Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 12.05.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 12. maí 1992 Íþróttir Uppskeruhátíð Júdódeildar KA: Jón Kristinn valinn eMegastur Lokahóf yngri flokka hjá júdódeild KA fór fram í KA- húsinu á laugardaginn. Þar var kynnt val á efnilegasta júdó- manninum auk þess sem önnur verðlaun voru veitt og boðið upp á léttar veitingar. Jón Kristinn Sigurðsson var kjör- inn efnilegasti júdómaðurinn. Að sögn Jóns Óðins Óðinsson- ar, þjálfara hjá júdódeildinni, æfðu 140 manns á aldrinum 4-40 ára júdó hjá félaginu í vetur. „Þetta var tvímælalaust besta tímabilið okkar til þessa og töl- urnar tala sínu máli. Það er sama hvernig talið er, KA kemur alltaf út sem sterkasta félagið,“ sagði Jón Óðinn en KA-menn unnu 16 íslandsmeistaratitla í vetur eins og fram hefur komið. Jón Óðinn sagði að KA stæði á ákveðnum tímamótum þar sem félagið væri nú búið að eignast sterka menn í fullorðinsflokkun- um. „Það er mjög mikil breidd hjá okkur sem sést á því að við eigum toppmenn í nánast öllum þyngdarflokkum fullorðinna og fleiri en einn í sumum flokkum. Það eina sem háir okkur eru fjár- hagsvandræði, við njótum engra styrkja eða viðurkenninga sem er undarlegt þar sem við höfum unnið um 200 íslandsmeistara- titla en önnur félög hafa verið að fá fjárstyrki og viðurkenningar fyrir einn titil. Ef þetta breytist er framtíðin björt því við eigum keppanda á Ólympíuleikum í sumar, Frey Gauta Sigmundsson, og þrjá til fjóra aðra á „heims- klassa.“ Ég spái því að KA eign- ist heims- eða Ólympíumeistara einhvern tíma á næstu 10 árum,“ sagði Jón Óðinn. Verðlaunahafar á Vormóti í flokki 6-8 ára, f.v: Sigurður Orri Jónsson, Hall- dór Arnarson, Ólafur Torfason, Atli Jónsson, Olafur Sigurgeirsson, Skúli Arnason, Davíð Júlíusson og Haukur Bjarnason. Efnilegasti júdómaðurinn, Jón Kristinn Sigurðsson, ásamt þjálfaranum, Jóni Oðni Óðinssyni. Þessir hlutu verðlaun fyrir ástundun, mætingu og framfarir, f.v: Ágúst Fann- ar Ágústsson, Arnar Lúðvíksson, Brynjar Ásgeirsson, Arnar Hilmarsson, Karles Ólafsson, Geir Sigurðsson, Ómar Örn Karlsson, Styrmir Hauksson og Jóhannes Gunnarsson. Knattspyrnudómarar á Norðurlandi: Almennur fundur í KA-heimilinu í kvöld Almennur fundur með knatt- spyrnudómurum á Norður- landi verður haldinn í KA- heimilinu á Akureyri í kvöld, þriðjudaginn 12. maí. Fundur- inn hefst kl. 20.00 og er þess óskað að allir skráðir dómarar á Norðurlandi mæti. Á fundinum mun Rafn Hjalta- lín, formaður Laga- og fræðslu- nefndar Knattspyrnusambands íslands, flytja dómurum fyrir- mæli sumarsins. Síðan verða leyfðar fyrirspurnir og umræður. Einnig er rétt að benda á að þar sem Dómaranefnd Knatt- spyrnusambandsins vinnur nú að gerð dómaraskírteina fyrir keppnistímabilið, er nauðsynlegt að dómarar komi með mynd af sér á fundinn, til að setja í skírteinin. Framkvæmdastjórn ÍSÍ: Ráðsteftia um stöðu íþróttanna á laugardag Laugardaginn 16. maí boðar framkvæmdastjórn ÍSÍ til ráð- stefnu um stöðu íþróttanna á Islandi í dag. Hún verður hald- in í Iþróttamiðstöðinni í Laug- ardal og hefst kl. 10. Ráðstefnan er haldin í tengsl- um við sambandsstjórnarfund ÍSÍ. þannig að búast má við að þar verði samankomið allt helsta for- ystufólk landsins innan íþrótta- hreyfingarinnar. Viðfangsefnið snertir alla íþróttaáhugamenn en