Dagur - 30.01.1992, Side 11

Dagur - 30.01.1992, Side 11
Fimmtudagur 30. janúar 1992 - DAGUR - 11 Íþróttir Jón Haukur Brynjólfsson Punktar frá Þýskalandi ■ Miklar nomaveiðar hafa átt sér stað í Þýskalandi upp á síð- kastið. Allt er reynt til að fletta ofan af fyrrum uppljóstrurum STASI, austur-þýsku öryggis- lögreglunnar sálugu og hafa knattspyrnumenn ekki verið undansícildir. Nú hefur einn þeirra, Torsten Gútschow, leikmaður Dynamo Drcsdcn, viðurkennt að hafa veitt þeim upplýsingar og hefur málið vald- ið miklu fjaðrafoki ytra. Dres- den var áður félag austur-þýsku lögreglunnar og þar spiiaði Gútschow m.a. við hlið Mathiasar Sanuners, leikmanns Stuttgart í dag. Sammer tók upp hanskann fyrir Gútschow í við- tali á dögunum, sagði að hann hefði ekki haft annarra kosta vol á sínum tíma og það ætti að virða hann fyrir að viðurkenna þetta í dag. Forráðamenn Dres- den hafa lýst því yfir að Gút- schow verði ekki látinn gjalda þessa á neinn hátt hjá liðinu enda um einn besta leikmann þess að ræða. ■ Óopinbert meistaramót Þýskalands í innanhússknatt- spyrnu var haldið í Múnchen um síðustu helgi. Mótinu lauk með sigri Borussia Dortmund sem hefur unnið það þrjú ár í röð. Auk Borussia tóku Kais- erslautern, Bayern Múnchen, Bochum, Wattenscheid og Werder Bremen þátt í mótinu. Bochum hafnaði í öðru sæti en liðið hefur unnið nokkur innan- hússmót í vetur. Menn segja að Bayern verði allt að gulli og lið- ið græddi 1,6 milljónir marka á mótinu (um 56 milljónir kr.). ■ Talandi um Bayern Múnchen og peningamál þá var liðið að gera nýjan samning við aðalstyrktaraðila sinn, Opel, til næstu þriggja ára. Samningur- inn gefur Bayern 17 milljónir marka (um 595 milljónir kr.). Þá var upplýst að liðið fær 12,5 milljónir marka (um 438 millj- ónir kr.) fyrir sölu á sýningar- rétti í sjónvarp á tveimur árum. ■ Nágrannarnir Bayern, Núrnberg, eiga ekki sama pen- ingaláni að fagna. Félagið skuldar nú meira en nokkurt lið hefur gert í sögu þýsku knatt- spyrnunnar, eða 22 milljónir marka (um 770 milljónir). Er talið vafasamt að liðið geti greitt laun um næstu mánaðamót. Peningum félagsins þykir ekki hafa verið ráðstafað ýkja gáfu- Iega og t.d. eru 10 Mercedes Benz bifreiðar skráðir á klúbb- inn fyrir starfsmenn félagsins. Eru þá ótaldar bifreiðar leik- manna. * Þýska knattspyrnusamband- ið segir að Sören Lerby fái ekkí að starfa áfram í Þýskalandi eft- ir tímabilið nema hann taki þjálfarapróf sem skilyrði er að þjálfarar hafí. Framkvæmda- stjórinn Ole Höness gefur lítið fyrir þetta og segir að Lerby verði áfram þjálfari ef félagið vilji það, knattspyrnusamband- ið verði ekki spurt að því. ■ Bayern Leverkusen reynir nú að endurnýja samninginn við Brasilíumanninn Jorge de Jorginho. Hann segir nei og vill til Italíu en sumir segja að hann endi hjá Bayern Múnchen. ■ Ghanamaðurinn Anthony Yeboah vill fá 800 þúsund mörk (28 milljónir kr.) fyrir að endur- nýja samning sinn við Frankfurt, sem hefur boðið honum 400 þúsund. Ýmislegt bendir til að hann fari til Frakklands. Einar Stefánsson, Þýskalandi. Körfuknattleikur: Stórsigur Tindastóls á Skallagrími Skallagrímur kom í heimsókn til Tindastóls sl. þriðjudags- kvöld. Móttökur gestgjafanna voru ekki hlýjar því gestirnir urðu að sætta sig við rúmlega þrjátíu stiga tap, 103:70. Bæði liðin hófu leikinn af meira kappi en forsjá og lítil áhersla var lögð á vörnina. Fljót- lega náði Tindastóls þó níu stiga forskoti, en Adam var ekki lengi í paradís og Skallagrímur jafnaði leikinn að nýju um miðbik hálf- leiksins eftir góð hraðaupphlaup. Næstu mínúturnar voru jafnar, en heimamenn sigu síðan smátt og smátt fram úr þrátt fyrir að mistökin hjá þeim væru engu minni en hjá gestunum. Staðan í hálfleik var 51:42 fyrir Tindastól. Greinilegt var strax í byrjun síðari hálfleiks að nú ætluðu heimamenn að sýna sinn mátt og Taijiquan á Akureyri 