Dagur - 07.04.1992, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 7. apríl 1992
MlNNING
Ý Höskuldur Stefánsson
Fyrir stuttu var til moldar borinn
föðurbróöir minn Höskuldur Stef-
ánsson. Hér ætla ég ekki að rekja
æviferil hans heldur aðeins að
minnast kynna okkar. Vegna
þeirra finnst mér ég ríkari vera.
Þegar ég var að alast upp í
sveitinni kom Höskuldur gjarnan
í sumarheimsóknir. Ég man að
mér, strax sem barni, þótti sem
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Helgamagrastræti 23, efri hæð,
Akureyri, þingl. eigandi Anna Blöndal
og Þórarinn Jóhannesson, föstu-
daginn 10. apríl 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Hjallalundi 22, íbúð 205, Akureyri,
þingl. eigandi Gunnar Oddur Sig-
urðsson og Margrét Þórðardóttir,
föstudaginn 10. apríl 1992, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Hjalteyrargötu 2, vesturhluta, Akur-
eyri, þingl. eigandi Vélsmiðjan Oddi
hf„ talinn eigandi Ölumboðið hf„
föstudaginn 10. april 1992, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Ólafur Gústafsson hrl.
Hrísalundi 8 g, Akureyri, þingl. eig-
andi Árni Harðarson og María I.
Tryggvadóttir, föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hri.
Kaldbaksgötu 8, Akureyri, þingl.
eigandi Hafdis Ósk Sigurðardóttir,
föstudaginn 10. apríl 1992, kl.
14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Keilusíðu 10 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Sverrir Skjaldarson og Anna
Hreiðarsdóttir, föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Steinahlíð 5 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Sigurður L. Arnfinnsson, föstu-
daginn 10. apríl 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Strandgötu 13, Akureyri, talinn eig-
andi Tryggvi Pálsson, föstudaginn
10. apríl 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Tjarnarlundi 11 b, Akureyri, þingl.
eigandi Hildur S. Karlsdóttir, föstu-
daginn 10. apríl 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hús-
næðisstofnun rikisins.
Tryggvabraut 22, efsta hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Helga A. Jó-
hanns og Haraldúr Pálsson, föstu-
daginn 10. apríl 1992, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Ásgeir
Thoroddsen hrl„ Gunnar Sólnes
hrl„ Ólafur Gústafsson hrl. og Ólaf-
ur Birgir Árnason hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Arnarsíðu 10 c, Akureyri, þingl. eig-
andi Óskar Jóhannsson og Jórunn
Jónsdóttir, föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Eyrarbakka, Hjalteyri, Arnarnes-
hreppi, þingl. eigandi Guðrún Stef-
ánsdóttir, föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Baldur Guðlaugsson hrl.
Goðabyggð 7, Akureyri, þingl. eig-
andi Jóna Vignisdóttir, föstudaginn
10. apríl 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur Birgir
Árnason hrl.
Hafnarbraut 23, Dalvík, þingl. eig-
andi Haraldur Teitsson og Stefanía
Heiða Magnúsdóttir, föstudaginn
10. apríl 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ævar Guðmundsson hdl„ Gunnar
Sólnes hrl„ Jón Ingólfsson hdl„
Hróbjartur Jónatansson hrl. og Ólaf-
ur Gústafsson hrl.
Hólabraut 19, Hrísey, þingl. eigandi
Blrgitta Antonsdóttir, föstudaginn
10. apríl 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
Gunnar Sólnes hrl. og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Keilusíðu 7 h, Akureyri, þingl. eig-
andi Marta E. Jóhannsdóttir, föstu-
daginn 10. apríl 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl. og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Miðbraut 13, Hrísey, þingl. eigandi
Hríseyjarhreppur, talinn eigandi
Ólafur S. Guðjónsson, föstudaginn
10. apríl 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi
Fjölnismenn hf„ föstudaginn 10.
apríl 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Óseyri 1 a, norðurhluta, Akureyri,
þingl. eigandi Þb. Trésmíðavinnust.
Þór, talinn eigandi Bifreiðastöðin
Stefnir hf„ föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Skíðabraut 11, Dalvík, þingl. eig-
andi Svavar Marinósson og Hall-
fríður Hauksdóttir, föstudaginn 10.
apríl 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Axelsson hrl„ Húsnæðis-
stofnun ríkisins, Gunnar Sólnes hrl„
Jón Ingólfsson hdl„ Benedikt Ólafs-
son hdl„ Hróbjartur Jónatansson
hrl. og innheimtumaður ríkissjóðs.
Steindyrum, íbúðarhúsi, Svarfað-
ardal, þingl. eigandi Ármann
Sveinsson, föstudaginn 10. apríl
1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Sigurður G. Guðjóns-
son hdl.
