Dagur - 01.05.1992, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 1. maí 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁlKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: 8RAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (iþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON
(Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR. HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Dagur verkalýðsins
Árlegur baráttudagur verka-
lýðshreyfingarinnar er að
þessu sinni haldinn í lok
langrar og strangrar samn-
ingalotu. Lotan stóð yfir í
átta mánuði og allan þann
tíma átti verkalýðsforystan á
brattann að sækja. Forystu-
menn launþega settu hvorki
fram ósanngjarnar né
óraunsæjar kröfur í yfirstand-
andi samningaviðræðum.
Þvert á móti leituðust þeir
við að verja núverandi kaup-
mátt launa og standa vörð
um almenn lífskjör í landinu.
Þeir freistuðu þess jafnframt
að koma í veg fyrir að frekari
skemmdarverk yrðu unnin á
velferðarkerfinu. Fyrir fáum
árum hefðu ofangreindar
kröfur talist afar hógværar og
auðsótt að fá þær samþykkt-
ar. Svo var ekki nú.
Sem fyrr segir tók það
vinnuveitendur og ríkisstjórn
átta mánuði að fallast á að
skerða ekki lífskjörin frekar
en þegar hefur verið gert.
Kosningaloforð stjórnarflokk-
anna um hækkun lágmarks-
launa og skattleysismarka
eru löngu gleymd og komu
ekki til umræðu í nýafstöðnu
samningaþófi. Með harkaleg-
um aðgerðum í upphafi
valdatíma síns dæmdi ríkis-
stjórnin verkalýðsforystuna í
raun til að snúa sókn í vörn.
Talsmenn launþega hafa síð-
ustu mánuði fyrst og fremst
reynt að ná því til baka sem
áður var hrifsað burt með
valdboði að ofan.
Launþegar færðu miklar
fórnir með þjóðarsáttinni
svonefndu. Þeir neituðu sér
m.a. um eðlilegar og sjálf-
sagðar kjarabætur um nálega
tveggja ára skeið. Þá fórn
færðu þeir í ákveðnum til-
gangi. Markmiðið var að ná
verðbólgunni niður og skapa
langþráðan stöðugleika í
íslensku efnahagslífi.
Launþegar báru hitann og
þungan af þeim víðtæku
efnahagsaðgerðum sem í var
ráðist á tímabili þjóðarsáttar
og „herkostnaðurinn" var
dreginn af launum þeirra.
Fórnfýsi launþega bar til-
ætlaðan árangur. Verðbólgan
rénaði hratt og hvarf loks
með öllu og efnahagslífið
náði fullkomnu jafnvægi. Því
miður stóð það jafnvægis-
skeið stutt. Fyrr en varði
tóku peningaöflin til sinna
ráða. Með dyggri aðstoð nú-
verandi ríkisstjórnar voru
vextir hækkaðir umtalsvert á
örskömmum tíma. Hagnaður
fyrirtækja, sem ætlaður var til
að bæta kjör launþega, hvarf
í hít vaxandi fjármagnskostn-
aðar. Svigrúmið til að umbuna
launþegum minnkaði og
hvarf.
Það er við þessi skilyrði
sem launþegar gera sér daga-
mun nú. Að ósekju mættu
aðstæður vera ánægjulegri á
baráttudegi verkalýðsins og
ríkara tilefni til að fagna.
Engu að síður færir Dagur
launafólki nær og fjær kveðj-
ur og góðar óskir í tilefni
dagsins. Enn ein orrustan er
að baki og segja má að henni
hafi lokið með jafntefli. En
stríðinu sjálfu er ekki lokið.
Það er eilíft. BB.
B/\f<þANKAR Kristinn G. Jóhannsson
Um erfiðleika verslunarreksturs
héma undir mér og reyndar
undir okkur Gústa báðum
Lóan er komin. Henni er kalt.
Lagt er til að laun hækki um
1,7% þann 1. maí. Þá er bar-
áttudagur okkar launþega. Vet-
urinn á Akureyri var fremur
þurr. Ég veit ekki hvort það er
gott. Leikfélag Akureyrar hélt
uþp á afmælið sitt. Það fær
héðan góðar óskir. Lirfur spól-
orma hunda og katta geta smit-
að fólk. Það er bölvað. Eru
Þingeyjarsýslur vaxtarsvæði?
