Dagur - 01.05.1992, Side 3
Fréttir
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 3
Körfuknattleikur:
Laugaskóli
í fyrrakvöld tók dómstóll
Körfuknattleiksráðs Reykja-
víkur fyrir kæru frá Bolvíking-
um á hendur íþróttafélagi
Laugaskóla (ÍFL) fyrir að hafa
notað ólöglegan leikmann í
úrslitakeppni 2. deildar
íslandsmótsins í körfuknattleik
sem lauk fyrir skömmu. Eins
missir 1. deildarsætiðvegna ólöglegs leikmaims
og fram hefur komið varð IFL
sigurvegari í deildinni og
hreppti sæti í 1. deild en dóm-
stóllinn komst að þeirri niður-
stöðu að liðið hefði notað
ólöglegan leikmann sem þýðir
að það missir bæði 1. sætið og
sæti í 1. deild á næsta tímabili.
Leikmaðurinn sem hér um
ræðir heitir Sveinbjörn Sigurðs-
son og sagði Sigurður Valur Hall-
dórsson, formaður dómstóls
Körfuknattleiksráðs Reykjavík-
ur, að niðurstaðan hefði verið
einróma þar sem Sveinbjörn
hefði aldrei skipt í ÍFL. Hann lék
áður með Grindvíkingum en
ekkert á síðustu tveimur keppnis-
tímabilum. ÍFL getur áfryjað
ryj
dómnum til dómstóls KKI
hefur viku frest til þess.
og
Verði þetta endanleg niður-
staða þarf að taka upp keppni í 2.
deild á nýjan leik. Bolvíkingum
var dæmdur 2:0 sigur í viðureign-
inni við ÍFL og við þau úrslit fær-
Handboltamót á Húsavík
AIls mæta 430 böm til 90 leikja
Stærsta handboltamót sem
haldið hefur verið utan Reykja-
víkur verður á Húsavík um
helgina. Um er að ræða Toyota-
mótið þar sem um 430 börn á
aldrinum 8 til 14 ára munu
keppa, 34 lið munu leika alls
90 leiki, þar sem átta lið keppa
í fjórum flokkum. Flokkarnir
sem um er að ræða eru: 6. 11
karla, 5. fl. karla, 5. 11.
kvenna, 4. fl. kvenna. Fjögur
liðanna koma af Reykjavíkur-
svæðinu: frá Gróttu, IR,
Fjölni og UMF Bessastaða-
hrepps. Tvö liðanna frá Akur-
eyri: KA og Þór. Huginn frá
Seyðisfirði, Höttur frá Egils-
stöðum og Völsungur frá
Húsavík. AIIs er reiknað með
að á sjöunda hundrað manns
sæki mótið, að meðtöldum
þjálfurum, fararstjórum og
foreldruin.
Undirbúningur mótsins hefur
staðið frá því í febrúar. í fyrra
var Toyotamótið haldið í fyrsta
sinn og þá tóku um 200 börn þátt
í því. Mótið tókst frábærlega vel,
að sögn Bjarna Ásmundssonar,
formanns handknattleiksdeildar
Völsungs og Péturs Péturssonar
sem er framkvæmdastjóri móts-
ins í ár. Þeir sögðu að feikileg
vinna væri við undirbúning móts
af þessari stærð. það er ekki sett
upp þátttökugjald fyrir mótið og
fyrir velvilja skólayfirvalda tekst
að hýsa þátttakendur án gisti-
kostnaðar. „Við njótum hjálpar
foreldra handknattleiksbarna og
þetta gengi ekki upp nema fyrir
velvilja margra," sagði Pétur.
Félög og einstaklingar í bænum
styrkja deildina fyrir mótið.
Á íaugardag býðst þátttakend-
um að skreppa í Safnahúsið á
Húsavík milli leikja og skoða þar
meðal annars Náttúrugripasafnið
með Grímseyjarbirninum. Bíó-
sýningar verða kl. 13 og 15 og 17
og um kvöldið verður kvöldvaka.
Verðlaunaafhending og móts-
slit fara fram kl. 14-15 á sunnudag
Allir keppendur fá bol og fleiri
gjafir auk viðurkenningarskjais
fyrir þátttöku. í hverjum flokki
verða veitt þrenn verðlaun. Prúð-
asta liðið utan vallar sem innan
fær verðlaun, auk besta
markmanns, besta varnarmanns
og markahæsta manns. Það verð-
ur Emil Grímsson, markaðsstjóri
Toyota, sem afhendir verðlaunin
og sennilega kemur þekkt hand-
boltahetja og verður honum til
aðstoðar. IM
ast þeir í efsta sæti riðilsins í úr-
slitakeppninni en ÍFL niður í 2.
sætið. Bolvíkingar leika því nýj-
an úrslitaleik um sigur í deildinni
við Gnúpverja, sigurvegara í hin-
um úrslitariðlinum sem ÍFL hafði
áður sigraði í úrslitaleik.
Unnar Vilhjálmsson, leikmað-
ur og þjálfari IFL, sagði að niður-
staðan kæmi sér ekki á óvart.
„Það var okkar eigin klaufaskap-
ur að hafa ekki pappírana í lagi
en ég held líka að það hafi átt við
ansi mörg önnur lið í keppninni.
