Dagur - 12.02.1992, Side 4

Dagur - 12.02.1992, Side 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 12. febrúar 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Glæpsanaleg hávaxtastefna Þjóðarsáttin margfræga, sem gerð var í febrúarmánuði árið 1990, markaði þátta- skil í íslensku efnahagslífi. Með samstilltu átaki tókst aðilum vinnumarkaðarins, stjórnvöldum, bændasamtökunum, full- trúum peningastofnana og öðrum, er að samningunum stóðu, að ganga að verð- bólgunni dauðri. Vegna þess hve víðtæk og órofa samstaða náðist um þessa aðgerð, hefur hún ávallt verið réttilega nefnd þjóðarsátt um kjaramál. í þjóðarsátt- inni fólst reyndar engin trygging fyrir því að verðbólgan heyrði sögunni til um alla eilífð. Tíminn hefur þó leitt í ljós að febrú- arsamningarnir árið 1990 lögðu grunninn að stöðugleika, sem enn ríkir í efnahagslíf- inu. Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 0,1% milli mánaða, síðastliðna þrjá mánuði. Þessi hækkun jafngildir því að verðbólga hér á landi sé nálægt einum af hundraði. Verðbólgan er með öðrum orð- um vart mælanleg; hún er svipuð og jafn- vel minni en í nágrannalöndunum. Þetta er ótrúlegur árangur, því árum saman hefur íslenska þjóðin mátt búa við 35-60% verð- bólgu. Mest varð hún 130%, árið 1983, og hefur því hjaðnað um 125-129% á tæpum áratug! Það er vissulega mikið fagnaðarefni hve mikill árangur hefur náðst í baráttunni við verðbólguna. Á hinn bóginn er afleitt hve illa hefur gengið að láta vextina fylgja verðbólgunni niður á við. Þótt verðbólgan sé vart mælanleg, sem fyrr segir, eru vextir óverðtryggðra lána á bilinu 13-20% og vextir verðtryggðra lána á bilinu 8-11%. Við núverandi aðstæður í efnahagslífi þjóð- arinnar eru svo háir vextir beinlínis glæpsamlegir. Ljóst er að raunvextir þurfa að lækka um 4-5 af hundraði hið minnsta, án frekari tafar. Ríkisstjórninni ber skylda til að knýja á um slíka vaxtalækkun með öllum tiltæk- um ráðum - og með „handaflinu" einu saman, ef önnur ráð duga ekki. Það er nefnilega ekki nóg að senda verðbólgu- drauginn inn í eilífðina, okurvextirnir þurfa að fara sömu leið. BB. Jón Aðalbjörnsson á Þórshafnarflugvelli. Flugstöðin var upphaf- lega á Melgerðismel- Um. Mynd: Golli Flugvöllurinn á Þórshöfn: Nýr völlur í augsýn en sá gamli dugar vel Á Þórshafnarflugvelli er aldur- hnigin flugstöð. Skúr þessi var reistur á Melgerðismelum í Eyjafirði á sínum tíma en þeg- ar flugvöllurinn þar var aflagð- ur var skúrinn fluttur til Þórs- hafnar og settur þar upp sem flugstöð. Á flugvellinum hittum við fyrir Jón Aðalbjörnsson, sem hefur unnið á vellinum síðan 1978. Þetta var í lok janúar og völlur- inn marauður en vegna slæmra veðurskilyrða á Akureyri var seinkun á vél Flugfélags Norður- lands. „Það hefur verið einmunatíð. Við höfum ekki þurft að ryðja brautina nema einu sinni í vetur,“ sagði Jón. Hann sagði að völlurinn væri nokkuð góður þegar hann væri þurr og nývaltaður. Hann verður hrjóstugur eftir að vélarnar hafa lent í allmörg skipti og þá þarf að valta hann. „Svo er verið að byggja nýjan völl rétt við innkeyrsluna til Þórs- hafnar. Ef áætlun Flugmála- stjórnar stenst ætti brautin að verða tilbúin á þessu ári, en þetta byggist allt á peningum. Þessum velli verður samt haldið eitthvað við og sjálfsagt notaður áfram, að minnsta kosti sem varavöllur. Einnig getur áttin verið þannig að hægt sé að lenda á þessum velli þegar ekki er hægt að lenda á þeim nýja,“ sagði Jón. Við enda flugbrautarinnar, þ.e.a.s. á gamla flugvellinum, er flak af DC-3. Þetta er minnis- merki um dvöl bandarískra hermanna á