Dagur - 08.05.1992, Page 3

Dagur - 08.05.1992, Page 3
Föstudagur 8. maí 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Við getum ekki lengur haft Framkvæmdasjóð sem olnbogabam og ýtt þangað öllu sem rekur á okkar flörur - segir Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi Við afgreiðslu reikninga Akur- eyrarbæjar fyrir árið 1991 á fundi bæjarstjórnar Akureyrar sl. þriðjudag vakti Jakob Björnsson (B) máls á því að staða Framkvæmdasjóðs Akureyrar væri erfið og nauð- synlegt væri að grípa til ráð- stafana fyrr en síðar til þess að tryggja hag hans. Undir þetta Norðurland vestra: íslenska óperan sýnir Töfraflautuna Listamenn íslensku óperunnar ætla að leggja Iand undir fót og flytja Töfraflautuna eftir Wolf- gang Amadeuz Mozart fyrir íbúa á Norðurlandi vestra. Sýningar verða á Blönduósi laugardagskvöldið 16. maí kl. 21 og í Miðgarði sunnudaginn 17. maí kl. 15. í fréttatilkynningu frá íslensku óperunni kemur fram að áður auglýstir sýningartímar eru rang- ir og er fólk beðið að veita þess- um nýju upplýsingum athygli. í aðalhlutverkum í Töfraflaut- unni eru Þorgeir J. Andrésson sem Tamino, Ólöf Kolbrún Harðardóttir sem Pamina, Berg- þór Pálsson sem Papageno og Sigrún Hjálmtýsdóttir sem Næt- urdrottningin. Tónlistinni stjórn- ar Garðar Cortes, undirleikarar eru Iwona Jagla og Rosemary Hewlett. í sýningunni munu taka þátt börn af Norðurlandi vestra. SS tók Sigurður J. Sigurðsson (D), forseti bæjarstjórnar Akureyrar. í fjárhagsáætlun Fram- kvæmdasjóðs fyrir yfirstandandi ár kemur fram að rekstrartekjur hans eru áætlaðar 30,5 milljónir króna, en rekstrargjöld 34,4 milljónir króna. Rekstrarhalli er því áætlaður 3,9 milljónir. 1,3 milljarður króna í hlutabréfum í ÚA í ræðu Halldórs Jónssonar, bæjarstjóra, við umræðu um fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir árið 1992 kom fram að við útreikning tæplega 4 milljóna króna rekstr- arhalla væri ekki tekið tillit til raunhækkunar á hlutabréfaeign sjóðsins, en þar vegi þyngst hlutabréfaeign bæjarins í Útgerð- arfélagi Akureyringa, sem er áætluð 1,3 milljarður króna. í ræðu bæjarstjóra kom einnig fram að í áætlun um eignabreyt- ingar sé gert ráð fyrir að þurfi að afla 162 milljóna króna til þess að standa í skilum með áhvílandi lán og til greiðslu hlutafjárloforða. Þessara fjármuna verði annað- hvort að afla með nýjum lántök- um og eða sölu eigna sjóðsins. Nýjum verkefnum verði að mæta með lántöku eða sölu þeirra eigna, sem sjóðurinn eigi. Nýsköpunarsjóður en ekki varnarsjóður í samtali við Dag sagðist Jakob Björnsson telja að þetta mál bæri að skoða frá tveim hliðum, ann- ars vegar að leita leiða til að ráða bót á erfiðri fjárhagsstöðu Fram- kvæmdasjóðs nú og hins vegar að endurskoða stefnu sjóðsins. Jakob sagðist vilja að Fram- kvæmdasjóður hefði einhverju hlutverki að gegna í atvinnuupp- byggingu í bænum, en á undan- förnum árum hafi honum verið beitt fyrst og fremst til að verja þau atvinnutækifæri sem hafi staðið tæpt. „Við getum ekki lengur haft Framkvæmdasjóð sem olnbogabarn og ýtt þangað öllu sem rekur á okkar fjörur. Óneitanlega höfum við oft á tíð- um meira af vilja en mætti verið að taka á málum til þess að verj- ast áföllum. Ég er í sjálfu sér ekki að halimæla því, en ég hefði vilj- að að sjóðurinn hefði hlutverk í einhverskonar þróun eða nýsköpun," sagði Jakob. Eins og áður segir