Dagur - 30.01.1992, Page 4

Dagur - 30.01.1992, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 30. janúar 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Krafa um hátekju- og flármagnsskatt Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um að leggja beri sérstakan skatt á hátekjufólk og fjármagnseigendur. Venjulegt launafólk hefur oft rætt þetta mál sín á milli, forsvars- menn verkalýðshreyfingarinnar hafa hreyft því opinberlega en stjórnmálamenn afar sjaldan. Það er helst að frambjóðendur fé- lagshyggjuflokkanna svonefndu hafi rámað í það skömmu fyrir alþingiskosningar að þeim hafi lengi fundist sjálfsagt að skattleggja fjár- magnstekjur með einhverjum hætti. Fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa oftast setið hjá þegar slíka skattheimtu ber á góma eða fundið framkvæmd hennar flest til for- áttu. Máltækið segir að orð séu til alls fyrst. Reynslan hefur þó sýnt að þegar umræðan snýst um að skattleggja hátekjufólk og fjár- magnseigendur sérstaklega eru töluð orð léttvæg fundin. Síðustu daga hefur krafan um að skatt- leggja beri hátekjufólk og fjármagnseigendur fengið byr undir báða vængi. 900 milljóna króna skattfrjáls greiðsla Sameinaðra verk- taka til eigenda sinna var eflaust sá dropi sem fyllti mælinn. Þolinmæði almennings gagnvart valdhöfunum er á þrotum. Óbreyttir launþegar spyrja sig hvort ríkið hygli fjár- magnseigendum á kostnað annarra þjóð- félagsþegna. Enginn getur svarað þeirri spurningu neitandi. Verkin sýna merkin: All- ar vaxtatekjur eru skattfrjálsar, hvaða nafni sem þær nefnast; skattafsláttur er veittur vegna hlutabréfakaupa; eignaskattur er greiddur af nafnverði hlutabréfa en ekki markaðsverði auk þess sem arðgreiðslur af hlutabréfum eru skattfrjálsar upp að vissu marki. Síðast en ekki síst bera arðbær sparn- aðarform á borð við spariskírteini ríkissjóðs og húsbréf engan eignaskatt. Á hinn bóginn eru allar launatekjur skattlagðar að fullu svo og eignir, ef þær eru í einhverju öðru „formi“ en verðmætum pappírssneplum. Almenningur fær ekki skilið að það sé flóknara að setja lög sem kveða á um skatt- lagningu fjármagnstekna en lög sem skerða greiðslur barnabóta eða ellilífeyris. Almenningur fær heldur ekki skilið að sér- stakt skattþrep á hátekjufólk geti eyðilagt núgildandi staðgreiðslukerfi skatta. Æ fleiri þykjast sjá að slíkar fullyrðingar séu komnar frá varðhundum núverandi kerfis; frá þeim öflum sem vilja viðhalda ranglætinu. Því mið- ur bendir flest til að svo sé. BB. „Og þetta er síður en svo mál bænda einna. Fjðldi fólks í bæjum og kauptúnum þessa lands hefur einnig viðurværi sitt af þessari framleiðslu og það fólk fylgist vel með því sem verið er að gera,“ segir Guðmundur m.a. í grein sinni. Stalín er ekki hér Ein uppákoman rekur nú aðra á vettvangi stjórnmálanna. Sú nýjasta er í boði utanríkisráð- herra, en í kjölfar nokkurra „harðra“ funda með bændum fullyrti hann að bændasamtökin og Framsóknarflokkurinn hefðu skipulagt rógsherferð gegn sér upp á stalínskan máta! Það er greinilegt að blessaður ráðherr- ann hefur farið létt yfir söguna sína, því eins og Illugi Jökulsson benti á í útvarpspistli, þá er það ekki Stalínismi þó „sveitaprestur afhendi úrklippu úr Tímanum"! Ráðherrann getur því andað léttar. Stalín er ekki hér! Hvorki utanríkisráðherra né nokkurn annan þarf að undra þó óróa gæti hjá bændum og sam- tökum þeirra þegar vegið er að hagsmunum þeirra. Undanfarin 10-12 ár hafa bændur dregið sam- an framleiðslu í aðalbúgreinum sínum um að meðaltali 30%. Jafnframt hafa útflutningsbætur nánast verið afnumdar, stórlega dregið úr niðurgreiðslum og ýmis framlög til landbúnaðarins verið skert stórlega. Að mati bænda hafa því meginmarkmið tillagna Dunkels þegar verið uppfyllt hér á landi og engin ástæða til að gera það aftur. Þegar rætt er um að gefa inn- flutning búvara frjálsan má ekki gleyma því að sé reiknað á