Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Noregur:
Jakob í viðræðum
við Viking um
nýjan samning
Handknattleiksmaðurinn Jakob
Jónsson á nú í viðræðum við
norska félagið Viking frá
Stavanger um nýjan samning
en keppnistímabilinu í Noregi
lauk fyrir skömmu. Annað
félag í Noregi hefur haft sam-
band við Jakob og um áramót-
in fékk hann upphringingu frá
Alicantc á Spáni en gat ekki
tekið freistandi tilboði frá
félaginu.
Jakob segist vera búinn að
ræða einu sinni við forráðamenn
Viking eftir að keppnistímabilinu
lauk og þar hafi aðilar viðrað
hugmyndir um nýjan samning.
„Það bar nokkuð á milli en ég á
ekki von á öðru en að þetta gangi
saman. Þetta ætti að skýrast um
miðjan mánuðinn," sagði Jakob í
samtali við Dag.
Norska félagið Drammen hef-
ur haft samband við Jakob en
það félag tryggði sér 1. deildar-
sæti á dögunum. Jakob segist lít-
ið hafa hugsað um það enda hafi
hann mestan áhuga á að vera
áfram hjá Viking.
Um áramótin hafði spænska
félagið Alicante samband við
Jakob og gerði honum freistandi
tilboð. „Það voru mjög góð laun í
boði en ég hefði þurft að fara
strax í janúar og það var einfald-
lega ekki hægt. Þetta kitlaði en
Jakob Jónsson.
maður rýkur ekki í burtu á miðju
keppnistímabili. Þeir töluðu um
að hafa samband aftur en ég á
ekkert frekar von á að heyra
meira í þeim.“
Jakob og félagar lentu í 3. sæti
í deildakeppninni í Noregi og léku
gegn nágrannaliðinu Stavanger í
úrslitakeppninni. „Það fór frekar
illa, við töpuðum fyrri leiknum
með 2 mörkum og seinni með 14.
Þeir eru bestir í bænum í dag en
við vorum þokkalega ánægðir
með bronsið,“ sagði Jakob
Jónsson.
Þessi mynd var tekin síðari ráðstcfnudaginn á Laugarvatni. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Fremsta röð: Gísli
Guðmundsson, Árni Arason, Guðmundur Stefán Maríasson, Kristinn Jakobsson, Magnús Sigurólason, Ólafur
Ragnarsson, Þorkell Ragnarsson, Gísli Björgvinsson, Egill Már Markússon, Guðmundur Haraldsson, formaður
Dómaranefndar KSÍ og Rafn Hjaltalín, formaður Laga- og fræðslunefndar KSÍ. Miðröð: Bragi V. Bergmann, Þor-
varður Björnsson, Valdimar Freysson, Ingólfur Hjaltason, Magni Björnsson, Gunnar R. Ingvarsson, Kári Gunn-
laugsson, Svanlaugur Þorsteinsson, Jón Sigurjónsson, Einar Sigurðsson, Róbert Jónsson, í Dómaranefnd KSÍ og
Halldór Gunnlaugsson, formaður Knattspyrnudómarasambands íslands. Efsta röð: Sigurður Friðjónsson, Marinó
Þorsteinsson, Magnús Guðmundsson, starfsmaður Dómaranefndar KSÍ; Kristján Guðmundsson, Eyjólfur Ólafs-
son, Gylfi Þór Orrason, Guðmundur Jón Jónsson, Þorsteinn Árnason, Ari Þórðarson og Pétur Sigurðsson.
Dagsmynd
Knattspymudómarar undirbúa sig fyrir keppnistímabilið
Landsdómarar í knattspyrnu,
þ.e. þeir dómarar sem dæma
leikina í efstu deildum íslands-
mótsins í knattspyrnu í sumar,
komu saman á Laugarvatni dag-
ana 1.-2. maí síðastliðinn. Þar
gengust þeir undir þrekpróf og
skriflegt próf úr knattspyrnu-
lögunum og hlýddu á fyrirmæli
sumarsins frá Dómaranefnd KSÍ.
33 dómarar sátu ráðstefnuna.
Þeir komust ágætlega frá prófun-
um og virðast vel búnir undir
„átökin“ sem framundan eru í
sumar.
Enska knattspyrnan
Þorleifur Ananíasson
Sigur Liverpool í FA-bikamum
Á laugardaginn fór fram á
Wembley úrslitaleikurinn í
FA-bikarnum og áttust þar við
Liverpool og Sunderland.
Þessi úrslitaleikur er jafnan
hápunktur knattspyrnutíma-
bilsins á Englandi og hinn frá-
bæri Bjarni Fel. sá um að
koma öllu vel til skila í beinni
sjónvarpssendingu til okkar.
