Dagur - 30.01.1992, Page 6

Dagur - 30.01.1992, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 30. janúar 1992 Sjálfsvíg á Islandi: Orðið tímabært að ræða um líf og dauða - Sigmundur Sigfússon geðlæknir vill nýta heilsugæslustöðvarnar til þess að fylgjast með þeim sem hyggjast vinna sjálfum sér mein Sjálfsvíg hafa verið töluvert til umræðu í fjölmiðlum að und- anförnu, ekki síst vegna þeirr- ar miklu aukningar sem orðið hefur á síðustu árum á sjálfs- vígum ungra pilta. Þetta er ekki sérislenskt fyrirbrigði heldur þekkist það víða á Vest- urlöndum. En yfirvöld heil- brigðis- og félagsmála standa ráðþrota frammi fyrir því. Rannsóknir á tildrögum sjálfs- víga eru skammt á veg komnar hér á landi en í Kanada var gerð víðtæk rannsókn á sjálfsvígum ungs fólks á árunum 1971-78 og kom þá í ljós athyglisverður munur á annars vegar þeim sem frömdu sjálfsvíg og hinum sem gerðu sjálfsvígstilraun og björg- uðust. í fyrrnefnda hópnum voru piltar í miklum meirihluta, um 80%, og flestir þeirra höfðu gert það gott í lífinu. Flestir höfðu þeir myndað sterk tengsl við aðra, gekk vel í skóla og áttu sér markmið. í hinum hópnum voru stúlkur í meirihluta og þeim hafði flestum vegnað fremur illa í líf- inu. Öðruvísi hugmyndir um líf og dauða Sigmundur Sigfússon yfirlæknir á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri vakti athygli á þessari könnun í grein sem birtist í 3. hefti tímaritsins Heilbrigðismála í fyrra. „Já, þessi fjölgun meðal ungra pilta stangast á við fyrri þekk- ingu, ef svo má segja. Samkvæmt henni aukast líkurnar á sjálfsvíg- um eftir því sem menn eldast og meirihluti fullorðinna sem grípa til þessa ráðs hefur átt við geðræn vandamál að etja. Stærstu áhættu- hóparnir eru taldir þeir sem þjást af þunglyndi, þeir sem misnota áfengi eða fíkniefni og þeir sem orðið hafa fyrir einhverjum missi eða áföllum. Yfirleitt eru fleiri þættir samverkandi hjá fólki sem grípur til sjálfsvíga. Hjá unga fólkinu virðast verða önnur orsakalögmál að verki en þeim fullorðnu. í aðeins fjórð- ungi tilfella er geðrænn sjúkleiki að baki. Það hefur öðruvísi hug- myndir um líf og dauða og oft er um að ræða ákvarðanir sem tekn- ar eru í skjótræði og tilfinninga- legu uppnámi. Ungt fólk talar öðruvísi um dauðann, það hefur minni kynni af honum en eldra fólk og ræðir jafnvel opinskátt um sjálfsvíg sem valkost.“ - Hverjar geta skýringarnar verið á því að ungir menn sem vegnar vel í lífinu ákveða að stytta sér aldur? „Um það er erfitt að segja. Ef til vill er það einhver óþreyja og viðkvæmni. Þeim gengur vel en eru samt aldrei ánægðir með árangur sinn. Hjá mörgum þeirra er mikil innri togstreita. Tökum sem dæmi dreng í litlum útgerð- arbæ sem þykir vænt um plássið sitt. Hann heyrir stöðugt svart- sýnisraus og illt umtal um byggð- arlagið og veit þess utan að ef hann fer og menntar sig eru litlar líkur á að hann eigi afturkvæmt heim. Þetta getur ásamt öðru orðið til þess að unglingurinn fái það á tilfinninguna að það sé ekkert tilhlökkunarefni að verða fullorðinn.“ Siðferðileg skylda okkar að reyna - í þeirri umræðu sem á sér stað um sjálfsvíg ungmenna eru for- eldrar hvattir til þess að hafa auga með hættumerkjum í fari barna sinna. En hvernig er hægt að merkja slíkt þegar allt virðist leika í lyndi? „Það er rétt að slíkt er erfitt. Og það hefur reyndar ekki tekist að sýna fram á það með vísinda- legum rökum að hægt sé með sér- stökum aðgerðum að draga úr tíðni sjálfsvíga. Við viljum hins vegar ekki sætta okkur við að slíkt sé ekki hægt. Sumt hefur raunar tekist hér á landi sem talið er ógerlegt annars staðar. Pví veldur fámennið og önnur sér- kenni íslensks þjóðfélags. Þess vegna er það siðferðileg skylda okkar að reyna. Raunar er það líklega ekki allsendis rétt að hvergi hafi fyrir- byggjandi aðgerðir gegn sjálfs- vígum borið árangur. Fyrir nokkru las ég um tilraun sem gerð var á eynni Gotlandi við Svíþjóð. Þar var læknum eyjar- innar kennt að þekkja þunglynd- iseinkenni og að meðhöndla þau. Þetta hafði þau