er hlutur Framkvæmdasjóðs í ÚA metinn á um 1,3 milljarð króna. Kemur ekki til greina að losa eitthvað af Umsóknarfrestur um stöðu forstöðumanns Safnahússins á Húsavík rann út 28. aprfl sl. Það bárust 12 umsóknir um stöðuna og mun stjórn Safna- hússins fjalla um þær á fundi sínum í næstu viku. Umsókn- irnar bera með sér að mjög vel menntað fólk og víða að hefur hug á að og veita menningar- og fræðasetri Þingeyinga for- stöðu. Finnur Kristjánsson hefur ver- fé sjóðsins þar? „Þarna ertu kannski kominn að kjarnum. Um það er alls ekki eining hvar í flokki sem menn standa. Persónu- lega vil ég ekki loka á þennan möguleika, en áður en eitthvað af fjármunum Framkvæmdasjóðs í ÚA yrðu losaðir með sölu hlutabréfa, væri nauðsynlegt að ákveða hvað ætti að gera við pen- ingana. Ég hef horft til þess að kanna ítarlega hvort ekki væri raunhæft að bærinn legði peninga í frekari úrvinnslu sjávarafurða hjá Útgerðarfélaginu," sagði Jakob. Verður aö tryggja sjóðnum fé Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, sagði í samtali við Dag að nauðsynlegt væri annars vegar að tryggja Framkvæmdasjóði fjármuni svo ið forstöðumaður Safnahússins frá opnun þess og byggt þar upp miðstöð þjóðlegs fróðleiks og lista í sýslunni. Safnahúsið gegnir mikilvægu hlutverki í ferða- mannaþjónustu og menningar- starfsemi í Þingeyjarsýslu, en þar er byggðasafn, myndlistasafn, skjalasafn, ljósmyndasafn, nátt- úrugripasafn, sjóminja- og land- búnaðartækjasafn. Auk þess er í húsinu Bókasafn Suður-Þingey- inga, en Elín Kristjánsdóttir veit- ir því forstöðu. hann gæti staðið undir skuldbind- ingum sínum, vöxtum og fjár- magnskostnaði, og hins vegar að skuldbreyta lánum hans svo að þau dreifðust á lengri tíma. Þá kæmi líka til greina að selja eitthvað af eignum sjóðsins til þess að greiða niður skuldir. „Ég get ekki séð að bæjarsjóð- ur geti á komandi árum lagt Framkvæmdasjóði til fé til að standa við skuldbindingar sínar. Hann verður að glíma við það sjálfur," sagði Sigurður. Um stöðu Framkvæmdasjóðs sagði Sigurður að hún væri verri nú en oft áður, vegna þess að lántökur vegna Krossaness hf. heföu aukið skuldbindingar hans. Hins vegar mætti ekki gleyma því að eignir sjóðsins hafi vaxið gríðarlega á síðustu árum vegna fyrst og fremst hækkunar á gengi hluta- bréfa í Útgerðarfélagi Akureyr- inga hf. óþh Umsækendur um stöðu for- stöðumanns Safnahússins eru: Gísli Salómonsson, Húsavík, Guðni Halldórsson, Reykjavík, Haraldur Jóhannesson, Húsavík, Haukur Gunnarsson, Reykja- hverfi, Haukur Tryggvason, Húsavík, Jón Allansson, Svíþjóð, Kári Sigurðsson, Húsa- vík, Sherry Curl, USA, Sigurður Ægisson, Bolungarvík, Þórður Helgason, Kópavogi, Þórhallur Hólmgeirsson, Noregi og Þórir Aðalsteinsson, Húsavík. IM Safnahúsið á Húsavík: 12 umsóknir um starf forstöðumanns . Nú um helgina verður stórsýning á Nissan bílum frá kl. 14-17 á bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar að Oseyri 5a Akureyri. Þar verður t.d. boðið uppá reynsluakstur á Nissan Patrol diesel og Nissan Sunny 4WD. Notaðir bílar metnir á staönum. Frábær verð Verödæmi: Nissan Sunny stallbakur SLX 16QQ cc 4ra dyra 16 ventla vél, 4ra þrepa sjálfskipting, aflstýri, samlæsingar á hurðum, rafdrifnar rúður, upphituð sæti og margt, margt fleira Staðgreiðsluverö er kr. 1.014.000 FINISSAN

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.