Það er von að spurt sé. Ólafs-
firðingur kom, sá og sigraði á
Dalvík. Ekki get ég sagt að það
kæmi mér á óvart. Galgopar
halda jólin um þessar mundir.
Það kann að vera til eftirbreytni.
Ef launþegar taka ekki þátt í
atkvæðagreiðslu um miðlunar-
ttillögu sáttasemjara er litið svo
á að þeir samþykki hana.
Atarna er skrýtið. Jack Nicklaus
er væntanlegur til íslands í
sumar og ef til vill á golfvöllinn
hérna en þar eru lagðar milljónir
undir í getraunum og allir
græða. Blöðruselir gera usla í
Skjálfandaflóa og éta fisk úr
netum. Það er góður matur. Allt
þetta hér á undan sá ég í Degi
á þriðjudaginn og fannst allt
merkilegt og sumt gleðilegt. Ein
var hins vegar auglýsing í blað-
inu sem mér þótti dapurleg en
hún fjallaði um að loka ætti búð-
inni hérna undir mér og raunar
undir okkur Gústa báðum.
Ég á eftir að sakna þessarar
verslunar og við Gústi báðir
held ég og mér finnst reyndar
sorglegt að ekki skuli lengur
vera talið björgulegt aö selja
nýlenduvörur við torgið. Þetta
er líka merkileg búð og ég man
ekki betur en þegar hún var
opnuð, árið 1955 minnirmig, að
hún hafi þá valdið byltingu í
verslunarháttum í bænum. Var
nefnilega fyrsta kjörbúðin
hérna.
Þá var líka húsið Brekkugata
eitt miklu þéttbýlla en núna. Það
vitum við íbúarnir við Gústi
báðir. í mínu plássi hafði þá
verkefni sín stórsöngvarinn
Magnús, „Maggi dívana" og
bólstraði húsgögn. Minn at-
vinnurekstur er stórum ómerki-
legri og ég syng ekki einu sinni
við iðju mína og reyndar ekki
Gústi á efri hæðinni heldur svo
ég viti. Það fer öllu aftur.
Ég á reyndar*um það minn-
ingar að áður en kaupfélagið
okkar opnaði þessa byltingar-
kenndu verslun var þar önnur
og þar var ég búðarmaður og
fannst merkilegur starfi. Glæsi-
leg verslun sem með sínum
hætti var einnig framúrstefnu-
leg og öðruvísi en svoleiðis
verslanir höfðu verið.
En vegna þess hve gamall ég
er orðinn þá verður mér á að
rifja upp það Ráðhústorg sem
ég man frá ungum dögum mín-
um og bera saman við það sem
nú er að verða.
Ef mig misminnir ekki voru í
Brekkugötu eitt þrjár verslanir,
Liverpool, Anna og Freyja og
Pöntunarfélagið. Raftækja-
verslun Viktors var í Brekku-
götu þrjú og í bakhúsinu aftan
við sjö rak Jóhanna dálitla
mjólkur- og brauðbúð og í
þvottahúsinu við hliðina var
afgreiðsla Morgunblaðsins. Svo
var Gunnlaugur Tryggvi með
bókabúð á horninu, Indriði í
„Kóinu“ kom svo og síðan
Bókaverslun Þorsteins Thorlací-
usar. Landsbankinn var austan
við torgið en aö norðan var
Esja, Polifoto og Verslun Akur-
eyri. Við torgið voru þá tvær
leigubílastöðvar og við aðra
þeirra, BSA, áttu rúturnar
áfangastað þær sem héldu uppi
ferðum milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Þar var mikil
skemmtun á sumarkvöldum að
spássera og horfa á ferðalanga
og taka á móti Mogganum.
Þetta var sem sagt ágætt torg
og miðbær, björgulegt mannlíf
og stabílt. Nú er ekki lengur
friður með neitt fyrir rekstrarerf-
iðleikum og öðrum framförum á
öllum sviðum.
Framfarir í verslun hafa nú
valdið því að kaupfélagið mitt er
búið að loka öllum þeim búðum
sínum sem höfðu nokkra per-
sónutöfra.
Ég er á móti framförum og
reyndar við Gústi báðir.
Kr. G. Jóh.