áhrif að tíðni sjálfsvíga hrapaði niður fyrir landsmeðaltal í Svíþjóð. Hins vegar stóð tilraunin aðeins í þrjú ár og var e.t.v. ekki vísindalega marktæk af þeim sökum. Þetta ætti hins vegar að vekja vonir okkar um að geta gert eitthvað í málinu. Hér á landi höfum við byggt upp heilsugæslu- kerfi á síðustu tuttugu árum, einkum á landsbyggðinni, sem er mjög gott. Hér er gott samband milli almennings og heilbrigðis- þjónustunnar sem sést m.a. á því að hver landsmaður fer að með- altali fimm sinnum á ári til læknis og a.m.k. 95% fara einhvern tíma til læknis á hverju ári. Þetta góða samband ættum við að geta not- fært okkur.“ Þarf að virkja heilsugæsluna - En hvað um rannsóknir á til- drögum sjálfsvíga og högum þeirra sem grípa til slíkra ráða? „Guðrún Jónsdóttir geðlæknir á Borgarspítalanum í Reykjavík Sigmundur Sigfússon geðlæknir: „Hljótum að geta notfært okkur gott samband almennings og heil- brigðisþjónustunnar.“ Mynd: Golli gerði á sínum tíma tölfræðilega úttekt á sjálfsvígum á íslandi, en síðan hefur lítið verið rannsakað. í kjölfar þessarar fjölgunar sjálfs- víga hjá ungum piltum hefur Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála undir forystu Þórólfs Þórlindssonar prófessors hafið rannsóknir á lífsviðhorfum ungra íslendinga en þær eru skammt á veg komnar. Að frumkvæði lækna og félags- málayfirvalda á Austurlandi er embætti landlæknis að kanna möguleikana á því að styðja fjöl- skyldur sem orðið hafa fyrir ástvinamissi af völdum sjálfs- víga. Um leið er ætlunin að afla vitneskju um bakgrunn og tildrög sjálfsvíganna. Það var skipaður starfshópur til að móta tillögur um slíkar aðgerðir. Eins og ég nefndi áðan hlýtur að vera hægt að virkja heilsu- gæslukerfið til þess að vera á varðbergi gagnvart þeim sem íhuga sjálfsvíg. Oft er það svo að sá sem er í slíkum þönkum leitar sér hjálpar, en ekki endilega við þunglyndi eða öðru því sem þjáir hann raunverulega mest. Stund- um koma menn vegna líkamlegra kvartana. Þarna gæti heilbrigðis- þjónustan verið meira vakandi og fylgst með þeim stóra hópi manna sem þjást af þunglyndi eða misnotar áfengi og/eða fíkni- efni. Hér á landi, sem annars staðar, eru gerðar býsna margar tilraunir til sjálfsvíga sem ekki hepprtast. Talið er að þær séu allt að tíu sinnum algengari en sjálfsvíg. Bráðamóttakan á Borgarspítal- anum fær mörg slík tilvik á hverju ári og hefur skráð þau, en því miður er þeim ekki öllum sinnt nógu mikið sem gera slíkar tilraunir. Víða erlendis er farið að taka mjög alvarlega á slíkum tilvikum. í einu sveitarfélagi í Noregi er þeim sem gera tilraunir til sjálfs- vígs en leggjast ekki inn á sjúkra- hús fylgt eftir og veitt aðstoð, jafnvel þótt viðkomandi afþakki hana. Hjúkrunarfræðingar sem starfa að þessum málum undir handleiðslu geðlækna og sál- fræðinga fara heim til viðkom- andi og gefast ekki upp þótt þeim sé ekki hleypt inn í fyrstu atrennu. Þar sem samband hefur komist á hefur það undantekn- ingalaust haft gott eitt í för með sér. Þá er reynt að greina vand- ann sem viðkomandi á við að glíma og veita aðstoð og ráðgjöf. Stundum er vandinn fjárhagslegs eðlis og þá er viðkomandi vísað til félagsmálastofnunar. Vandinn getur lfka átt sér rætur í líkam- legum kvilla og í mörgum tilvik- um þarf ekki mikið til að ráða bót á honum.“ Glímt við sorgina - Kemur til greina að taka þessar aðferðir upp eftir Norðmönnum? „Um það er ekki gott að segja. Læknar eru ekki einhuga um það Á þessu línuriti má sjá hvernig sveiflur hafa orðið í tíðni sjálfsvíga ungmenna og fullorðinna á hverju ári frá 1961- 1990. Hér sést að fjölgun sjálfsvíga ungmenna hefur verið ívið meiri á síðustu árum og að tíðnin fylgir nákvæmlega sama háttbundna mynstri Og hjá þeim eldri. (Heimild: Rannsóknastöð uppeldis- og menntamála) AUGLÝSING UMINNLAUSNARVEFÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1984-1.fl. 01.02.92-01.08.92 kr. 55.908,38 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, janúar 1992. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.