Dagur - 08.05.1992, Page 7

Dagur - 08.05.1992, Page 7
Föstudagur 8. maí 1992 - DAGUR - 7 Hvað er að gerast? Skemmtistaðir/ Veitingahús 1929 Konukvöld verður annað kvöld, laugardagskvöld, á skemmti- staðnum 1929 á Akureyri. Húsið verður opnað kl. 19 með sherry, Lindukonfekti og ilmvatns- prufum. Söngvakeppni evróp- skra sjónvarpsstöðva verður á breiðtjaldi. Þegar fer að líða á kvöldið verður herrafatasýning frá Toppmönnum, undirfatasýn- ing og síðan er hápunkturinn þegar Mr. Peters tekur að fækka fötum. Að lokum verður fata- uppboð. Kynnir kvöldsins verður Villi Þór, rakari og dómari. Hinir íslensku Commitments leika fyrir dansi fram á nótt. SjaUiim Hljómsveitin Galíleó leikur í Sjallanum á Akureyri í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld. Hljómsveitin hefur síðustu vikur verið að taka upp efni á hljóm- plötu sem kemur út með hækk- andi sól. í Kjallaranum spilar Guð- mundur Rúnar Lúðvíksson í kvöld og annað kvöld. Dropinn Dropinn á Akureyri mun bjóða upp á lifandi tónlist í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld. Arnar Guðmundsson, trúbador, sér að þessu sinni um að skemmta gestum. Hin vinsæla ölkeppni verður á sínum stað og á milli 22 og 23 fylgir pizzasneið hverri stórri ölkollu. Hótel KEA Hljómsveitin Namm ásamt söngv- aranum Júlíusi Guðmundssyni leikur fyrir dansi á Hótel KEA annað kvöld, laugardagskvöld. Hótel KEA minnir á leikhús- matseðil í kvöld og annað kvöld sem samanstendur af rjómalag- aðri laxasúpu með hvítlauksrist- uðum brauðteningum, heilsteikt- um lambavöðva á villisveppa- grunni og kaffi og konfekti. í kvöld kostar leikhúsmatseðillinn 1900 krónur, en 2400 krónur ann- að kvöld (dansleikur innifalinn). Myndlist Elín sýnir í Vín Elín Kjartansdóttir frá Norður- hlíð í Aðaldal opnaði sýningu á vefnaði í Blómaskálanum Vín við Hrafnagil 5. maí. Sýningin verður opin kl. 12-22 til 17. maí. Elín vefur mottur m.a. úr leðri og mokkaskinnum og vöktu verk hennar athygli á sýningu að Ýdölum í Aðaldal um síðustu helgi. IM Leikhús Leikfélag Sauðárkróks: „Bland í poka“ Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir á morgun, laugardag, kl. 16 verk sem það nefnir Bland í poka. Ætlunin var að þetta verk yrði sýnt á Sæluviku Skagfirðinga, en af óviðráðanlegum ástæðum varð að fresta því. Sýningin er samsuða Leikfé- lags Sauðárkróks á ýmsum atrið- um og persónum úr þekktum barnaleikritum, eins og Dýrun- um í Hálsaskógi, Karíusi og Baktusi, Kardemommubænum og Línu langsokk. Aðstandendur sýningarinnar eru um tuttugu og sjá þeir sjálfir um að leikstýra verkinu. Næstu sýningar á Blandi í poka verða kl. 15 sunnudaginn 10. maí og kl. 15 laugardaginn 16. maí. Freyvangsleikhúsið Vegna óþrjótandi eftirspurnar efnir Freyvangsleikhúsið til auka- sýninga í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld á hinni vinsælu rokkóperu Messíasi Mannssyni. Þetta verða allra síðustu sýningar á verkinu og því eru allir þeir sem hafa ætlað að sjá sýninguna, en ekki ennþá drifið sig, hvattir til að grípa gæsina. Sýningarnar hefjast kl. 20.30. Upplýsingar eru gefnar í síma 31196. Leikfélag Akureyrar Síðustu sýningar Leikfélags Akureyrar á Islandsklukkunni