Dagur - 07.04.1992, Page 7
Þriðjudagur 7. apríl 1992 - DAGUR - 7
Valdemar rifljeinsbrotinn
Valdemar Valdemarsson var
fjarri góðu gamni í alpagrein-
unum um helgina. Hann rif-
bcinsbrotnaði á æfingu á
fimmtudaginn og var því ekki
meðal keppenda að þessu
sinni.
„Þetta var mjög ánægjulegt
eða hitt þó heldur," sagði Valde-
mar í samtali við Dag. „Mér
hafði gengið mjög vel síðustu
tvær vikur, þetta var að smella
saman hjá mér og ég var bjart-
sýnn á góðan árangur. Svo datt
ég í síðustu ferðinni, síðasta dag-
inn fyrir mót.“
Valdemar sagðist stefna að því
að vera með í alþjóðlegu móta-
röðinni sem hefst um næstu helgi
en sagði óvíst að það myndi
ganga.
Þær voru niargar skrautlegar bylturnar sem sáust um helgina. Golli náði þessari skemmtilegu mynd í samhliðasvig-
inu á sunnudag.
Kristinn Björnsson.
Mynd: Golli
„Gullkálfarnir“ Kristinn Björnsson og Ásta S. Halldórsdóttir. Ásta vann allar alpagreinarnar í kvennaflokki en
Kristinn vann svigið, stórsvigið og alpatvíkeppnina. Mynd: jhb
Kristinn Björnsson:
„Orðinn svolítið þreyttur“
Skíðamóti íslands, íslandsmóti
Flugleiða, var slitið í Tjarnar-
borg í Olafsfirði á sunnudag-
inn. Þá um daginn fór einnig
fram keppni í síðustu greinum
mótsins, í Olafsfirði sigraði A-
sveit Akureyrar í boðgöngu
karla og í Hlíðarfjalli sigruðu
Vilhelm Þorsteinsson, Akur-
eyri, og Ásta S. Halldórsdótt-
ir, ísafirði, í samhliðasvigi.
Ásta sigraði í öllum alpagrein-
um kvenna á mótinu en Krist-
inn Björnsson, Olafsfirði, í
þremur af fjórum í karlaflokki.
Isfírðingar hlutu flest gullverð-
laun, sjö talsins, en Akureyr-
ingar hlutu sex. Akureyringar
hlutu flest verðlaun á mótinu
eða 18 talsins.
ísfirðingar, Akureyringar og
Ólafsfirðingar skiptu öllum gull-
verðlaunum á mótinu á milli sín en
Ólafsfirðingar hlutu þrenn gull.
Þegar litið er á heildina hlutu
Akureyringar 18 verðlaun, ísfirð-
ingar 14, Ólafsfirðingar 11 og
Reykvíkingar 5.
Ásta S. Halldórsdóttir sýndi og
sannaði að hún er besta skíða-
kona landsins í dag en hún hafði
fádæma yfirburði í kvenna-
flokknum. Þá leikur enginn vafi á
að Kristinn Björnsson er besti
skíðamaður landsins í alpagrein-
um en hann sigraði í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni. í sam-
hliðasviginu varð hann hins vegar
að lúta í lægra haldi fyrir Vilhelm
Þorsteinssyni sem vann þar einu
gullverðlaun Akureyringa í alpa-
greinum.
í göngunni krækti Rögnvaldur
Ingþórsson í þrenn gullverðlaun,
sigraði í 30 km göngu, tvíkeppni
og var að auki í sigursveit Akur-
eyrar í boðgöngunni á sunnudeg-
inum. Þar mætti hann Daníel
Jakobssyni, ísfirðingnum unga
sem sigraði með miklum yfir-
burðum í 15 km göngunni á
fimmtudag, í síðasta spretti og
skilaði Haukur Eiríksson Rögn-
valdi hálfri mínútu í forskot á
Daníel. ísfirðingurinn byrjaði
með miklum látum og skar for-
skotið niður um 20 sekúndur en
virtist hafa „sprengt“ sig og
Rögnvaldur jók muninn aftur í
lokin. Daníel vann hins vegar
öruggan sigur í 15 km göngu
drengja en Kristján Ólafsson,
Akureyri, sigraði í tvíkeppni
drengja.
