Dagur - 12.02.1992, Síða 3
Miðvikudagur 12. febrúar 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Ef íslenskur landbúnaður líður undir lok:
Hentistefnu og skannnsýni stjómmálamanna um að kenna
- en ekki alþjóðasamningum, sagði Haukur Halldórsson,
formaður Stéttarsambands bænda m.a. á Ráðunautafundi í gær
Alþjóðasamningar voru meðal
umræðuefnis á Ráðunautafundi
í gær og í lok ræðu sinnar sagði
Haukur Halldórsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda, að
ef íslenskur landbúnaður liði
undir lok, þá yrði það ekki
vegna alþjóðasamninga, held-
ur fyrir hentistefnu og skamm-
sýni íslenskra stjórnmála-
manna.
„Veruleg óvissa ríkir um fram-
hald GATT-viðræðnanna og
margt bendir til að þeim verði
frestað fram á mitt ár 1993. Enda
þótt sú verði raunin, er ég sann-
færður um að einhvers konar
samkomulag mun fyrr eða síðar
nást á þessum vettvangi. Því er
ekkert fyrir okkur annað að gera
en búa okkur undir aukna sam-
keppni á markaðnum. Það sem
mun skipta höfuðmáli er hvernig
staðið verður að framkvæmd
einstakra ákvæða þegar þar að
kemur. Mér hefur stundum fund-
ist að þegar stjórnvöld í öðrum
löndum reyna að sveigja fram-
kvæmd ýmissa samninga, sínum
atvinnuvegum sem mest í hag, þá
séu menn í stjórnkerfinu hér
heima oft kaþólskari en páfinn og
þurfi helst að ganga lengra í
breytingum en aðrir,“ sagði
Haukur m.a.
Haukur sagði að fyrirvarar
ríkisstjórnarinnar við tillögum
Dunkels væru afar mikilvægir og
í stórum dráttum í samræmi við
þær áherslur sem Stéttarsamband-
ið setti fram. „Ef þessir fyrirvarar
fást viðurkenndir, breytir það
Frá Ráðunautafundinum á Hótel Sögu í Reykjavík.
myndinni mikið og ætti að skapa
íslenskum landbúnaði tiltölulega
ásættanlega stöðu og svigrúm til
áframhaldandi aðlögunar að
aukinni samkeppni," sagði
Haukur ennfremur.
Norðlenskir ísfisktogarar:
Hásetahluturinn hækkaði um 19% í fyrra
- enn eru norðlenskir sjómenn þó þeir næsttekjulægstu að meðaltali,
einungis Austfirðingar eru lægri
Hásetahlutur á ísfisktogurum
hækkaði hvergi meira en á
norðlenskum togurum á fyrra
ári. Fyrir vikið eru norðlenskir
hásetar ekki lengur þeir tekju-
Iægstu á landinu, þeir hafa
skotið þeim austfirsku aftur
fyrir sig.
Þetta kemur fram í blaðinu
Fiskifréttum sem kom út fyrir
helgina. Þar er beitt ákveðnum
aðferðum til að finna út „strípað-
an“ hásetahlut eins og það er
nefnt í blaðinu. Setur blaðið alls
kyns fyrirvara við útkomuna og
segir að hún endurspegli ekki
útborgaðan hásetahlut, en sé þó
nothæf til samanburðar milli
togara og landshluta. Útkoman
er sú að hásetahluturinn er lægst-
ur á Austurlandi, 1.984 þúsund
krónur, og hefur lækkað um 6%
frá árinu áður. Á Norðurlandi er
hluturinn 2.192 þúsund krónur,
hefur hækkað um 19%. Á togur-
um frá Suður- og Vesturlandi er
Dalvík:
Pólstjarnan gjaldþrota
Að sögn Erlings Sigtryggsson-
ar skiptaráðanda var þrotabúinu
skipaður bústjóri, Ásgeir Björns-
son hdl. Innköllun á kröfum í
búið verður auglýst á næstu dög-
um og hafa kröfuhafar tveggja
mánaða frest til að lýsa kröfum.
Skiptafundur verður haldinn 20.
- Ásgeir Björnsson skipaður bústjóri
Rekstrarerfiðleikum lagmetis-
iðjunnar Pólstjörnunnar á
Dalvík lyktaði með því að
fyrirtækið var lýst gjaldþrota
að beiðni stjórnar þann 27.
janúar sl. Skiptafundur verður
haldinn í maímánuði.
ntai í vor.
Lauslega áætlað taldi Erlingur
að skuldir þrotabúsins væru um
50 milljónir króna. Upp í það
ganga eignir sem ekki er búið að
meta til fjár en þær eru verk-
smiðjuhúsið við Sandskeið, lítils-
háttar af vélum til framleiðslunn-
ar og óinnheimtar skuldir fyrir
afurðir. Bjóst Erlingur við að
reynt yrði að koma þessum eign-
um í verð á næstu vikum. -ÞH
Fyrstu Fokker 50 vélinni af fjórum
fagnað á laugardag á Akureyri:
Eiginkona samgöngurád-
herra gefur vélinni nafii
Kristrún Eymundsdóttir, eig-
inkona Halldórs Blöndal sam-
gönguráðherra, mun gefa hinni
nýju Fokker 50 vél Flugleiða
nafn við móttökuathöfn á
Akureyrarflugvelli á laugar-
dag. Vélinni verður gefið nafn-
ið Ásdís.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Degi verður vélinni flogið í beinu
flugi frá Amsterdam til Akureyr-
ar á laugardagsmorgun. Áætluð
lending er á Akureyrarflugvelli
kl. 14. Þar verður hátíðarsam-
koma sem verður öllum opin en
150-200 manns frá Akureyri og
úr nágrannasveitarfélögum hefur
verið boðið sérstaklega til athafn-
arinnar.