eftir Halldór Laxnes verða í Sam- komuhúsinu í kvöld, föstudaginn 8. maí kl. 20.30 og á sama tíma annað kvöld, laugardagskvöld. Sími í miðasölu er 96-24073 Tónleikar X-tríóið með tónleika Þjóðlagatríóið X-tríóið verður með tónleika í félagsheimilinu Hrísey í kvöld kl. 21 í tilefni 5 ára starfsafmælis. Einnig verða afmælistónleikar X-tríósins á Melum í Hörgárdal nk. sunnudag kl. 21. Á efnisskránni verða frumsamin lög og lög eftir Sigurð Þórarinsson, Jónas Friðrik og ljóð eftir m.a. Davíð Stefánsson og Jón Thoroddsen. Akureyri: Félagar úr MosfeUskómum í Lóni í kvöld Félagar úr Mosfellskórnum verða í skemmtiferð á Akureyri um helgina, m.a. í tilefni af „Degi söngsins“ 9. maí. Þeir halda söngskemmtun í Lóni, félags- heimili karlakórsmanna, við Hrísalund í kvöld, föstudags- kvöldið 8. maí kl. 21. Karlakór Akureyrar-Geysir mun einnig syngja nokkur lög á söngskemmt- uninni. Söngstjóri Mosfelling- anna er Akureyringurinn Páll Helgason. Akureyri: Sönghátíð í Skemmunni á morgun Á morgun, laugardaginn 9. maí kl. 15, verður haldin sönghátíð í tilefni af „Ári söngsins“ í Iþrótta- skemmunni á Akureyri. Sönghá- tíðin hefur verið nefnd „Syngjum saman“. í henni taka þátt Kirkju- kór Dalvíkur, Kirkjukór Svarf- dæla, Kirkjukór Stærri-Árskógs- kirkju, Mánakórinn, Kór Glerár- kirkju, Kór Akureyrarkirkju, Kór MA, Kór aldraðra og Kór Grundarkirkju, alls um 200 manns. Sönghátíðin fer þannig fram að kórarnir syngja sameiginlega í fjöldasöng 11 lög, flest vel kunn íslensk ættjarðarlög, sem kór- stjórar áðurnefndra kóra stjórna. Áheyrendum verður blandað inn á milli kórfélaga og er ætlast til þess að þeir taki undir sönginn. Inni á milli sameiginlegu laganna syngja síðan sex þátttökukór- anna eigin lög. Enginn aðgangseyrir verður að hátíðinni og eru allir velkomnir, en boðið verður upp á veitingar, kaffi og meðlæti, gegn vægu gjaldi. Vortónleikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar Fjórðu vortónleikar Tónlistar- skóla Eyjafjarðar verða í Sól- garði í Eyjafjarðarsveit á morgun kl. 15. Þar koma fram tónlist- arnemendur úr Sólgarðsskóla. Fimmtu vortónleikarnir verða í Laugarborg sunnudaginn 10. maí kl. 13.30 og koma þar fram nemendur úr Laugalandsskóla og Grunnskólanum á Hrafnagili. Sjöttu vortónleikar skólans verða í Gamla skólahúsinu á Grenivík sama dag kl. 17 en lokatónleikarnir og þeir sjöundu í röðinni verða í Freyvangi þriðjudaginn 12. maí og hefjast þeir kl. 21 Þar koma fram söng- nemendur skólans auk undir- leikara þeirra Guðjóns Pálsson- ar. Skólaslit verða svo í Grundar- kirkju miðvikudaginn 13. maí kl. 20.30. „Flavian Ensemble" með tónleika í Saftiaðarheimili Akureyrarkirkju Kvartettinn „Flavian Ensemble“ verður með tónleika í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju nk. mánudag, 11. maí, kl. 20.30. í kvartettinum eru Elsbeth Moser og Hrólfur Vagnsson á harmo- niku, Alexander Stein á þver- flautu og Christoph Marks á selló. Á efnisskránni eru verk eft- ir J. S. Bach, C. Debussy, L. Kupkovic, A. Stein, V. Subitzky og I. Yun. Aðgangseyrir er kr. 1000. „Flavian Ensemble" hefur haldið fjölda tónleika í Þýska- landi, Frakklandi og Austurríki. Meðlimir „Flavian Ensemble" eru