Dagur


Dagur - 08.05.1992, Qupperneq 11

Dagur - 08.05.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 8. maí 1992 - DAGUR - 11 sótti hann um árs leyfi án launa og settist að með fjölskyldunni á Selfossi, en þar hafði konan hans og synir búið meðan hann var úti. Á þessum tíma kom í ljós, að hann var kominn með þennan voðalega sjúkdóm, sem að lokum dró hann til dauða. Þetta hlýtur að hafa verið ægileg uppgötvun fyrir hann. Páll var dagsfarlega prúður maður, kurteis og óáreitinn. Það fór ekki mikið fyrir honum, en hann iét samt engan vaða yfir sig og hafði skoðun á hlutunum og var óhræddur við að láta hana uppi. Það gerði hann á greinileg- an og skipulegan hátt. Hann var það sem ég vil kalla góður kenn- ari, stjórnaði nemendum sínum af lagni og röggsemi, lét þá hafa nóg að starfa, var sanngjarn í samskiptum sínum við þá og gerði ekki ósanngjarnar kröfur til lítilmagnans. Mér fannst gott að vinna með Páli. Pessi 12 ár, sem við unnum saman, kom okkur ágætlega saman og þrátt fyrir að við værum ekki alltaf á sömu skoðun tókst okkur ávallt að leysa ágreining okkar á friðsam- legan hátt og í sátt og samlyndi. Páll var glaðlyndur maður og ég man ekki eftir honum fýldum í skapi eða hafandi allt á hornum sér, eins og hendir okkur suma. Kennarar Glerárskóla hafa haft þann sið í áraraðir að fara í ferðalag, með nesti og nýja skó, vor og haust. Þá er gjarnan farið í næstu sýslur, í sumarbústaði eða eitthvað annað, sem fólki hefur litist best á í það sinnið. Á þessum ferðalögum held ég að mér sé óhætt að segja, að fáir hafi verið eins skemmtilegir og Páll Bergsson. Hann var einfaldlega hrókur alls fagnaðar, hann söng best, sagði fyndnar sögur og kunni mikið af skemmtilegum söngtextum. Hann átti það til að læða út úr sér sprenghlægilegum athugasemdum um ýmsa, en þær voru ekki allar á annarra kostnað, eins og okkur íslending- um hættir svo til. Ég sagði áðan að Páll hefði sungið manna best og það fannst mér alltaf, enda var hann ákaflega söngvinn og mús- ikalskur, söng lengi með Kirkju- kór Akureyrarkirkju og Passíu- kórnum. En núna er skarð fyrir skildi. Páll er allur. Hann kemur ekki aftur til okkar í Glerárskóla. Við eigum góðar minningar um Pál Bergsson. í huganum þökkum við honum fyrir öll árin, sem við unnum saman í Glerárskóla og sendum Helgu, konu hans, son- um og skyldmennum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kennarar og starfsfólk Glerárskóla, Vilberg Alexandersson, skólastjóri. Föstudaginn 1. maí s.l. lést að heimili sínu á Selfossi,. Páll Bergsson kennari frá Akureyri eftir langa og erfiða baráttu við illkynjaðan sjúkdóm sem lækna- vísindunum hefur ekki tekist enn að vinna bug á. Þótt vitað væri að hverju stefndi síðust vikur, kom lát hans okkur á óvart vegna þess hve vel hann bar sig, enda var æðruleysi hans og þrautseigja með ólíkind- um. Kynni okkar Páls og Helgu konu hans hófust fyrir um það bil 14 árum. Þá var hann yfirkennari við Glerárskóla á Akureyri og hún hjúkrunarfræðingur á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri, en í þessum störfum lágu leiðir okk- ar saman. Samskipti okkar voru ekki mikil fyrstu árin en jukust smám saman, enda fengur að umgang- ast slíkt mannkostafólk, því hjá þeim var gestrisni og velvild í öndvegi. Páll alltaf jafn traustur og yfirvegaður en glettnin aldrei langt undan og Helga glaðbeitt og orðheppin. Páll var landfræðingur að mennt og afar fróður maður sem fylgdist vel með á mörgum sviðum, söngelskur mjög og hafði unun af klassískri tónlist. Hann var mörg ár starfandi í Kirkjukór Akureyrarkirkju og fleiri söngflokkum. Við