Þurfti að moka í
brautirnar í Ólafsfírði
Keppni í alpagreinum fór fram í
Hlíðarfjalli í umsjón Dalvíkinga.
Keppni gekk þar nokkuð vel en
þó gerðu veðurguðirnir keppend-
um og mótshöldurum gramt í
geði alla dagana. „Það var hálf-
gert áfall fyrir okkur að geta ekki
haldið þetta heima en við jöfnum
okkur á því og eigum eftir að
halda Landsmót á Dalvík fyrr
eða seinna,“ sagði Jóhann
Bjarnason, formaður Skíðafélags
Dalvíkur.
Björn Þór Ólafsson, formaður
skíðadeildar Leifturs í Ólafsfirði,
var ánægður í mótslok. „Þetta
tókst mjög vel og ég veit ekki
betur en að það fari allir ánægðir
héðan. Framkvæmdin gekk
snurðulaust en snjóleysið gerði
okkur erfitt fyrir og við máttum
drífa okkur út kl. 5 aðfararnótt
laugardagsins til að moka í braut-
irnar. En þetta hafðist og braut-
irnar voru góðar,“ sagði Björn
Þór Ólafsson.
Ólafsfírðingurinn Kristinn
Björnsson var ánægður með
sinn hlut á mótinu en hann
vann þrenn gullverðlaun, í
svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni.
„Eg er mjög ánægður með
minn árangur og hann er í sam-
ræmi við þær vonir sem ég
gerði mér fyrir mótið. Ég er
ekki í mínu besta formi, orðinn
svolítið þreyttur eftir veturinn
og skíðaði þetta því meira á
örygginu. Ég ætlaði mér hins
vegar aðeins of mikið í sam-
hliða sviginu og keyrði út úr.
Það var svolítið svekkjandi en
ég var fljótur að jafna mig á
því,“ sagði Kristinn í samtali
við Dag.
Kristinn hefur æft og keppt við
mjög góðar aðstæður í allan vet-
ur en hann stundar nám í skíða-
menntaskólanum í Geilo í Noregi.
Hann var að mestu leyti ánægður
með aðstæður í Hlíðarfjalli. „Það
er alltaf gaman að koma heim og
keppa. Veðráttan var aðeins að
stríða okkur en annars var ég
nokkuð ánægður með aðstæður.“
Veturinn hefur nánast alger-
lega snúist um skíði hjá Kristni,
hann er búinn að æfa stíft og
keppa á fjölmörgum mótum, þar
með töldum Ólympíuleikunum.
„Þetta er búið að vera stíft og
maður er farinn að hlakka til að
komast í sumarfrí. Ég er búinn
að keppa á 35 mótum og á eftir
að keppa á alþjóðlegu mótunum
6 sem verða haldin á Akureyri,
ísafirði og í Reykjavík á næst-
unni. Þetta hefur gengið vonum
framar hjá mér ef Ólympíu-
leikarnir eru undanskildir, ég
varð fyrir miklum vonbrigðum
þar en þessi þrjú gull núna bæta
það upp. Ég er þvf mjög sáttur
við veturinn í heild.“
Alþjóðlega mótaröðin hefst
um næstu helgi og Kristinn segist
ákveðinn í að gera góða hluti
þar. „Ég ætla að reyna að bæta
punktastöðuna mína þar og það
eru ágætir möguleikar á því þar
sem það verða sterkir erlendir
keppendur með. Maður reynir að
stríða þeim aðeins," sagði Krist-
inn Björnsson.
Skíðamóti íslands slitið á sunnudaginn:
fsflrðingar með flest gull
- en Akureyringar flest verðlaun í heildina