Dagur - 12.02.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 12. febrúar 1992
29. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
ennabudin
HAFNARSTRÆTI92 - 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
BERNHARDT
Thc Tailor-l.ook
Togarinn Frosti á Grenivík:
Tvöfaldar kvótann
á Sauðárkróki
- Grenvíkingar vonast eftir að togarinn landi
heima þegar samningar við FISK rennur út
„Við gerum þetta til að drýgja
kvótann hjá okkur og samn-
ingurinn við Fiskiðju Sauðár-
króks gildir út þennan mánuð.
Hvort við förum þá til Kald-
baks er ekki búið að ákveða
enn,“ segir Jakob Þorsteins-
son, forsvarsmaður Frosta hf.
sem gerir togarann Frosta ÞH
út frá Grenivík.
Að sögn Jakobs hefur kvóta-
skerðingin komið illa við Frosta
hf. því kvóti skipsins er mestur í
þorski. Til að tvöfalda hluta
kvótans var gerður samningur við
Fiskiðju Sauðárkróks um að
landa hjá henni í janúar og
febrúar og fá tonn á móti tonni í
kvóta. Jakob segir að Frosti ÞH
sé búinn að leggja upp um 230
tonn á Sauðárkróki, en illa hafi
aflast undanfarið. Hann segir
engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um hvar Frosti leggi upp eftir
Mokveiði síðustu sólarhringana á loðnumiðunum:
Heíldarafljim knniinn í 250 þúsund tonn
að samningurinn við Fiskiðju
Sauðárkróks rennur út.
Asgeir Arngrímsson, nýráðinn
framkvæmdastjóri Kaldbaks hf. á
Grenivík, segir að vonir standi til
að fá Frosta til að landa hjá fyrir-
tækinu eftir að togarinn kemur
frá Sauðárkróki. Hann segir
vinnu í frystihúsinu það sem af er
þessu ári hafa verið daufari en á
sama tíma í fyrra, en þá lagði
Frosti upp hjá fyrirtækinu. Engu
að síður segir Ásgeir að tekist
hafi að halda uppi átta tíma
vinnu með línufiski og öðru, en
vinna í frystihúsinu hófst að nýju
um miðjan janúarmánuð. SBG
Eftir langan hlýindakafla að undanförnu hefur kólnað töluvert í veðri og búist er við að hann andi köldu næstu daga.
I gær var blíðskaparveður um norðanvert landið, stillt og bjart og tilvalið að láta fákana spretta úr spori. Þessi mynd
var tekin í gær í Breiðholti, hesthúsahverfi Akureyringa. Mynd: Goiií
- nær fjórfalt meiri veiði það sem af er vetrarvertíð en fyrir áramót
Áhrif nýs búvörusamnings:
„Tekjur bænda
lækka og
óvissan eykst“
- sagði Ari Teitsson, ráðu-
nautur á Ráðunautafundi
í gær
„Eftir 1. september í haust
munu tekjur bænda lækka,
störfum í landbúnaði fækkar
og óvissan eykst. Það er erfitt
að horfast í augu við þessar
staðreyndir en þær eru því
miður engu að síður sannar,“
sagði Ari Teitsson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi S-Þing-
eyinga á Ráðunautafundi í
gær.
Erindi Ara fjallaði um breytt
starfsumhverfi bænda eftir gildis-
töku nýs búvörusamnings 1. sept-
ember nk. Ari tók til ýmis dæmi
um breytingar á samningnum,
m.a. að bændur munu taka mun
meiri ábyrgð á meðferð búvara.
„Ef grundvallarverð dilkakjöts
lækkar, þá óttast ég að bændur
þurfi að minnka fastan kostnað
og laun muni jafnvel lækka. Þetta
þýðir auknar fyrningar á fram-
leiðslutækjum á næstu árum,“
sagði Ari. í dag skiptist grund-
vallarverð dilkakjöts þannig, að
45% af því eru laun framleið-
enda, 37% breytilegur kostnaður
og 18% fastur kostnaður.
Ari sagði að líkleg áhrif á sölu
framleiðsluheimilda yrðu þau að
bú stækki, fjármagn flytjist frá
landbúnaði, framleiðsluhlutdeild
vel rekinna búa aukist og fram-
leiðsla aukist milli svæða. Svæðin
sem Ari nefndi, eru svæði með
lágan framleiðslukostnað, svæði
öflugra afurðastöðva og hrein
sauðfjárbú. -bjb
Loðnuveiðin frá því veiðar
hófust í haust er nú orðin um
250 þúsund tonn. Fyrir áramót
veiddust 56 þúsund tonn og frá
áramótum eru komin um 190
þúsund tonn á land. Mokveiði
hefur verið á miðunum síðan
fyrir helgi.
Miðað við úthlutaðan kvóta á
vertíðinni er hlutur íslendinga
tæp 580 þúsund tonn. Ljóst er að
Á undanlörnum vikuin og mán-
uðum hafa eigendur hússins
nr. 15 við Rimasíðu á Akureyri
unnið að breytingum á því í
fjórar íbúðir án þess að hafa til
þess tilskilin leyfi. Bygginga-
fulltrúinn á Akureyri hefur
kært málið til bæjarfógeta-
embættisins á Akureyri.
