni Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði segir að Ólafsfirðingar séu vel að göngun- um komnir. Steingrímur J. Sig- fússon, samgönguráðherra sagði í ávarpi í tilefni dagsins að draumur hefði ræst og í blaði Dags er rætt við ýmsa aðila sem komu nálægt byggingu ganganna. Þá er risin deila á milli bygg- ingamanna á Akureyri og bygg- inganefndar Akureyrarbæjar um fyrirkomulag við úthlutun lóðar- innar, Skipagötu 9. Telja þeir að nefndin hafi farið út fyrir verk- svið sitt með spurningum sem hún lagði fyrir umsækjendur um lóðina. 5. Á baksíðu er áfram fjallað um úthlutun lóðarinnar og gefið í skyn, að Aðalgeir Finnsson hf. hafi fengið vilyrði hjá bygginga- nefnd fyrir lóðinni. 6. Kristján Jónsson, verk- smiðjustjóri hjá Niðursuðuverk- smiðju K. Jónsson á Akureyri, segir pólitíkusana hafa líf fyrir- tækisins í hendi sér, en viðskipti þess lá niðri á meðan yfirvöld gerðu ekki viðskiptasamning milli þjóðanna. Og á baksíðu er haft eftir Sævari Frímannssyni, formanni Einingar á Akureyri að verkalýðshreyfingin sé farin að undirbúa gerð kjarasamninga sem fólk vilji að verði framleng- ing á þjóðarsátt. 7. Á baksíðu er skýrt frá því að Aðalgeiri Finnssyni hf. hafi verið úthlutað lóðinni Skipagötu 9, bæjarfógeti hafi lokað Hótel Stefaníu og gefið Hótel Norður- landi frest til að Ijúka frágangi öryggismála. Fógeti segir að Hótel Stefanía verði ekki opnað aftur fyrr en bætt hafi verið úr atriðum sem slökkviliðsstjóri Akureyrar hafi gert athugasemd- ir við. Daginn eftir var innsiglið rofið á ný og Stefán Sigurðsson segir slökkviliðsstjóra tillitslaus- an þar sem unnið hafi verið að úrbótum. 9. Nokkrir hjúkrunarfræðing- ar á skurðdeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri segja upp störfum og er ástæðan sögð sú að ársleyfi yfirlæknis deildarinnar ljúki 1. júní. Fullyrt er að fleiri uppsagnir komi í kjölfarið ef læknirinn komi aftur til starfa. 10. Byggingafyrirtækið Har- aldur og Guðlaugur hf. hefur far- ið fram á gjaldþrotaskipti og var beiðnin samþykkt. Fyrirtækið hefur verið umsvifamikið og kom gjaldþrotið mönnum á óvart. 14. Sjómenn á ísfisktogurum ÚA vilja hækkun á heimalöndun- arálagi og fiskverði og hóta hörð- um aðgerðum ef skiptaverð til þeirra verður ekki endurskoðað og hækkað. Pétur Bjarnason, stjórnarformaður fyrirtækisins segir stjórnina vera að skoða málið. Daginn eftir er sagt frá atkvæðagreiðslu um borð í togur- unum þar sem fram kemur að alger samstaða ríki meðal áhafna um kauphækkun. 16. Dagvistarfulltrúi Akureyr- arbæjar sakar starfsmenn emb- ættis húsameistara um að hafa ekki meira vit á kaupum á leik- tækjum og húsgögnum en fóstr- ur, en búnaður á Holtakot og á skrifstofur bæjarins var keyptur að sunnan. 20. Allir sjómenn á ísfisk- togurum Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., Ú.D. á Dalvík og áhöfn Súlnafellsins í Hrísey segja störfum sínum lausum og er ástæð- an sú að útgerðarfyrirtækin hafi ekki hafið samningaviðræður við áhafnirnar um bætt kjör. Þá er fyrirhuguð vinnustöðvun í sjö frystihúsum á Norðurlandi vegna óánægju fiskverkafólks með kjör sín og það vill líka hækka skatt- Fulltrúar stjórnmálaflokkanna í Norðurlandskjördæmi eystra fylgjast með tölum af sjónvarpsskjá á kosninganóttina. skuldir félagsins óþægilega háar. Framboðslistar til alþingiskosn- inga hafa verið samþykktir af yfirkjörstjórn. 10. Niðurstöður búsetukönn- unar við Eyjafjörð hafa verið lagðar fram og þar kemur fram að Eyfirðingar séu upp til hópa ekki á þeim buxunum að „flytja suður“, menningarlíf skipti litlu máli fyrir búsetu íbúa við Eyja- fjörð, Akureyringar eru miklir fjölskyldumenn og Dalvíkingar ánægðir með atvinnuástand á staðnum. Þar höfum við það. 11. Skeljungur kaupir hlut Ólafsfjarðarbæjar í Hótel Ólafs- firði en hluturinn er um 70%. Heilsufar á þjónustusvæði Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri var slæmt í mars samkvæmt skýrslu um smitsjúkdóma og lá fólk almennt í flensu og hálsbólgu. 12. Landbúnaðarráðherra ætl- ar ekki að skjóta niður mjólkur- bú, segir í fyrirsögn í Degi, og sem betur fer enda er hann að tala um hagræðingu í mjólkur- iðnaði og átti við að hann vilji ekki endilega fækka mjólkurbú- Mars

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.