Dagur - 12.05.1992, Page 7
Þriðjudagur 12. maí 1992 - DAGUR - 7
Handknattleikur:
Lmumaður úr Val
í raðir KA-manna
Handknattleiksmaðurinn Ár-
mann Sigurvinsson hefur
ákveðið að skipta í KA og
leika með liðinu næsta vetur.
Ármann, 21 árs, er línumað-
ur sem kemur úr Val.
Samkomulag náðist milli
Ármanns og KA á föstudag.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
sagði að Ármann væri efnilegur
línumaður og fjölhæfur varnar-
maður sem styrkti liðið
tvímælalaust. Árni Stefánsson,
annar línumanna KA á síðasta
tímabili, hyggst hætta hand-
knattleiksiðkun.
„Við reiknum með að halda
öðrum leikmönnum og bætum
trúlega ekki fleirum við nema
leyfðir verði tveir útlendingar.
Ég veit að margir hafa áhuga á
því og það er ekki ósennilegt að
fram komi tiliaga um það á árs-
þinginu,1* sagði Alfreð Gísla-
son.
Heyrst hefur að Finnur
Jóhannsson, hinn línumaður
Valsliðsins, hyggist leika með
Þór næsta vetur en Árni Gunn-
arsson, verðandi formaður
handknattleiksdeildar Þórs,
sagði í gær að ekki hefði verið
rætt við Finn svo hann vissi til.
Kærumál í körfuboltanum:
Laugaskóli áfrýjar ekki
- og verður áfram í 2. deild
Körfuknattleikslið íþróttafé-
lags Laugaskóla hefur ákveðið
að áfrýja ekki úrskurði dóm-
stóls Körfuknattleiksráðs
Reykjavíkur um að liðið hafi
notað ólöglegan leikmann í
úrslitakeppni 2. deildar
íslandsmótsins sem fram fór
fyrir nokkru. Laugaskóli leikur
því áfram I 2. deild á næsta
keppistímabili.
Eins og komið hefur fram í
Degi urðu Laugamenn sigurveg-
arar í 2. deild. í riðlakeppni úr-
slitakeppninnar sigruðu Laugar
Bolvíkinga og tryggðu sér þar
með sæti í úrslitaleiknum. Bol-
víkingar kærðu Lauga fyrir að
hafa notað ólöglegan leikmann,
Sveinbjörn Sigurðsson, og féllst
dómstólinn á það og dæmdi Bol-
víkingum 2:0 sigur í leiknum.
Það þýddi að Laugar færðust nið-
ur í 2. sætið í riðlinum og 3.-4.
sæti í deildinni en Bolvíkingar og
Gnúpverjar þurfa að leika nýjan
úrslitaleik um sigur í deildinni. í
gær rann út frestur Laugamanna
til að áfrýja til dómstóls KKÍ.
„Við ákváðum að áfrýja ekki
enda hefðum við aldrei getað
tekið þátt í 1. deildarkeppninni
með nýju fyrirkomulagi,** sagði
Unnar Vilhjálmsson, leikmaður
og Þjálfari Laugaskóla, en á
dögunum var samþykkt að fyrir-
komulag á keppni í 1. deild yrði
það sama og í úrvalsdeild, þ.e.
leikin fjórföld umferð í tveimur
riðlum og úrslitakeppni fjögurra
efstu liða.
„Það var formgalli á kærunni,
þeir skrifuðu ekki á skýrsluna að
þeir ætluðu að kæra eins og ber
að gera, en okkur var tjáð að
þetta myndi ekki breyta neinu
fyrir okkur og áfrýjunin hefði því
sjálfsagt orðið til lítils. Við verð-
um að sjálfsögðu með í 2. deild
næsta vetur og stefnum á sigur
þar,“ sagði Unnar Vilhjálmsson.
EM í júdó:
Freyr Gauti úr
í fyrstu umferð
Kári hefur gert það gott upp á síðkastið, hlaut silfur á EM fyrir rúmri viku
og setti met um helgina.
Bekkpressa:
fslandsmet hjá Kára
Kári Elíson, KFA, setti nýtt
íslandsmet í bekkpressu á móti
í líkamsræktarstöðinni Orku-
lind um helgina.
Kári, sem keppir í -75 kg
flokki, lyfti 181 kg og dugði sá
árangur honum til sigurs á mót-
inu en keppt var með stigafyrir-
komulagi. Guðni Sigurjónsson,
sem keppti í -110 kg flokki, varð
annar með 217,5 kg og Jón
Guðmundsson, -90 kg flokki, í
þriðja sæti með 170 kg.
Grikkland-ísland:
Guðni fyrirliði
Guðni Bergsson verður fyrir-
liði íslenska knattspyrnulands-
liðsins sem mætir Grikkjum í
undankeppni heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu í Grikk-
landi á morgun.
Guðni tekur við fyrirliðastöð-
unni af Sigurði Grétarssyni sem
leikur ekki með vegna meiðsla
sem hann hlaut í bikarleik með
Grasshoppers á þriðjudag. Skaga-
maðurinn Haraldur Ingólfsson
var valinn í landsliðshópinn í stað
Sigurðar.
