Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 12. maí 1992 88. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránutelagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Sauðárkrókur: Tugur ungmenna handtekinn vegna fíkniefiianeyslu Lögreglan á Sauðárkróki hefur síðustu daga handtekið um tug ungmenna á Sauðárkróki vegna neyslu fíkniefna. Málinu tengist síðan annar tugur manna víðsvegar um land, en að sögn Björns Mikaelssonar, yfírlögregluþjóns á Sauðár- króki, er rannsókn málsins á lokastigi hjá þeim. Seinnipart sl. föstudags var piltur handtekinn á pósthúsinu á Sauðárkróki, eftir að hafa leyst út pakka, sem lögreglan hafði grun um að í væru fíkniefni. Fyrir utan pósthúsið voru þrír til við- bótar handteknir, en þeir biðu í bíl eftir þeim er leysti út Lögreglan á Akureyri: Annríki um helgina Lögreglan á Akureyri þurfti að hafa afskipti af ýmsu um helg- ina. Töluvert bar á ölvun. Af þeim sökum þurftu menn að gista fangageymslur og lögreglan þurfti að hafa afskipti af illdeilum í heimahúsum. Fjórir voru teknir vegna meintrar ölvunar við akst- ur og kæra barst vegna veiði- þjófnaðar í Eyjafjarðará. Hinir veiðiglöðu höfðu fengið fjóra silunga. Aðfaranótt laugardags voru rúður verslana í miðbænum brotnar og varningi stolið. „Á sunnudaginn varð all sér- kennilegt umferðaróhapp á bíla- stæðinu við flugstöðvarbygging- una á Akureyrarflugvelli. Stuðari bíls, er lagt var á bílastæði, kræktist í keðju, en keðjur eru notaðar til að afmarka bílastæði frá akstursleiðum. Er bílnum var ekið frá flugstöðinni skall keðjan á fjóra bíla er allir skemmdust verulega. Þá er ótalið að margir bifreiðastjórar voru stöðvaðir vegna of hraðs aksturs", sagði talsmaður lögreglunnar. ój pakkann, sem í reyndust vera tíu grömm af amfetamíni. Við rann- sókn kom í ljós að um tugur ung- menna á Sauðárkróki tengdust málinu og flestir þeirra nemendur í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. „Þeir hafa viðurkennt hass- neyslu frá áramótum og til dags- ins í dag og jafnframt kaup á hassi, allt að 50-70 grömmum. Við lögðum hald á pípur og um 10 grömm af hassi, en sumir hafa auk þess viðurkennt smávægilega neyslu á amfetamíni," segir Björn Mikaelsson. Að sögn Björns nær málið yfir í Húnavatnssýslur og teygir einnig anga sína til Vestfjarða, Suðurnesja og Reykjavíkur. Hann segir að rannsókn á Sauð- árkróki sé svo til lokið, en ennþá sé verið að vinna í málinu annars staðar. SBG Varðskipið Ægir kom til Akureyrar sl. föstudag, en þann dag var haldið námskeið í mengunarvörnum er lýtur að höfnum. Þrjátíu starfsmenn hafna frá Hvammstanga austur til Vopnafjarðar sóttu námskeiðið, sem þótti takast hið besta. Myndin var tekin um borð í Ægi á Akureyrarpolli þar sem starfsmcnn Siglingamálastofnunar og Landhelg- isgæslu kenndu notkun á flotgirðingum. Að loknu námskeiðinu á Akureyri hélt Ægir til Reyðarfjarðar þar sem samskonar námskeið verður haldið. Mynd: Golli Akureyri: Ollum starfsmönnum Skóverk- smiðjunnar Striksins sagt upp Öllu starfsfólki Skóverksmiðj- unnar Striksins á Akureyri, 36 að tölu, hefur verið sagt upp störfum frá og með 1. maí sl. og er uppsagnarfrestur þess frá tveim upp í sex mánuðir. Haukur Armannsson, fram- kvæmdastjóri, segir að óhjá- kvæmilegt hafí verið að segja starfsfólki upp vegna óvissu með endurfjármögnun fyrir- tækisins. Haukur segir að í janúar sl. hafi legið fyrir loforð frá 22 aðil- um um nýtt hlutafé inn í fyrirtæk- ið, samtals 15 milljónir króna. Þar af skrifaði Byggðastofnun sig fyrir 5 milljónum króna sl. sumar og Akureyrarbæi kom næstur með 3 milljónir króna. Hlutafé Byggðastofnunar hefur ekki ver- ið greitt og fór stofnunin fram á að fá ársreikning Striksins fyrir síðasta ár til skoðunar og mun hann að sögn Hauks liggja fyrir Fundur í stjórn og trúnaðarmannaráði Verkalýðsfélags A-Hún.: „Það var baráttuhljóð í fólki“ - sagði Valdimar Guðmannsson, formaður félagsins „Það var baráttuhljóð í fólki,“ sagði Valdimar Guðmannsson, formaður Verkalýðsfélags Aðalfundur Skjaldar hf.: Tæplega fimm milljóna króna tap í íýrra Aðalfundur Skjaldar hf. á Sauðárkróki var haldinn um helgina. Tæplega fímmtán milljón króna halli varð á rekstri fyrirtækisins á síðasta ári, en vegna sölu á hlutabréf- um í Útgerðarfélagi Skagfírð- inga, varð endanlegt tap 4,7 milljónir króna. Að