Dagur - 01.05.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 11
Börnin okkar
Kristín Llnda Jónsdóttir
Bamið þitt varð fyrir slysi!
- um slys á börnum í heimahúsum
fólk sat með þau, þegar það var að
drekka sjóðandi heita drykki, gætum
þess að ekkert barn brenni sig á kaff-
inu okkar. Heitir rafmagnsofnar,
bakarofnar og útigrill brenna litlar
hendur. Látum sköftin á pottunum
og pönnunum aldrei standa út fyrir
brúnina á eldavélinni. Leggið ekki
undir neinum kringumstæðum potta,
bala, hraðsuðukatla eða önnur ílát
með heitu vatni á gólfið ef börn eru í
húsinu. Fylgjumst með börnum í
návist logandi kertaljósa og göngum
ekki út úr herbergi þar sem kveikt er
á kertum nema taka börnin með.
Flugeldar, kveikjarar og eldspýtur
eru ekki barnameðfæri.
Drukknanir
Heitum pottum í görðum hefur fjölg-
að mjög hér á landi á síðustu árum.
Margir eru þeir opnir og óvarðir, það
er óforsvaranlegt. Átt þú heitan pott,
laug eða tjörn? Hvernig mundi þér
líða ef lítið barn mundi drukkna eða
nærri því drukkna í garðinum
þínum? Athugið að í mörgum orlofs-
húsahverfum og sumarbústöðum eru
heitir pottar. Ef við dveljum í ná-
grenni vatns er geysilegt öryggi í því
fólgið að láta börnin vera í flotvesti.
í þessum tilfellum sem öðrum verð-
um við foreldrar að gæta barnanna
okkar eins og sjáaldurs augna okkar.
Gerum okkur ekki sek um að segja.
„passaðu þig á vatninu'M Okkar er
ábyrgðin ekki barnanna.
í heimsókn
Það er gaman að heimsækja afa og
ömmu, frændfólk og vini en á heimil-
um þar sem ekki eru börn eru oft
ýmsar slysagildrur. Lyf á náttborðun-
um, dúkuð borð sem á standa
þungir, brothættir hlutir, þvottaefni í
vaskaskáp og valtar bókahillur. Því
er sérstakrar aðgæslu þörf. Ef um
langa heimsókn er að ræða er sjálf-
sagt að ræða við húsráðendur um
tímabundnar öryggisráðstafanir
barnanna vegna.
Gætum barnanna okkar!
Fað hefur reynst mörgum foreldrum
afdrifaríkt augnablikið þegar þau litu
af barninu sínu, gleymdu sér eitt
andartak.
Leitumst við að gera heimili okkar
eins örugg og unnt er. Venjum okkur
á að loka á eftir okkur inn á baðher-
bergi og bendum börnunum á að það
er ekki leiksvæði. Gætum þess að
börnin séu ekki ein frammi í eldhúsi,
inni í þvottahúsi eða úti á palli hjá
heitu útigrilli. Geymum hnífa, skæri
og aðra beitta og oddhvassa hluti á
öruggum stöðum. Það er góður vani
að taka símann af ef við erum ein
heima og erum að baða barnið
okkar. Þá er engin hætta á að við
hlaupum í símann og skiljum barnið
eftir í baðinu eða hálfklætt á bað-
borðinu.
Nú þegar vorar er ýmislegt að var-
ast úti í garði. Fyrir utan útigrillið er
það sláttuvélin, runnaklippurnar og
ýmis fleiri garðáhöld.
Framundan er tími ferðalaga og
útivistar. Þegar við komum með
börnin okkar í nýtt umhverfi á það
að vera okkar fyrsta verk að athuga
nánasta umhverfi, hugsanlegar hætt-
ur og öryggi leiksvæðisins sem böm-
unum er ætlað. Nýtt umhverfi er
spennandi og skemmtilegt fyrir böm-
in okkar. Gætum þeirra vel, gemm
það sem í okkar valdi stendur til að
við komum öll heil heim.