Grikkir og íslendingar mætast
í dag í Evrópukeppni U-21 árs
landsliða í Nafplion Town. Þá
leikur U-18 ára landsliðið fyrsta
leik sinn á alþjóðlegu móti í
Tékkóslóvakíu gegn Pólverjum.
- Bjarni í 7. sæti
Freyr Gauti Sigmundsson,
KA, féll úr keppni 11. umferð
á Evrópumeistaramótinu í
júdó sem fram fór í París uin
síðustu helgi. Bjarni Friðriks-
son, Ármanni, náði bestum
árangri Islendinga en hann
hafnaði í 7. sæti.
Freyr Gauti, sem keppir í -78
kg flokki, lenti á móti Júgóslav-
anum Dragit í fyrstu umferð og
tapaði þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu. Júgóslavinn tapaði síðan í
næstu umferð þannig að Freyr
Gauti fékk ekki uppreisnarglímu
og var þar með úr leik.
Halldór Hafsteinsson og
Sigurður Bergmann féllu einnig
úr keppni í 1. umferð en Bjarni
Friðriksson komst í 8 manna
úrslit og hafnaði síðan í 7. sæti
eins og fyrr segir.
JMJ-mótinu lokið:
Þórsarar þurftu stór-
sigur á Dalvíkingum
- til að ná efsta sætinu af KA
JMJ-mótinu í knattspyrnu
lauk í gærkvöld en úrslit lágu
ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun. Þór og Dalvík mætt-
Pollamót Eimskips og KSÍ:
Völsungar óhressir með ákvörðun KSÍ
- segjast hafa fengið að vita að mótið yrði á Húsavík
Völsungar á Húsavík eru afar
óhressir með að Leiftri í Ólafs-
firði hafi verið falið að sjá um
Pollamót Eimskips í knatt-
spyrnu 6. flokks í sumar.
Völsungar segja að KSÍ hafi
verið búið að úthluta þeim
mótinu og þeir hafi verið búnir
að leggja í töluverða vinnu við
undirbúning þegar þeir lásu í
Degi að mótið yrði í Ólafsfirði.
Aðalsteinn Baldursson hjá
Völsungi sagði engan vafa leika á
að búið hefði verið að fela Völs-
ungi að sjá um mótið. „Það var
búið að segja okkur að við fengj-
um mótið og við vorum búnir að
leggja töluverða vinnu í undir-
búning þegar við lásum að mótið
yrði í Ólafsfirði. Ég veit að Sigl-
firðingar voru búnir að spyrjast
fyrir hjá KSÍ og fengu þau svör
að mótið yrði á Húsavík. Að auki
hafði starfsmaður KSÍ samband
við mig og staðfesti þetta um leið
og hann bað mig afsökunar. Við
erum hins vegar ekkert sáttir við
að málinu ljúki þannig, þetta er í
þriðja sinn sem við lendum í ein-
hverju svona í samskiptum okkar
við KSÍ, og finnst lágmarkið að
við fáum skriflega afsökunar-
beiðni. Þá erum við búnir að
senda mótanefnd KSÍ bréf þar
sem við förum fram á að þetta
verði endurskoðað,** sagði Áðal-
steinn.
Magnús Guðinundsson, starfs-
maður KSÍ, sagði rétt að Húsvík-
ingar hefðu fengið vilyrði fyrir að
halda mótið enda hefði röðin ver-
ið komin að þeim ef litið væri á
þá sem haldið hafa mótið áður.
Síðan hefðu Ólafsfirðingar, sem
aldrei hafa haldið mótið, sótt um
og í reglunum stæði að ef aðili
sem aldrei hefði haldið mótið
sækti um á móti öðrum sem hefði
haldið það áður skyldi það fara á
nýja staðinn. Það hefði því ekki
verið um annað að ræða en að
fara með mótið til Ólafsfjarðar.
ust þá í síöasta leik mótsins og
þurftu Þórsarar að sigra með
5-6 marka mun til að ná efsta
sætinu af KA-mönnum.
Úrslit í síðustu leikjum móts-
ins urðu þau að Völsungur sigr-
aði Dalvík 4:3, KA sigraði
Magna 3:2 og Þór 3:0, Völsungur
og Magni gerðu 1:1 jafntefli og
KA og Völsungur gerðu 1:1 jafn-
tefli.
Staðan fyrir leik Þórs og Dal-
víkinga var þessi:
KA
Magni
Völsungur
Þór
Dalvík
4 2-1-1 8:5 7
4 1-2-1 7:7 5
4 1-2-1 7:7 5
3 1-1-1 3:5 4
3 1-0-2 7:8 3
Ef Þór hefur unnið leikinn í
gærkvöld 5:0 eru Þór og KA efst
og jöfn með 7 stig hvort lið. Ef
Þórsarar hafa unnið 6:1 eða
stærra er sigurinn þeirra. Ef Dal-
víkingar hafa sigrað eru þeir í 2.
sæti en KA eitt í efsta sætinu.
Greint verður frá úrslitum
mótsins í blaðinu á morgun.