Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 12

Dagur - 28.12.1991, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 28. desember 1991 Dagskrá FJÖLMIÐLA Sjónvarpið Laugardagur 28. desember 14.00 Meistaragolf. Svipmyndir frá móti atvinnu- manna í Bandaríkjunum í haust. 14.55 Enska knattspyrnan. Bein útsending frá leik Manchester City og Arsenal á Maine Road í Manchester. Fylgst verður með gangi mála í öðrum leikjum og staðan birt jafnóðum og dregur til tíðinda. 16.45 Landsleikur í körfu- knattleik. Ísland-Pólland. Bein útsending frá leik þjóð- anna í karlaflokki í Reykja- vík. 18.00 Múmínálfarnir (11). 18.25 Kasper og vinir hans (36). (Casper & Friends.) 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Ron og Tanja (4). 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Lottó. 20.40 Manstu gamla daga? Lokaþáttur: Söngkvenna- fans. í þættinum koma fram Ingi- björg Smith, Sigrún Jóns- dóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Þorsteins, Helena Eyjólfsdóttir og Nora Brocksted. 21.30 Fyrirmyndarfaðir (12). (The Cosby Show.) 22.00 Babette býður til veislu. (Babettes gæstebud.) Dönsk verðlaunamynd frá 1987, byggð á sögu eftir Karen Blixen. í myndinni segir frá franskri konu, Babette, sem flúið hef- ur frá París og leitað skjóls hjá guðhræddu fólki á Jót- landi. Þegar henni áskotnast happdrættisvinningur ákveður hún að halda heimafólki og vinum veg- lega veislu. Aðalhlutverk: Stephane Audran, Jean-Philippe Lafont, Gudmar Wiveson, Jarl Kulle og Bibi Anderson. 23.45 Kóngurinn á Borneó. (Farewell to the King.) Bandarísk bíómynd frá 1989. í myndinni segir frá banda- rískum liðhlaupa sem gerist leiðtogi þjóðflokks á Bomeó í seinna stríði. Aðalhlutverk: Nick Nolte, Nigel Havers og James Fox. 01.40 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok. Sjónvarpið Sunnudagur 29. desember 14.25 Stúlkan í villta vestr- inu. (La Fanciulla del West.) Ópera eftir Giacomo Puccini í flutningi Scalaópemnnar í Mílanó. Óperan fjallar um ástir og örlög í námabæ í villta vestrinu um 1850. Aðalsöngvarar eru þau Placido Domingo, Mara Zampieri og Juan Pons. 16.55 Arni Magnússon. Fyrri hluti. Heimildamynd um fræði- manninn og handritasafnar- ann Árna Magnússon. Áður á dagskrá 27. okt. sl. 17.35 í uppnámi (9). Skákkennsla í tólf þáttum. Höfundar og leiðbeinendur em stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason og í þessum þætti verður m.a. fjallað um mát með riddara og biskup, biðleik og hegðun við skákborð. 17.50 Sunnudagshugvekja. Ágústa Snæland teiknari flytur. 18.00 Jólastundin okkar. Endursýndur þáttur frá jóla- degi. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Ron og Tanja (5). Þýskur myndaflokkur. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Sverrir Haraldsson list- málari. Heimildamynd um þennan kunna myndlistarmann sem fæddist 1930 og lést 1985. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru Elías Mar, Eiríkur Smith, Þóra Kristjáns- dóttir, Sigurður Guðmunds- son, Þorsteinn Gylfason og Sigfús Daðason. 21.25 í góðu skyni (3). (Den goda viljan) Norræn framhaldsmynd eftir Ingmar Bergman. Aðalhlutverk: Samuel Fröler, Pernilla August, Max von Sydow og Ghita Nörby. 22.40 Skaftafell. Steinni hluti. Heimildamynd um eina af perlum íslenskrar náttúru. 23.10 Jólatónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Sálumessa Mozarts. Sinfóníuhljómsveit íslands flytur ásamt einsöngvurun- um Sólrúnu Bragadóttur, Elsu Waage, Guðbirni Guð- björnssyni og Viðari Gunn- arssyni og Kór Langholts- kirkju. Stjórnandi er Petri Sakari. Sveinn Einarsson dagskrár- stjóri flytur inngangsorð. 00.10 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok. Sjónvarpið Mánudagur 30. desember 18.00 Töfraglugginn. Blandað erlent barnaefni. Endursýndur þáttur. