Dagur - 12.02.1992, Page 5
Miðvikudagur 12. febrúar 1992 - DAGUR - 5
Ný útgáfa af Náttúruminjaskrá:
Fjalllendið á milli Ejjafjarðarog Skagaíjarðar friðlýst
Náttúruverndarráð hefur gefið
út sjöttu útgáfu af Náttúru-
minjaskrá. Síðast var hún gefin
út árið 1988. Auk friðlýstra
svæða eru á náttúruminjaskrá
alls 255 svæði á landinu, þar af
23 á Norðurlandi vestra og 38 á
Norðurlandi eystra. Núgild-
andi skrá hefur lítið breyst frá
síðustu útgáfu. Eina nýja
svæðið á Norðurlandi er fjall-
lendið milli Eyjafjarðar og
Skagafjarðar.
Skýrt er kveðið á um að það í
lögum um náttúruvernd að Nátt-
úruverndarráði sé skylt að annast
skráningu náttúruminja. Orðrétt
segir m.a.: „Ef Náttúruverndar-
ráð telur ástæðu til friðlýsingar
eða annarra náttúruverndar-
aðgerða samkvæmt lögum þess-
um, skal það freista að komast að
samkomulagi við landeigendur,
sveitastjórnir og aðra, er hags-
muna eiga að gæta. Verði sam-
komulag, skal það fært til bókar
og staðfest af hlutaðeigandi aðil-
um.
En lítum á Náttúruminja-
skrána.
Norðurland vestra
Fimm friðlýst svæði eru í kjör-
dæminu:
MIKLAVATN Skagafjarðar-
sýslu. Vegna fuglaverndunar er
óheimilt að fara um svæðið frá
15. maí til 1. júlí.
KATTARTUNGA Áshreppi
A-Hún. Friðlýst sem náttúru-
vætti.
HVERAVELLIR Á KILI.
Friðlýstir sem náttúruvætti árið
1960.
HRÚTEY í BLÖNDU A-
Hún. Friðlýst sem fólkvangur.
SPÁKONUFELLSHÖFÐI A-
Hún. Friðlýstur sem fólkvangur.
Aðrar náttúruminjar eru:
ARNARVATNSHEIÐI OG
TVÍDÆGRA V-Hún. Frjósamar
tjarnir, stöðuvötn, flóar og ár á
vatnasviði Þverár, Hvítár, Hrúta-
fjarðarár, Miðfjarðarár og Víði-
dalsár. Silungsveiði og mikið
fuglalíf.
HINDISVÍK V-Hún. Fjöl-
breytilegt strandlandslag. Eitt
mesta sellátur á Norðurlandi.
HVÍTSERKUR V-Hún. Sér-
kennilegur brimsorfinn berg-
gangur í sjó.
BJÖRG OG BORGARVIRKI
V-Hún. Fagurt og fjölbreytt
landslag, björg, tjarnir, mýrlendi
og sandar. Athyglisverðar jarð-
myndanir og fornminjar, það er
Borgarvirki.
KERAFOSSAR V-Hún. Foss-
ar og árrofsmyndanir í Fitjaá í
Víðidal. Fossar, flúðir og skessu-
katlamyndanir.
KOTUGIL og BAKKA-
BRÚNIR í VÍÐIDAL V-Hún.
Gljúfur og fossar í Víðidalsá.
Þröngt og djúpt gljúfur með fal-
legum fossum, Kolugilsfossum,
en víða er gljúfrið gróðurríkt. í
Bakkabrúnum er að finna þykk
setlög með steingerðum plöntu-
leifum frá einu af hlýskeiði ísald-
ar.
VATNSDALSHÓLAR A-
Hún. Fjöldi framhlaupshóla úr
Vatnsdalsfjalli, flæðiengi og
tjarnir.
EYLENDIÐ, FLÓÐIÐ OG
HÚNAVATN A-Hún. Flæði-
mýrar, óshólmar og vötn með
fjölbreyttu lífi.
KÁLFSHAMARSVÍK Á
SKAGA A-Hún. Strandlengja
og fjörur milli Framness og
Kálfshamars á Skaga. Sérkenni-
leg sjávarströnd með fjölbreytt-
um stuðlabergsmyndunum, lón
með varphólma.
FOSSAR í VATNSDALSÁ
OG FRIÐMUNDARÁ A-Hún.
Fossarnir Skínandi, Kerafoss,
Rjúkandi og Skessufoss í Vatns-
dalsá vestur af Bótarfelli og
Bótarfoss í Friðmundará. Sér-
kennilegir og fagrir fossar í hrika-
legum gljúfrum. Surtarbrands-
lög.
