Dagur - 30.01.1992, Blaðsíða 7

Dagur - 30.01.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 30. janúar 1992 - DAGUR - 7 Mikill kynjamunur kemur fram í sjálfsvígum ungmenna. Á árunum 1971-90 féliu 114 ungmenni fyrir eigin hendi héi á landi - 106 piltar og 8 stúlkur. Hins vegar eru stúlkur mun fleiri mcðal þeirra sem reyna sjálfsvíg. (Myndin er fengin að láni frá Heilbrigðismálum). hversu langt er rétt að ganga. Það er ekki mikil hefð fyrir því sem kalla mætti „ágenga læknisfræði" hér á landi. Við verðum að sjálf- sögðu að virða lög um friðhelgi einkalífsins, en spurningin er hvort rétt sé að líta á sjálfsvíg sem einkamál hvers og eins. Hér eru líka í gildi barnaverndarlög, en samkvæmt þeim er öllum skylt að fylgjast með því hvort vandi foreldranna bitnar á börnunum. Þegar slíkt gerist er fólki skylt að leita aðstoðar. Akureyri er raunar bær af heppilegri stærð til þess að gera tilraunir með fyrirbyggjandi aðgerðir. Hér er talsverð sérhæf- ing í heilbrigðisþjónustunni en bærinn er ekki of stór til þess að allir þeir sem stunda meðferð þekkjast. Hér eru því góðar aðstæður til að finna aðferðir til að bæta þjónustuna við þá sem eru í vanda. Ég vildi gjarnan að á heilsugæslustöðvunum væri unn- ið að því að uppgötva tilfinninga- legan vanda og samskiptavanda- mál hjá fólki. Þar mætti reyna meira til að finna þá sem eru að hugleiða að vinna sjálfum sér mein. Ég vildi einnig að geðlækn- ar nýttust betur sem ráðgjafar á heilsugæslustöðvunum en raunin er. Þeir eiga að starfa þar sem fólkið býr. Ástæðan fyrir því að fag- menntuðum ber að reyna að hjálpa fólki eftir mikil áföll og missi er m.a. sú að til geðheil- brigðisþjónustunnar leitar oft fólk sem er að glíma við afleiðingar gamalla áfalla, t.d. sjálfsvíg ástvinar sem átti sér stað fyrir 30-40 árum. Þegar slíkt hendir er algengt að fjölskylduna skorti frumkvæði til að leita sér hjálpar og einangrist jafnvel. Þetta þykir sumum skömm sem ekki má tala um. Hlutverk hjálp- armannsins er þá að koma fólki af stað í að vinna úr sorginni. Og ekki bara sorginni því sjálfsvíg geta vakið alls konar tilfinningar, jafnvel reiði, að ekki sé minnst á sjálfsásökunina sem oft er ótrú- lega mikil. Við það getur heil- brigðis- og félagsþjónustan orðið að miklu liði. Einnig prestar sem sumir hverjir hafa aflað sér sér- stakrar menntunar í að hjálpa fólki með kreppumeðferð og úrvinnslu sorgar. Ég held að fólk myndi taka því vel ef heilsugæslulæknar færu að ræða við það um andlega líðan fjölskyldunnar. Oft er mikil sjálfs- ásökun í gangi og fólk áttar sig ekki á því að það eru fleiri en nánustu aðstandendur sem bera ábyrgð á velferð barna og ungl- inga. Jafnvel skólastofnanir geta verið misjafnlega hollar. Ég vil ekki segja að kennarar eigi að axla ábyrgð í svona málum, en þeir geta haft afgerandi áhrif ef þeir grípa inn í vandamál á rétt- um tíma. Þeir hafa börnin fyrir augunum alla daga og geta komið auga á hvar skórinn kreppir." Nauðsynlegt að opna umræðuna - Lengi vel ríkti um það óform- legt samkomulag í þjóðfélaginu að ræða ekki opinberlega um sjálfsvíg. Þetta hefur verið að breytast, en samt eru margir á því að ekki sé rétt að ræða þetta við- kvæma mál. Hver er þín skoðun á því? „Ég er kominn á þá skoðun að rétt sé að opna umræðuna um þessi