Dagur - 01.05.1992, Page 23
Föstudagur 1. maí 1992 - DAGUR - 23
Píanóblúsarinn Pi
Joe Willie, Pinetop Perkins. Nafnið Pinetop fékk hann frá öðrum píanóblús-
ara Pinetop Smith.
Pinetop Perkins er einn af fáum
núlifandi blúsmönnum Chicago
af eldri kynslóðinni. Hann fædd-
ist í Mississippi árið 1913, þar
sem hann ólst upp við kröpp kjör,
þrælandi við plógvinnu á ökrun-
um. Líkt og flestir blökkumenn
þess tíma fékk Pinetop blúsinn
beint í æð og byrjaði hann ungur
að leika á gítar.
Frá Mississippi fluttist hann á
fjórða áratugnum til að flýja plóg-
vinnuna og til að freista gæfunn-
ar með gítarnum og fór hann
fyrsttil Melenas, Arkansas. Hann
varð þó fljótlega að leggja gítar-
inn á hilluna eftir að hann kom
þangað vegna rimmu við konu-
kind eina, sem hafði hann fyrir
rangri sök og hjó hann illa með
hnífi í framhandlegg. Eyðilagðist
vöðvi í handleggnum og gat
hann því ekki með góðu móti
leikið á gítarinn. Á pianó gat
hann hins vegar slegið og komst
fljótt upp á lagið með það. Spilaði
hann m.a. í fjögur ár með munn-
hörpuleikaranum fræga Sonny
Boy Williamson tvö, (Rice Miller)
í útvarpshljómsveit hans í
þættinum King Biscuit time, áður
en hann færði sig yfir til Memphis
í svipaða spilamennsku (í aug-
lýsingum m.a.) og þá með eng-
um öðrum en B.B. King.
Loks hvarf Pinetop svo til
Chicago, þar sem hann hefur
haft samastað síðan. Þar hefur
hann helst unnið sér til frægðar
að hafa verið um árabil meðlimur
í sveit blúskóngsins Muddy
Waters auk þess að hafa starf-
rækt eigin sveit undir nafninu
Legendary blues band.
Nú á síðasta hausti heimsótti svo
þessi merki blúsmaður okkur
íslendinga og hélt eina þrenna
tónleika með Vinum Dóra og
Chicago Beau. Er afrakstur
þessarar heimsóknar nú kominn
út á geisladiski, sem geymir sex
lög frá tónleikunum og fjögur lög
tekin upp í hljóðveri. Eru þau
ágætisblanda af frægum blúsum
eins og Got my mojo working og
Don’t start me talking (eftir þá
Willie Dixon og Sonny Boy) og
blúsum eftir Pinetop sjálfan, sem
virka vel saman við hlustun. Nær
diskurinn bara bærilega vel að
fylgja forvera sínum með Vinum
Dóra, Chicago Beau og Jimmy
Dawkins eftir, þótt vart teljist
hann jafnoki hans.
Ur ýmsum áttum
Hjörtu margra poppunnenda
á aldrinum þrítugt og yfir,
munu áreiðanlega slá örar innan
skamms, er ein af ástsælustu
sveitum áttunda áratugarins snýr
aftur frá dauðum. Er hér átt við
bresku hljómsveitina 10 cc, sem
gerði garðinn frægan með lögum
eins og Rubber bullets, Donna,
Wall street shuffle, The Dean
and I o.fl. Eru það þeir Eric
Stewart og Graham Goldman
sem standa fyrir endurreisninni,
en hinir tveir upprunalegu með-
limirnir, Kevin Godley og Lol
Creme, aðstoða þá á nýju plöt-
unni sem kemur út nú í maí.
Söngkonan sérstaka og frá-
bæra, Tracey Chapman,
sendir frá sér sína þriðju smíð nú
í maí. Kallast hún því hugljúfa
nafni Matters of the heart (hjart-
ans mál) og geymir meðal ann-
ars lagið Bang bang bang, sem
komið er út á smásklfu.
Safnplötur með nokkrum góð-
um rokkhljómsveitum hafa
verið að líta dagsins Ijós að
undanförnu, sem vert er að vekja
athygli á. Er sérstaklega vert að
minnast á fjórar af þessum
plötum, sem eru hver með sínu
sniði, með hljómsveitum frá sitt
hvoru landinu, Scorpions frá
Þýskalandi (ballöðusafn), Sisters
of Mercy frá Englandi, Foreigner
frá Kanada og ZZ Top frá Banda-
ríkjunum. Á safnplötu þeirra síð-
astnefndu er gamla Elvis Presley
lagið Viva Las Vegas aukalag og
er það nú með vinsælli lögum í
Bretlandi.
Hinir heittelskuðu synir Akur-
eyrar, Svörtu Kaggarnir, létu
í sér heyra eftir nokkurt hlé á tón-
leikum sem þeir héldu í 1929
fimmtudagskvöldið í síðustu
viku. Var eins og við var að búast
glatt á hjalla hjá þeim félögum og
spiluðu þeir og sungu öll sín
bestu lög (og Ijóð). Það er þó
upphitunarhljómsveitin Stjánarn-
ir, sem stal senunni með einstak-
lega frískri og skemmtilegri spila-
mennsku. Eins konar þunga-
rokksblús var það sem þeir piltar
buðu upp á og voru ekki ómerk-
ari lög á efnisskránni en blúsperl-
ur eins og Crossroads og Farther
on up the road og Judas Priest
slagarinn Living after midnight
svo dæmi séu nefnd. Virkar
hljómsveitin með söngvarann
Rúnar Þór í broddi fylkingar mjög
efnileg og virðist líkleg til afreka í
framtíðinni. Eru Stjánarnir ungir
að árum, aðeins 15-16 ára
gamlir.
