Dagur


Dagur - 28.12.1991, Qupperneq 11

Dagur - 28.12.1991, Qupperneq 11
Laugardagur 28. desember 1991 - DAGUR - 11 Fréttaannáll ársins Aðfaranótt 28. ágúst varð stórbruni á bænum Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit. Á fimmta tug gripa brunnu inni í fjósi á bænum en fjósið, sem og hlaða brunnu til grunna. I hlöðunni voru 1600 hestar af lieyi. haft eftir Atla Vigfússyni, for- manns Æðarræktarfélags Eyja- fjarðar og Skjálfanda að átaks sé þörf í eyðingu vargfugls í Eyja- firði og heilbrigðisfulltrúi segir nauðsynlegt að endurskoða fugla- friðunarlögin. 26. Pað þótti ganga krafta- verki næst að flugmaður og tveir farþegar skyldu komast lífs af þegar fjögurra sæta flugvél frá Akureyri hrapaði við Mývatn en vélin var talin gjörónýt. 31. Reglugerð sjávarútvegs- ráðuneytisins um veiðar í atvinnu- skyni á næsta fiskveiðiári er kol- svört fyrir þjóðarbúið að mati út- gerðarmanna. Haft er eftir hags- munaaðilum að þetta komi hrika- lega við sjómenn og sé blátt áfram áfall. Agust 1. Fangelsismálastofnun segir að úrbóta sé þörf ef vista á fanga í fangelsinu á Akureyri í framtíð- inni. Er aðstaðan á Akureyri ekki talin nógu góð. 3. „Gallabuxnamálið" skýtur upp kollinum en falsaðar galla- buxur voru gerðar upptækar hjá handknattleiksdeild KA, sagði í forsíðufrétt í Degi. Gerði rann- sóknarlögreglan lagerinn upp- tækan. Seinna kom í ljós að fjár- svikamenn höfðu gert KA-mönn- um grikk og voru þeir grunlaus fórnarlömb í þessu máli sem eins og í ævintýrunum, fór vel að lokum. Þá er á þessum tíma mik- ill viðbúnaðar hjá löggæslumönn- um á Norðurlandi vegna kom- andi verslunarmannahelgar. 7. Verslunarmannahelgin er gengin um garð og hafði Húnaver lítið aðdráttarafl þrátt fyrir væntingar mótshaldara. 8. Skýrsla sérfræðinganefndar um Mývatnsrannsóknir hefur verið lögð fram. 1 henni kom fram að bein áhrif Kísiliðjunnar hf. á lífríki vatnsins eru mun minni en óttast var. Fjórir mögu- leikar voru lagðir fram varðandi rekstur Kísiliðjunnar en nefnd- in tók ekki afstöðu til þeirra en formaður hennar sagði þá fyrst og fremst pólitíska ákvörðun. Hótel Stefanía á Akureyri hef- ur verið úrskurðað gjaldþrota. Rekstri þess er þó haldið áfram af rekstrarfélaginu Stefanía-hótel og standa sömu aðilar að því og gjalþrotahótelinu. 10. Landverðir á Norðurlandi eystra mótmæla lagningu Fljóts- dalslínu á hálendinu og segja það hræðilegasta umhverfisslys á Is- landi ef af verður. 13. Meindýraeyðir í Þingeyj- arsýslu segir Akureyri uppeldis- stöð fyrir vargfugl en hvergi mun vera meira af þeim ófögnuði en á Akureyri. Segir meindýraeyðir- inn að Akureyringar setji fuglinn á og telur hann að gera þurfi gangskör í eyðingu fuglsins. 14. Pappírspokaverksmiðjan Serkir hf. á Blönduósi hefur ver- ið úrskurðuð gjaldþrota að beiðni forsvarsmanna fyrirtækis- ins. 16. Sænska ráðgjafafyrirtækið Rectus/Elas leggur til að stofnað- ar verði söluskrifstofur, ferða- skrifstofa og heilsumiðstöð í Kjarnalundi til eflingar atvinnu- lífs á Akureyri, en fyrirtækið var fengið af atvinnumálanefnd Ak- ureyrarbæjar til þess að gera út- tekt á stöðu atvinnulífs í bænum. Pá segir í frétt á baksíðu þennan dag, að ófremdarástand ríki í húsnæðismálum geðsjúkra á Akureyri og að þörf sé á tveimur sambýlum til viðbótar. 