Strandgötu 6, íbúðarhúsi, Akureyri,
þingl. eigandi Sportbúðin hf. c/o
Gunnar Eiríksson, talinn eigandi
Víking Eiríksson, föstudaginn 10.
apríl 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ingólfur Friðjónsson hdl„ Benedik'
Ólafsson hdl„ Sigríður Thorlacius
hdl„ Gunnar Sólnes hrl„ Bæjarsjóð-
ur Akureyrar og Ólafur Birgir Árna-
son hrl.
Sunnuhlíð 23 f, Akureyri, þingl. eig-
andi Fanney Rafnsdóttir, föstudag-
inn 10. apríl 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu.
hann sæi annað og lengra en aðrir
menn. Hann velti mikið fyrir sér
ýmsum náttúrufyrirbærum og
minnist ég þess sérstaklega hve
hann skoðaði gróður af miklum
áhuga og með athygli. Fór hann
út með Flóruna og greindi grös.
Ég skottaðist í kringum hann við
þessa iðju og lærði hjá honum að
greina plöntur eftir bók. Hjá
honum merkti ég ætíð einlægan
áhuga á öllu lifandi í náttúrunni
og kom þessi áhugi fram þó ekki
væri sumar. Skrifaðar jólakveðj-
ur frá honum voru engum öðrum
líkar og á þeim mátti gjarnan
finna hugleiðingar um rjúpuna og
smáfuglana í klóm vetrar, snjóa-
lög eða væntanlega vorkomu.
Kynni okkar Höskuldar hófust
þó ekki fyrir alvöru fyrr en ég
kom til náms í M.A. Alla náms-
vetur mína var ég tíður gestur í
Þórunnarstrætinu hjá Höskuldi.
Við sátum gjarnan á sunnudags-
eftirmiðdögum í eldhúsinu,
drukkum kaffi, borðuðum tví-
bökur og ræddum margt; heims-
mál, landsmál, sögu, málfræði,
bókmenntir... Sumt af því sem
bar á góma skildi ég, óharðnað-
urinn unglingurinn, ekki fyrr en
seinna, né var fær um að setja í
samhengi við sjálfa mig og tilver-
una. Víst er þó að þessar sunnu-
dagsviðræður vöktu mig alltaf til
umhugsunar og einhvern veginn
hafa þær þanið sig yfir tíma og
rúm og reynst mér drjúgt vega-
nesti síðar á lífsleiðinni.
Það var líka Höskuldur sem
kynnti mig fyrir heimi klassískrar
tónlistar og kenndi mér að meta
hana. Drjúgur hluti þessara
sunnudagsheimsókna fór alltaf í
að hlusta á tónlist. Fyrst valdi
hann tónlistina en svo þegar ég
var komin nokkuð áleiðis í nám-
inu fékk ég líka að velja hvað var
sett á fóninn. Minnist ég þess að
sinfóníur Beethovens, Bolero
Rafels, söngur „Pólska næturgal-
ans“ og sönglög Grieg fóru oft
„undir nálina" að ósk okkar
beggja.
Höskuldur var einn þeirra
samferðarmanna sem mikil áhrif
hafði á lífsskoðanir mínar og
hugsunarhátt. Hann var einfald-
lega þannig. Af honum lærði ég
margt því hann var aflvaki nýrra
hugsana. Ég kveð frænda og vin
og sendi fjölskyldu hans og nán-
ustu aðstandendum samúðar-
kveðjur mínar.
Sigurborg.
4=Ann
■J FífiHr
a Stefánsdóttir
Fædd 31. maí 1901 - Dáin 27. mars 1992
Síðastliðinn föstudag var til
moldar borin kær frænka, Anna
Stefánsdóttir, móðursystir konu
minnar. Anna var fædd á Eyjar-
dalsá í Bárðardal yngst 6 systkina
og eru þau nú öll látin. Foreldrar
þeirra voru hjónin Stefán Jóns-
son og Anna Jónsdóttir sem þar
bjuggu.
Fyrstu minningar mínar um
Önnu eru frá þeim tíma þegar við
hjónin vorum að draga okkur
saman og ég móðgaði konuefni
mitt stórlega þegar ég notaði
kröftugt sjóaramál til að lýsa
ágæti Önnu frænku, en Anna sá
strax húmorinn í því og bjargaði
mér úr klípunni. Okkur varð
strax gott til vina og hún varð
jafnframt frænka mín eins og
barna okkar hjónanna.
Systkini Önnu voru Aðalbjörg
og Jónína, löngu látnar fyrir mín
kynni af þessari ágætu fjölskyldu,
en ég naut þess að kynnast Jóni
og Guðnýju sem bjuggu saman á
Eyjardalsá. Sumardvöl þar með
börnin var fastur viðburður jafn-
vel eftir að við höfðum flutt utan
til náms. Guðný varð bráðkvödd
heima á Eyjardalsá árið 1971.