Á fundi bygginganefndar
Akureyrarbæjar 18. september
sl. skýrði Jón Geir Ágústsson,
byggingafulltrúi, bygginganefnd
frá því að búið væri að innrétta
þrjár íbúðir í húsinu nr. 15 við
Rimasíðu og unnið væri að því að
grænlenski kvótinn, sem og sá
hluti sem Norðmenn náðu ekki
að veiða, fellur íslendingum í
skaut og samtals má því reikna
með að kvótinn verði tæp 700
þúsund tonn.
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni, sagði að mokveiði hafi
verið á miðunum síðustu sólar-
hringana. Vegna löndunarbiðar á
þeim höfnum sem næst liggja
miðunum sigla skipin lengra og
innrétta þá fjórðu. Bygginga-
nefnd fól byggingafulltrúa að
vinna að málinu samkvæmt bygg-
ingarreglugerð og 31. grein í
byggingarlögum, sem kveður á
um að ef byggingaraðili hlíti ekki
fyrirmælum byggingarfulltrúa og
lögreglu um stöðvun eða brott-
nám framkvæmda, skuli fara með
málið að hætti opinberra mála.
Þann 13. nóvember sl. skrifaði
byggingafulltrúi bæjarfógeta bréf
þar sem málið var kært og gerð
grein fyrir því að í umræddu húsi
við Rimasíðu hefði ekki verið
farið að settum reglum.
segir Bjarni að því séu aðeins 5-6
skip á miðunum í einu og stoppi
stutt. „Flestir eru því á stíminu.
Það er afmæli hjá olíufélögunum
núna,“ sagði Bjarni.
Súlan var á leið til Raufarhafn-
ar í gær með fullfermi. Guð-
mundur Ólafur var hins vegar á
leið frá Raufarhöfn á miðin.
Sigurður RE-4 var væntanlegur
til Krossanesverksmiðjunnar í
nótt með 1380 tonn en þetta er
Einhverra hluta vegna hefur
málið ekki ennþá náð lengra og
hafa íbúðir í húsinu þegar verið
leigðar út. Leigjendur segjast
hins vegar ekki hafa vitað að
þarna hafi ekki verið farið að
settum reglum.
„í þessu tilviki var farið á bak
við lög og reglur, sem er mjög
alvarlegt mál. Ég hafði þau
afskipti af málinu að ég stöðvaði
manninn og sagði honum að
þarna mætti ekki vinna. Því var
ekki hlýtt á neinn hátt. Ég og
fleiri lesa byggingalög þannig að í
tilvikum sem þessum beri að fara
með slíkt mál að hætti opinberra
mála,“ sagði Jón Geir Ágústsson,
byggingafulltrúi í gær.
Skýrt er kveðið á um í lögum
að til breytinga á húsnæði þurfi
leyfi bygginganefndar í viðkom-
andi sveitarfélagi. í sumum til-
fellum þarf að leita heimildar
skipulagsnefndar og heilbrigðis-
eftirlits. í þessu tilfelli segir bygg-
ingafulltrúi að viðkomandi aðili
hafi ekki haft leyfi af neinu tagi
til breytinga á húsnæðinu.
Þrátt fyrir margítrekaðar til-
raunir í gær tókst ekki að ná tali
af Elíasi Elíassyni, bæjarfógeta,
annar farmurinn sem skipið kem-
ur með þangað á stuttum tíma.
í>á hafa nokkur skip siglt með
aflann til Færeyja en þar sem
veiðisvæðið er nú að nálgast
Vestmannaeyjar er t.d. mun
styttra að sigla þangað en til
Siglufjarðar eða Krossaness. Eftir
því sem næst verður komist er
verð þar einnig hærra eða yfir
5000 kr. á tonnið. JOH
til þess að spyrjast fyrir um
afgreiðslu bæjarfógetaembættis-
ins á bréfi byggingafulltrúa frá
13. nóvember sl. óþh
Siglufjörður:
Skullu saman
í hálkunni
Tveir bílar skullu saman á mót-
um Hvanneyrarbrautar og Tún-
götu á Siglufirði í gær. Ekki
urðu slys á fólki, en nokkurt
eignatjón á bflunum. Þá urðu
þrír árekstrar í umferðinni á
Akureyri í gær.
Lögreglan á Siglufirði sagði í
gær að töluverður snjór hefði
þjappast á götur bæjarins undan-
farna daga og því væri lúmsk
hálka.
í gær var logn og stillt veður á
Siglufirði, en smá snjómugga
annað slagið.
Lögreglan á Akureyri sagði að
árekstrarnir þrír í bænum í gær
hefðu verið minniháttar og engin
slys hefðu orðið á fólki. óþh
Þessu húsi nr. 15 við Rimasíðu hefur verið breytt í fjórar íhúðir án þess að
viðkomandi hafi fengið til þess tilskilin leyfi.
Gerðar breytingar á húsinu númer 15 við Rimasíðu á Akureyri bak við lög og reglur:
MáJið verið kært til bæjarfógeta