sögn Árna Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra Skjaldar, var það aðallega rekstur togar- ans, Drangeyjar SK-1, sem kom illa niður á fyrirtækinu í fyrra, en hann var m.a. bilaður um nokk- urt skeið. „Ég vona að þetta ár verði sæmilegt og að kvótaskerðing í haust verði ekki mikil. Að vísu hefur fiskiríið verið voða slappt það sem af er, en vonandi lagast það með vorinu. í kjölfar breyt- inga á hlutafjáreign í fyrirtækinu hefur einnig orðið veruleg verk- efnaaukning og nú fáum við fisk frá Þormóði ramma til að vinna hér, enda veitir ekki af því Drangeyjan liggur í höfn með bil- aða vél,“ segir Árni Guðmunds- son. Á aðalfundinum var kosið í nýja stjórn hjá Skildi hf. og hana skipa: Róbert Guðfinnsson, Vil- hjálmur Egilsson, Ólafur Mar- teinsson, Guðmundur Guð- mundsson og Rúnar Marteins- son. SBG Austur-Húnvetninga, um fund stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs félagsins sl. sunnudags- kvöld þar sem farið var yfír samningamálin í Ijósi þess að félagsmenn kolfelldu miðlun- artillögu ríkissáttasemjara. Á fundinum á sunnudags- kvöldið var kjörin þriggja manna samninganefnd, sem í eiga sæti Valdimar Guðmannsson, Stefanía Garðarsdóttir, gjaldkeri félagsins og Páll Marteinsson, úr trúnaðar- mannaráði félagsins, og mun hún til að byrja með skrifa bréf til atvinnurekenda á svæðinu. „Síð- an er ætlunin að þessi samninga- nefnd ásamt trúnaðarmönnum á viðkomandi vinnustöðum verði falið að vinna að samningunum, þ.e.a.s. ef til þeirra kemur," sagði Valdimar. Hann sagði að reynt yrði að fá fram viðbrögð atvinnurekenda eins fljótt og hægt væri. „Ef við metum stöð- una þannig að þurfi að grípa til aðgerða, þá munum við kalla saman félagsfund. Þetta var það afdráttarlaus niðurstaða að fólk virðist vera tilbúið í ýmislegt,“ sagði Valdimar. Miðlunartillagan var einnig felld í atkvæðagreiðslu félags- fólks í Verslunarmannafélagi Vestur-Húnvetninga. Á kjörskrá voru 35 og greiddu 11 atkvæði, eða 31,4%. Já sögðu 5 en 6 sögðu nei. Björn Ingi Þorgrímsson, for- maður félagsins, sagði í samtali við Dag að ekki væri Ijóst hver yrðu næstu skref í málinu, en um það yrði rætt við embætti ríkis- sáttasemjara. „Hrifning fólks yfir miðlunartillögunni er alveg í lág- marki. Það sem fólki gremst mest er að ríkisstjórnin skuli hafa komist' upp með ýmsar þær aðgerðir sem hún hefur gripið til og hún skuli síðan draga aðeins hluta af þeim til baka. Ég tel að fólk hefði verið sáttara ef ríkis- stjórnin hefði dregið allt til baka,“ sagði Björn Ingi. Kaupfélag Vestur-Húnvetn- inga á Hvammstanga er stærsti vinnuveitandi félagsmanna í Verslunarmannafélagi V-Hún- vetninga, en auk verslunarstarfa vinna félagsmenn einnig við skrifstofustörf. óþh síðar í þessari viku. „Ég er að vona að þetta hlutafé fari að skila sér og í framhaldi af því verði kosin ný stjórn fyrir fyrirtækið. Það liggur fyrir að núverandi ástand getur ekki gengið. Salan er að vísu góð, en lagerinn stend- ur hins vegar í stað með tilheyr- andi kostnaði. Á því verður að taka, hvort sem hér verða óbreytt eða breytt eignarhlutföll. Ég gat ekki beðið með uppsagnir lengur vegna þess að uppsagnafrestur hjá fólkinu er frá tveim upp í sex mánuði. Auðvitað vona ég að sem flestir verði endurráðnir aftur, en ég hefði helst viljað að ný stjórn tæki á því,“ sagði Haukur. Varðandi þá spurningu hvort sú staða kunni að koma upp að fyrirtækið verði selt til aðila utan Ákureyrar sagðist Haukur ekki þora að segja til um það. „Það er engin launung að um mitt síðasta ár kom upp sú staða að við höfð- um ekki bolmagn til að reka þetta fyrirtæki. Þá voru tveir val- kostir til umræðu, annars vegar að auka hlutafé í því eða selja það í heilu lagi. Ákveðið var að fara hlutafjárleiðina,“ sagði Haukur. Framleiðsla Striksins var stöðvuð í desember og janúar sl. og á þeim tíma var hluti lagersins seldur. Frá því að framleiðsla hófst aftur hefur framleiðslan selst jafnóðum, en sá lager sem eftir var hefur staðið í stað. Birgðakostnaður er því mikill og fyrirtækinu þungur. Vaxtakostn- aður er einnig mjög mikill og hann öðru fremur hefur gert það að verkum að fyrirtækið tapaði peningum á síðasta ári og það sem af er þessu ári. „Ég borgaði það sama í vaxtakostnað og laun á síðasta ári,“ sagði Haukur. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.