17. Ákveðið hefur verið að Akureyrarbær gerist eignaraðili að fyrirtæki sem stofna á á rúst- um gamla Álafoss hf. Hefur bær- inn falið Iðnþróunarfélagi Eyja- fjarðar að vinna að stofnun fyrir- tækisins. Pá íhugar Gosan hf. í Reykjavík, eigandi Viking Brugg að sameina gosdrykkja- og bjór- framleiðslu en með því var hætta á að verksmiðjan yrði flutt suður um heiðar. 22. Upp er komið deilumál innan Tónlistarskólans á Akur- eyri. Nokkrir kennarar sögðu störfum sínum lausum og í bígerð er að stofna einkarekinn tón- listarskóla með gítardeild. Og þótt ótrúlegt megi teljast, eru kartöflubændur ekki of ánægðir með óvenju góða uppskeru því þá sjá þeir fram á offramboð og verðfall á kartöflunum. 23. Fyrr á árinu var sagt frá fjölgun kirkjulegra brúðkaupa á Akureyri, en nú segir frá fjölgun hjónaskilnaða. Segir sr. Þórhall- ur Höskuldsson að aðal orsaka- valdurinn sé vandræði í peninga- málum. 28. Gott veður á Suður- og Suðvesturlandi dró úr ferða- mannastraum til Norðurlands og kom það m.a. fram í fækkun gisti- nátta á hótelum á Norðurlandi. 29. Stórtjón varð í bruna á bænum Gullbrekku í Eyjafjarð- arsveit og brunnu á fimmta tug nautgripa inni. Pá eyðilögðust fjós, hlaða og 1600 hestar af heyi í brunanum. Þessa nótt gekk mikið hvassviðri yfir Norðurland sem gerði slökkvistarf erfitt. í veðrinu fór hús á Siglufirði á hliðina og þök lyftust á hlöðum í Skagafirði í hvassviðri fyrr í vik- unni. 30. Um 100.000 ferðamenn komu til Mývatnssveitar sl. sumar. Gengu ferðamennirnir mjög vel um svæðið og segir að þáttur fararstjóra sé geysilega stór í þessu sambandi. Mikil hátíðarhöld voru í Hrísey í tilefni 60 ára afmælis hreppsins. Fjöldi gesta tók þátt í þeim í blíðskaparvcöri og var gestum m.a. boðið upp á dýrindis afniælistertu sem var í laginu eins og eyjan með líkönum af mannvirkjum á staðnum. VIÐ STYÐJUM FLUGELDASÖLU HJÁLPARSVEITAR SKÁTA AKUREYRI HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 ___Jil viðskiptamanna_____ banka og sparisjóða Lokun 2. jjanúar ogeindagar víxla. Vegna áramótavinnu verða afgreiðslur banka og sparisjóða lokaðar fimmtudaginn 2. janúar 1992. Leiðbeiningar um eindaga víxla um jól og áramót liggja frammi í afgreiðslum. Reykjavík, 17. desember 1991 Eiginmaður minn og faðir okkar, BALDVIN ÞORSTEINSSON skipstjóri, Kotárgerði 20, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. des- ember kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Lands- samtök hjartasjúklinga. Björg Finnbogadóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson, Margrét Baldvinsdóttir, Finnbogi A. Baldvinsson. Ástkær móður okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Stóru-Giljá, til heimilis að Víðilundi 14 i, Akureyri er lést 23. desember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. janúar nk. kl. 13.30. Þeim, er vildu minnast hennar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Erla Hallgrímsdóttir, Johann Karl Sigurðsson, Elísabet Hallgrímsdóttir, Óskar Þór Árnason, Sigurður J. Hailgrímsson, Ásta Gunnlaugsdóttir, H. Ásgeir Hallgrímsson, Anna Hallgrímsdóttir, Jónas Hallgrímsson, Drífa Þorgrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, JÓN ÞÓRARINSSON, frá Skeggjastöðum, Ránargötu 29, Akureyri, sem andaðist 19. desember verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju mánudaginn 30. desember kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Halla Jónsdóttir, Þráinn Jónsson, Herdís Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Guðni Jónsson, Ævar Jónsson, Sæbjörn Jónsson og aðrir vandamenn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.