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Ron og Tanja (6). Lokaþáttur. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Svartur sjór og síld. Fyrsti þáttur af þremur um síldarævintýri íslendinga fyrr á öldinni. 21.30 Sterkasti maður heims 1991. Svipmyndir frá keppni afl- raunamanna sem fram fór á Tenerife á Spáni á haust- mánuðum. 22.30 í góðu skyni (4). Lokaþáttur. (Den goda viljan.) Norrænn myndaflokkur eftir Ingmar Bergman. Aðalhlutverk.' Samuel Fröler, Pernilla August, Max von Sydow og Ghita Nörby. 00.00 Útvarpsfréttir í dag- skrárlok. Sjónvarpið Þriðjudagur 31. desember Gamlársdagur 12.00 íþróttaannáll barnanna. 12.30 Hvernig verða knöll til? (Hvor kommer tingene fra? - Festknallerter) Lesarar: Elfa Björk Ellerts- dóttir og Bjöm Börkur Eiríks- son. 12.50 Táknmálsfréttir. 13.00 Fréttir og veður. 13.20 Á síðustu stundu. Bein útsending úr Perlunni í Reykjavík þar sem gerð verður úttekt á árinu 1991. Umræðum stýrir Stefán Jón Hafstein. 16.00 Lóa litla Rauðhetta. íslensk sjónvarpsmynd gerð eftir smásögu Iðunnar Steinsdóttur. Aðalhlutverk: Linda O’Keefe, Vilborg Halldórs- dóttir, Sigurður Skúlason, Herdís Þorvaldsdóttir og Þórdís Arnljótsdóttir. Sögumaður: Edda Heiðrún Backman. Síðast sýnd 31. des. 1987. 16.30 Beint í mark. Upptaka frá uppskeruhátíð íþróttadeildar Ríkisútvarps- ins. Litið verður á helstu við- burði í heimi íþróttanna á árinu sem er að líða. Fjöl- margir afreksmenn koma í heimsókn og sumir þeirra sýna á sér nýjar hliðar. Þá verða sýnd spaugileg atvik úr íslensku íþróttalífi 1991. 17.55 Hlé. 20.00 Ávarp forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. 20.20 Svipmyndir af innlend- um vettvangi. 21.10 Svipmyndir af erlend- um vattvangi. 22.00 í fjölleikahúsi. Sýnd verða valin atriði frá heimsmeistarakeppni fjöl- listamanna. 22.25 Áramótaskaup Sjón- varpsins. Stjömur og stórmál ársins í spéspegli. Leikendur: Erla Ruth Harð- ardóttir, Gísli Halldórsson, Guðfinna Rúnarsdóttir, Hilmar Jónsson, Hjálmar Hjálmarsson, Jóhannes Kristjánsson, Júlíus Agnars- son, Magnús Ólafsson, Rúrik Haraldsson, Sigurveig Jóns- dóttir, Þórhallur Sigurðsson og Öm Árnason. 23.30 Ávarp útvarpsstjóra, Heimis Steinssonar. 00.10 Ungur í annað sinn. (Young at Heart). Bandarísk bíómynd byggð á söngleik eftir Fannie Hunt um tónlistarmann sem verð- ur ástfanginn af stúlku í smábæ. Aðalhlutverk: Frank Sinatra, Doris Day, Gig Young, Ethel Barrymore og Dorothy Malone. 02.10 Dagskrárlok. Sjónvarpið Miðvikudagur 1. janúar Nýársdagur 13.00 Ávarp forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. Að ávarpinu loknu verður ágrip þess túlkað á tákn- máli. 13.30 Svipmyndir af innlend- um og erlendum vettvangi. Endursýning frá deginum áður. 15.20 Svanavatnið. Upptaka frá Maryinsky- leikhúsinu, áður Kirov- leikhúsinu í Pétursborg í desember 1990. Dansarar úr Kirovballettin- um undir stjórn Olegs Vinogradovs. Tónlistin er eftir Tsjækovskij en hljóm- sveitarstjóri er Viktor Fedotov. Aðaldansarar eru þau Yulia Makhalina og Andris Liepa. 17.20 Gamla brúðan. Ung telpa kemst að því að amma hennar ætlar að gefa henni nýja brúðu í jólagjöf. Hún ákveður að fleygja gömlu brúðunni sinm en þegar hún er sofnuð á aðfangadagskvöld sækja á hana vondir draumar. Leikarar: Bergþóra Aradótt- ir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Sigríður Hagalín. 117.45 Sögur Elsu Beskow. Jól hjá Pétri og Lottu - Seinni hluti. (Elsa Beskows sagor - Peter och Lottas jul.) Sænsk barnamynd. 18.15 Táknmálsfréttir. 18.20 Ungir einleikarar. Börn af ýmsu þjóðerni fara með einleikshlutverk í sígildum tónverkum eftir Carl Nielsen, Haydn, Mozart, Carl Maria von Weber og fleiri. Danska útvarpshljómsveitin leikur undir. 20.00 Fréttir og veður. 20.20 Klukkur landsins. Umsjón: Séra Bernharður Guðmundsson. 20.40 Svartur sjór af síld. Annar þáttur. Þáttaröð um síldarævintýrið á íslandi. 