Við eigum eftir að hafa samband
við KKÍ og ákveða í framhaldi af
því hvort við áfrýjum. Hins vegar
er hæpið að við eigum erindi í 1.
deild þar sem þetta er skólalið og
mannabreytingar því örar,“ sagði
Unnar.
jhb
Afkoma Útgerðarfélags Dalvíkinga á síðasta ári:
Reksturirai skilaöi meiru upp
í íjármagnsgjöld en 1990
Valdimar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Utgerðarfélags
Dalvíkinga, segir að þrátt fyrir
að félagið hafi tapað tæpum 9
milljónum króna á síðasta ári
þá sé rekstrarafkoman betri en
á árinu 1990 þó svo að þá hafi
félagið verið gert upp með 74
milljóna króna hagnaði.
Skýringin á þessu er fyrst og
fremst sú að á árinu 1990 hafði
félagið mjög miklat reiknaðar
tekjur vegna verðlagsbreyt-
inga.
„í heild má segja að reksturinn
hafi skilaði meiru á síðasta ári
upp í fjármagnsgjöld og mögu-
leika til að borga skuldir enda
lækkuðum við þær á árinu,“ sagði
Valdimar.
Hann segir að milli ára hafi
hagnaður hækkað um 38,1 millj-
ón króna, þ.e. hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnskostnað.
Hins vegar hafi afskriftir hækkað
verulega á síðasta ári vegna af-
skrifta á veiðiheimildum sem
félagið keypti af Kaupfélagi Ey-
firðinga og það skipti miklu um
rekstrarniðurstöðuna nú, auk
mun minni tekna vegna verðlags-
breytinga, eins og áður sagði.
JÓH
Menntamálaráðherra skipar nefnd:
Útvarpslögin endurskoðuð
- Tómas Ingi Olrich formaður nefndarinnar
Olafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra hefur skipað
nefnd undir forystu Tómasar
Inga Olrich alþingismanns til
að endurskoða útvarpslögin.
Er nefndinni gert að skila
drögum að frumvarpi til ráð-
herra ekki síðar en 1. septem-
ber í haust.
Aðrir nefndarmenn eru Baldvin
Jónsson, útvarpsstjóri Aðal-
stöðvarinnar, Guðni Guðmunds-
son, rektor Menntaskólans í
Reykjavík og útvarpsráðsmaður,
Hjálmar Jónsson, prófastur
Skagfirðinga og útvarpsráðsmað-
ur, Jóhann Óli Guðmundsson,
forstjóri Securitas og framámað-
ur í Islenska útvarpsfélaginu sem
rekur Bylgjuna og Stöð tvö, og
alþingismennirnir Rannveig
Guðmundsdóttir og Sólveig Pét-
ursdóttir.
I frétt um nefndarskipunina
segir að meðal viðfangsefna
hennar sé „að skilgreina hlut-
deild ríkisins í útvarpsrekstri og
athuga hvernig tryggja megi sem
jafnasta aðstöðu ljósvakamiðla.
Jafnframt því skal nefndin í störf-
um sínum leggja áherslu á að ný
löggjöf taki tillit til tækniþróunar
og aðildar íslands að alþjóða-
samningum og -samstarfi. Nefnd-
inni er þá sérstaklega ætlað að
leita leiða til að efla innlenda
dagskrárgerð."
Núgildandi útvarpslög tóku
gildi árið 1986 en í þeim er
ákvæði um að þau skuli endur-
skoðuð eftir þrjú ár. Fyrrverandi
menntamálaráðherra var búinn
að láta endurskoða lögin en
frumvarp hans hlaut ekki af-
greiðslu á þingi í fyrra.
-ÞH
Mótorhjólaslysið á Húsavík:
Pilturirai mjaðmagrindarbrotiim
Pilturinn sem fluttur var frá
Húsavík á miðvikudag á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri
eftir mótorhjólaslys liggur á
gjörgæsludeild. Líðan piltsins
er eftir atvikum að sögn
læknis.
Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vfk hentist hinn slasaði er ók
mótorhjólinu á umferðarskilti er
hjól og bíll skullu saman á Garð-
arsbrautinni. Pilturinn var með
öryggishjálm, en strax var ljóst
að hann var töluvert slasaður.
„Þar sem pilturinn var með
meiriháttar beináverka þá var
hann sendur inn á Akureyri á
Ejórðungssjúkrahúsið. Hvort við
sendum slasaða til Akureyrar er
alltaf matsatriði og í þessu tilfelli
var það gert. Svæfingalæknir
sjúkrahússins var í fríi og því var
starfsgeta okkar takmörkuð.
Einnig var áverkinn þess eðlis að
sérfræðinga þurfti til,“ sagði Ingi-
mar Hjálmarsson, læknir á Húsa-
vík.
Við komuna á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri reyndist piltur-
inn úr lið á hægri mjöðm. Hann
var dreginn í liðinn. Mjaðma-
grind er brotin og áverki er á
hægra fæti. Meiðsl eru þó ekki
fullkönnuð að sögn læknis á
bæklunardeild Fjórðungssjúkra-
hússins. ój