Dagur - 01.05.1992, Side 21
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 21
Glerárkirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudag
kl. 14.00. Unglingar í æskulýðsfé-
lagi aðstoða. Sr. Bjarni Pór Bjarna-
son héraðsprestur Kjalamesprófasts-
dæmis prédikar. Hann ásamt æsku-
lýðsfélagi Garðasóknar eru í heim-
sókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
SJÓNARHÆÐ
W HAFNARSTRÆTI 63
Laugardagur 2. maí: Laugardags-
fundur kl. 13.30. Síðasti fundur
vetrarins. Unglingafundur kl. 20.
Lokafundur vetrarins.
Sunnudagur 3. maí: Almenn sam-
koma á Sjónarhæð kl. 17. Kaffi og
meðlæti á eftir. Allir eru innilega
velkomnir.
KFUM og KFUK,
Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 3. max
almenn samkoma kl.
20.30. Tekið á móti gjöfum til kristni-
boðsins. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn:
Föstud. 1. maí kl. 20.30:
Kvöldvaka. Majorarnir Reidun og
Káre Morken stjórna og tala. Fleiri
gestir frá Reykjavík taka þátt. Veit-
ingar og happdrætti.
Laugard. 2. maí kl. 18.00: Her-
mannasamvera.
Sunnud. 3. maí kl. 11.00: Helgunar-
samkoma.
Kl. 13.30: Sunnudagaskóli.
Kl. 15.30: Bæn.
Kl. 16.00: Almenn samkoma. Ath.
breyttan tíma. Ingibjörg og Óskar
Jónsson, Daníel Óskarsson og gestir
frá Reykjavík sjá um samkomurnar.
Mánud. 4. maí kl. 16.00: Heimila-
samband.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
22. sýning
föstud. 1. maí kl. 20.30,
uppselt.
23. sýning
laugard. 2. maí kl. 20.30,
uppselt.
Aukasýning
sunnud. 3. maí kl. 20.30.
Síðustu sýningar!
Upplýsingar í síma 31196.
Kvenfélagið Framtíðin heldur fund í
Skjaldarvík mánudaginn 4. maí.
Farið verður frá Ráðhústorgi kl.
20.00.
Félagskonur mætið vel og stundvís-
lega.
Stjórnin.
ÍAglc
Aglow - alþjóðleg, kristi-
lOW leg, samtök kvenna.
Konur, konur.
2ja ára afmælisfundur
Aglow Akureyri verður haldinn
mánudaginn 4. maí kl. 20.00 á
Hótel KEA.
Nokkrar konur munu gefa vitnis-
burði.
Söngur, lofgjörð, fyrirbænaþjón-
usta.
Kaffiveitingar kr. 500,-
Allar konur hjartanlega velkomnar.
Stjórn Aglow Akureyri.
Fundur verður haldinn í
Guðspekifélagi Akureyr-
ar sunnudaginn 3. maí kl.
16. Flutt verður erindi
um karma.
Kaffiveitingar í lok fundar.
Allir velkomnir.
Hjálparlínan, símar: 12122 -12122.
BORGARBIO
Salur A
Föstudagur
Kl. 9 Deceived
Kl. 11 Föðurhefnd
Laugardagur
Kl. 9.00 Deceived
Kl. 11.00 Föðurhefnd
Sunnudagur
Kl. 3.00 Hundar fara til himna
Kl. 9.00 Deceived
Kl. 11.00 Föðurhefnd
Mánudagur
Kl. 9.00 Deceived
Salur B
Föstudagur
Kl. 9 Other peoples money
Kl. 11 Bilun í beinni
útsendingu
Laugardagur
Kl. 9.00 Other peoples money
Kl. 11.00 Bilun í beinni
útsendingu
Sunnudagur
Kl. 3.00 Lukku Láki
Kl. 9.00 Other peoples money
Kl. 11.00 Bilun í beinni
útsendingu
Mánudagur
Kl. 9.00 Deceived
BORGARBÍÓ
® 23500
„Vöm fyrir böm“
- átak Slysavarnafélags íslands
Slysavarnafélag íslands hefur
ákveöið að gangast fyrir átaki,
sem hlotið hefur heitið „Vörn
fyrir börn“. Með margvísleg-
um aðgerðum verður athygli
landsmanna vakin á þessum
málaflokki og hvað gera má til
úrbóta í umferðinni, á heimil-
um, í skólum, á leiksvæðum og
víðar.
Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélags
íslands, segir í Fréttabréfi SVFÍ,
sem kom út nýverið: „Börnin eru
það dýrmætasta sem við eigum.
