Dagur - 07.04.1992, Page 3
Þriðjudagur 7. apríl 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Nýju fjárhúsin á Hólum. Á innfelldu myndinni láta íbúar þeirra fara vel um sig.
Mynd: SBG
Bændaskólinn Hólum í Hjaltadal:
Ný fjárhús tekin í notkun
Léttsteypan í Mývatnssveit:
Fimm mánaða greiðslu-
stöðvun rennur út í dag
Ný fjölnota fjárhús voru tekin
formlega í notkun viö Bænda-
skólann Hólum í Hjaltadal sl.
föstudag. Séra BoIIi Gústavs-
son, vígslubiskup, blessaði
húsin og meðal gesta við
athöfnina var landbúnaðarráð-
herra, Halldór Blöndal, auk
þess sem Karlakórinn Heimir
tók lagið í hinum nýju húsa-
kynnum Hólafjár
Dalvík:
Bæjarmála-
punktar
■ Þóru Rósu Geirsdóttur
hefur að eigin ósk verið veitt
lausn frá störfum í félags-
málaráði frá 15. rnars sl. til
loka kjörtímabilsins.
■ Þann 1. apríl sl. voru 26 á
atvinnuleysisskrá á Dalvík, 16
karlar og 10 konur. Þar af eru
5 karlar úr Svarfaðardals-
hreppi.
■ Sigurður Jónsson hefur sótt
um til bygginganefndar að
setja upp verslun í Hringsholti
með hestavörur, sælgæti og
gosdrykki. Bygginganefnd tók
ekki afstöðu til umsóknarinn-
ar, fyrr en fyrir lægi umsögn
Húseigendafélagsins í Hrings-
holti.
■ Á fundi sínum 1. apríl sl.
samþykkti bygginganefnd
erindi Tréverks hf. um leyfi tii
að láta hanna og teikna ein-
staklinga- og orlofsíbúðir á lóð
nr. 38 við Skógarhóla.
■ Ferðamálanefnd hcfur
samþykkt gjaldskrá fyrir tjald-
stæðið á Dalvík í sumar. Fyrir
tjald, tjaldvagn, hjólhýsi o.fl.
greiðist 200 krónur, sama upp-
hæð í persónugjald fyrir full-
orðna og 400 krónur í tjald- og
persónugjald.
■ Halldór Guðmundsson hef-
ur með bréfi sagt lausu for-
stöðumannsstarfi sínu á
Dalbæ, en hann hefur verið í
árs leyfi frá störfum. Ingibjörg
Ingimundardóttir hefur
ákveðið að draga uppsögn
sína til baka og er reiðubúin
að gegna forstöðumannsstarf-
inu áfram. Á fundi stjórnar
Dalbæjar 25. mars sl. var lýst
ánægju með þá ákvörðun Ingi-
bjargar og kemur fram í bók-
un að hún mun fara í 80%
starf þann 1. maí nk.
Fjárhúsin eiga að rúma um 340
fjár þegar þau verða komin í fulla
notkun. Sem stendur eru í þeim
rúmlega 200 ær og er reiknað
með að taka þann hluta húsanna,
sem eftir er ónýttur, undir hross
til að byrja með. Að sögn
kennara og nemenda á Hólum er
mikil búbót að þessi fjárhús skuli
vera komin í notkun, en þau hús
sem voru fyrir eru meira en sex-
tíu ára gömul. Fjárstofninn á
Hólum telur rúmlega 300 fjár um
þessar mundir svo gömlu húsin
verða nýtt að einhverju leyti
áfram.
A Alþingi er komin fram þings-
ályktunartillaga um atvinnu-
þróun í Mývatnssveit. Flutn-
ingsmenn hennar eru Hjörleif-
ur Guttormsson og Kristín
Einarsdóttir og vilja þau að
Alþingi feli ríkisstjórninni að
gera úttekt á þróunarforsend-
um og möguleikum á nýsköp-
un í atvinnulífi í Mývatnssveit
er falli að markmiðum um nátt-
úruvernd á svæðinu. Að
úttektinni verði unnið sam-
hliða rannsóknum á áhrifum
kísilgúrnáms úr Mývatni á Iíf-
ríki svæðisins og fyrstu niður-
stöðum skilað og þær kynntar
Alþingi fyrir árslok.
I greinargerð með tillögunni
segja þau Hjörleifur og Kristín
að íslenska ríkið hafi óvenju
miklar skyldur við Mývatnssveit
og svæðið meðfram Laxá. Því
valdi ákvarðanir sem teknar hafi
verið um lögverndun á náttúru
svæðisins og aðild ríkisins að
uppbyggingu atvinnufyrirtækja
þar síðustu áratugi, einkum Kísil-
iðjunnar og Kröfluvirkjunar.
„Mývatnssveit er þjóðgarðs-
ígildi og hefur auk þess fengið
alþjóðlega stöðu í náttúruvernd
með því að flokkast undir Rams-
ar-sáttmálann. Svæðið er einstakt
á heimsmælikvarða, bæði sökum
lífríkis og jarðmyndana. Mývatn
hefur gífurlegt alþjóðlegt
Hafist var handa við byggingu
húsanna haustið 1990 og gerð
kostnaðaráætlun upp á um 30
milljónir króna. Enn sem komið
er hafa samt einungis 17 milljónir
farið í framkvæmdirnar og að
sögn kunnugra verður kostnaður
við bygginguna undir 20 milljón-
um króna.