fyrstu kynni virkaði Páll á suma svolítið þungur, en þar var um að ræða yfirvegun og rólega íhugun, sem voru svo góðir eigin- leikar í fari hans. Þessir eiginleikar og kjarkur komu vel í Ijós nú síðustu misser- in. í sjúkdómsstríðinu naut hann umhyggju og ástríkis Helgu og sona þeirra sem lögðu sitt af mörkum til að gera honum lífið léttbærara. Þarna kom samheldni og styrkur fjölskyldunnar vel í ljós. Við sem þekktum Pál og kveðjum nú, söknum hans mikið en þó hlýtur sársaukinn og söknuðurinn að vera þeim nán- ustu mestur. Elsku Helga, Karl og Sveinn, við biðjum Guð að styrkja ykkur og vottum ykkur og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Guðmundur Víðir og Margrét. Jónas Bergmann HaUgrímsson Helgavatni Fæddur 13. maí 1945 - Dáinn 3. maí 1992 „Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi, að stund hans var komin og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heim- inum voru. Hann elskaði þá, uns yfir lauk.“ (Jh. 13.1) Páskahátíð er nýliðin. Þá var fagurt um Húnaþing. Það var logn, hlýtt og sól skein í heiði. Vorið var að koma. En svo dró ský yfir, það kólnaði og þó sumardagurinn fyrsti kæmi sam- kvæmt almanakinu gránaði jörð. Vorboðinn ljúfi hímdi kaldur undir barði og hross stóðu í höm. Þá barst sú sú fregn sem gerði veröldina enn grárri. Kuldann enn sárari. Jónas á Helgavatni var látinn. Alvarlegur sjúkdómur hafði sigrað hraustan líkama. Eftir stóð ekkja með þrjú börn. Þeirra missir var mikill. Aldraðir foreldrar, ættingjar, vinir og ná- grannar sáu á eftir góðum og traustum dreng. Jónas Bergmann Hallgrímsson fæddist 13. maí 1945. Hann var sonur hjónanna Hallgríms Eð- varðssonar bónda á Helgavatni og konu hans, Þorbjargar Jónas- dóttur. Faðir Hallgríms, Eðvarð, var sonur Hallgríms Hallgríms- sonar, bónda á Hvammi í Vatns- dal, og konu hans, Sigurlaugar Guðlaugsdóttur. Faðir Þorbjarg- ar, Jónas, var sonur Björns Levís Guðmundssonar, bónda á Marða- núpi, og konu hans Þorbjargar Helgadóttur. Hann tók upp hið gamla ættarnafn, Bergmann. Jónas ólst upp á Helgavatni með systkinum sínum þremur og þar átti hann heima allt sitt líf. Jnemma fór hann að hjálpa til við búskapinn og síðar gerðist hann bóndi sjálfur. Fyrst í félagi við föður sinn en síðan keypti hann Helgavatn, jörðina sem afi hans og faðir höfðu unnað og byggt upp. Þar stendur lífsstarf þriggja ættliða. A Helgavatni hefur jafnan ver- ið rekið gott bú. Þar er snyrti- mennska meiri en almennt gerist og hjálpsemi Helgavatnsfólksins er einstök. Það hafa nágrannar, vinir og sveitungar oft fengið að reyna. Það var gæfa Jónasar að kynn- ast Sigurlaugu Helgu Maronsdótt- ur frá Ásgeirsbrekku í Skaga- firði. Sambúð þeira var farsæl og þau bjuggu vel að sínu. Börn þeirra eru þrjú, Maron Berg- mann f. 18.11. 1975, Þorbjörg Otta f. 20.05. 1979 og Kristín Helga f. 22.03. 1984. Við Jónas gengum saman í barnaskóla og höfum alla tíð ver- ið sveitungar. Milli heimila okkar hafa ætíð verið traust bönd vin- áttu og oft lágu leiðir okkar saman. Nokkra vetur fórum við milli bæja og rúðum fé fyrir bændur. Þá var oft skeggrætt við bændur um hin ólíklegustu mál. Jónas tók af einurð þátt í þeirri umræðu en bestar þóttu mér þó athugasemdirnar og nýju fletirnir á umræðuefninu, sem hann velti upp þá við vorum einir og keppt- umst við að rýja en bændur hvergi nærri. Jónas var ekki metorðagjarn maður en hann hafði skoðanir á því sem honum þótti máli skipta. Sumt þótti honum rugl en annað taldi hann mikilvægt. Hann lá ekkert á skoðunum sínum og var tilbúinn að verja þær í samtölum við hvern sem var. Á liðnum vetri nefndi Jónas það