Dagur - 26.02.1992, Síða 7

Dagur - 26.02.1992, Síða 7
Miðvikudagur 26. febrúar 1992 - DAGUR - 7 stjóri Ingmar Bergman sviðsetti Töfraflautu Mosarts í Stokk- hólmi. Hvernig hann umgekkst söngvarana og leikarana á tilfinn- ingalegan máta og byggði hlut- verkið upp með honum. Eg spurði Roar hvort þarna hefði einungis verið um tækni meistara Bergmans að ræða eða hvort sviðsetning og tónlistarstjórn væri dramatísk á köflum. Roar kvaðst kannast við þau vinnu- brögð sem Ingmar Bergman hafi beitt. Þau séu vel þekkt á meðal flestra stjórnenda því ekki sé nægjanlegt að kunna handverkið. Heldur verði að ná hinni réttu túlkun fram og glæða flutninginn lífi. Hið sama gildi um leikverk og tónlist. Roar sagði skammt á milli hlutverks stjórnandans í tónlistinni og leikstjóra í leikhúsi eða kvikmynd - báðir komi sér upp einskonar ytri búningi. A námsárunum starfaði Roar einnig með kór KFUM og KFUK í Osló. Hann sagði frá því að ein- hverju sinni hafi kórinn flutt Messías eftir Hendel eftir fjórar æfingar og tekist vel. Ef til vill hafi verið um kraftaverk að ræða en það sýnir einnig hverju sé hægt að áorka með mikilli ögun og góðri samhæfingu." Vissi Iítið um Akureyri - en verkefnin áhugaverð Vorið 1971 urðu þáttaskil í lífi Roars Kvam. Hann kvaðst hafa tekið eftir auglýsingu á töflu í skólanum. Auglýsingin var ættuð frá íslandi og þar var óskað eftir Sigríður Stefánsdóttir, fyrrum forseti bæjarstjórnar Akureyrar, með fána bæjarins í Holiandi - meðlimir Blásarasveitarinnar í baksýn. stjórn Roars Kvam. Roar ræddi einnig starf Kammerhljómsveitar Akureyrar. „Sveitin var eingöngu byggð á hugsjónum og allt starf hennar unnið í sjálfboðavinnu fyrstu fjögur árin sem hún starfaði. Kammerhljómsveitin var í fyrstu hugsuð sem grundvöllur fyrir kennara Tónlistarskólans til þess að koma saman og spila og nú er starfsemi hennar orðin fastur lið- ur í tónlistarlífi á Akureyri." Roar Kvam var upphaflega ráð- inn sem stjórnandi Lúðrasveitar Akureyrar auk þess að kenna á blásturshljóðfæri á Akureyri. Stjórnaði Roar lúðrasveitinni í sjö ár og í bókinni Skært lúðrar hljóma, sem Atli Magnússon, blaðamaður annaðist útgáfu á segir Lárus Zophoníasson meðal annars að Roar Kvam sé djarfur maður og stórhuga og undir stjórn hans hafi lúðraveitarmenn komist í kynni við ýmislegt sem þeir hafi ekki áður þekkt. Þrátt fyrir að hugmyndir hans hafi ekki í höfuðdráttum farið saman við hugmyndir lúðrasveitarmanna um starfsemi sveitarinnar hafi mörg merkileg störf verið unnin á þessu tímabili. Gæði tónleika hafi farið vaxandi ár frá ári og ætíð hafi virst að þegar Roar hugsaði hæst og færðist mest í fang, hafi útkoman orðið best. Stórkostleg upplifun að taka þátt í þessari «PPbyggingu Fyrir rúmum tuttugu árum komu tveir útlendingar til starfa að sagði að með réttri leiðsögn sé hægt að fá fólk til að gera ótrú- legustu hluti og það hafi verið stórkostleg upplifun að taka þátt í þessari uppbyggingu. Vorkliður Aframhaldandi uppbygging tón- listarlífsins er efst í huga Roars Kvam. Hann hefur tekið við stjórn nýstofnaðrar blásarasveit- ar þar sem fyrrunt meðlimir Blás- arasveitar Tónlistarskóla Akur- eyrar, er unnið hefur til marg- faldra verðlaun á erlendri grund eru uppistaðan. Hann starfrækir nú nýstofnaðan tónmenntaskóla -Tónmenntaskólann á Akureyri, auk þess að stjórna Passíukórn- um og Karlakór Akureyrar- Geysi. Roar sagði að ákveðið sé að halda starfi blásarasveitarinn- ar áfram af fullum krafti og eru fyrstu tónleikar hennar áformað- ir í mars. Þá er einnig stefnt að því að blásarasveitin taki þátt í landsmóti lúðrasveita sem fram fer á Höfn í Hornafirði í júní og í júlí er ætlunin að halda til Zúric í Sviss og keppa þar á móti. Roar er með um 60 nemendur í