Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 11 Sumarbúðirnar við Ástjörn: Starfsemin hefst 13. júní Sumarbúðir sumarheiniilisins við Ástjörn í Kelduhverfi verða starfræktar frá 13. júní til 28. ágúst næstkomandi. Sumarbúðirnar að Ástjörn eru ætlaðar börnum á aldrinum 6 til 12 ára og er hægt að ákveða lengd dvalartímabils. Skemmsta dvöl er tvær vikur en lengsta 10 vikur. Fyrstu átta vikur tímabils- ins eru fyrir drengi en 9.-10. vika fyrir drengi og stúlkur. Síðasta vikan, þ.e. frá 22.-28. ágúst, er fyrir 13 ára og eldri. Vikudvöl að Ástjörn kostar 10.700 krónur en systkini fá 10% afslátt frá því verði. Þá fá þau börn, sem þurfa að fljúga til Akureyrar, afslátt hjá Flugleið- um og er hann miðaður við 12 ára aldur. Loks er þess að geta að sumarbúðagestum verður boðið upp á hestanámskeið í samvinnu við hestaleiguna að Hóli. Þeir sem óska eftir frekari upp- lýsingum um sumarbúðirnar að Ástjörn geta hringt í eftirtalin númer, eftir kl. 16.30: Ástjörn, sími 96-52262; Bogi, sími 96- 23238; Árni eða Magnús, sími 96-21585; Steini, sími 96-21509 og Jógvan, sími 96-22733. Nýtt hjúkr- unarfræðinga- tal komið út Nýtt Hjúkrunarfræðingatal er komið út. Það hefur að geyma æviágrip þeirra hjúkrunar- fræðinga sem útskrifast hafa eftir árið 1979, en einungis við- bótarupplýsingar þeirra hjúkr- unarfræðinga sem eru í fyrri ritum. Hjúkrunarfræðingar útskrifað- ir vorið 1990 er síðasti hópurinn sem er í ritinu. Ekki náðist í þá alla og er því jafnframt nafnalisti. Nafnalisti er einnig yfir þá sem útskrifuðust 1991. Samtals eru því æviágrip hjúkrunarfræðinga 2796. Ritið er beint framhald af þeim fyrri sem komu út 1969 og 1979. Bókin verður seld á skrifstofu Hjúkrunarfélags íslands að Suðurlandsbraut 22 og kostar kr. 4.400,- Áskrifendur sem ekki hafa tök á að sækja hana fyrir 22. maí 1992 munu fá hana senda gegn póstkröfu. Tónlistarskólinn á Akureyri: Vortónleikar strengja- og blásarasveita Vortónleikar strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri verða í Akurevrarkirkju þriðjudaginn 12. maí kl. 20. Þrjár strengjasveitir leika fjöl- breytta efnisskrá. Stjórnendur eru Magna Guðmundsdóttir, Jón Rafnsson, og Michael Jón Clarke. Einleikarar eru Jaqueline F. Simm, Gordon G. Jack og Nicole Vala Cariglia. Vortónleikar blásaradeildar verða nk. miðvikudag 13. maí kl. 20, einnig í Akureyrarkirkju. Þar koma fram þrjár blásarasveitir skólans, slagverkssveit, blokk- flautusveit og kammersveit blás- ara. Stjórnendur eru Jaqueline F. Simm, Gordon G. Jack, Finnur Eydal, Christopher Thornton, Eileen Silcokd og Pentti Niemi. N0TAÐIR BILAR - H0LDUR - N0TAÐIR BILAR - H0LDUR - N0TAÐIR BILAR N0TAÐIR BILAR Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI N0KKUR D Æ M I : V0LV0 740 GL 2300 - árg. 1987, 4 dyra, blár, ekinn 86 þ.km., ABS o.fl.verð kr. 870.000 stgr. MIVIC LANCER EXE1500 - árg. 1988, 5 gíra, 4 dyra, grábrúnn, ekinn 78 þ.km., verð kr. 520.000 stgr. MAZDA 323 LX1300 - árg. 1987, 4 gíra, 4 dyra, hvítur, SEAT IBIZA XL1200 - árg. 1990, 5 gíra, 5 dyra, hvítur, ekinn 90 þ.km., verð kr. 350.000. stgr. ekinn 6 þ.km., verð kr. 450.000.stgr. MMCTREDIA 4X41800- árgerð 1987, 5 gíra, 4 dyra, hvítur, ekinn 105 þ.km., verð kr. 490.000.stgr. MMC PAJER0 LANGUR 2600 BENSÍN - árgerð 1987, 5 gíra, 5 dyra, blár, ekinn 120 þ.km., verð kr. 1.050.000. stgr. GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA Góö þjónusta ■ Reyndlr sölumenn H ÖLDUR HF BÍLASALINN BILASALA VIÐ HVANNAVELLI SÍMAR 24119 OG 24170 Opið virka daga kl. 10-19, laugardaga kl. 10-17 NOTAÐIR BILAR - HOLDUR - NOTAÐIR BILAR - HOLDUR - NOTAÐIR BÍLAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.