Margt gesta var við athöfnina
sl. föstudag og gat fólk m.a. virt
fyrir sér fyrstu lömbin sem fædd-
ust í húsunum, því um tuttugu ær
á Hólabúinu báru samtals 47
lömbum fyrir um tíu dögum.
aðdráttarafl eins og best sést á
þeim mikla og vaxandi fjölda
ferðamanna sem þangað leggur
leið sína,“ segir í greinargerð-
inni.
Þar er jafnframt rætt um þær
tillögur sérfræðingahóps iðnaðar-
ráðherra, sem kynntar voru fyrir
skömmu, þess efnis að hafnar
verði rannsóknir á vegum
umhverfisráðuneytis á áhrifum
efnistöku af botni Mývatns. Þess-
um rannsóknum sé ætlað að
varpa ljósi á þá spurningu hvort
og hversu lengi sé ráðlegt að
halda áfram kísilgúrtöku af botni
Mývatns og þá um leið starfrækslu
verksmiðjunnar.
„Hér er um svo afdrifaríkt mál
að ræða fyrir samfélagið við
Mývatn að óverjandi er annað en
að stjórnvöld láti samhliða kanna
möguleika á þróun atvinnulífs og
nýsköpun til að tryggja byggð og
sjálfbæra þróun í Mývatnssveit.
Það er nú orðin viðurkennd regla
víða um lönd að fyllstu varúðar
beri að gæta þá mannleg umsvif
eru annars vegar og óvissu eigi að
meta náttúruverndinni í vil. Það
getur varla orkað tvímælis að
slíka reglu beri að virða þegar
lífríki Mývants er annars vegar.
Því leggja flutningsmenn þessar-
ar tillögu áherslu á að stjórnvöld
komi til liðs við heimamenn nú
þegar með þeirri úttekt sem til-
lagan gerir ráð fyrir.“ JÓH
Fimm mánaða greiðslustöðvun
Létsteypunnar hf. í Mývatns-
sveit rennur út í dag. Hinrik
Árni Bóasson, framkvæmda-
stjóri, sagði í gær að ekki hefði
náðst nein endarleg niðurstaða
í viðræðum við Iðnlánasjóð og
Iðnþróunarsjóð, en samkomu-
lag um uppgjör hefði náðst við
aðra almenna kröfuhafa.
„Við erum hæfilega bjartsýnir
um að þetta gangi allt upp að lok-
um og að við náum landi,“ sagði
Hinrik Árni. Sjóðirnir eru með
veð í húseign Léttsteypunnar og
sagði Hinrik Árni allar líkur á að
húsið færi á nauðungaruppboð.
Léttsteypan mundi reyna að
eignast húsið á uppboðinu eða
með samningum að því loknu.
„Það hefur verið unnið allan
þennan tíma á fullu í Léttsteyp-
unni og salan hefur verið mjög
góð. Útlitið framundan er bjart
og það hefur komið töluvert mik-
ið af pöntunum á holsteini, bæði
frá Keflavík og Mosfellsbæ.
Mjög góð sala hefur verið á
Akureyri það sem af er vetri. Það
hefur verið meira að gera en við
áttum von á,“ sagði Hinrik Árni.
Fjórir starfsmenn vinna við að
steypa steinana og einn í hálfri
stöðu á skrifstofunni. „Ef allt
gengur eftir fjölgar starfsmönn-
um væntanlega þegar líður á
vorið. Léttsteypan skiptir veru-
legu máli í atvinnulífi í Mývatns-
sveit,“ sagði Hinrik Árni í sam-
tali við Dag. IM
Dalvíkurbær:
Mar að ráða
garðyrkjumaim
Dalvíkurbær hefur auglýst
laust til umsóknar starf garð-
yrkjumanns. Hér er um að
ræða nýtt starf hjá bænum.
Sveinbjörn Steingrímsson,
bæjartæknifræðingur, segir að
starf garðyrkjumanns felist eink-
um í skipulagningu og umsjón
með framkvæmd umhverfismála
á Dalvík. „í starfinu felst að hafa
umsjón og eftirlit með opnum
svæðum í bænum auk þess að
starfa að ýmsum umhverfisverk-
efnum á vegum vinnuskóla
bæjarins. Þá er að því stefnt að
garðyrkjumaður starfi náið með
félagasamtökum í bænum. Mörg
þeirra vinna að ýmsum umhverf-
isverkefnum í bæjarlandinu,“
sagði Sveinbjörn og bætti við að
hér væri um að ræða nýtt starf og
því myndi sá sem til þess yrði
ráðinn móta það að töluverðu
leyti.
Áskilið er að umsækjendur
hafi lokið prófi frá Garðyrkju-
skóla ríkisins eða hafi sambæri-
lega menntun. óþh
Fyrir femninguna
Fjölbreytt og vandað hillukerfi.
Járnrörin hvít, svört eða krómuð.
Hillur, skápar og borð í hvítu,
svörtu og beyki.
Eigum einnig hvít, svört og
krómuð járnrúm í stíl.
Opið til hádegis á laugardögum.
ixKlvörubaerl'
IjzI husgagnaverslun
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI S(MI (96)21410
SBG
Þingsályktunartillaga um atvinnuþróun
í Mývatnssveit:
Úttekt verði gerð á möguleikum
til nýsköpunar er falli að
markmiðum um náttúruvernd