Dagur - 12.02.1992, Blaðsíða 12
heimsendingarþj ónust a
alla daga
Sunnudaga til finuntudaga kl. 12.00-22.30
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
VEITINGA H
Akureyri, miðvikudagur 12. febrúar 1992
Atvinnuátak í fjórum hreppum í Eyjafirði
y og S.-Þingeyjarsýslu:
Ýtt úr vör í haust ef fé
fæst frá Byggðastoftran
Glerárgötu 20 • 26690
Ákveðið hefur verið að sækja
um styrk frá Byggðastofnun til
að setja af stað átaksverkefni í
atvinnumálum í Eyjafjarðar-
sveit, Svalbarðsstrandar-
hreppi, Hálshreppi og Grýtu-
bakkahreppi. Aætlað er að
þessu verkefni verði ýtt úr vör
í haust, ef fjárveiting fæst en
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar
hefur forgöngu um þetta mál
og mun stýra verkefninu.
Ásgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar, segir að hugmyndin
sé að þetta verkefni standi í eitt
og hálft ár.
„Þetta er hugsað sem sam-
starfsverkefni þessara sveitarfé-
laga og við leggjum þannig upp
með þetta. Nú þegar er í gangi
verulegt samstarf milli sveitarfé-
laganna og vilji er til að auka það
samstarf. Svona verkefni á að
fljóta yfir hreppamörkin og
þannig hafa slík verkefni gefist
best. Þetta er kerfisbundin
aðferð til að laða fram krafta
heimamanna og ég sé enga
ástæðu til þess að það geti ekki
flotið yfir hreppamörk," segir
Ásgeir.
Hann sagði sveitarfélögin fjög-
ur eiga margt sameiginlegt. Þau
bæði njóti nálægðarinnar við
Akureyri og að vissu leyti gjaldi
fyrir hana líka en allt séu þetta
sveitarfélög sem byggi mikið á
landbúnaði. „Öll hafa þau mikla
möguleika í sambandi við ferða-
mál og fleira mætti telja upp sem
er þeim sameiginlegt. Við bind-
um því talsverðar vonir við að
draga megi eitthvað jákvætt
fram,“ sagði Ásgeir.
Verkefnið er kostnaðarsamt og
segir Ásgeir að áætlanirnar standi
og falli með fjárframlagi frá
Byggðastofnun. Hún hafi styrkt
áþekk atvinnuverkefni með góð-
um árangri og hafi fjármagn til að
styrkja verkefni sem þessi. JÓH
Útflutnmgsverðmæti hrogna
gæti orðið um 1200 milljónir
A fundi sem haldinn var fyrir
helgina í Hollandi var ákveðið
að íslenskir grásleppukarlar
megi veiða sem svarar 20 þús-
und tunnum af grásleppuhrogn-
um á þessu ári. Ef vel gengur
gæti útflutningsverðmætið
orðið talsvert miklu meira í ár
en í fyrra.
Örn Pálsson framkvæmdastjóri
Landssamband smábátaeigenda
var einn þeirra sem sátu fundinn í
Hollandi en þar voru saman-
komnir fulltrúar veiðimanna og
kavíarframleiðenda í löndunum
fjórum sem skipta þessum mark-
aði á milli sín. Þar urðu menn
sammála um að markaðurinn
þyldi um 50 þúsund tunnur á
þessu ári og að þær ættu að skipt-
ast þannig milli þjóðanna að
íslendingar og Kanadamenn
mættu veiða 20 þúsund tunnur
hvor þjóð, Norðmenn 7-8.000
tunnur og Danir 3.000 tunnur.
Verðið sem fæst fyrir hrognin
er hagstætt um þessar mundir en
það verður 1.125 þýsk mörk fyrir
tunnuna. Það gerir 37-38.000 kr.
í skilaverð til veiðimanns. Ef
trillukörlum lánast að veiða upp í
kvótann gæti útflutningsverð-
mætið orðið um 1.200 milljónir
króna. Venjan er sú að um helm-
ingur hrognanna sé fluttur úr
iandi saltaður í tunnum en helm-
ingurinn fari í vinnslu og fluttur
út sem kavíar í neytendaumbúð-
um.
í fyrra var veiðin einungis rúm-
lega 33.000 tunnur svo hér er um
verulega aukningu að ræða. Örn
sagði að það væri einkum að
þakka því að stöðugleiki hefði
náðst á markaðnum. „Árið 1987
var mikið offramboð og í kjölfar
þess hrundi verðið, en síðan hef-
ur tekist að ná stöðugleika á
markaðnum og halda honum.
Fyrir vikið hefur verðið farið
hækkandi og magnið sem óhætt
er að setja á markað aukist,"
sagði Örn.
I fyrra var veiðin léleg og ein-
ungis tókst að veiða 10 þúsund
tunnur af hrognum. í meðalári er
veiðin um 16 þúsund tunnur og
sagði Örn að vertíðin í ár þyrfti
að vera í rúmu meðallagi til þess
að 20 þúsund tunna markið
næðist. „Fiskifræðingar segja að
það eigi að geta tekist, en veðrið
getur sett strik í reikninginn. Það
þarf ekki nema tveggja vikna
ótíð á mesta veiðitímanum til
þess að eyðileggja vertíðina,“
sagði Örn Pálsson. -ÞH
Mynd: IM
Strákarnir í handboltaliði Völsungs á Húsavík:
Snoðklipptir í tilefhi sigurs
Hárflóð varð á Hárgreiðslu-
stofu Hillu og Rikku á Húsavík
sl. mánudagskvöld, er stofan
fylltist af 2. deildar liði Völs-
unga í handbolta, sem var snar-
lega snoðklippt af eigendum
stofunnar. Tildrög þessa við-
burðar eru þau að piltarnir hafa
ekki verið of kátir með gengi
liðsins að undanförnu og höfðu
heitið því að láta snoðklippa sig
eftir næsta sigur. Síðan unnu þeir
leik fyrir sunnan um helgina og
hárið var látið fjúka - en þó
ekki alveg af öllum. Villi kom
með undanþágubeiðni og fór
fram á að snoðunin yrði látin
bíða fram yfir næstu árshátíð,
og Halli Haraldar slapp ein-
hvern vegin út úr dyrunum með
hár sitt óskert. Samþykkt var að
eftir tvo unna leiki til viðbótar
yrði hárið látið fjúka af hand-
boltaráði, það mundi leik-
mönnunum ekki leiðast og viss-
ara fyrir andstæðinga þeirra að
passa sig vel í næstu ieikjum.