mál. Því er oft haldið fram að opinská umfjöllun um sjálfs- víg geti hafa smitáhrif, en ég hef ekki séð neina vísindalega sönn- un fyrir því að fræðsla eða fræði- leg umfjöllun geti haft slík áhrif. Vissulega geta smitáhrif valdið sjálfsvígum og þess eru dæmi frá Japan að fordæmi þekktra manna og umfjöllun fjölmiðla hafi sett af stað bylgju sjálfsvíga. En ég held að smithætta sé mest þegar vinir og félagar hafa valið þessa leið. Þá geta vaknað hugsanir um að vilja sameinast þeim og lækkað þröskuldinn sem viðkomandi þarf að yfirstíga. Ég vil ekki halda því fram að sjálfsvíg liggi í ættum þótt þunglyndissjúkdómar geti vissulega gert það. En vitneskjan um að einhver nákominn hafi valið þessa leið getur verið mikil byrði. Ég er á því að opna umræð- una. Rétt eins og nú þykir sjálf- sagt að ræða við börn og unglinga um kynlíf og getnaðarvarnir, áfengis- og fíkniefnamisnotkun þá þarf að tala við þau um lífið og dauðann. Þess ber líka að gæta að umræðan er í gangi hvort sem er. Fólk ræðir svona hluti sín á milli. Ég vil ekki halda því fram að opinská umræða sé til þess fallin að draga úr tíðni sjálfsvíga en hún getur dregið úr vanlíðan og spennu, mildað sársaukann hjá þeim sem eftir standa. - Má ekki rekja þessa þróun að einhverju leyti til örra breyt- inga á samfélaginu? „Jú, það hafa orðið miklar og á köflum öfgafullar breytingar á samfélaginu. Ég tek sem dæmi að fyrir ekki mjög mörgum árum var ísland með lægsta hlutfall smá- barnamæðra á vinnumarkaði á Norðurlöndum. Nú mun þetta hlutfall vera hæst hér á landi. Svipaða sögu má segja um fjölg- un skilnaða. Breytingarnar hafa verið svo miklar að það hefur enginn yfirsýn yfir afleiðingarnar lengur. Börn eru vissulega frakk- ari í dag og þora að tala meira um tilfinningar sínar. En þau skortir mörg tilfinningalegt öryggi. Og svo má ekki gleyma íslensku forlagahyggjunni, hún vefst fyrir okkur. Hér hugsa menn sem svo að það fer sem fer. - Það hafa alltaf verið slys og verða áfram, segja menn. Þetta viðhorf þvælist fyrir okkur þegar við viljum takast á við vandann," segir Sigmundur Sigfússon geð- læknir. -ÞH Fluguhnýtinga- námskeið veröur haldið í Versluninni Eyfjörð, ef næg þátt- taka fæst 3., 5. og 7. febrúar. Námskeiðin hefjast kl. 20.00 öll kvöldin. Þátttökugjald kr. 2.500, og allt efni innifalið. Nánari upplýsingar í Versluninni Eyfjörð í síma 22275. Ili EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Simi 22275 LEIÐ TIL LAUSNAR Þjónusta Hjálpræðishersins við aldraða og öryrkja í heimahúsum. Hefur þú þörf fyrir að tala við einhvern? Viltu láta lesa fyrir þig? Viltu láta laga eitthvað smávegis fyrir þig? Hringdu þá í síma 11299. Opin símalína á fimmtudögum kl. 18-20. Á öðrum tímum tekur símsvari við skilaboðum. HJÁLPRÆÐISHERINN Hvannavöllum 10. Stórglœsileg verðlaun 1. verðlQun Utonlondsferb fyrir 2 og kvöldverður fyrir 20 monns 2. verblaun Geislospilari ffó Hijómbæ 3. verblaun Plötuverbloun fró Hljómdeild KEA Upplýsingar og skróning í keppnina eru í síma 22770 SJALLINN ' mm Verður til sýnis hjá Bílasölunni Stórholti, laugardaginn 1. febrúar frá kl. 10-17. Reynsluakstur föstudaginn 31. janúar. Hagkvæmur bíll á ótrúlega góöu verði. Bílasalan Stórholt Óseyri 4, sími 23300

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.