EYJAVATN OG FRIÐ-
MUNDARVATN VESTARA
A-Hún. Grunn stöðuvötn,
óvenjumikið fuglalíf og grósku-
mikill gróður í hólmum.
BLÖNDUGIL OG RUGLU-
DALUR A-Hún. Árgljúfur
Blöndu frá norðurenda Reftjarn-
arbungu niður undir Þröm ásamt
Rugludal. Hrikalegt gljúfur með
gróðursælum hvömmum og birki-
kjarri.
ORRAVATNSRÚSTIR í
HOFSAFRÉTT Skagafjs. Vot-
lendi umhverfis Orravatn allt
norður að Reyðarvatni. Einstakt
rústasvæði, flár og tjarnir.
BOTN VESTURDALS
(HOFSÁRDALS) Skagafjs.
Sérkennilegur og gróðursæll
dalur, umgirtur hömrum og snar-
bröttum hlíðum. Fagrir fossar í
Fossá.
KOTAGIL OG SKEIJUNGS-
STEINN Skagafjs. Kotagil er
hrikalegt djúpt árgljúfur á mörk-
um Silfrastaða og Ytri-Kota.
Skeljungssteinn stendur stakur
vestan gilsins. í hraunlagi í gljúfr-
inu, svo og í Skeljungssteini eru
för eftir trjáboli.
FOSSAR í BÓLUGILI
Skagafjs. Bólugil, fossaröð í
Bóluá við bæinn Bólu. Sérkenni-
legir og fagrir fossar í tilkomu-
miklu gljúfri nærri alfaraleið.
MALARÁSAR í SÆMUND-
ARHLÍÐ Skagafjs. Malarásar
meðfram Sæmundará, milli bæj-
anna Fjalls og Auðna. Óvenju
fallegir og reglulaga lagaðir mal-
arásar auk jökulkerja. Merkar
jarðsögulegar minjar um hop
jökulsins í lok ísaldar.
AUSTARA-EYLENDIÐ
Skagafjs. Óshólmasvæði Austari-
Héraðsvatna. Fjölbreytt fuglalíf
og gróður.
KETUBJÖRG Á SKAGA
Skagafjs. Strandlengjan frá
Ketukögri suður á móts við eyði-
býlið Kleif. Tilkomumikil sjávar-
björg, drangar og gatklettar, leif-
ar af eldstöð frá ísöld.
DRANGEY Skagafjs. Há,
þverhnípt klettaeyja með mikl-
um fuglabjörgum og gróskumikl-
um gróðri.
HÓFÐAVATN OG ÞÓRÐ-
ARHÖFÐI Skagafjs. Við aust-
anverðan Skagafjörð. Stöðuvatn
með ísöltu vatni. Fjölbreytt og
auðugt lífríki.
REYKJARHÓLL Á BÖKK-
UM Skagafjs. Reykjarhóll og
nánasta umhverfi við samnefnd-
an bæ. Sérkennilegur, stakur,
keilulaga jökulbergshóll með
laug í kollinum.
Norðurland eystra
Friðlýst svæði eru sex:
JÖKULSÁRGLJÚFUR N-
Þing. Þjóðgarður stofnaður 1973.
FRIÐLAND í SVARFAÐ-
ARDAL Eyjafjs. Lýst friðland
1972.
VESTMANNSVATN S-Þing.
Lýst friðland árið 1977.
HERÐUBREIÐARFRIÐ-
LAND S-Þing. Friðlýst árið
1974.
SKÚTUSTAÐAGÍGAR S-
Þing. Friðlýstir sem náttúruvætti
1973.
ASKJA í DYNGJUFJÖLL-
UM S-Þing. Friðlýst sem náttúru-
vætti 1978.
Önnur friðuð svæði eru:
MÝVATN OG LAXÁ S-Þing.
Svæðið er verndað með sérstök-
um lögum frá 1974. Hluti svæðis-
ins (20.000 ha) hefur verið vernd-
að samkvæmt Ramsar-samþykkt-
inni frá 2. desember 1977, það er
verndun votlendis sem hefur
alþjóðlegt gildi.
Aðrar náttúruminjar eru:
FJALLLENDIÐ MILLI
EYJAFJARÐAR OG SKAGA-
FJARÐAR. Hálendur og hrika-
legur skagi með djúpum dölum,
stórbrotið land. Á hæstu fjöllum
eru jöklar. Um hálendið liggja
fornar leiðir milli byggðarlaga.
HÓLSRÍPILL A UFSA-
STRÖND Eyjafjs. Rípill austur
af Hólshyrnu. Jökulurðir frá lok-
um ísaldar.
HRÍSEY. Land Miðbæjar og
Ystabæjar. Fjölskrúðugur
gróður, enda hefur svæðið verið
friðað fyrir beit frá 1960. Mikið
fuglalíf, allt að þrjátíu tegundir
hafa orpið þar.
HRAUNSVATN OG VATNS-
DALUR Eyjafjs. Fjölbreytt og
fagurt land með stöðuvötnum,
stórum framhlaupum og sér-
kennilegum klettadröngum, svo
sem Hraundröngum.
HÖRGÁRÓSAR Eyjafjs.
Tjarnir, flæðimýrar og strand-
gróður. Mikið fuglalíf. Rústir
forns verslunarstaðar.
KROSSANESBORGIR
Eyjafjs. Sérkennilegt landslag,
jökulminjar og votlendi. Hentugt
útivistarsvæði í nágrenni þéttbýl-
is.
GLERÁRGIL Eyjafjs. Gróð-
urríkt gil, skógarlundur, fjöl-
breyttar árrofsmyndanir, fossar,
skessukatlar og skútar. Sögu-
minjar.
LEYNINGSHÓLAR OG
HÓLAHÓLAR Eyjafjs. Mikið
framhlaupasvæði með tjörnum
og skógarleifum. Fornminjar.
Vinsælt útivistarsvæði.
HÓLMARNIR Eyjafjs.
Óshólmar Eyjafjarðarár ásamt
fjörum og flæðimýrum beggja
vegna árinnar suður á móts við
suðurodda Staðareyjar. Marflöt
flæðilönd, árhólmar, kvíslar og
leirur. Mikið fuglalíf, sérstætt
gróðurfar.
GRÍMSEY. Norðan Bása og
Handfestargjár ásamt öllum
fuglabjörgum í austurhluta eyjar-
innar suður að Flesjum. Miklar
og sérstæðar sjófuglabyggðir.
SKAGINN MILLI EYJA-
FJARÐAR OG SKJÁLF-
ANDA. Mjög fjölbreytt landslag
og ríkulegur gróður. Kjörið úti-
vistarsvæði til alhliða náttúru-
skoðunar.
LÓNIN OG LAUFÁS-
HÓLMAR S-Þing. Ósasvæði
Fnjóskár og gilið upp fyrir Lauf-
ásfossa, Lónin í Höfðahverfi auk
Nesmóa og Flæðiengja allt norð-
ur að Hólsá og Gljúfurá. Fjöl-
breytt gróðurfar og fjölskrúðugt
fuglalíf.
MELAR VIÐ ILLUGA-
STAÐI S-Þing. Leifar af framburð-
areyrum í svonefndu Fnjóska-
dalsvatni, sem fyllti dalinn í lok
ísaldar.
BLEIKSMÝRARDALUR S-
Þing. Dalurinn upp að fjallsbrún-
um frá Reykjum að Skarðsöxl
sunnan Gönguskarðs. Fjölbreyti-
legt landslag, berghlaup, jarðhiti
við Reyki og birkiskógur í
hlíðum.
TUNGNAFELLSJÖKULL
OG NÝIDALUR (JÖKUL-
DALUR) S-Þing. Fjölbreytilegt
landslag með fögrum og sérstæð-
um gróðurvinjum.
GÆSAVÖTN VIÐ GÆSA-
HNJÚK S-Þing. Lindavötn og
hálendisvin, um 920 m.h.y.s.
LAUFRÖND OG NEÐRI-
BOTNAR S-Þing. Gróðurlendi í
vesturjaðri Ódáðahrauns milli
Laufrandar og Hraunár sunnan
frá Steinfelli norður fyrir Neðri-
botna. Gróðursælt umhverfi
tjarna og lindavatna, 700-800
m.y.s. Sérstætt fuglalíf.
INGVARARFOSS, ALD-
EYJARFOSS OG HRAFNA-
BJARGAFOSS S-Þing. Skjálf-
andafljót ásamt bökkum, frá og
með Hrafnabjargafossi og norður
fyrir Ingvararfoss. Sérkennilegir
og fagrir fossar nærri fjölfarinni
leið.
LJÓSAVATN S-Þing. Fjöl-
breytt landslag, stöðuvatn,
framhlaup, jökulurðarhólar,
hraun og skógur.
GOÐAFOSS S-Þing. Fossinn
og gljúfrið neðan hans og næsta
nágrenni.
ÞINGEY S-Þing. Þingey og
nálægar eyjar í Skjálfandafljóti,
eyrar og bakkar fljótsins norður
að Vaðsvaði, austurhlíðar Kinn-
arfells og vesturhlíðar Fljótsheið-
ar við Þingey. Óbyggður skógi-
vaxinn dalur. Fallegir fossar og
gljúfur, gróðurríkar eyjar. Sögu-
helgi.
VARASTAÐASKÓGUR S-
Þing. Skóglendi milli Ljótsstaða
og Brettingsstaða í Laxárdal.
Svæðið er að hluta til friðlýst skv.
lögum um vernd Mývatns og
Laxár.
HALLDÓRSSTAÐIR S-Þing.
Fjölbreytt landslag neðan frá
Laxá og upp í heiði.
GERVIGÍGAR VIÐ
KNÚTSSTAÐI í AÐALDAL S-
Þing. Gjallgígar og borgir í miðj-
um Aðaldal við bæina Haga,
Nes, Hafralæk, Garð, Jarlsstaði
og Tjörn. Fjölbreyttar gervigíga-
myndanir í Laxárhrauni yngra.
VOTLENDI Á SANDI OG
SÍLALÆK S-Þing. Miklavatn í
Aðaldal og mýrlendi umhverfis
það milli Aðaldalshrauns, Sjáv-
arsands og Skjálfandafljóts, í
löndum Sands og Sílalækjar.
Stórt og gróðurmikið vatn, víð-
áttumikil flæðilönd með miklu
fuglalífi.
BAKKAFJARA OG BAKKA-
HÖFÐI Húsavík. Höfðinn ásamt
fjörum skerjum og grunnsævi.
Sérkennilega rofnir sjávarklettar
og nafir (berggangar) fram undan
höfðanum. Lífríkar fjörur og
sker.
LUNDEY S-Þing. Eyjan
ásamt fjöru og grunnsævi. í eynni
sem er úr jökulbergi, er eitt
stærsta lundavarp á Norðurlandi.
Fjölbreytt botnlíf á grunninu
umhverfis eyna.
TJÖRNESLÖGIN OG
VOLADALSTORFA S-Þing. í
sjávarbökkunum koma fram
þykk setlög frá tertíer og ísöld
með skeljum og surtarbrandi.
Við Voladalstorfu eru móbergs-
hamrar og lundabyggð.
MÁNAREYJAR S-Þing.
Háey og Lágey. Allmiklar byggð-
ir sjófugla.
VOTLENDI VIÐ ÖXAR-
FJÖRÐ N-Þing. Um 3 km breið
strandlengja vestan frá Lóni aust-
ur að hreppamörkum við Núpa,
auk Litluár að Brunnum. Sjávar-
lón og gróðurmikil grunn vötn.
Starengjar, keldur og þornaðir
árfarvegir. Mikið fuglalíf.
ÞEISTAREYKIR S-Þing.
Fjölbreyttar jarðhitamyndanir,
gufu og leirhverir, útfellingar í
norðurhlíðum Bæjarfjalls og við
Bóndhól. Jarðhitaplöntur.
VÍTIN Á REYKJAHEIÐI S-
Þing. Stóra- og Litla-Víti á Þeista-
reykjabungu ásamt nánasta
umhverfi. Merkar jarðeldamynd-
anir, formfagur hraungígur frá
nútíma.
MEIÐAVALLASKÓGUR
OG ÁSBYRGI S-Þing. Vestur-
barmur Ásbyrgis, skóglendi og
fornir hlaupfarvegir Jökulsár á
Fjöllum.
JÖKULSÁRGLJÚFUR
AUSTAN ÁR N-Þing. Fjöl-
breytt landslag og ríkulegur
gróður. Æskilegt að þetta svæði
verði sameinað þjóðgarðinum í
Jökulsárgljúfrum.
RÖNDIN VIÐ KÓPASKER
N-Þing. Sjávarbakkar frá Kópa-
skeri suður að Snartarstaðalæk.
Jarðmyndun frá lokum ísaldar
(Kópaskersskeið), sjávarset með
skeljum, jökulruðningum. Minj-
ar um hopunarsögu ísaldar-
jökulsins.
NORÐAUSTURHORN MEL-
RAKKASLÉTTU N-Þing. Víð-
áttumiklar mýrar, lóna- og
straumavatnakerfi, sjávarfitjar.
Gróður og dýralíf með svalviðris-
blæ, mikið fuglalíf. Sigdalur með
miklu grunnvatnsstreymi, lindir.
óþh tók saman
Bókamarkaður
hefst í bókabúðinni
Möppudýrinu í dag, miðvikudag og
stendur til 23. febrúar.
Fjöldi góðra bóka
á frábæru verði
Op/ð virka daga og laugardaga frá kl. 13-20
og sunnudaga frá kl. 13-18.
Skáldsögur • Barnabækur • Þjóðlegur fróðleikur
Fræðibækur • Ljóðabækur og fleira og fleira
Sunnuhlíð
Sími 26368