tón- menntaskólanum. Kennslan fer fram í Glerárkirkju og einnig í Lóni við Hrísalund. Hann segir nauðsynlegt að tónlistarkennsla fari fram í íbúðahverfum þar sem mikið sé um að ung börn sæki tónmenntanám. Allt niður í þriggja ára aldur. Lengi hafi háð tónmenntakennslu á Akureyri að eini tónlistarskólinn var í mið- bænum og fólk ekki ' álltaf haft aðstæður eða verið ásátt með að senda börnin þangað. Roar sagði Jdð í tónlistarmálum á Akureyri“ verið hefur driffjöðrin í mörgum tónlistarviðburðum í bænum á síðustu tuttugu árum stjórnanda fyrir lúðrasveit á Akureyri auk þess að taka að sér kennslu á blásturshljóðfæri. „Ég vissi lítið um Akurevri en fannst þetta verulega áhugavert verkefni. Ég hafði fengist við bæði hljómsveitarstjórn og kennslu en litlir möguleikar voru að fá launað starf við hljómsveit- arstjórn í Noregi. Ég hafði ekk- ert spurst fyrir um almennt tón- listarlíf á íslandi áður en ég kom og hef því eflaust haft aðrar hug- myndir um það en raun varð á. Eftir að ég kom hingað gerði ég mér fljótt grein fyrir því að tón- listarstarfið var mikið styttra á veg komið en í Noregi. Á Akur- eyri hafði þó verið nokkuð öflugt kórastarf - tveir karlakórar, tveir kirkjukórar, kvennakórinn Gígj- an og Lúðrasveit Akureyrar. Ég byrjaði að kenna á blásturs- hljóðfæri og var með um 20 nemendur strax fyrsta veturinn. Ég hófst einnig þegar handa við að byggja upp barnalúðrasveit sem síðar varð að Blásarasveit Tónlistarskólans og hélt hún sína fyrstu tónleika í Akureyrar- kirkju um jólin 1971. Ég var vissulega með stóra drauma varð- andi tónlistarlífið. Ég taldi að við yrðum að vera með 120 til 125 manns í blásaradeildinni. Sá fjöldi gæfi möguleika á að skipta henni í fjórar hljómsveitir. Þann- ig að allir gætu spilað verk við sitt hæfi - á því stigi sem þeir væru komnir í námi. Þá voru 150 til 200 krakkar í öllum skólanum - þar af um 30 í blásaradeildinni. Því var ekki óeðlilegt að forráða- menn skólans teldu þessa bjart- sýni mína hreina draumóra." Fólk trúði ekki að krakkar frá þessum Iitla bæ gætu spilað á mótum erlendis Roar heldur áfram. „En aðsókn- in fór vaxandi og þessar hug- myndir urðu ekki eins óraunhæf- ar og þær virtust í fyrstu. Ég reyndi að gera námið forvitnilegt fyrir krakkana - til að glæða áhuga þeirra og einn liður í því var að skipuleggja ferðir - bæði utanlands og innan fyrir blásara- sveitina. Krakkarnir höfðu gam- an af ferðalögum og í þeim fengu þau einnig tækifæri til þess að miða sig við aðrar hljómsveitir því viðmiðun var ekki að fá hér heima. Blásarasveitin fór fyrst til útlanda árið 1978. Ég man að fólki fannst utanlandsferðir með blásarasveitina ekki síður draum- órar en þær hugmyndir, sem ég hafði lagt upp með í byrjun. Fólk trúði því hreinlega ekki að krakkar frá þessum litla bæ hefðu einhverja möguleika til að spila á mótum tónlistarfólks frá öðrum löndum. Ég efaðist hins vegar aldrei um það - þekkti getu þeirra og var viss um að þau myndu standa sig. Foreldrafélag- ið stóð einnig afar fast að baki blásarasveitinni og gerði í raun kleift að þessar utanlandsferðir urðu að veruleika." Brons, silfur og gull Blásarasveitin hefur leikið á vina- bæjamótum - bæði í Randes f Danmörku og í Álasundi í Noregi. Hún hefur einnig tekið þátt í þremur alþjóðlegum mótuni. Fyrsti í Hamar í Noregi 1981, þar sem hún vann silfurverðlaun og aftur á sama stað árið 1987 og vann þá brons. Síðan tók hún þátt f heimsmóti lúðrasveita í Hollandi árið 1989 og vann þar til gullverðlauna. Sveitin hefur ætíð leikið lagið ísland farsælda frón sem kynningarlag þar sem hún hefur komið fram á erlendri grundu. ísland farsælda frón er elsta lag sem til er á nótum hér á landi - talið vera frá 13. öld og Roar útsetti það fyrir blásara- sveitina. Annað