Þessa setningu heyrum við oft og
þetta eru orð að sönnu. Engu að
síður höfum við íslendingar van-
rækt svo slysavarnir barna okkar,
að hér á landi verða fleiri slys á
börnum (miðað við íbúafjölda)
en í flestum nágrannalöndum
okkar. Stór hluti þessara slysa
verður vegna vanrækslu hinna
fullorðnu og ónógra slysavarna.“
Og síðar í grein sinni segir fram-
kvæmdastjórinn: „Grundvöllur
þess, að árangur náist í slysa-
vörnum barna, er skráning á slys-
um meðal barna. Þeirri skrán-
ingu er mjög ábótavant hér á
landi og er ástæða til að hvetja
heilbrigðisyfirvöld til að skipu-
leggja skráningu á barnaslysum
sem víðast. Þannig er unnt að
skilgreina slysaflokka og fylgjast
með árangri slysavarna."
í Fréttabréfinu kemur fram að
Slysavarnafélag íslands stendur
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum eignum:
Duggugerði 9, Kópaskeri, þingl. eig-
andi Kaupfélag Norður-Þingeyinga
þ.bú, fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 6. maí 1992, kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Byggðastofnun, Öxarfjarðarhreppur
og Húsnæðisstofnun ríkisins, lög-
fr.deild.
Eyrarvegur 2, neðri hæð, Þórshöfn,
þingl. eigandi Kaupfélag Langnes-
inga, fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 6. maí 1992, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður rfkissjóðs og Skúli
J. Pálmason hrl.
Langanesvegur 2, Þórshöfn, þingl.
eigandi Kaupfélag Langnesinga, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn
6. maí 1992, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Skúli J. Pálmason hrl., Ásbjörn
Jónsson hdl. og innheimtumaður
ríkissjóðs.
Pálmholt 15, Þórshöfn, þingl. eig-
andi Jón Hermannsson, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. maí
1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins, lögfr.-
deild.
Ægissíða 14, Grenivik (Laugaland),
þingl. eigandi Sigun/eig Þórlaugs-
dóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 5. maí 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigriður Thorlacius hdl., Trygginga-
stofnun ríkisins, Húsnæðisstofnun
ríkisins, lögfr.deild, Reynir Karlsson
hdl. og innheimtumaður ríkissjóðs.
Ægissíða 16 (Borg), Grenivík,
þingl. eigandi Hallgrímur Svavar
Gunnþórsson, fer fram á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 5. maí 1992, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.,
Tryggingastofnun ríkisins, Arnar
Sigfússon hdl., Grétar Haraldsson
hrl., Húsnæðisstofnun ríkisins, lög-
fr.deild, Ásgeir Thoroddsen hrl.,
Ólafur B. Árnason hrl. og Helgi Sig-
urðsson hdl.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
nú í stórvirkjum til að koma í veg
fyrir slys á börnum. Verkefnis-
stjóri er Herdís Storgaard, hjúkr-
unarfræðingur, er áður starfaði
sem deildarstjóri á Slysadeild
Borgarspítalans í Reykjavík.
Herdís segir í Fréttabréfinu um
starf sitt: „Fundirnir sem haldnir
voru víðs vegar um landið voru
allir skipulagðir í samráði við
björgunarsveitirnar og slysavama-
deildirnar á landsbyggðinni og
við fengum alltaf einhverja frá
heilsugæslustöð, lækni eða hjúkr-
unarfræðing, til þess að mæta á
þessa fundi. Ég ræddi málin á
breiðum grundvelli og síðan kom
þessi aðili frá heilsugæslunni og
sagði frá því hvaða slys væru
algengust á þeim stað.
Umræður á fundinum urðu oft
mjög góðar. Ályktanir voru sam-
þykktar og sendar yfirvöldum og
þess eru dæmi að fólk hafi komið
í gegn mikilvægum breytingum í
kjölfar þessara funda. Fundaröð-
in gekk í stuttu máli sagt það vel
að stjórn Slysavarnafélagsins
ákvað að nú yrði ekki aftur snúið
heldur haldið áfram og tekið á
þessum málum á skipulegan hátt.
Ég fer enn á fundi því að margir
staðir eru eftir.
Síðan snerum við okkur að
öðrum þáttum í þessu verkefni.
Við erum nú að framleiða fimm
innlend myndbönd um slys í
heimahúsum. Þau eru öll tengd
litlum börnum. Þar er fjallað um
bruna, eitrun, köfnun og fall og
ein myndin fjallar sérstaklega um
flugelda, sprengjur og þess háttar
eld. Það var auðvitað til erlent
efni en það hentar ekki íslensk-
um aðstæðum.
Fleiri hafa látið málið sig
varða. í fréttabréfinu kemur
fram að starfshópur innan Neyt-
endasamtakanna er að störfum
undir átaksheitinu „Öryggi
barna, okkar ábyrgð“. Steinar
Harðarson er í stjórn Neytenda-
samtakanna og hann segir: „Með-
al þess sem við ætlum að gera er
að þrýsta á stjórnvöld og beita
áhrifum okkar til þess að komið
verði á almennilegri skráningu á
slysum sem verða á börnum.
Þetta ætti að vera auðvelt á ís-
landi vegna þess hve bráðahjálpar-
stöðvar eru fáar. Til dæmis tekur
Slysadeild Borgarspítalans á móti
hér um bil helmingi þeirra
landsmanna sem lenda í slysum.
Aðrar þjóðir hafa sinnt þessari
skráningu mun betur en við og
því nákvæmari sem skráningin
er, þeim mun auðveldara er að
fyrirbyggja slys.“
í fréttabréfi SVFÍ er grein er
nefnist „Hvers vegna slasast
börnin?“ Þar eru dregnar fram
niðurstöður Bo Lindström,
barnalæknis við sjúkrahúsið í
Uddevalla í Svíþjóð, en læknir-
inn gerði athugun á slysaskrán-
ingu og slysatíðni í einu héraði
þar í landi.
„Þroski barns á fyrsta ári er
mjög hraður. Það getur naumast
hreyft sig til að byrja með en lær-
ir að velta sér, setjast upp,
skríða, standa á fætur og ganga.
Slys á þessum aldri tengjast
venjulega sívaxandi hreyfigetu
og þörf til að nota munninn við
að kanna heiminn. Helstu slys
sem þau lenda í er fall, bruni,
köfnun og eitrun. Venjulega
verða þessi slys innan veggja
heimilanna.
Tveggja til þriggja ára fer
barnið að samhæfa hreyfingar,
lærir að hlaupa, hoppa, ganga í
stigum og klifra. Það er alveg
upptekið af nýjum möguleikum
til að hreyfa sig og rannsaka
umhverfið. Það fer jafnframt að
beita verkfærum til að ná settu
marki.
Dómgreindin þroskast ekki
eins hratt og getan til að hreyfa
sig og það er einstaklega mikil-
vægt að fullorðnir séu í nánd og
umhverfið lagað að börnum.
Helstu tegundir slysa eru fall,
bruni og eitrun (meðöl, vélarolí-
ur, hreinsiefni o.s.frv.)
Öryggislok á íláti með hættu-
legum efnum eru gríðarlega
mikilvæg slysavörn á þessum
aldri. Þau eru lögleidd í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Hér á ís-
landi hefur ekkert verið gert í
málinu. Flest slys á þessum
aldursflokki verða innan veggja
heimilanna.
Á þriggja til fjögurra ára
aldursskeiðinu hafa börn náð
góðri stjórn á líkamanum. Mál-
þroski og skilningur eru að
þroskast og þau eru á fleygiferð
út um allt. Þau eru oft mjög
ræðin, hafa margt að segja, og
það er algengt að fólk ofmeti
hæfni barna á þessum aldri.
Reiðhjólin koma oft til sög-
unnar um þetta leyti og hjólreiða-
slys eru langflest hjá fjögurra ára
börnum. Það er of snemmt fyrir
þau að nota tvíhjól, án hjálpar-
hjóla. Hreyfingarnar verða ekki
nógu samhæfðar til þess fyrr en
þau verða fimm ára.
Fimm ára er barnið orðið
sæmilega greind og stöðuglynd
lítil manneskja og þetta er rólegt
tímabil. Það hefur góða stjórn á
líkamanum og mikið sjálfstraust.
Það getur farið að æfa sig í hinu
og þessu en ræður ekki við nema
eitt viðfangsefni í einu.
Við sex ára aldurinn hefst erf-
iður tími. Svíar kalla börn á þess-
um aldri: „litlu táninganna“.
Barnið lengist og verður kranga-
leg, duttlungafull persóna.
Hreyfigetan minnkar en fróð-
leiksfýsn og forvitni aukast og
heimurinn stækkar. Slysahætta í
umferðinni eykst þegar komið er
á þennan aldur.
Slys á fimm tíl sex ára börnum
tengist gjarna útbúnaði. Þau
slasa sig oftast á því að detta eða
á annan hátt við hjólreiðar.
Bruna- og eitrunarslysum snar-
fækkar þegar þau eru komin á
þennan aldur.
Þegar komið er upp í siö ár
eykst skilningur til muna. Á bil-
inu 7-10 ára fer barnið að skilja að
hættur eru til. Fram að þeim tíma
hefur veruleikinn ekki komist að
fyrir hugmyndaflugi en nú fer
það að breytast. Enn er barnið
þó ekki tilbúið að takast á við
umferðina og það er mikilvægt að
finna öruggustu leiðina í skólann.
Barnið getur ekki einbeitt sér
nema að einu í senn og hefur
tæpast nægan þroska til að vera
gangandi vegfarandi.
Unglingsárin, ellefu til fjórtán
ára, eru langt, nýtt vaxtarskeið
með byltingu í félagslífi og
umgengni við aðra. í Svíþjóð
fylgja hjólreiðaslys þessum
aldursflokki eins og skuggi en
það er tæpast þannig hér á landi.
Aðstæður hér eru aðrar en það
vantar íslenskar rannsóknir." ój