Slys á börnunum okkar, íslenskum börnum, eru mun tíöari
en í flestum nágrannalöndum okkar. Við leggjumst öll á eitt
þegar barn verður fyrir slysi og gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að bjarga því en hve langt teygjum við okkur til að
koma í veg fyrir slys? Slysavarnafélag Islands gengst um þess-
ar mundir fyrir átaki sem nefnist „I vörn fyrir börn“. I tíma-
riti félagsins 1. tbl. þessa árs er fjallað um þetta átak og
margvíslegar aðgerðir sem slysavarnafélagið stendur fyrir til
að koma í veg fyrir slys á börnum. Þar kemur meðal annars
fram að mörg alvarlegustu slys á börnum verða innan veggja
heimilanna. Við leggjum öll mikið á okkur til að búa börnun-
um okkar gott heimili, prýtt glæsilegum húsgögnum og öllum
nútíma þægindum, en er hugsanlegt að um Ieið séum við að
leggja fyrir þau slysagildrur? Vissulega verða slys bæði utan
veggja heimilanna og innan en er ekki nærtækast fyrir okkur
foreldra að byrja á því að líta í eigin barm? Það er umhugs-
unarefni fyrir foreldra að talið er að hlutfallslega fleiri börn
slasist í gæslu foreldra en hjá dagmæðrum eða á leikskólum.
Getur það verið að þeir aðilar sem taka að sér að gæta barna
gegn greiðslu sýni meiri ábyrgð en við sem gætum eigin
barna? Fylgjumst við foreldrar betur með börnunum ef í
hópnum eru börn sem eru ekki okkar? Er það staðreynd að
við gætum barnanna okkar ekki nægilega vel?
Hvernig væri að ganga um húsið fara
herbergi úr herbergi og athuga hvar
slysagildrurnar leynast? Það er næsta
víst að á flestum heimilum má á ein-
hvern hátt draga úr slysahættu barn-
anna vegna. í mörgum tilfellum er
hvorki um kostnaðarsamar né viða-
miklar aðgerðir að ræða heldur smá-
vægilegar framkvæmdir og hugsan-
lega breyttar umgengnisvenjur. Við
þurfum öll hvert og eitt að líta í eigin
barm og hugleiða hvar úrbóta er
þörf. Hér á eftir verður fjallað um
nokkur atriði sem vert er að hafa í
huga. Athugið að upptalning sem
þessi er langt frá því að vera tæmandi
enda fyrst og fremst til þess hugsuð
að vekja til umhugsunar um slysa-
gildrur heimilanna.
Barnavörur
Það er nauðsynlegt að allur búnaður
barnsins, svo sem barnarúm, barna-
vagn, kerra, barnastóll, skiptiborð
og barnabílstóll sé örugg og viður-
kennd gæðavara sem er í lagi og rétt
notuð. í því sambandi mætti t.d.
minna á eftirfarandi atriði. Skiljið
barnið ykkar aldrei eftir, eitt andar-
tak, eftirlitslaust á skiptiborðinu.
Barnastóllinn á að standa á gólfinu,
tyllið honum ekki upp á borð eða
bekki. Lítið yfir barnavagninn. Er
karfan tryggilega fest á grindina, eru
bremsurnar í lagi, eru öryggisfesting-
ar á vagninum/kerrunni svo hann
falli ekki saman án fyrirvara? Hvern-
ig væri að prýða vagninn/kerruna
endurskinsmerkjum? Spennum barnið
okkar alltaf á sinn stað í bílnum og
gætum þess að bílstóllinn sé rétt
festur.
Leikföng
Þegar börnin eignast farartæki eins
og sparkbíla, þríhjól, hjól, hjóla-
skauta, hjólabretti og sleða breytist
líf þeirra skyndilega, þau komast
hraðar! Það er spennandi og
skemmtilegt en um leið mun hættu-
legra en að ferðast á tveimur jafn-
fljótum. Lítum sérstaklega vel eftir
þeim þegar þau eru nýbúin að eign-
ast eitthvert slíkt farartæki og látum
ekki hjá líða að kaupa þann öryggis-
búnað sem við á. Með samstilltu
átaki okkar allra er unnt að koma
öryggishjálmum og endurskins-
merkjum í tísku.
um okkur á að taka öll tæki úr sam-
bandi og geyma þau á eins öruggum
stöðum og völ er á.
Húsgögn
Gluggar og svalahurðir sem ná niður
undir gólf þurfa að vera með öryggis-
gleri og athugið hvort lokunarbúnað-
ur þeirra er traustur. Hurðir eru slysa-
gildrur sem geta klemmt litla fingur.
Hafið sérstaka gát á ef gegnumtrekk-
ur myndast í íbúðinni eða ef börnin
hlaupa ærslafull í gegnum húsið.
Tímabundin varúðarráðstöfun getur
verið í því fólgin að leggja handklæði
yfir hurðina að ofan þannig að hún
falli ekki að stöfum. Gætið þess að
hillur og skápar séu tryggilega festar
sérstaklega í barnaherbergjunt.