10. febrúar hefst í KA-húsinu á Akureyri námskeið í kínverskri leikfimi sem kallast Taijiquan. Taijiquan er ein grein kín- verskrar hnefaleikalistar og er meira en þrjú hundruð ára gömul. Á síðastliðnum hundrað árum hefur Taijiquan breyst úr bar- dagaæfingum í mjúkar og rólegar líkamsæfingar þar sem slökun og kyrrð eru grundvallaratriði. Lögð er áhersla á yfirráð hugleiðslu yfir líkamanum og líkja sumir Taijiquan við hugarleikfimi. Milljónir manna í borgum og þorpum í Kína stunda þessa leik- fimi á hverjum morgni. Námskeiðið hefst 10. febrúar og verður kennt í tveimur tíu daga törnum í morgun-, hádegis- og kvöldtímum. Innritun og nán- ari upplýsingar í síma 27541 eftir kl. 21.15 á kvöldin. tókst þeim það með ágætum, en Tindastóll gerði 29 stig á meðan Skallagrímur gerði 11 á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins. Einna stærsta þáttinn í þessu góða starti heimamanna átti Valur Ingimund- arson, en hann gerði þrjár þriggja stiga körfur í röð strax í upphafi hálfleiksins. Eftir að þessari góðu forystu var náð hvíldu lykilmenn Tindastóls sig og yngri og óreyndari leikmenn fengu að spreyta sig. Þeir stóðu sig þó engu verr og héldu fengn- um hlut. Piltarnir í Skallagrími með Birgi Mikaelsson í farar- broddi náðu sér ekki á strik eftir að stigamunurinn var orðinn svona mikill, en héldu samt sinni leikgleði allt til leiksloka. „Við fórum í gang í seinni hálf- leik, tókum þá framar og létum þá ekki keyra svona á okkur eins og í fyrri hálfleik. Um leið og við fórum að spila stífa vörn þá datt þetta niður hjá þeim og þeir náðu ekki hraðaupphlaupunum,“ sagði Valur Ingimundarson, leikmaður og þjálfari Tindastóls eftir leik- inn. Besti leikmaður Tindastóls var tvímælalaust Valur Ingimundar- Handknattleikur: Algerir yfirburðir Þórs Völsungar höfðu ekki mikið að segja í hendurnar á Þórsurum þegar liðin mættust í 2. deild- inni í handknattleik á Akureyri á þriðjudagskvöldið. Þórsarar höfðu yfirburði á öllum sviðum og unnu stórsigur, 29:17. Þórsarar byrjuðu strax af mikl- um krafti og lengi vel leit út fyrir að Húsvíkingar mundu fá enn verri útreið en raun bar vitni. Eftir að þeir höfðu jafnað 1:1 skoruðu þeir ekki mark í 19 mínútur á meðan Þórsarar bættu 8 við. Sóknarleikur Þórsara var hraður og fjölbreyttur og ekki stóð steinn yfir steini í Völs- ungsvörninni á meðan Þórsvörn- in var sterk og Hermann mark- vörður í miklum ham fyrir aftan hana. Þegar ein og hálf mínúta var til leikhlés var staðan 13:2 en Völsungar skoruðu tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks. í seinni hálf- leik batnaði leikur Völsungs og leikurinn jafnaðist nokkuð en yfirburðir Þórsara voru þó greini- legir sem fyrr. Þórsliðið hefur í vetur margoft sýnt hvað í því býr en hefur stundum átt í erfiðleikum með að halda keyrslu gegn veikari liðum. Að þessu sinni spilaði liðið mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Sóknarleikur liðsins er hraður og skemmtilegur og það er synd að ekki skuli fleiri áhorfendur láta sjá sig á leikjum þess. Það er erf- itt að taka út einstaka menn nema þá helst Hermann Karlsson sem ver eins og vitlaus maður þessa dagana og einnig er gaman að sjá hvað Jóhann Samúelsson er að verða sterkur. Völsungsliðið á í erfiðleikum og staða þess í deildinni segir sína sögu. Liðið vantar sárlega góða skyttu og ógnunin í sóknar- leiknum er því lítil. Völsungar fóru oft afar illa með færin sín, fengu t.d. fjögur vítaköst í fyrri hálfleik og misnotuðu öll. Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 11/4, Ole Nielsen 8, Rúnar Sigtrygsson 4, Sævar Árnason 4, Aðalbjörn Svanlaugs- son 1, Ingólfur Samúelsson 1. Hermann Karlsson varði 17/1 skot og Ingólfur Guðmundsson 2. Mörk Völsungs: Ásmundur Arnarsson 4, Haraldur Haraldsson 3, Jónas Grani Garðarsson 3, Skarphéðinn fvarsson 3/2, Arnar Bragason 2, Vilhjálmur Sigmunds- son 2. Heiðar Dagbjartsson varði 5/1 skot og Einar Guðmundsson 1. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Arnar Kristinsson. Dæmdu þokkalega. íþróttahöllin á Húsavík: Boccia leikið allan laugardagmn - ijáröflun boccialiðsins og útskriftarnema Ásmundur Arnarsson, útskriftamemi, Kristbjöm Óskarsson, fyrirliði boccia- liðsins og Arnar Guðlaugsson, þjálfari boccialiðsins. Boccia verður leikið í íþrótta- höllinni á Húsavík frá kl. 8 árdegis laugardaginn 1. feb. til kl. 18 síðdegis sama dag. Það verða Boccialið Völsungs og lið útskriftarnema við Fram- haldsskólann sem leika. íþrótta- höllin verður opin allan daginn og fólki velkomið að koma og fylgjast með, en aðgangur er ókeypis. Auk þess að vera kynning á boccia er leikurinn til fjáröflunar fyrir boccialiðið og útskriftar- nemana, en gengið er í hús og fyrirtæki í bænum og áheitum safnað. Fénu sem safnast verður varið til að styrkja boccialiðið á íslandsmótið, Hængsmótið og Siglufjarðarmótið, en auk þess mun það keppa á Þórðarmótinu sem Kiwanisklúbburinn Skjálf- andi á Húsavík stendur árlega fyrir. Útskriftarnemarnir eru hins vegar að afla fé í ferðasjóð sinn. Ýmsar uppákomur verða á boccialeiknum á laugardaginn, mun þar bera hæst einvígi Krist- björns Óskarssonar, fyrirliða boccialiðsins og Ásmundar Bjarnasonar, frjálsíþróttamanns og fyrrum Ólympíufara, en þeir félagar hafa marga hildi háð um dagana, að sögn Arnars Guð- laugssonar, þjálfara boccialiðs- ins. Kristbjörn og Ásmundur keppa kl. 11 á laugardagsmorg- un, en aðrar uppákomur verða nánar auglýstar í götuauglýsing- um. „Það er von okkar að bæjar- búar taki vel á móti söfnunarfólk- inu,“ sagði Arnar, er hann leit við á skrifstofu Dags á Húsavík ásamt Kristbirni og Ásmundi Arnarssyni, útskriftarnema. IM son, en ungu leikmennirnir sýndu auk þess efnilegan leik. Hjá Skallagrími stóð Birgir Mikaels- son upp úr og einnig var gaman að fylgjast með Maxim Kropachev sem lét mótlætið aldrei fara í skapið á sér. Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 30, Pétur Guðmundsson 19, Ivan Jonas 12, Einar Einarsson 10, Ingi Þór Rúnarsson 10, Björgvin Reynisson 8, Björn Sig- tryggsson 7, Haraldur Leifsson 5, Hinrik Gunnarsson 2. Stig Skallugríms: Birgir Mikaelsson 21, Maxim Kropachev 17, Sigurður E. Þór- ólfsson 9, Þórður Jónsson 6, Þórður Helgason 6, Hafsteinn Þórisson 6, Gunn- ar Jónsson 3, Skúli Skúlason 2. Dómarar: Helgi Bragason og Brynjar Þorsteinsson. Sést hefur betri dómgæsla. Knattspyrna: Gunnar frá í tvær vikur Meiösll Gunnars Gíslason- ar, þjálfara knattspyrnuliös KA, reyndust ekki alvarleg en eins og fram kom í blað- inu í gær meiddist hann á æfingu á mánudagskvöldið. Gunnar sagði að liðþófi í hnéinu hefði gefið sig og verið fjarlægður. „Maður er bara ánægður með að þetta var ekki meira fyrst maður meidd- ist á annað borð. Þetta var svona með þvt skársta sem gat gerst,“ sagði Gunnar sem reiknar með að byrja að æfa aftur eftir hálfan mánuð. í kvöld: Haukar-Þór í kvöld mætast Haukar og Þór í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik. Leikurinn fer fram í Hafnarfirði og hefst kl. 20. ÚrvaJsdefld A-riðill KR-Snæfell 105:69 Tindastóll-Skallagrímur 103:70 UMFN 17 14-3 1606:1359 28 KR 17 13-4 1560:1370 26 Tindastóll 17 9-8 1553:1528 18 Snæfell 17 3-14 1336:1598 6 Skallagrímur 17 3-14 1364:1654 6 B-riðill Valur-ÍBK 91:% ÍBK 17 16-1 1706:1435 32 Valur 17 10-7 1577:1499 20 UMFG 17 7-10 1433:1385 14 Haukar 16 7-9 1452:1556 14 Þór 16 2-14 1362:1565 4 Handknattleikur 2. deild UMFA-KR 21:25 Þór-Völsungur 29:17 ÍR 10 10-0- 0 276:170 20 Þór 9 9-0- 0 246:161 18 HKN 11 8-0- 3 274:204 16 UMFA 11 7-0- 4 236:214 14 Ármann 12 5-0- 7 264:253 10 ÍH 9 5-0- 4 191:202 10 KR 10 3-1- 6 220:211 7 Fjölnir 10 3-1- 6 195:230 7 Völsungur 12 2-0-10 241:305 4 Ögri 11 0-0-11 161:296 0

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.