Dagur - 26.02.1992, Page 4

Dagur - 26.02.1992, Page 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 26. febrúar 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (SauöárkróKI vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Jöfirnn atkvæðavægis og byggðapólitík Talið er að um síðustu aldamót hafi aðeins um 10% þjóðar- innar haft kosningarétt til Alþingis. Árið 1915 voru gerðar róttækar breytingar á kosningalöggjöfinni. Á því ári hlutu konur kosningarétt auk þess sem skilyrði um þjóðfélags- stöðu og lágmarksgreiðslu í sameiginlegan sjóð lands- manna voru felld niður. Síðan hefur almenningur á íslandi notið kosningaréttar. Á þeim tíma voru stjórnmál þjóðarinnar í öðrum farvegi en síðar varð. Sjálfstæðisbarátta hennar setti mestan svip á stjórnmálin þótt flestir væru sammála um að íslendingar næðu sem flestum málaflokkum er vörðuðu land og þjóð í eigin hendur. Að fengnu fullveldinu árið 1918 tóku stjórn- málin að breyta nokkuð um svip. Nýir atvinnuhættir og breytt byggðamynstur kölluðu fram aðrar andstæður í þjóðlífinu. Stjórnmálin fóru í auknum mæli að snúast um hagsmunahópa. Atvinnurekendur fundu sér sameiginleg- an farveg á vettvangi stjórnmálanna. Einnig launþegar og bændur. Þótt þessi skipting hafi aldrei verið hrein hér á landi er það stjórnmálakerfi, sem þróaðist eftir að sjálf- stæðisbaráttunni lauk nefnt stéttastjórnmál á máli stjórn- málafræðinnar. Ákveðnar atvinnustéttir eiga meiri ítök í einum stjórnmálaflokki en öðrum og öll meginöflin í stjórn- málum hafa starfað á landsvísu eins og algengast er í flest- um lýðræðisríkjum. Með auknum búferlaflutningum og fjölgun fólks á höfuð- borgarsvæðinu á kostnað landsbyggðarinnar hefur vægi atkvæða í kosningum verið að breytast. Nú er svo komið að atkvæði í fámennasta kjördæmi landsins, Vestfjarðakjör- dæmi, hefur þrefalt vægi á við atkvæði kjósanda í Reykja- vík og tvöfalt vægi á við atkvæði í Norðurlandskjördæmi eystra. Með öðrum orðum eru fleiri þingmenn á hvern kjós- anda á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu - flestir í fámennustu kjördæmunum. Nokkurt misvægi atkvæða hefur verið talið réttlætanlegt þar sem íbúar höfuðborgar- svæðins njóta nálægðar við flestar stjórnarstofnanir þjóð- arinnar er landsbyggðarmenn þurfa að sækja um langan veg. Vegna vaxandi misvægis hafa komið fram ákveðnar raddir frá höfuðborgarsvæðinu um að breytinga sé þörf. Haldi byggðaþróunin áfram á sömu braut og verið hefur er ólíklegt að komist verið hjá breytingum á þessu sviði. Ýms- ar leiðir eru hugsanlegar og hefur oftast verið rætt um að fækka þingmönnum fámennari kjördæmanna til aukins samræmis við fjölda kjósenda. Þá mætti einnig hugsa sér að tekin yrðu upp einmenningskjördæmi í landinu - að einn þingmaður yrði kjörinn fyrir tiltekinn fjölda kjósenda og síðan yrði eitthvert hlutfall þingmanna kosið í lands- kosningu. En munu breytingar á vægi atkvæða og þar með skipt- ingu þingsæta á milli landshluta hafa áhrif á stjórnmála- þróunina? Hinar dreifðu byggðir landsins hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum þótt þær hafi haldið sínum hlut í verðmætasköpun þjóðarinnar. Ljóst er að vægi landsbyggðarinnar í stjórnkerfinu myndi minnka verulega með slíkum breytingum. Hvaða áhrif þær hefðu á stjórn- málaskoðanir landsbyggðarfólks er erfitt að segja fyrir um en ekki er ólíklegt að íbúar hinna dreifðu byggða myndu þjappa sér saman til varnar hagsmunum sinna byggðar- laga og landsbyggðarinnar í heild. Ef til þess kemur er útlit fyrir að stjórnmál á íslandi muni mótast meira af byggða- pólitískum sjónarmiðum í framtíðinni en verið hefur. ÞI Myndlist Iðurni Ágústsdóttir sýnir í Vín 22. febrúar, laugardag, opnaði Iðunn Ágústsdóttir, myndlistar- maður, sýningu í Vín. Sýningin mun vera þrettánda einkasýning Iðunnar, en hún hefur einnig tek- ið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Á sýningu Iðunnar að þessu sinni eru 45 verk, sem unnin eru í pastel og með blandaðri tækni. Verkin eru mjög misstór og mis- jafnari að stærð en verið hefur á fyrri sýningum Iðunnar, sem undirritaður hefur sótt. Mynd- fletir eru vel fylltir og litanotkun ákveðin og iðulega sterk. Iðunn rær á ný mið í þessari sýningu sinni hvað myndefni og myndmeðferð áhrærir. Á þeim sýningum, sem undirritaður hef- ur kynnst fram að þeirri, sem nú stendur, hefur mest borið á með- alstórum verkum, þar sem fjallað hefur verið um ýmiss huglæg efni og jafnvel yfirskilvitleg eða þá hið natúralistíska hefur verið fært í draumkenndan búning. Myndir þessarar gerðar koma vissulega fyrir á sýningunni í Vín og eru þar helst til dæmis seríurnar Lítið ástarljóð nr. 27 til 30 og Tilbrigði við sundin blá nr. 34 til 37. Sú tjáning, sem fyrir kemur í þess- um myndum, var orðin talsvert yfirþyrmandi í myndmáli Iðunn- ar og jaðraði við nokkra ein- hæfni. Að sjálfsögðu er ekki ástæða til þess að kasta að fullu því, sem tamt er orðið og þróað hefur verið, en þó er rétt að leita nýrra leiða. Það er vissulega ánægju- legt, að einmitt þetta hefur Iðunn gert í þeirri sýningu, sem nú stendur í Vín. í henni tekst hún á við myndefni, sem liggur nærri hjarta hvers íslendings; mynd- efni, sem tengist bókmenntahefð og sagnahefð þjóðarinnar, ljóðum, þjóðsögum og ævintýr- um. í mörgum myndanna er höfðað beint til ákveðinna ljóða eða sagna, svo sem í röðunum Hún amma mín það sagði mér, nr. 3 til 6, og Konan, sem kyndir ofninn minn, nr. 24 til 25. I öðr- um er meira leitast við að tjá til- finningu ævintýranna og sagn- anna svo sem í Vættunum í Esj- unni, nr, 22, og Huldufólkinu á Svalbarðsströndinni, nr. 12. Iðunn tekst iðulega vel að komast að anda ævintýrisins. Vissulega gætir minna úr fyrri verkum um sama efni t.d. í myndunum María mey og rjúpan, nr. 19, og Sankti Pétur og skatan, nr. 20, og víðar. Yfir þessum myndum Iðunnar flestum er samt persónulegur þokki, sem gerir þær Iaðandi og hlýjar, og í sumum er innileiki, svo sem í mynd nr. 1, Einu sinni lítil gúlka var á bænum, sem snertir barnið í áhorfandanum og yljar honum um hjartarætur. Tvær myndir á sýningu Iðunn- ar Ágústsdóttur í Vfn skera sig nokkuð úr þeim myndum, sem þegar hafa verið ræddar. Þær eru númer 43 og 44 og bera í sömu röð heitin Vor og Fyrstu snjóar. í þessum myndum virðist Iðunn impra á á enn einni leið þreifinga um tjáningu, sér í lagi í myndinni Rósa Ingólfsdóttir, myndlistar- maður, opnaði sýningu á silki- prentmyndum í gallerý Allra- Handa í Grófargili laugardaginn 22. febrúar. Á sýningunni eru einungis átta verk, sem öll eru unnin upp úr myndskreytingum, sem Rósa vann fyrir sýningu, sem haldin var í Laugardalshöll í Reykjavík árið 1974. Rósa Ingólfsdóttir er myndlist- armaður með sín persónulegu einkenni. Hún er þó ekki laus við áhrif frá öðrum frekar en aðrir, sem myndlist eða hvað sem er annað stunda. Þessa gætir veru- lega í myndum hennar almennt og þá einnig þeim, sem eru á sýn- ingu hennar í Gallerý Allra- Handa. Þær sverja sig í ætt við myndir annarra höfunda um svip- að efni, svo sem ýmsar bókalýs- ingar íslendingasagna og einnig málverk ýmissa íslenskra málara, þar sem þeir fjalla um atvinnulíf eða sögu þjóðarinnar. Við slíku er að búast. Hins vegar er bragur Rósu Ingólfsdótt- ur sterkur, svo að jafnan má geta í það með nokkurri vissu, að mynd sé eftir hana, beri handa- verk hennar fyrir augu. Þar kem- ur ekki til sérkennandi efnisval, þar sem Rósa gerir ekki mikið af því að leita á nýstárleg mið í því efni, heldur er um að ræða ein- Vor, sem er aðlaðandi mynd í yfirborðseinfaldleika sínum. Sýning Iðunnar er nokkuð þröngt sett í sýningaraðstöðunni í Vín. Hún nýtur sín þó bærilega og hjálpar þar mjög myndefnið og hin fjölbreytta stærð mynd- anna, sem gerir það mögulegt að raða þeim eftir aðstæðum á sýn- ingarsvæðinu. Þó er Ijóst, að nokkuð um of er þröngt um sum verkanna. Á móti kemur, að samanburður verkanna er auð- veldur. Eitt vegur annað upp og niðurstaðan er skemmtileg sýning, sem vekur spurningar um það, hvert Iðunn leggi leið sína í listinni og hvað verði ofan á á næstu sýningu. Haukur Ágústsson. kennandi brag í efnistökum og áferð ásamt frjálsieika og létt- leika jafnframt ákveðni í mynd- fletinum. Persónulegur stíll er einkenni hins þroskaða listamanns. Sá þroski felur ekki í sér það, að komið sé á endastöð; miklu frem- ur hitt að vænta megi nýsköpunar og einhvers vekjandi og forvitni- legs. Svo er um Rósu Ingólfsdótt- ur. Sýningar hennar eru gjarnan forvitnilegar. Svo var til dæmis með sýningu hennar í Gamla Lundi á Akureyri fyrir nokkrum árum, þegar hún sýndi „Sjón- varpsgrafík". Sú sýning gaf gott yfirlit yfir þann þátt í myndsköp- un Rósu. Sýningin nú er nokkuð góð svo langt sem hún nær, en hún nær hins vegar of stutt. Myndirnar átta, svo forvitnilegar sem þær eru, eru of fáar til þess að gefa næga sýn. Ef til vill hefur þar ráð- ið plássleysi í hinu hlýlega hús- næði Gallerýs AllraHanda, en hvort sem svo er eða annað hefur valdið, verður að vænta þess að Rósa Ingólfsdóttir geri betur næst - og helst innan tíðar úr því að hún hefur vakið forvitni list- unnenda um þessa grein verka sinna. Hún hlýtur að hafa meira að veita af nægtabrunni sköp- unargáfu sinnar. Haukur Ágústsson. Rósa Ingólfsdóttir - sýning í Gallerý AllraHanda Miðstj órnarfundur Alþýðubandalagsins: Varað við alvarlegum horfiim í atvinnumálum - meginrót vandans er stjórnarstefnan, segir m.a. í ályktun fundarins Á miðstjórnarfundi Alþýðu- bandalagsins sem haldinn var í Kópavogi um síðustu helgi, var samþykkt ályktun, þar sem varað er við þeim alvarlegu horfum í atvinnumálum sem nú blasa við allri þjóðinni. Þúsundir manna eru þegar á atvinnuleysisskrá og atvinnu- lausum mun fara fjölgandi á næstu vikum og mánuðum haldi svo fram sem horfir. Auk fjölda ungmenna sem munu bætast við þegar skólunum lýkur í vor koma fjöldaupp- sagnir á sjúkrahúsum og víðar til framkvæmda 1. maí nk. Ennfremur segir í ályktuninni: Aldrei fyrr hefur þjóðin staðið frammi fyrir eins mikilli hættu á stórfelldu atvinnuleysi eftir að lýðveldið var stofnað. Verulegt atvinnuleysi um langan tíma mun gjörbreyta öllu þjóðlífi á íslandi. Það hefur aldrei gerst fyrr í hálfa öld að mörg þúsund launamenn geti ekki selt vinnuafl sitt sér til lífsframfæris. í atvinnuleysi birt- ast alvarlegustu þverbrestir frjálshyggjunnar. Staða verkalýðshreyfingarinn- ar til kjarabaráttu mun gjörbreyt- ast og hætta er á mögnuðum landflótta. Baráttan fyrir atvinnuöryggi er barátta fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og lífskjör- um launafólks og sjálfsvirðingu hvers einasta launamanns - allt í senn. í ályktuninni segir einnig að meginrót vandans nú sé stjórnar- stefnan. Stjórnarstefnan er að kalla stórfelldan vanda yfir fjölda byggðarlaga um land allt og þjóð- félagið í heild. Hún hefur birst frá upphafi í kreddum þar sem hafnað er hvers konar aðgerðum til að efla atvinnulífið. Vextir eru hækkaðir verulega; þeir eru nú hærri en nokkru sinni fyrr hér á landi. Oftrú á ál og EES hefur blindað stjórnvöld. Vanrækslan blasir við á öllum sviðum atvinnulífsins. Jafnframt er vegið að velferðarkerfi, heilbrigðismál- um og menntamálum og efnt til stríðsátaka við samtök launa- fólks, sveitarfélög, atvinnulíf og fyrirtæki. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar þarf að fara frá. í lok ályktunarinnar segir síðan: Alþýðubandalagið er reiðubúið til viðræðna um nýja stjórnarstefnu, stefnu samstöðu, jafnaðar og atvinnuöryggis.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.