Þetta kunnu menn vel að meta
eftir að hafa horft uppá ýmsa
aðra nauðga beinum útsend-
ingum að undanförnu, bæði í
handbolta og knattspyrnu. En
snúum okkur þá að leiknum
sjálfum.
Ef gengi liðanna að undan-
förnu var skoðað hefði maður
ætlað að það væri nægjanlegt fyr-
ir Liverpool að mæta og það eitt
myndi duga til sigurs í leiknum.
2. deildarlið Sunderland var í
mikilli fallhættu í sinni deild og
náði naumlega að bjarga sér und-
ir lokin, en Liverpool hefur um
langt árabil verið eitt albesta lið á
Englandi og rakað saman verð-
launum.
Þegar dómarinn flautaði til
leikhlés eftir markalausan fyrri
hálfleik virtist þó sem óvænt úr-
slit væru á góðri leið með að sjá
dagsins ljós. Þrátt fyrir að leik-
menn Liverpool hefðu verið
meira með boltann þá voru það
leikmenn Sunderland sem höfðu
átt fleiri tækifæri og sýnt meiri
baráttuvilja. Miðherjarnir John
Byrne og Peter Davenport voru
hættulegir og vörn liðsins með
Anton Rogan sem besta mann
lék af öryggi. Það sem hafði kom-
ið í veg fyrir að liðið skoraði var
ekki vörn Liverpool, heldur fljót-
tóku Sunderland í kennslustund í seinni hálfleik og sigruðu 2:0
Margir Leedsarar lögðu fæð á
Sunderland sem ekki hefur horf-
ið og því var sigri Liverpool fagn-
Steve McManaman átti stórleik hjá
Liverpool í seinni hálfleik.
færni og græðgi framherja liðsins.
En Liverpool fékk þó færi,
Michael Thomas strax í upphafi
eftir frábæra sendingu Ray
Houghton og rétt fyrir hlé sleppti
dómarinn vítaspyrnu á Sunder-
land er Paul Bracewell felldi
Steve McManaman innan víta-
teigs.
Allt annað var uppi á teningn-
um í síðari hálfleik, Sunderland
átti snarpa sókn fyrstu mínútuna
og fékk hornspyrnu, en eftir það
var leikurinn algerlega eign
Liverpool. Ekki leið á löngu þar
til Thomas skoraði með glæsilegu
skoti eftir frábæran undirbúning
McManaman og um miðjan hálf-
leikinn bætti Ian Rush síðan við
síðara marki Liverpool með góðu
skoti eftir góðan undirbúning
McManaman og Thomas. Þrátt
fyrir þunga sókn Liverpool og
fjölmörg tækifæri urðu mörkin
ekki fleiri, en Dean Saunders var
óheppinn, tvö skot naumlega
framhjá og skalli í þverslá.
Liverpool hafði því bætt enn ein-
um titlinum í sitt stóra og mynd-
arlega safn verðlauna og það án
síns besta leikmanns John Barnes
sem var meiddur.
McManaman lék mjög vel í
síðari hálfleiknum og Jan Molby
stjórnaði leik Liverpool af miklu
öryggi á miðjunni og mataði sam-
herja sína með glæsisendingum.
Dean Saunders átti góa spretti í
sókninni og þeir Rush og Thomas
nýttu færi sin vel og skoruðu góð
mörk. Það er hins vegar í varnar-
leiknum, þar með talin mark-
varslan sem Liverpool er ekki
nógu sterkt. Það er aðeins hinn
ungi hægri bakvörður liðsins Rob
Jones sem uppfyllir þær kröfur
sem búist er við af varnarmanni
hjá Liverpool.
Þrátt fyrir ósigurinn og algera
og óþarfa uppgjöf í síðari hálfleik
má lið Sunderland vel við una.
Liðið er góð blanda af reyndum
spilurum og kornungum og mjög
efnilegum leikmönnum þannig
að ekki kæmi á óvart þó Sunder-
land næði að komast upp í 1.
deild næsta vetur. Reynsluleysi í
leikjum sem þessum varð liðinu
að falli og eflaust hefur verið
nokkur pressa á liðinu að endur-
taka afrekið frá 1973, en þá sigr-
aði Sunderland sem var í 2. deild
hið fræga lið Leeds Utd. í FA-
bikamum. Enn hefur ekki gróið
um heilt milli Sunderland og
Leeds Utd. síðan þá og félögin
hafa eldað grátt silfur síðan.
að í herbúðum nýkrýndra Eng-
landsmeistara Leeds Utd.
Þ.L.A.
Dean Saunders var óheppinn að skora ekki fyrir Liverpool.