Heiðarfjalli. Vélin lenti norður af brautinni, annað hjólið brotnaði undan henni og annar vængurinn skemmdist mikið. Bandaríkjamenn hirtu ekki frekar um Þristinn og hann hefur fengið að grotna niður í friði. Flugfélag Norðurlands flýgur til Þórshafnar fimm sinnum í viku og sagðist Jón vera ánægður með þjónustuna. Síðasta sumar voru farnar sex ferðir í viku en félagið sleppti sunnudögunum í vetur, en eins og margoft hefur verið greint frá urðu nokkrar breyting- ar á áætlun FN og t.a.m. var flug til Þórshafnar og Vopnafjarðar sameinað. Nýja flugvöllinn sáum við ekki í fljótu bragði þegar við fórum frá Þórshöfn en samkvæmt áætl- un eiga 16 milljónir að renna til framkvæmda við hann í ár. En við kvöddum Jón Aðalbjörnsson enda þurfti hann að hringja norð- ur og spyrjast fyrir um horfur á flugi þennan dag. SS Að geftiu tíleftii í Morgunblaðinu 15. des. sl. birt- ist teikning eftir Sigmund af Davíð Oddssyni, þar sem hann er sýndur á fjórum fótum. Það hefur því ekki farið fram hjá Sigmund hvernig ást ríkir á stjórnarheimilinu. Af þessu tilefni varð þessi vísa til: Alþýðuflokksins rotna rætur á ráðherrunum það sést. Davíð er kominn á fjóra fætur, það fer honum líka best. Fyrrverandi heilbrigðisráð- herra Alþýðuflokksins, Magnús H. Magnússon, sem nú er for- maður Sambands ellilífeyrisþega, lét þau orð falla í sjónvarpsþætti að hin fyrirhugaða skerðing á ellilífeyri væri siðleysi og það væri persónulegt áfall fyrir sig að það væri alþýðuflokksmaðurinn Sighvatur Björgvinsson sem beitti sér fyrir þessari skerðingu. Sighvatur er siðlaus krati sagði Magnús H. Ellilaunin að hans mati aldrei skerða má. Þingflokksmaður Alþýðu- flokksins, Össur Skarphéðinsson var í viðtalsþætti í ríkisútvarpinu 10. jan. sl. Þar gaf hann fyrirheit um að hann ásamt Rannveigu Guðmundsdóttur og séra Gunn- laugi Stefánssyni myndu vinna heilshugar að framgangi jafnað- arstefnunnar. Að sjálfsögðu minntist hann ekki á þá í flokkn- um sem þar virðast öllu ráða, þ.e.a.s. Jón Baldvin, Jón Sig- urðsson, Sighvat og Eið. í þess- um þætti var rætt um að lögfesta ætti tekjuskatt á fjármagnstekj- ur. Össur sagði að hann skyldi hundur heita ef sá skattur verður ekki lögfestur á næstunni. Þegar ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar var mynduð haustið 1988 var því heitið að lögfesta slíkan skatt að kröfu Samtaka jafnréttis og félagshyggju, en við það var ekki staðið. Það voru ekki síst kratar sem hindruðu framgang þess. Vilja kratar bæta og breyta og bjóða öllum jafnan rétt? Eða frekar hundur heita? Hafa þeir bönd á Össur sett. í desember sl. var gefið út blað í Garðabæ undir nafninu Garða- póstur. Þar birtist grein eftir Ólaf G. Einarsson menntamála- ráðherra. Tek ég hér orðrétt kafla úr þeirri grein. „Nú er reyndar farið að bjóða upp hattana í fjáröflunarskyni að því er virðist. Og einn dans við eiginkonuna líka ef svo ber undir. Allt er það sjálfsagt græskulaust gaman. Afkomandi Bólu-Hjálmars og alnafni sat á alþingi um skeið nú í haust. Svo sem hann á kyn til á hann létt með að setja saman vísur. Eftir uppboðið á Dalvík á hattinum og fyrsta dansinum varð honum þetta á orði: Til að forða fjárhagstjóni flest var leyft. Ofan af og undan Jóni allt var keypt. Ég lofaði að sönnu að koma þessari vísu ekki á flot, en sum loforð eru þannig að ekki er unnt að halda þau. Þetta er eitt þeirra," segir Ólafur G. Einars- son í greininni. Undan Jóni allt var tekið eftir því sem blöðin segja. Ólafur hefur öllu lekið, enginn fær hann til að þegja. Stefán Valgeirsson. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.