Lúðrasveit Akureyrar mun
leika við þetta tækifæri en ávörp
flytja Hörður Sigurgestsson,
stjórnarformaður Flugleiða,
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, Pétur Einarsson, flug-
málastjóri, Halldór Blöndal,
samgönguráðherra og Halldór
Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri.
Þá mun stjórnarformaður Flug-
leiða afhenda forstjóra fyrir-
tækisins hina nýju vél til afnota.
Fokker 50 vélin verður til sýnis
milli kl. 14.50 og 15.50 á laugar-
dag en að því loknu verður henni
flogið til Reykjavíkur. JÓH
hluturinn að meðaltali 2.340 þús-
und kr., 3% lægri en 1990, en
hæstur er hann á Vestfjarðatog-
urunum, 2.727 þúsund krónur og
hækkaði um 4% milli ára.
Verulegur munur er á því milli
skipa hver hásetahluturinn er,
samkvæmt útreikningi blaðsins.
Þannig er hluturinn á þeim
togara sem lægstur er 1.388 þús-
und krónur en 5.013 þúsund kr. á
þeim hæsta. Tveir togarar skera
sig úr hvað hásetahlut varðar,
Guðbjörgin frá ísafirði er hæst en
næstur er Bessi frá Súðavík þar
sem hásetahluturinn var 4.695
þúsund kr. að meðaltali. Hæsti
hásetahluturinn á Norðurlandi
var á Baldri frá Dalvík, 3.426
þúsund krónur, en næstir voru
Björgvin EA (3.038), Víðir EA
(2.824), Arnar HU (2.702) og
Harðbakur EA (2.638).
Það sem mestu ræður um
meðaltekjur sjómanna er einkum
tvennt: aflamagnið og ráðstöfun
aflans. Ástæðurnar fyrir lágum
tekjum á Austfjarðatogurunum
eru samdráttur í afla og svo hitt
að þar var 73% aflans landað
innanlands. Hvergi var þetta
hlutfall þó hærra en á Norður-
landi, þar var 80% togaraaflans
landað innanlands. Á Suðvestur-
landi var þetta híutfall 58% og
66% á Vestfjörðum.
Blaðið spáir í ástæðurnar fyrir
mikilli hækkun hásetahlutarins á
norðlensku togurunum og vill
rekja það til kjarabaráttu sjó-
manna í fyrra sem færði þeim
töluverða kjarabót. Einnig hefur
afli norðlensku togaranna aukist
á sama tíma og hann hefur dreg-
ist saman í öðrum landshlutum,
langmest þó á Austfjörðum. -ÞH
Formaður Stéttarsambandsins
fjallaði einkum um stöðu íslensks
landbúnaðar gagnvart alþjóða-
samningum og minnti á breytta
landbúnaðarstefnu íslendinga sl.
10-12 ár. í því sambandi rakti
hann aðdraganda GATT-við-
ræðnanna. Haukur sagði að verð-
fallið á heimsmarkaði fyrir kinda-
kjöt og mjólk á sl. 10-15 árum,
væri ástæða þess að ekki væri
lengur pólitískar forsendur fyrir
því að halda áfram greiðslu
útflutningsbóta.
„Ég vil undirstrika að það er
með tilliti til þessarar óheillaþró-
unar sem Stéttarsamband bænda
hefur tekið undir það með bænda-
samtökum annarra þjóða, að
æskilegt sé og nauðsynlegt að
koma fastari skipan á heimsversl-
un með matvæli, þannig að verð-
myndun byggist á raunveruleg-
um framleiðslukostnaði varanna.
Ég hef orðið var við að ýmsir
hafa ekki skilið hvað fyrir Stéttar-
sambandinu vakir með því að
taka undir þessi sjónarmið, okk-
ur komi þessir hlutir ekki við
segja menn. Ég held hins vegar
að fyrir þjóð eins og okkar, sem
byggir afkomu sína að miklum
meirihluta á framleiðslu mat-
væla, skiptir það mjög miklu máli
til lengri tíma litið, að verðlag
matvæla á heimsmarkaði endur-
spegli raunverulegan framleiðslu-
kostnað,“ sagði Haukur.
Haukur benti á að ekkert væri
tekið á umhverfismálum í
GATT-viðræðunum en með
minnkandi stuðningi við land-
búnaðinn og auknum kröfum um
hagræðingu, skapaðist stórhætta
á rányrkju og ýmiss konar óæski-
legum hjálparmeðulum við land-
búnaðarframleiðsluna.
„Þó þessi mál séu ekki á
dagskrá GATT-viðræðnanna nú,
er það mín sannfæring að í næstu
lotu, einhvern tímann eftir árið
2000, verði umhverfismálin eitt
aðalmál GATT-samninganna,“
sagði Haukur á Ráðunautafund-
inum í gær. -bjb
Velferð á
varanlegum
grunni
Kynningarfundir
heilbrigðis- og
trygginganiálaráðherra,
Sighvats Björgvinssonar
á Norðurlandi.
Akureyri - miðvikudaginn 12. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 21000.
Opinn fundur í Alþýðuhúsinu kl. 20.30.
Húsavík - Fimmtudaginn 13. febrúar.
Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 9-12.
Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 41222.
Fundur á Hótel Húsavík kl. 20.30.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið