Dagur - 26.02.1992, Síða 1

Dagur - 26.02.1992, Síða 1
75. árgangur Akureyri, miðvikudagur 26. febrúar 1992 39. tölublað Vel 1 fo | klæddur tum frá bern,öÍFdt lennabudin | HAFNARSTRÆTI92 ■ 602 AKUREYRI ■ SÍMI96-26708 • BOX 397 FSA fær aðeins 12 milljónir af 499 milljóna safnlið heilbrigðisráðuneytisins: Ekkí er um tímabundínn spamað að ræða - segir í bréfi heilbrigðisráðuneytisins til forsvarsmanna sjúkrastofnana Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri fær 12 milljónir af 499 milljóna króna safnlið heil- brigðisráðuneytisins, sem það deilir út til sjúkrastofnana um allt land. Fjórðungssjúkrahús- inu var gert að spara um 56 milljónir króna frá fjárveitingu í fjárlagafrumvarpinu. Með þessari 12 milljóna króna lækkun er FSA því gert að spara sem svarar 44 miUjónum á þessu ári. Samkvæmt 6. grein fjárlaga er fjármálaráðherra heimilt að ráð- stafa í samráði við einstaka ráð- herra og fjárlaganefnd ákveðinni upphæð „í tengslum við rekstrar- sparnað til hækkunar á fjárheim- ild einstakra rekstrarviðfangs- efna.“ Hlutur heilbrigðisráðuneytis- ins af þessum safnlið er 499 millj- ónir króna, sem skiptist á milli sjúkrastofnana um allt land. Þessi skipting liggur nú fyrir varðandi sjúkrastofnanir á lands- byggðinni, en vegna óvissu um skipan heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu liggur enn ekki fyrir hver hlutur þess verður af nefndum 499 milljónum. Ingi Björnsson, framkvæmda- stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, var í gær allt annað en ánægður með hlut þess. Hægt Við ysta haf. Mynd: Golli Akureyri-Reykjavík: Þotuflug og aJlir komnir til síns heima Veðurguðirnir hafa klórað landsmönnum að undanförnu. Tvær lægðir hafa gengið norð- ur og austur um landið og af þeirra völdum hefur flug legið niðri í nær tvo sólahringa. Undir kvöld í gær var veðrið víðast gengið niður og þota Flugleiða flaug til Akureyrar þar sem margir biðu fars bæði í Reykjavík sem á Akureyri. Framan af degi í gær var ekki hægt að fljúga til Akureyrar vegna ókyrrðar og ísingar í lofti. Skil gengu norður og austur yfir landið og þessum skilum fylgdu þrumur er þau komu inn yfir Iandið. Hundrað og fjörutíu far- þegar biðu flugs á Akureyri og allir komust leiðar sinnar með þotufluginu kl. 20.00 í gærkvöld. Ekki varð af flugi til ísafjarðar í gær, en athuga á með flug strax og birtir. Á ísafirði eru veður- tepptir frá því á sunnudag skíða- krakkar frá Akureyri, en af veðurfregnum má ráða að þau komist til síns heima í dag. Veðurspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir sunnan og suðvestan kalda um allt Norðurland. ój Hagfélagið hf. í Vestur-Húnavatnssýslu: Starfsemin hefst með könnun Karl Sigurgeirsson ráðinn framkvæmdástjóri Hagfélagið hf. sem ýmsir aðil- ar í Vestur-Húnavatnssýslu standa að, tók til starfa í síð- ustu viku þrátt fyrir að formleg ákvörðun Byggðastofnunar um þátttöku liggi ekki fyrir. Stofnfundur Hagfélagsins var haldinn þann 19. desember á síð- asta ári og átti félagið að taka við af Átaksverkefni V-Hún. sem lauk um áramótin síðustu. Stofn- aðilar félagsins eru Héraðsnefnd Vestur-Húnavatnssýslu ásamt einstaklingum og atvinnurekend- um í héraðinu. Einnig var farið fram á þátttöku Byggðastofnunar við stofnun félagsins, en svar frá henni hefur ekki enn borist. Frátt fyrir það er ákveðið að hefja starf- semi og var Karl Sigurgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri félags- ins, en hann var áður starfsmaður Átaksverkefnisins. Að sögn Karls er markmið félagsins að efla atvinnulíf í hér- aðinu með öllum ráðum og fyrsta verkefnið að kanna afstöðu hér- aðsbúa til atvinnumála. Fyrsta fréttabréfi Hagfélagsins fylgja eyðublöð til útfyllingar vegna þessarar könnunnar og segist Karl vonast til að með þessu móti fáist vitneskja um m.a.; menntun hér- aðsbúa og atvinnuþörf, áhugi fyr- ir nýju atvinnuframboði og við- horf til búsetu. SBG væri að sættast á þessa skerðingu í ár, en hins vegar væri öllu alvar- legra að tekin hafi verið pólitísk ákvörðun um að hér eftir verði skorin niður þjónusta á FSA á ári hverju sem nemi 44 milljónum króna miðað við rekstur spítalans 1991. Ingi vísar þarna til bréfs frá heilbrigðisráðuneytinu til stjórn- enda sjúkrastofnana, þar sem segir að sú stefna hafi verið mörkuð í fjármálaráðuneytinu að byggt verði á endanlegum fjár- veitingunl til sjúkrastofnana á þessu ári við fjárlagagerð að ári. Með öðrum orðum sé ekki um tímabundinn sparnað að ræða. Fram kemur í bréfinu að þetta þýði í mörgum tilfellum að stjórnendur þurfi að gera varan- legar breytingar við fjárlagagerð næsta árs til þess að rekstrar- kostnaður hækki ekki frá því sem hann verði í ár, t.d. með fækkun starfsmanna eða endurskipulagn- ingu sem skili sama árangri. „Það liggur ljóst fyrir að það er verið að taka peninga héðan og færa þá til annarra heilbrigðis- stofnana, vegna þess að niður- skurðurinn er ekki sá sami alls staðar. Rætt var um að 40% af þeim sparnaði, sem ríkið tók út úr stofnunum, rynnu aftur til þeirra. Hefðu allir fengið þessi 40%, þá hefði skerðingin komið jafnt niður á öllum. Þessar 12 milljónir til FSA eru hins vegar aðeins um 21% af því sem okkur var gert að spara. Pað þýðir að þær 10 milljónir, sem á vantar, eru teknar út úr þjónustunni hér og færðar eitthvað annað, vænt- anlega til smærri heilsugæslu- stöðva. í þessu felst sú pólitíska ákvörðun að færa fjármuni til innan heilbrigðiskerfisins frá sér- hæfðu sérfræðisjúkrahúsi hér til heilsugæslustöðvanna,“ sagði Ingi. Samkvæmt sparnaðartillögum, sem forsvarsmenn FSA gerðu til heilbrigðisráðuneytisins til þess að mæta 56 milljóna króna niður- skurði, var m.a. gert ráð fyrir verulegum samdrætti í allri starf- semi sjúkrahússins annarri en bráðaþjónustu. Ingi Björnsson sagði að þessar 12 milljónir króna gerðu það að verkum að hægt yrði að stytta samdráttartímabil í rekstri spítalans að einhverju marki. „Hins vegar höldum við okkar almennu aðhaldsaðgerð- um, svo sem minnkun á yfirvinnu og hagræðingu í rekstri," sagði Ingi. óþh Sjá nánar á blaðsíðu 2. Loðnuveiðin: Veiðisvæði út af Ingólfshöfða Loðnuganga er út af Ingólfs- höfða á vesturleið og hafa flest skipin verið að veiðum á þess- um slóðum. Önnur ganga var komin vestur fyrir land og inn á Faxaflóa og hefur einhver veiði verið þar síðustu sólar- hringana. „Petta gengur ágætlega, sér- staklega ef einhver friður er til að vera við þetta. Undanfarið hefur verið mikil ótíð. Vindinn lægir í einhverja klukkutíma og verða menn því að grípa tækifærið þá til að veiða. Þess á milli er bræla,“ sagði Hannes Svein- bergsson, sjómaður á Súlunni EA í samtali við blaðið síðdegis í gær. Hannes sagði að flest skipanna sem verið hafi að veiðum í fyrra- dag og fyrrinótt landi á Norður- landshöfnum enda þróarrými lít- iðáSuður-ogAusturlandi. JÓH Blönduvirkjun: Síðasta gangsetning aldarinnar - þriðja aflvélin ræst í dag „Eigum við ekki að segja að þetta sé síðasta gangsetning aldarinnar á stórri vatnsafls- vél hérlendis,“ sagði Guð- mundur Hagalín, stöðvar- stjóri við Blönduvirkjun í samtali við Dag í gær, en í dag hefjast prófanir á þriðju og síðustu aflvél virkj- unarinnar. Fyrsta aflvél Blönduvirkjun- ar var tekin í notkun í október sl. og önnur aflvélin í lok síð- asta mánaðar. Að sögn Guð- mundar eru framkvæmdir held- ur á undan áætlun, en væntan- lega verður hægt að taka þessa þriðju og síðustu aflvél virkjun- arinnar í notkun eftir u.þ.b. mánuð þegar að prófunum verður lokið. „Þær tvær vélar sem kornnar eru í notkun koma vel út á dreifikerfinu. Pað var slæmt að þannig skyldi hittast á þegar óveðrið gekk yfir landið í gær, að við vorum einmitt að gera prófanir í sambandi við þriðju vélina og vorum því ekki inni á kerfinu. Af þeim sökum urðu rafmagnstruflanir og Krafla þurfti að bjarga málunum," sagði Guðmundur. Guðmundur segir að engin vandamál hafi komið upp og allt gangi vonum framar. Hann segir að ekkert sé þó hægt að segja til um vatnsvegi og ísingu þar sem ennþá hafi ekki komiö vetur, en að öðru leyti lofi allt góðu. SBG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.