Dans/raprokkararnir í bresku
hljómsveitinni EMF, sem
Doningtonrokkhátíðin, sem
margir (slendingar þekkja og
sækja reglulega ár hvert, er nú
smátt og smátt að taka á sig
mynd fyrir árið í ár. Það hefur nú
til að mynda verið staðfest að
aðalhljómsveitin á hátíðinni verði
stórsveitin Iron Maiden. Verður
þetta í annað skiptið sem Iron
Maiden leikur aðalhlutverkið á
Doningtonhátíðinni, en árið 1988
hafði sveitin það hlutverk í fyrsta
sinn. Þá fóru þó hlutirnir ekki eins
og til var ætlast, því tveir ungling-
ar tróðust til bana meðan Guns n’
Roses voru að spila. Var hátíð-
inni frestað í eitt ár vegna slyss-
ins og síðan ákveðið að
takmarka aðgang að henni við
72.000. (Um 100.000 voru þegar
slysið varð.)
Guns n’ Roses voru reyndar
sterklega orðaðir sem aðalsveitin
rækilega slógu í gegn með plöt-
unni sinni Shubert Dip í fyrra, eru
nú nýbúnir að senda frá sér nýja
EP plötu sem kallast Unexplained.
Inniheldur platan fjögur lög m.a.
túlkun á lagi Iggy Popp Search
and destroy. ( september er síð-
an gert ráð fyrir að önnur plata
EMF líti dagsins Ijós.
Hinum unga stórpoppara,
Jason Donovan, hefur verið
boðið að leika Robert Plant í
kvikmynd sem gera á um feril
rokkhljómsveitarinnar miklu Led
Zeppelin undir stjórn Malcoms
McLarrens (fyrrum umboðs-
manns Sex Pistols). Hefur piltur
tekið vel í tilboðið, en sitt sýnist
hverjum um ráðahaginn.
í ár, en það datt upp fyrir. Það
þykja svo þrjár hljómsveitir vera
líklegastar til að koma fram með
Maiden, Black Sabbath, sem
hingað til lands kemur í
september á Skagarokk,
fönkrokksveitin Faith no more og
W.A.S.P. Þá hefur Love/Hate
verið sterklega orðuð sem opn-
unarhljómsveit hátíðarinnar.
Annars munu endanleg skipun
hátíðarinnar verða tilkynnt innan
ekki langs tíma. Fer hátíðin
fram 22. ágúst.
Það má svo fljóta með hér í
framhaldi af fregnum um
Readinghátíðina, sem haldin er
skömmu eftir Donington, að þar
hafa bæst við Mudhoney, Nick
Cave, Charlatans og PIL, sem
staðfestir aðilar þar að ógleymdri
Síðan skein sól.
Donington ’92 að
taka á sig mynd
AKUREYRARB/CR
Unglingavinna - Sumarvinna
16 ára unglinga
Unglingavinna.
Skráning 14 og 15 ára unglinga, árgangur 77 og
78, sem óska eftir sumarvinnu, hefst mánudag-
inn 4. maí.
Sumarvinna 16 ára.
Skráning 16 ára unglinga (árgangur 76), sem
óska eftir sumarvinnu, hefst mánudaginn 4. maí.
Áætlaö er aö veita allt að 80, 16 ára unglingum
vinnu I 6 vikur.
Skráning fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni,
Gránufélagsgötu 4, sími 24169 frá kl. 9-12 og 13-
16 alla virka daga.
Skráningu iýkur föstudaginn 15. maí.
Umhverfisstjóri.
Skólagarðar
Skráning 10, 11 og 12 ára barna (árgangur ’80,
’81 og ’82), sem vilja nýta sér aöstöðu í skóla-
göröum bæjarins á komandi sumri, hefst mánu-
daginn 4. maí. Skráning fer fram á Vinnumiðlun-
arskrifstofunni, Gránufélagsgötu 4, sími 24169
frá kl. 9-12 og 13-16 alla virka daga.
Skráningu lýkur föstudaginn 15. maí.
Umhverfisstjóri.
Leikvellir
Athygli skal vakin á því aö opnunartími leikvalla
Akureyrar hefur breyst frá því sem verið hefur
undanfarin ár.
Opnunartími verður framvegis sem hér segir:
Frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10-12.
Frá 1. september til 31. maí frá kl. 13-16.
Dagvistadeild.
DAGVISTADEILD
Foreldrar athugið
Ákveöiö hefur veriö aö skóladagheimilið Hamar-
kot viö Skarðshlíð veröi starfrækt í sumar, til 13.
júlí. Frá 1. júní eru laus til umsóknar 6 pláss, fyrir
börn á aldrinum 6-9 ára.
Umsóknir um þau pláss þurfa að berast fyrir 20.
maí.
Upplýsingar I síma 24600 á milli kl. 10 og 12 alla
virka daga.
Ath. Þeir foreldrar sem hyggjast sækja um
pláss á skóladagheimilum Akureyrarbæjar
fyrir veturinn 1992-93 er bent á að tekið verð-
ur við umsóknum eftir 1. júní, í sama síma.
Hverfisfóstrur.
Innilegar þakkir flytjum við þeim, sem á einn og annan hátt
auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærs sonar, unnusta og bróður,
INDRIÐA KRISTJÁNSSONAR,
Leyningi, Eyjafjarðarsveit.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sveinsdóttir,
Kolbrún Elfarsdóttir,
Áslaug Kristjánsdóttir, Gunnar Frímannsson,
Petra Kristjánsdóttir, Þorkell Pétursson,
Haukur Kristjánsson, Margrét Hólmsteinsdóttir,
Erlingur Kristjánsson,
Vilhjálmur Kristjánsson, Pollý Brynjólfsdóttir
og systkinabörn.