21.30 Leiðsla. Heimildamynd um ævi og starf Jóns Nordals tónskálds eftir Guðmund Emilsson og Baldur Hrafnkel Jónsson. 22.00 Skammdegisbrúður. (December Bride.) írsk bíómynd frá 1990. Ung kona fer að búa með manni sem á tvo uppkomna syni. Eftir að sambýlismað- urinn deyr heldur hún heimili fyrir synina þrátt fyrir mikla andstöðu fjöl- skyldunnar. Aðalhlutverk: Saskia Reeves, Donal McCann og Ciaran Hinds. 23.30 Whitney Houston á tón- leikum. Af erlendum vettvangi Spói sprettur Loksins góðar vonir fyrir blæðara Nýtt lyf; sem stöðvar blæðingar hjá þeim, sem eru blæðarar (Hæmofili, dreyrasýki), hefur vakið mjög góðar vonir. Peim lyfjum, sem til þessa hafa verið notuð, hefur fylgt ákveðin hætta á alvarlegum aukaverkunum, en því er ekki til að dreifa með þetta nýja lyf. Það er líffræðistofnun í Berkel- ey í Kaliforníu, sem hefur þróað þetta lyf og reynt það á á annað hundrað blæðurum. Þetta er nákvæm eftirlíking af svonefnd- um „faktor VIII“, náttúrlegu efni, sem veldur því að blóð ntanna storknar, en er ekki fyrir hendi hjá blæðurum. Samkvæmt skýrslu, sem birt var í tímaritinu New England Journal of Medi- cine, ættu blæðarar innan fárra ára að geta notað lyf þetta nánast án nokkurrar hættu á aukaverkun- um. Allt frá því um miðjan sjöunda áratuginn hafa læknar getað hjálpað blæðurum með því að gefa þeim „faktor VIII“ úr venju- legu mannsblóði. En þeirri með- ferð fylgir nokkur hætta á smitun af alnæmi eða öðrum vírussjúk- dómum, og því hafa læknar hald- ið áfram að leita annarra leiða. Árið 1984 fundu tveir hópar vís- indamanna, hvor í sínu lagi, aðferð til að framleiða „faktor VIII“ í efnafræðistofum, og í júní 1988 gerðu þeir fyrstu til- raunirnar á mönnum. Tilraunirnar á líffræðistofnun- inni í Cutter í Kaliforníu sýna, að fyrir 74% blæðara nægir ein með- ferð með þessu nýja lyfi til að stöðva ósjálfráðar blæðingar. Vísindamennirnir hafa einnig reynt lyfið við uppskurði, en þeim fylgja oftast miklar blæð- ingar. Arangurinn er „stórkost- legur“, segir í skýrslunni. Aðeins örfáir fengu einhverjar aukaverk- anir af meðferðinni, og þær voru í engu tilviki alvarlegs eðlis. (Fakta 4/91. - Þ.J.) Framfarir við smíði raflmíimna bifreiða Innan fárra ára mun amerískum vísindamönnum takast að fram- leiða nýja tegund rafgeyma úr plasti, sem verða bæði léttari og kraftmeiri en venjulegir rafgeym- ar. Vísindamennirnir hafa ekki gefið upp í smáatriðum, hvernig hönnun rafgeymisins er, en það er aðeins tímaspursmál hvenær þessir nýju rafgeymar verða full- skapaðir. Prófessor Duward Shriver við Nortwestern háskól- ann, segir að á næstu tíu árum muni bílar, sem knúðir eru áfram með orku frá rafgeymum yfirtaka mikinn hluta umferðarinnar í stórborgum heimsins. í Bandaríkjunum eru verk- smiðjur General Motors komnar lengst áleiðis með þróun rafbíla. En meira að segja bíll General Motors þarf ennþá 32 blý-raf- geyma til að fá nægjanlega orku. En svo margir rafgeymar eru fyrirferðarmiklir. Rafgeymarnir úr plastinu verða minni, léttari og umhverfisvænni í framleiðslu. Stjórnvöld í Bandaríkjunum samþykktu fyrir skömmu lög, sem mæla svo fyrir, að í síðasta lagi árið 1998 skuli því marki náð, að ekki minna en tvö prós- ent allra bifreiða, sem seldar eru í Kaliforníu, gangi fyrir raf- mótorum. (Fakta 4/91. - Þ.J.) Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri, Hver kannast við fólkið? Ef lesendur Dags telja sig þekkja fólkið á myndinni hér eru þeir vinsamlegast beðnir að koma þeim upplýsingum á framfæri við Minjasafnið á Akureyri (pósthólf 341, 602 Akureyri) eða hringja í síma 24162. Hausateikningin er til að auð- velda lesendum að merkja við það fólk sem það ber kennsl á. Þótt þið kannist aðeins við örfáa á myndinni eru allar upplýsingar vel þegnar. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.