oft þá fundum okkar bar saman að hann þyrfti að koma með mér í flugferð fram yfir heiðar. Hann hafði yndi af því að ferðast um landið og hafði mik- inn hug á að fá að sjá náttúruna frá nýju sjónarhorni. Ætlun okk- ar var að fara slíka ferð þá snjóa leysti af hálendinu og jörð færi að grænka. Svo rann páskadagur upp. Veðr- ið var dásamlegt og ég ákvað að fara í eina af mörgum flugferð- um. Þá var sem hvíslað væri að mér að nú skyldi ég bjóða Jónasi með. Farið var vítt um heiðar, fram í Fljótadrög, yfir Hveravelli og síðan allt norður í Skagafjörð. Ræddum við margt í þessari ferð og var Jónas hinn hressasti. Ekki datt mér í hug, þá við skildum eftir tveggja tíma flugferð, að þetta hefði verið síðasta tækifær- ið til þess að efna gefið loforð. Fjórtán dögum eftir páska var stund Jónasar komin. Hann fór burt úr þessum heimi. Hann elsk- aði sína þar til yfir lauk. Megi góður guð styrkja ástvini hans í þeirra miklu sorg. Verið minnug þess að vera okkar á þessari jörð er aðeins áfangi að öðru og meiru. Útför Jónasar fer fram frá Þingeyrakirkju mánudaginn 11. maí. Magnús á Sveinsstöðum. Samtök fiskvinnslustöðva og Félag íslenskra fiskimjölsframleiðenda: Msmunun við innheimtu vörugjalds verði aflétt Við uppskipun og útskipun á hverskonar vörum er innheimt vörugjald af hverju tonni sem gengur til hafnarsjóða viðkom- andi hafna. Um er að ræða mismunandi gjaldflokka eftir eðli vörunnar. Þannig flokkast brennsluolíur, korn, sement, salt og vikur í 1. flokk. Gjaldið fyrir hann er tæpur helmingur þess sem greitt er fyrir vörur sem flokkast í 2. flokk, en í þann flokk fara m.a. ýmsar iönaðar-, landbúnaðar- og sjávarafurðir þ. á m. mjöl og lýsi. Með því að flokka allar sjávar- afurðir í 2. flokk, þ.m.t. mjöl og lýsi, er augljóslega verið að skatt- leggja mjöl- og lýsisiðnaðinn sér- staklega þar sem enginn eðlis- munur er á lestun og losun eftir því hvort um er að ræða lýsi eða brennsluolíur né heldur fiskmjöl eða sement og korn. Vörugjald- skrá hafnanna sem samþykkt er af samgönguráðherra var með skilgreiningu um að í 1. flokk gjaldskrárinnar færi „vara flutt í lausu máli í miklu magni, meira en 100 tonn í farmi, “ aðrar vörur fóru í hærri gjaldflokka. Undir þessa skilgreiningu flokkast iðulega mjöl og lýsi við útflutning. Til að tryggja hafnar- sjóðum meiri tekjur af loðnu- verksmiðjunum var þessi skil- greining felld út úr gjaldskránni. Þar sem mjöl og lýsi eru ekki verðmiklar afurðir m.v. þyngd eru vörugjöld mjög hátt hlutfall af söluverði. Hér er um að ræða verulegar fjárhæðir fyrir loðnuverksmiðjur, því einungis af framleiðslu loðnu sem unnin hefur verið frá ára- mótum þurfa loðnuverksmiðjur að greiða um 27 milljónir í vöru- gjöld við útflutning en greiddu um 13 milljónir væru afurðir þeirra flokkaðar í 1. flokk vöru- gjaldskrár. Þessu til viðbótar leggur ríkissjóður nú á sérstakt 25% álag á öll vörugjöld. í tengslum við gerð kjarasamn- inga hafa Samtök fiskvinnslu- stöðva farið fram á það við sam- gönguráðherra að þessari mis- munun verði aflétt. Ér svars hans að vænta á næstunni. Ætlið þið í bátsferð? SinniÖ viðhaldi á bátnum hvenaBr sem tími gefst. Hafiö ávallt viöurkenndan öryggisbúnað tiltœkan ( bátsferðum. Laugardagskvöldið 9. maí Hljómsveitin Namm ásamt Júlíusi Guðmundssyni söngvara Leikhúsmatseðill föstudags- og laugardagskvöld: Rjómalöguð laxasúpa með hvítlauksristuðum brauðteningum * * * Heilsteiktur lambavöðvi á villisveppagrunni * * * Kaffi og konfekt Verð föstudagskvöld kr. 1.900 Verð laugardagskvöld kr. 2.400 - Dansleikur innifalinn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.