staða íþróttanna verður rædd út frá ýmsum sjónarhornum. Meðal þeirra sem taka til máls eru Ingi Björn Albertsson, formaður íþróttanefndar ríkisins, Erling Ásgeirsson, bæjarfulltrúi og for- maður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, Sigríður Jónsdóttir, formaður BSI, og Magnús Oddsson, formaður íþrótta- bandalags Akraness. Ráðstefnugjald er 600 kr. og er innifalið súpa og salat í hádegis- hléi auk kaffiveitinga. Skráning þátttakenda fer fram í síma 91- 813377 og 91-814144 fyrir 14. maí. Hluti af bikarhöfum SRA 1992 með verðlaun sín. Fremri röð f.v: Þóroddur Ingvarsson, Aknrcyrarmeistari í skíða- göngu 13-14 ára pilta, Gauti Þór Reynisson, Akureyrarmeistari í stórsvigi 15-16 ára pilta, Vilhelm Þorsteinsson, Akureyrarmeistari í stórsvigi karla, Magnús Már Lárusson, Akureyrarmeistari í svigi 15-16 ára pilta, og María Magnúsdóttir, Akureyrarmeistari í svigi kvenna. Aftari röð f.v: Brynja Þorsteinsdóttir, Akureyrarmeistari í svigi og stórsvigi 13-14 ára stúlkna, Harpa Pálsdóttir, Akureyrarmeistari í skíðagöngu 13-15 ára stúlkna, Hildur Ösp Þor- steinsdóttir, Akureyrarmeistari í svigi og stórsvigi 15-16 ára stúlkna, Jóhann Arnarson, Akureyrarmeistari í stór- svigi 13-14 ára pilta, og Fjalar Úlfarsson, Akureyrarmeistari í svigi 13-14 ára pilta. Mynd: jhb Uppskeruhatio SRA: „Var mjög sérstök vertíð“ - segir Þröstur Guðjónsson - reynt að stunda æfingar á skíðum í sumar Uppskeruhátíð Skíðaráðs Akureyrar var haldin í Sjallan- um á sunnudag en þar voru veitt verðlaun fyrir góðan árangur í mótum ráðsins í vetur. Þröstur Guðjónsson, formaður SRA, segir að skíða- vertíðin í vetur hafi verið mjög erfið en árangur hafi hins veg- ar verið furðu góður miðað við aðstæður. „Þetta var mjög sérstök vertíð. Við höfum aldrei getað skíðað jafn mikið í desember eins og í vetur en síðan kom tveggja mán- aða tímabil sem var alveg snjó- laust og það er Iíka alveg nýtt. Þetta olli okkur vitanlega miklum erfiðleikum en þjálfarar og for- eldrar unnu frábært starf og björguðu því sem bjargað varð. Þessar erfiðu aðstæður komu nið- ur á iðkendafjölda en árangurinn í vetur var ágætur,“ sagði Þröstur. Hann sagði jafnframt að fjárhagur ráðsins væri viðund- andi þrátt fyrir erfiðleikana í vet- ur og væri það fyrst og fremst fyrirtækjum í bænum að þakka sem veitt hefðu stuðning og ættu þakkir skildar fyrir. í sumar stendur til að reyna að halda saman eldri hópunum, 13 ára og eldri, og komast á skíði tvisvar í viku. „Við vorum með tvo erlenda þjálfara í vetur sem telja sjálfsagt að reyna að komast á skíði í kringum bæinn yfir sumartímann. Þeir hafa sett upp æfingaprógram þar sem gert er' ráð fyrir að farið verði á skíði tvisvar í viku auk þrek- og þol- æfinga. Þetta telja þeir nauðsyn- legt til að ná framförum. Þol og þrek hefur verið í lagi en þeir telja nauðsynlegt að bæta tækni- legu hliðina og að það verði aðeins gert með því að fara oftar á skíði. Þetta kostar vitanlega mikla samstöðu og góðan vilja en við vonum að þetta takist,“ sagði Þröstur. Miklar líkur eru á erlendu þjálfararnir tveir, Svíinn Hel- ström og Pólverjinn Kaminsky, verði áfram hjá SRA næsta vetur. Búist er við að þeir komi í september og setji upp nýjar æf- ingaáætlanir og komi síðan aftur til starfa í nóvember eða des- ember.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.