Dagur


Dagur - 12.05.1992, Qupperneq 6

Dagur - 12.05.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 12. maí 1992 ÚTBOÐ — SORPHIRÐA Sveitarfélögin við utanverðan Eyjafjörð: Ólafsfjörður, Dalvík, Árskógshreppur og Svarfaðardalshreppur (íbúar 3300) óska eftir tilboðum í sorphirðu og flutn- ing á því til Akureyrar. Ennfremur flutning á sorp- gámum til Akureyrar. Utboðsgögn fást hjá bæjartæknifræðingunum á Dal- vík og Olafsfirði. Tilboðin verða opnuð á bæjarskrifstofunni á Dalvík 21. maí 1992, klukkan 14.00. Bæjartæknifræðingarnir á Dalvík og Ólafsfirði. Félagsfundur Léttis fimmtudaginn 14. maí, kl. 20.00 í félagsheimil- inu Skeifunni. Dagskrá 1. Sumarstarfið: Lögmannshlíð - Melgerðismelar - Reiðleiðin fram Bakka - Reiðgerði - Hreinsunarvikan 18.-22. maí. 2. Sumarferðir. 3. Sörlastaðir. 4. Önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í félagsstarfinu. Stjórnin. ' | gJLJ. lnl 1' ftnrTnH 11~F^TTÍ Restaurant staðurinn á toppnum E3^, rt rt IIIIIIIII 1 l I t tt’ B ■: ...'. : Bnf Iml l ln| Inl l l p|t... Skemmtikvöld verður föstudagskvöldið 15. maí í veislusölum Fiðlarans 4. hæð Alþýðuhússins. Fram koma hinir landsfrægu skemmtikraftar, Bergþór Pálsson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, ásamt undirleikaranum jónasi Þóri. ★ CHANEL llmvatnskynnin8 tra Vörusölunni og tískusýning verður einnig PA R1 s til skemmtunar og fróðleiks. ★ Tekið verður á móti gestum með fordrykk og léttu góðgæti. Eftir skemmtunina verður síðan snæddur blandaður sælkeradiskur (lax, humar og buffsteik ásamt viðeigandi meðlæti) með ostafylltu brauði. ★ Hljómsveitin Namm með Júlíus Guðmundsson leikur fyrir dansi. ★ Kynnir kvöldsins er Davíð Jóhannsson. ★ Miðaverð kr. 3.400. Fyrir hópa 15 eða fleiri kr. 3.200. Húsið opnað kl. 20.00 og skemmtun hefst kl. 21.00. Borðapantanir og allar upplýsingar í síma 27100. Ath. Aðeins verður um þetta eina skipti að ræða. Tónlist Mikils vísir? - brotið blað í sögu Tónlistarskólans á Akureyri Miðvikudaginn 6. maí var brotið blað í sögu söngdeildar Tónlistar- skólans á Akureyri, þegar frum- sýnd var óperuuppfærsla á vegum deildarinnar í Samkomuhúsinu á Akureyri. Flutt voru lokaatriði tveggja ópera: Önnu Bolenu eftir Donizetti og Töfraflautunnar eft- ir Mozart. Undirleikari á píanó var Richard Simm, tónlistarstjóri Gordon J. Jack og leikstjóri Sigurður Hallmarsson. Nemendur og kennarar söng- deildarinnar sameinuðust um flutning verkanna. Hólmfríður Benediktsdóttir söng hlutverk Önnu Bolenu og gerði á margan veg vel. Hún hefur óþvingaða raddhæð í hlutverkið og skortir ekki styrk til þess að láta rödd sína berast um sal Samkomuhúss- ins, en víbrató raddarinnar var á stundum heldur mikið. Túlkun hennar í þessu dramatíska hlut- verki var að ýmsu leyti góð, en þó nokkuð einhæf. Nemendur, sem fram komu, gerðu einnig talsvert vel. Par má fremstan nefna Örn Viðar Birgis- son, sem skilaði hlutverki Percys af verulegu öryggi. Kór hirð- meyja söng einnig yfirleitt fallega og jafnvel betur en svo fyrir utan það, að hann dó á stundum um of í lok laghendinga. Margrét Bóasdóttir söng hlut- verk Paminu í Töfraflautunni. Söngflutningur hennar var léttur og leikandi, eins og við á, og barst vel fram í salinn. Nokkurs óöryggis ef til vill þreytu gætti þó f röddinni, sem fyrir vikið var dálítið óstillt. Sviðstúlkun Mar- grétar á Pamínu var skemmtilega Iífleg, en þó látlaus, og fór vel á sviði Samkomuhússins. Michael Jón Clarke söng hlut- verk Papagenos. Michael Jón fór á kostum í túlkun sinni. Bæði var söngur hans blæbrigðaríkur og í samræmi við kátlega persónuna og einnig var fas hans allt á sviði í sama stíl; létt og kímnifullt. Nemendur stóðu sig einnig að jafnaði vel. Óskar Pétursson söng hlutverk Taminos og gerði það vel, en sviðsfas hans var á stundum nokkuð vandræðalegt. Sólveig Hjálmarsdóttir fór fal- lega með hlutverk Papagenu og var skemmtilega létt í samleik sínum við Michael Jón í hlutverki Papagenos. Þá var söngur Elmu Atladóttur í hlutverki Næturdrottningarinnar góður. Kórinn skilaði sínum hluta með prýði og söng með fallegum tóni og af öryggi og ákveðni. Undirleikur Richards Simms var fimlegur og fjölbreyttur. Hann