Mörg slys á börnum verða vegna þess
að þau detta. Oft er erfitt að koma í
veg fyrir slík óhöpp en það er sjálf-
sagt að gæta þess að þau klifri ekki á
völtum, varasömum stólum eða
borðum. Það er jafnframt nauðsyn-
hættulegu efni. Já, mikið rétt ein-
hvers staðar verða þau að vera! Læst-
ur lyfjaskápur í efri skápunt eldhús-
innréttingarinnar á að geyma öll lyf
heimilisins. Þvottaduftið fyrir upp-
þvottavélina verður að vera í efri
skáp sem er nteð barnalæsingu. í
þvottahúsinu er hægt að sameina all-
ar hreinlætisvörurnar í skáp sem er
með barnalæsingu. Geymið þvotta-
duftið þar, líka á milli þvotta. f bíl-
skúrnum er sams konar skápur góð
lausn og gleymið ekki grillolíunni. Á
baðherberginu er nauðsyn að geynta
hættulega hluti utan seilingar barna
en athugið að börn eiga aldrei að
vera eftirlitslaus inni á baðherberg-
inu, þar leynast ótal hættur.
Brunar
Heitt vatn í hverjum krana er hluti
nútíma þæginda en brunar eru of
algengir. Athugum án undantekn-
inga hita baðvatns barnanna á örugg-
an hátt. Stillum kranana af
Gætum þess að börnin okkar þurfi ekki að dvelja á sjúkrahúsi vegna vanrækslu okkar.
Mynd: Golli
í hvernig ástandi eru leikföngin
sem barnið þitt á? Mörg slys tengjast
leikföngum. Þar er til dæmis um að
ræða leikföng sem brotna og börnin
skera sig á eða stinga innihaldi þeirra
í munn eða eyrun.
Rafmagnstæki og tól
Rafmagnssnúrur á lömpum, sjón-
varpstækjum, kaffivélum, brauðrist-
um, vöfflujárnum og fleiru geta
reynst mjög hættulegar. Sömuleiðis
innstungur, klær og dósir. Það er
freistandi að toga í snúruna sem lafir
út af borðinu, en hræðilegt að fá
sióðheitt straujárnið ofan á sig.
Otrúlega mörg rafmagnstæki sem eru
í notkun á heimilum okkar daglega
eru börnum hættuleg.
Rakvélar, krullujárn, straujárn,
rafmagnsbrauðhnífar, hrærivélar,
borvélar og djúpsteikingarpottar.
Þessum tækjum má ekki víkja frá ef
þau eru í notkun eða liggja á glám-
bekk og börn eru á heimilinu. Venj-
legt að handrið séu á stigum og svöl-
um og hlið loki stigum milli hæða þar
sent ungbörn eru á heimilinu.
Eitranir
Á sérhverju nútímaheimili eru til
ótal baneitraðir hlutir. Allt frá falleg-
um pottablómum til smurolíu. í eld-
húsinu finnum við þvottaduft fyrir
uppþvottavélina og hugsanlega lyf.
Á eldhúsbekknum liggja ef til vill
sígarettur, fullur öskubakki og
kveikjari.
Á baðherberginu eru rakspírar,
ilmvötn, hársnyrtivörur og girnilegur
bleikur vökvi, naglalakkseyðir auk
ótal sápuefna sem ekki eru „góð í
maga“. Hugsanlega leynist í bað-
skápnum hreinsiefni sem framleitt er
til að halda salernum hreinum, ekki
er það heppilegt til neyslu. í þvotta-
húsinu er glæsilegt úrval litríkra
brúsa sem eru hver öðrum hættulegri
fullir af sterkum hreinsiefnum. í bt'l-
skúrnum er þynnir, málning, olía og
ýmsar vörur til að hreinsa og bóna
bíla. Á útigrillinu stendur brúsi fullur
af grillolíu.
Hvernig væri að standa nú upp frá
lestrinum, ganga í gegnum íbúðina,
og bílskúrinn og fjariægja öll þessi
Börn - Vor - Hjól - Hjálmar.
Mynd: Golli
nákvæmni þegar börnin okkar eiga í
hlut og gætum þess að þau skrúfi
ekki sjálf frá krananum án þess að
hafa getu til að stilla hitastigið. Börn
hafa brennst vegna þess að fuliorðið
Veist þú hvar barnið þitt er
og hvað það er að gera?
Næsti þáttur: Agi