Dagur - 01.05.1992, Qupperneq 9
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 9
Einar Hákonarson, myndlistarmaður:
Opnar sýningu á olíumálverkum
í GaJlerí AllraHanda á morgun
Einar Hákonarson, myndlist-
armaður opnar sýningu á verk-
um sínum í Gallerí Allra-
Handa í Listagili á morgun
fyrsta maí.
Einar er á meðal þekktustu
myndlistarmanna þjóðarinnar.
Hann stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands á
árunum 1960 til 1964 og fram-
haldsnám við Valands listahá-
skólann í Gautaborg á árunum
1964 til 1967. Einar starfaði sem
kennari í málverki og grafik við
Myndlista- og handíðaskóla
íslands frá 1967 til 1978 og var
skólastjóri við sama skóla frá
1978 til 1982. Þá var hann list-
ráðunautur Reykjavíkurborgar
frá 1987 til 1988 og kennari í mál-
verki og grafik við Hovedskous
málaraskólann í Gautaborg 1989
til 1991. Einar stofnaði félagið
grafik, ásamt Ingiberg Magnús-
syni og rak í tvö ár - frá 1970 til
1972. Hann var formaður stjórn-
ar Kjarvalsstaða frá 1982 til 1986.
Hróður Einars Hákonarsonar
sem myndlistarmanns hefur bor-
ist víða. Hann hefur haldið um 20
einkasýningar. Þar af hefur hann
sýnt sjö sinnum á Kjarvalsstöð-
um auk sýninga í Unuhúsi og í
Bogasal Þjóðminjasafns íslands.
Pá sýndi Einar í Gallerí Háhól á
Akureyri á árinu 1980 og í Gall-
erí Glugganum á sama stað 1988.
Sýningin í Gallerý AllraHanda er
því þriðja einkasýning Einars á
Akureyri. Einar hefur auk þess
haldið nokkrar einkasýningar
erlendis. Þá hefur hann einnig
tekið þátt í fjölda samsýninga
bæði hér heima og erlendis.
Einar kvaðst fyrst og fremst
hafa starfað sem málari í mynd-
sköpun sinni og málað mest í olíu
Einar Hákonarson á virinustofu sinni.
<^° p%
PIZZA-
HÚS
Frí heim-
sending
SÍMI 22525
Rokkaður
jazz
laugar-
dagskvöld
Frítt inn
Jazztónleikar sunnudagskvöld
Aðgangseyrir Kr. 600
DROPINN
HAFhARSTRÆTI 98 • ARUREYRI
en einnig starfað sem grafiklista-
maður. Hann hefur einnig gert
talsvert af mósaikskreytingum og
unnið með glermósaik í því sam-
bandi. Einar kvaðst mikið hafa
notað fígúritívan myndstíl en
hafi þróað hann nokkuð út í
landslagsáhrif á síðari árum. Á
síðustu sýningu sinni hafi hann
einkum sýnt myndir með lands-
lagsívafi. Að þessu sinni ætlar
Einar að sýna eingöngu
olíumyndir. ÞI
Utsala
ó hornsófum, spegilflísum
og speglum
★
Aukin staðgreiðsluafsláttur af öðrum
vorum.
AySSMil
HÚSGAGNAVERSLUN
STRANDGÖTU 7 - 9 • AKUREYRI
SÍMAR 21790 & 21690
Sýnum samstöðu - okkar er afllð - höldum hátíð
••
HATIÐARH0LD
VERKALÝÐSFÉLAGAN NA
Á AKUREYR11. MAÍ1992
kl. 13.45: Safnast saman við Alþýðuhúsið.
kl. 14.00: Lagt upp í kröfugöngu.
HÁTÍÐARSAMKOMA hefst á fjórðu hæð
Alþýðuhússins að aflokinni kröfugöngu
AVÖRP
Ávarp 1. maí nefndar: Ármann Helgason, formaður 1. maí nefndar.
Aðalræða dagsins.
FJÖLBREYTT SKEMMTIDAGSKRÁ
KAFFIVEITINGAR
Kaffihlaðborð í boði 1. maí nefndar verkalýðsfélaganna
BARNAGÆSLA
verður í hliðarsal þar sem verða leikföng og aðstaða til að lita og teikna.
Einnig verða sýndar þar vel valdar teiknimyndir.
Kl. 23.00: VERKALÝÐSBALL
í Alþýðuhúsinu til klukkan 03.00
LAUNAFÓLK!
- TÖKUM PÁTT í HÁTÍÐARHÖLDUNUM - EFLUM SAMTAKAMÁTTLNN
- áður var þörf nú er nauðsyn - sýnum samtakamáttinn sýnum samstöðu
- okkar er atlið - höldum hátíð!