byggði vel undir flutning söngvaranna og var ævinlega í fullu samræmi við það, sem fram fór á sviðinu. Þá var stjórn Roberts J. Jacks fumlaus og ákveðin. Hraði var ævinlega við hæfi, bendingar um túlkun öruggar og hann virtist hafa alla þá þræði í hendi sér, sem þurfti til þess að tryggja áfallalausan flutning. Leikstjórinn, Sigurður Hall- marsson, hefur unnið af kost- gæfni. Uppröðun flytjenda á sviðinu var iðulega hreinlega falleg, ekki síst í Önnu Bolenu, þar sem iðulega komu fram mjög skemmtilegar og áhrifaríkar myndir. Strokkvartett skipaður nem- endum úr Tónlistarskólanum á Akureyri lék á undan flutningi hvors óperuhluta. Leikur kvart- ettsins var allgóður. Hljómur var nær ævinlega hreinn og yfirleitt allvel þéttur og fór batnandi eftir því sem á leið leik kvartettsins. Jafnframt birti yfir tóninum, sem var til að byrja með nokkuð mattur. Það er vafalaust, að þeir nemendur Tónlistarskólans, sem eins og þeir, sem mynduðu strok- kvartettinn og eru komnir vel á veg í námi sínu, eru prýðilega færir um allgóðan og jafnvel góð- an flutning tónlistar og jafnframt víst, að tækifæri til þess að koma fram og leika opinberlega eru mjög eftirsóknarverður þáttur í námi þeirra. Af frammistöðu flytjenda á fjölum Samkomuhússins má full- yrða, að það er ekki fáránlegt að láta sig dreyma uppsetningu heillar óperu á vegum söngdeild- arinnar. Fjöldi nemenda er næg- ur til þess að fá til þann fjölda flytjenda, sem þarf, jafnt í ein- söngshlutverk sem í kóra. Slíkar uppfærslur yrðu sannarlega ánægjuleg viðbót við menningar- líf bæjarins. Annað, sem ekki síður skiptir máli, er það hve mikilvægur þátt- ur óperuvinna er í söngnámi. í þeirri vinnu þjálfast atriði, sem ekki nást betur á annan veg. Þar má nefna túlkun og sviðsfram- komu, sem eru áríðandi í þroska- ferli söngnemenda. í uppfærslu nemenda og kenn- ara söngdeildar Tónlistarskólans á Akureyri á lokaatriðum óper- anna tveggja virðist vera fólginn vísir viðbótar, sem mikils má af vænta í starfi deildarinnar. Tón- listarunnendur hljóta að vona, að áfram verði unnið á þessu sviði. Til þess eru greinilega efni. Haukur Ágústsson. Vöruskiptin við útlönd janúar-febrúar 1992: Vöruskiptajöfiauðuriim óhag- stæður um 0,1 milljarð í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 6,7 milljarða króna en inn fyrir 6,2 milljarða króna fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar var því hagstæður um hálfan milljarð króna en í febrúar í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhag- stæður um 0,4 milljarða króna á föstu gengi. Fyrstu tvo mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 11,5 milljarða króna en inn fyrir 11,6 milljarða króna fob. Vöruskipta- jöfnuðurinn á þessum tíma var því óhagstæður um 0,1 milljarð króna en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 0,6 millj- arða króna á sama gengi. Fyrstu tvo mánuði þessa árs var verðmæti vöruútflutnings 0,4% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru um 77% alls útflutningsins og voru 1% meiri en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 5% minni en útflutningur kísiljárns var 13% meiri en á síðastliðnu ári. Útflutningsverðmæti annarr- ar vöru var 8% minna í janúar- febrúar en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutningsins fyrstu tvo mánuði ársins var 4% minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju var 1% meira en í fyrra og verð- mæti olíuinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 10% meira en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þessir innflutnings- liðir ásamt innflutningi sérstakrar fjárfestingarvöru (skip, flugvélar, Landsvirkjun) eru jafnan breyti- legir frá einu tímabili til annars, en séu þeir frátaldir reynist annar innflutningur (82% af heildinni) hafa orðið um 6% minni en í fyrra, reiknað á föstu gengi. Nettó flytur Nettó verslun okkar að Höfðahlíð 1 verður lokað laugardaginn 16. maí og starfsemin flutt að Óseyri 1 b. Um leið og við þökkum viðskiptin að Höfðahlíð 1 bjóðum við ykkur velkomin í nýja Nettóverslun að Óseyri 1 b föstudaginn 22. maí kl. 12.00. Nettó allra hagur Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.