allir starfandi í Hannover í Þýskalandi. Kvikmyndahús Borgarbíó Stórmyndin JFK, með Kevin Costner í aðalhlutverki, verður sýnd kl. 21 í Borgarbíói á Akur- eyri um helgina. Þessi mynd, sem fjallar um morðið á John F. Kennedy, fyrrverandi Banda- ríkjaforseta, hefur farið sigurför um allan heim. Klukkan 21 sýnir Borgarbíó einnig gamanmyndina „Ekki segja mömmu að barn- fóstran sé dauð“. Klukkan 23 verður sýnd í B-sal „Harkan sex“ og . Á barnasýningum kl. 15 á sunnudag verða sýndar myndirn- ar „Leitin mikla“, teiknimynd með íslensku tali, og „Hundar fara til himna“. Ymislegt Akureyri: Árleg vorhátíð 8. bekkjar G A í Kjamaskógi Hin árlega vorhátíð 8. bekkjar Gagnfræðaskóla Akureyrar verð- ur haldin í Kjarnaskógi á morgun, laugardaginn 9. maí, og hefst hún kl. 14. Á dagskrá verður meðal ann- ars keppni milli nemenda og for- ráðamanna þeirra í ýmsum grein- um s.s. skófluhlaupi, reiptogi og pokahlaupi. Einnig verður keppt í æðiskasti ef næg þátttaka fæst. Allar frekari hugmyndir eru vel þegnar. Eftir keppnina verður grill- veisla. Hver og einn þarf að koma með pylsur, pylsubrauð og drykk. Annað meðlæti verður á staðnum. Akureyri: Sænsk hjón predika í Hvítasunnu- kirkjunni Nú um helgina verða í Hvíta- sunnukirkjunni á Akureyri sænsk hjón Áke og Barbru Vallin. Þau hafa starfað í 30 ár sem kristni- boðar á Spáni og Kanaríeyjum. Þegar Áke komst til lifandi trúar var hann forfallinn drykkjusjúkl- ingur og líf hans voru rústir ein- ar. í dag ferðast þau um og boða fagnaðarerindið um lausnarann Jesúm Krist. Samkomur verða í Hvítasunnukirkjunni laugardag- inn 9. maí kl. 20.30 og sunnudag- inn 10. maí kl. 15.30 og munu þau predika Guðs orð og segja frá reynslu sinni. Á þessum sam- komum verður mikill og fjöl- breyttur söngur. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Akureyri Bflasýning hjá Skálafelli Skálafell sf. á Akureyri verður með bílasýningu á morgun, laug- ardag, og sunnudag kl. 13-17 báða dagana. Sýndir verða bílar af gerðinni Cherokee, Peugeot 405, Peugeot 106, Skoda Favorit og Skoda Forman. Akureyri: Sýning á Nissan Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar stendur fyrir sýningu á Nissan Patrol og Nissan Sunny um helgina. Opið verður á morgun og sunnudag frá kl. 14 til 17. Akureyri: Portið opið á morgun Portið í nýju slökkvistöðinni við Árstíg á Akureyri verður að venju opið kl. 11 til 16 á morgun, laugardag. Á boðstólum verður m.a. broddur, minjagripir og veggplattar, prjónuð barnaföt, spil, bækur, plötur, myndir, lax, brauð, lakkrís, postulínsvörur, keramik og kartöflur. GRÓÐRARSTÖÐIN RÉTTARHÓLL Svalbarðseyri, sími 11660 ★ Opnum 9. maí Höfum til sölu sumarblóm, fjölær blóm, skógarplöntur í 35 gata bökkum, tré og runna. Opið verður virka daga frá kl. 20 til 22 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10 til 18. X-TRÍÓIÐ heldur tónieika að Melum Hörgárdal sunnudaginn 10. maí kl. 21. Létt grín- og gleðisöngvar, lög við Ijóð Davíðs Stefánssonar, Jóns Thoroddsen, Jónasar Friðriks, Sigurðar Þórarinssonar o.fl. Einnig frumsamið efni. Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna X-TRÍÓIÐ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.