Gjaldþrot hjá fyrirtækjum á mettuðum markaði:
„Hart ef ekki er hægt að reka
fyrirtæki út af svona rugli“
- segir Þórarinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar
- vill kenna bönkunum um hluta af þessari þróun
Gjaldþrot hafa verið býsna tíð
á Akureyri á undanförnum
mánuðum og margir sem hafa
orðið fyrir skakkatöllum af
þeim sökum. Sum fyrirtæki
hafa leitað eftir nauðasamn-
ingum við kröfuhafa og t.d.
sendi lögfræðingur gjaldþrota
fyrirtækis bréf til kröfuhafa nú
í byrjun febrúar þar sem boðist
er til að greiða Ys af höfuðstól
skuldar við viðkomandi á
tveimur árum án vaxta eða
kostnaðar.
Þórarinn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunn-
ar hf., fékk bréf af þessu tagi og
segir hann það vekja upp ýmsar
spurningar um ábyrgð lánastofn-
ana og siðferði. Hann hefur
áhyggjur af þeirri þróun í fyrir-
tækjarekstri að menn geti athuga-
semdalaust risið upp úr gjald-
þrota fyrirtæki og stofnað nýtt,
en kröfuhafar sitja eftir með sárt
ennið og almenningur einnig.
„Mér finnst þetta mjög óeðli-
leg þróun sem er að eiga sér stað
í þjóðfélaginu. Fyrirtæki og ein-
staklingar geta farið í gjaldþrot,
boðið hlutagreiðslu af höfuðstól
án vaxta og kostnaðar og byrjað
síðan daginn eftir með hreint
Sigluftörður:
Heimameim sýna áhuga á kaupum á Hótel Höfii
Rögnvaldur Gottskálksson hjá
íslandsbanka hf. á Siglufirði
segir að aðilar á Siglufírði hafí
þegar spurst fyrir um kaup á
húseign Hótels Hafnar á Siglu-
fírði, en íslandsbanki hf. leysti
hótelið til sín á nauðungarupp-
boði sl. föstudag fyrir 7,4 millj-
ónir króna. Auk Islandsbanka
bauð Byggðastofnun 7 milljón-
ir króna í hótelið.
Rögnvaldur segir að þrotabús-
stjóri Hótels Hafnar eigi eftir að
taka afstöðu til kaupa íslands-
banka á hótelinu og því of
snemmt að spá fyrir um hvort
bankinn semji við heimamenn
um kaup á því.
íslandsbanki leysti Hótel Höfn
til sín fyrir álíka upphæð og kröfu
bankans í þrotabú hótelsins.
Rögnvaldur vildi ekki gefa upp
hvað bankinn vildi fá fyrir hótel-
ið, fari svo að hann gangi til
samninga við heimamenn um
kaup á því, en sagði að menn
gerðu sig ánægða „að koma út á
sléttu“.
Fram kom á nauðungarupp-
boðinu sl. föstudag að það næði
aðeins til fasteignarinnar Hótels
Hafnar, en hugsanlegum kaup-
anda hótelsins yrði síðar boðið
lausafé, þ.m.t. borð og stólar, til
kaups.
Heildarkröfur í þrotabú Hótels
Hafnar voru 48,4 milljónir
króna. Hlutafélagið Hótel hf.
hefur hótelið á leigu. óþh
borð,“ sagði Þórarinn.
Hann segir nauðsynlegt að
breyta útlánareglum til fyrirtækja
og hann vill að bankarnir veiti
tryggingar þannig að þeir aðilar
sem versla við þessi fyrirtæki sem
fara í gjaldþrot hafi eitthvað í
bakhöndinni ef illa fer.
„Bankar og aðrar lánastofnan-
ir eru allt of viljugir að lána aðil-
um sem eru að byrja að reka
fyrirtæki í þeim greinum sem of
margir aðilar eru í fyrir. Þeir ættu
frekar að stoppa þetta af. Þessir
aðilar fara síðan á hausinn og þá
tapa bæði bankarnir og aðrir
kröfuhafar stórum fjárhæðum.
Til þess að halda þessu gangandi
hækka bankarnir vextina og fyrir-
tæki hækka verðlag. Hinn
almenni neytandi verður að
borga skakkaföllin. Ég get ekki
sætt mig við þá skýringu að þetta
sé hin frjálsa samkeppni,“ sagði
Þórarinn.
Gúmmívinnslan hefur áður
fengið bréf eins og þetta sem hér
hefur verið vísað í og Þórarni
finnst nú fulllangt gengið.
„Ég vil kenna bönkunum og
lánastofnunum um hluta af þessu
og mér finnst ansi hart ef ekki er
hægt að reka fyrirtæki hér á heið-
arlegan hátt út af alls konar
svona rugli,“ sagði Þórarinn. SS