orku- grundvelli, er um helmingur þeirra búvara sem við neytum innfluttur. Þetta eru auðvitað að mestum hluta búvörur sem við getum ekki framleitt sjálf, en búvörur engu að síður. Þetta eru rök til að verja okkar eigin búvöruframleiðslu og bændur og raunar stór hluti þjóðarinnar vill að það verði gert. Það kann að virðast sem það sé ekki stór hluti þó leyfður verði 3- 5% innflutningur af „okkar“ búvörum. Málið snýst bara ekki um hvort það sé mikið eða lítið. Við eigum að halda í þá verð- mætasköpun sem við getum og meðan við ekki höfum neitt ann- að betra fyrir það fólk að gera Guðmundur Stefánsson. sem stundar landbúnað og vinnur við úrvinnslu þeirra, eigum við að sjálfsögðu að reyna að halda í búvöruframleiðslu okkar. Það er bara útúrsnúningur að segja eins og ráðherrann að hann „treysti" bændum og hafi „trú“ á þeim. Það verður líka að búa þeim starfsskilyrði og hér er ekki verið að spyrja hvort einhverjir bænd- ur verði eftir, heldur hvort land- búnaður sem atvinnugrein verði Hjá Námsgagnastofnun er komin út ný kennslubók, Smíði, og er einkum ætluð til notkunar hjá nemendum í 4.-7. bekk grunn- skóla. Höfundar bókarinnar eru Árni Árnason, Búi Kristjánsson og Ólafur Ólafsson. Smíði er ekki tæmandi kennslu- bók í smíðum heldur byggir hún á völdum verkefnum sem ætla má að börn á aldrinum 9-12 ára gætu haft áhuga á. Engar flóknar smíðasamsetningar koma fyrir í bókinni. Bókin skiptist í 6 kafla og er hér áfram. Og þetta er síður en svo mál bænda einna. Fjöldi fólks í bæjum og kauptúnum þessa lands hefur einnig viðurværi sitt af þessari framieiðslu og það fólk fylgist vel með því sem verið er að gera. Því er haldið fram og með réttu, að bændur fjalli um mál sín á mjög málefnalegan hátt. Til að drepa málinu á dreif tekur utan- ríkisráðherra til bragðs að kveinka sér undan bændum og segir að þeir séu vondir við sig. Sumir segja jafnvel að bænda- stéttin hafi orðið sér til skammar vegna þess hve einhverjir ein- staklingar hafi kveðið fast að orði. Það getur verið að sá húmor og það mál sem talað er í sveitum þyki ekki fínt í utanríkisráðu- neytinu nú um stundir, en hingað til hefur þó ekki þótt skömm að því. Flokkur utanríkisráðherrans hefur oft látið bændur „finna fyr- ir því“. Það var því vonum seinna að bændur létu ráðherrann „heyra það“. Það er þess utan gott og hollt fyrir utanríkisráð- herra að finna, að það er a.m.k. ekki alltaf hægt að fá allt - fyrir ekki neitt. Guðmundur Stefánsson. Höfundur er varaþingmaður Framsóknarflokks- ins í Norðurlandskjördæmi eystra. efni þeirra skv. eftirfarandi: Kubbar, innileikföng, spil og þrautir, nytjahlutir, útileikföng, leikbrúður. Helstu atriðum við smíði verkefnanna er lýst nákvæmlega og textinn er hafður eins stuttur og hægt er. Fjöldi ljósmynda og teikninga eru til útskýringar um gerð og samsetn- ingu hluta. Við lok hvers verk- efnis er getið fleiri útfærslumögu- leika. Verkefni bókarinnar eiga að henta bæði til einstaklings- og hópvinnu og er nánar getið um þá möguleika í inngangi hvers kafla. (Fréttatilkynning.) Ný kennslubók um smíði Safnahúsið á Sauðárkróki: Fyrirlestur um áhrif fiskveiði- stjómunar á hagsmunaaðila Stafnbúi, félag sjávarútvegs- nema við Háskólann á Akur- eyri, gengst fyrir röð fyrirlestra um fiskveiðistjórnun. Þriðji fyrirlesturinn verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 2. febrúar nk. og hefst kl. 15.00. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Áhrif fiskveiðistjórnunar á hagsmunaaðiia“. Framsöguerindi flytja: Snær Karlsson, Verka- mannasambandi íslands; Árni Benediktsson, íslenskum sjávar- afurðum; Einar Svansson, fram- kvæmdastjóri og Kristján B. Garðarsson, iðnráðgjafi. Að framsöguerindum loknum verður opnað fyrir fyrirspurnir og almennar umræður. Stafnbúi og bæjarstjórn Sauð- árkróks bjóða alla velkomna á fyrirlestur þennan.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.