Jón gat dvalið þar áfram um hríð
með góðri aðstoð frændfólks þar
til hann varð að ieggjast á sjúkra-
húsið á Húsavík þar sem hann
lést 1974. Næstyngst systkinanna
var, Sigrún tengdamóðir mín,
sem lést 1986.
Anna var á yngri árum mjög
glæsileg kona og var enn mikil
reisn yfir henni þegar ég kynnist
henni, hún þá komin um sextugt.
Hún var víðsýn og gædd mjög
léttri lund. Ef lýsa ætti Önnu í
stuttu máli koma einkum í huga
fórnfýsi hennar og umhyggja fyr-
ir öðrum og snilld hennar við
hannyrðir og hæfileiki til
kennslu. Anna aflaði sér
menntunar í hannyrðum bæði
með námi hér heima og tvisvar
með dvöl í Svíþjóð.
Mikill örlagaatburður í lífi
hennar var þegar systir hennar
Jónína veiktist af lömunarveiki
og lést frá ungri dóttur sinni sem
einnig hafði veikst af lömunar-
veiki. Stúlkan var einnig skírð
Anna. Frænka hennar Anna
Stefánsdóttir tók hana að sér og
annaðist hana í erfiðum veikind-
um jafnframt því sem hún sjálf
aflaði sér menntunar og sá þeim
farborða við ýmis störf. Systur-
dóttir hennar var mikið fötluð
líkamlega eftir lömunarveikina
en lauk námi frá Handíða- og
myndlistaskólanum. Hún lést úr
lungnabólgu í Kaupmannahöfn
24 ára gömul, á fyrsta vetri sínum
við frekara nám í listum.
Anna Stefánsdóttir vann í
fyrstu við kennslu í vefnaði og
hannyrðum í sveitum á vegum
Kvenfélagasambands íslands, en
var síðar við kennslu á Reykja-
skóla uns skólahald lagðist þar
niður við hernámið. Eftir það
réðst hún sem kennslukona að
Laugum í Þingeyjarsýslu til loka
starfsdags eða um þriggja áratuga
skeið og er mörgum kunn vegna
þessa starfs. Á Laugum sinnti
hún ekki aðeins kennslu heldur
annaðist einnig oft um nemendur
í veikindum þeirra. Varð hún
þannig hægri hönd læknisins í
skólanum og hafði orðið góðan
skilning á sjúkdómum og umönn-
un sjúkra. Vegna tengsla hennar
þar leysti ég héraðslækninn af í 2
sumur sem mér varð ánægjulegur
reynslutími og batt mig nánari
böndum við héraðið og íbúa
þess. í skólafríum dvaldi Anna
lengst af á Eyjardalsá og aðstoð-
aði systkini sín við búskapinn.
Anna unni mjög skógrækt og gaf
talsvert fé til skógræktar í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Anna heimsótti okkur hjónin
tvisvar til Bandaríkjanna. Tengsl
hennar við það land voru óvana-
leg en Anna hafði gert tvo gripi
sem sýndir voru í íslandsdeild
Heimssýningarinnar í New York
árið 1939 sem dæmi um íslenska
hannyrðalist. Voru það tvö teppi,
annað saumað, hitt ofið. Bandið
var af völdu fé af ættarjörðinni
Eyjardalsá og höfðu hún, faðir
hennar og móðir valið það og
unnið. Ofna teppið seldist fyrir
talsverða fjárhæð en hitt glatað-
ist.
Eftir að Anna hætti kennslu-
störfum að Laugum keypti hún
sér raðhús á Akureyri. Bjuggu
oft hjá henni fyrri nemendur frá
Laugum sem voru þar við fram-
haldsnám, en hún naut þess að
halda tengslum við unga fólkið
og heimabyggðir þess. Heimili
hennar á Akureyri var sem heim-
ili okkar fjölskyldu norðanlands
og gagnkvæmar heimsóknir voru
tíðar.
Síðustu árin dvaldi hún á Dval-
arheimilinu Hlíð við góða
umönnun.
Hún hvílir að eigin ósk við hlið
systkina sinna í heimabyggð
sinni.
Birgir Guðjónsson.
* '* 'i* .
l *41 '#
Skólaskemmtun í Glerárskóla
Nemendur og kennarar í Glerárskóla á Akureyri, héldu skólaskemmt-
un á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Nemendur skólans settu
upp leikrit og leikþætti undir stjórn kennara sinna og léku af hjartans
list. Ljósmyndari Dags leit við í Glerárskóla og tók þessa mynd af
nokkrum nemendum 2. bekkjar, sem settu upp leikritið um Karíus og
BaktUS. Mynd: Golli