lag sem hann heldur mikið upp á er Öxar við ána eftir Helga Helgason - eina raunverulega íslenska marsinn. Roar sagði að í hvert sinn sem hann hafi farið erlendis með blás- arasveitina hafi hann reynt að sýna og sanna að það sem þau væru að gera á íslandi væri fylli- lega sambærilegt við þann árang- ur sem náðst hefði í öðrum löndum. íslenskir krakkar hefðu alla þá hæfileika til að bera sem finndust hjá stærri þjóðum. Akureyringar fluttu Messías eftir Hendel í fullri lengd Roar kvaðst fljótt hafa alið með sér hugmyndir um stofnum bland- aðs kórs, sem hefði metnað og getu til þess að flytja stærri verk á borð við kantötur og jafnvel óratoríur. Með stofnun Passíu- kórsins árið 1972 varð sá draum- ur að veruleika. Þegar kórinn var fimm ára var ráðist í að flytja Messías eftir Hendel í fullri lengd. Passíukórinn hefur flutt margvísleg verk um dagana og stundum hefur verið um frum- flutning tónverka að ræða. Áhersla hefur einnig verið lögð á fjölbreytt verkefnaval og má meðal annars nefna flutning á Carmína Burana auk nútíma- verka á borð við New Hope Jazz Mess. Roar sagði að ógerlegt hefði verið að ná þessum árangri með Passíukórnum ef ekki hefði komið til mikill áhugi hjá með- limum kórsins og þeir haft vilja og metnað til þess að gera þessa hluti. Meðal þeirra verkefna sem Roar Kvam hefur ráðist í að flytja með Passíukórnum er frumflutningur Örlagagátunnar eftir tónskáld Akureyringa Björgvin Guðmundsson í fullri lengd og á síðasta ári voru Strengleikar sama höfundar frum- fluttir á Akureyri í fullri lengd í hljómsveitarútsetningu og undir tónlistarmálum á Akureyri. Roar Kvam kom frá Noregi og Michael Jón Clarce frá Bretlandi. Auk þeirra kom Gígja Kjartansdóttir heim frá tónlistarnámi. Þau hófu öll störf að tónlistarmálum á Akureyri. Roar og Gígja urðu síðar hjón og segir Roar það vera ástæðu þess að þetta eina ár sem hann ætlaði í upphafi að dvelja hér á landi séu orðnir tveir ára- tugir. Á þessum tíma hafa orðið miklar breytingar í tónlistarlífi á Akureyri. Mun fleiri sækja nú nám á tónlistarsviðinu en áður var og ýmis stórvirki hafa verið unnin í flutningi tónverka. Mest af því hefur verið unnið með áhugafólki - sumt hafði aldrei fengist við tónlistarflutning. Roar að stefnt sé að tónlistarhátíð á Akureyri í vor. Hátíðinni hefur verið gefið nafnið Vorkliður og áformað er að hún verði haldin 16. maí. Tónlistarflutningur Blásarasveitarinnar, Passíukórs- ins og Karlakórs Akureyrar- Geysis verður megin uppistaða dagskrárinnar, sem áælað er að verði fjölbreytt. Roar sagði að flutt yrði blönduð tónlist og lögð áhersla á styttri verk - bæði af klassískum toga og einnig önnur tónlist. Þá væri einnig áformað að tengja upplestur við tónleik- ana þar sem lesið yrði úr verkum bókmenntahöfunda. „Ég á enn mörgu ólokið í tónlistarmálum á Akureyri," segir Roar Kvam að lokum. ÞI Auglýsing um veitingu leyfis til áætlunarflugs innanlands. Laust er til umsóknar sérleyfi til áætlunarflugs meö farþega, vörur og póst á flugleiðinni Reykja- vík-Noröfjörður-Reykjavík. Samgönguráðherra mun, samkvæmt heimild í VII. kafla laga nr. 34 21. maí 1964 um loftferðir og reglugerð um flutningaflug nr. 641/1991 veita leyfi til ofangreinds áætlunarflugs fyrir tímabilið 18. maí 1992 til og með 31. desember 1997. Ráðuneytið lýsir hér með eftir umsóknum flugrek- enda um leyfi til áætlunarflugs á téðri flugleið. í umsókninni skal greina: - mat umsækjenda á flutningsþörf á viðkomandi leið, - drög að áætlun á viðkomandi leið, - önnur atriði sem umsækjandi telur skipta máli. Umsóknum, skv. ofanrituðu, skal skila til sam- gönguráðuneytisins eigi síðar en 20. mars n.k. Samgönguráðuneytið, 21. febrúar 1992.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.