Dagur - 12.05.1992, Qupperneq 16
wmm
Kodak '
Express
Gæöaíramköllun
Akureyri, þriðjudagur 12. maí 1992
Fasteignamarkaðurinn á Akureyri:
Raimverðshækkunar
gætti allt síðasta ár
- fermetraverð að nálgast Reykjavíkurverðið
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Saesta ^PediGmyndit'
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
A sama tíma og raunverðs-
hækkunar gætti á íbúðaverði á
Akureyri allt síðasta ár fór
raunverð íbúðarhúsnæðis á
Suðurnesjum lækkandi á síðari
helmingi ársins eftir stöðuga
raunverðshækkun fram að því.
Eins og á fyrri árshelmingi
1991 hækkaði verðlag íbúðar-
húsnæðis á Akureyri meira en
í Reykjavík síðari hluta ársins
en verðlag hækkaði hins vegar
minna á Suðurnesjum.
Framangreindar upplýsingar
Söngvakeppnin:
Þjóðarstoltið
hélt velli
Það hefur varla farið framhjá
neinum að fulltrúar Islands í
söngvakeppni sjónvarpsstöðva
í Evrópu létu allar hrakspár
sem vind um eyru þjóta og
náðu 7. sæti, sem er næst besti
árangur sem íslenskt lag hefur
náð.
Hljómsveitin Stjórnin, eða
Heart 2 Heart, með söngkonurn-
ar brosmildu, Sigríði Beinteins-
dóttur og Sigrúnu Evu Ármanns-
dóttur, flutti lagið Nei eða já af
miklu öryggi og gáfu allflestar
þjóðir laginu stig. Englendingar
voru hrifnastir og splæstu 12 stig-
um á lag Friðriks Karlssonar og
Grétars Örvarssonar, textinn er
eftir Stefán Hilmarsson.
Peir sem fylgdust með keppn-
inni á vettvangi eða í sjónvarpinu
voru sammála um að fulltrúar
íslands hefðu staðið sig með
miklum sóma og verið góð land-
kynning. Frændur okkar írar
báru hins vegar sigur úr býtum og
eina ferðina enn var það lag eftir
Johnny Logan sem fleytti þeim á
toppinn. SS
koma fram í fréttabréfi Fast-
eignamats ríkisins. Þar er einnig
bent á að þróunin á söluverði
íbúðarhúsnæðis á Akureyri hafi
verið mjög í takt við þróun láns-
kjaravísitölunnar allt frá árinu
1988 til ársloka 1990.
Þegar gerður er samanburður á
milli þriggja markaðssvæða á fast-
eignamarkaðnum, þ.e. Reykja-
víkur, Suðurnesja og Akureyrar,
kemur í ljós að fermetraverð á
Akureyri og Suðurnesjum hefur
verið að nálgast fermetraverð í
Reykjavík. A Akureyri hægði sú
þróun þó á sér á seinni árshelm-
ingi 1990 en náði hámarki á fyrri
helmingi síðasta árs þegar fer-
metraverðið var orðið rúm 80%
af fermetraverðinu í Reykjavík.
Á síðari helmingi ársins lækkaði
fermetraverðið síðan lítillega
aftur.
Líkt og á öðrum markaðssvæð-
um hafa svokölluð handhafabréf
nær horfið sem hluti greiðslu í
fasteignaviðskiptum á Akureyri.
Þetta hefur gerst með tilkomu
húsbréfakerfisins. Samanborið
við Suðurnes var útborgun í pen-
ingum orðin mjög há á Akureyri
eða yfir 80% á árinu 1989 en á
seinni helmingi síðasta árs var
hún 50%. Afgangurinn var
frumbréf, húsbréf og yfirtekin
lán. JÓH
Elsti Svarfdælingurinn, Óskar Kristinn Júlíusson frá Kóngsstöðum í Skíða-
dal, varð hundrað ára gamall á föstudaginn var. Honum var haldið samsæti
á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, þar sem hann hefur dvalið síðustu
árin. Barnabarnabarn Óskars notaði tækifærið og lét skíra dóttur sína sem er
þá fjórði ættliður frá Óskari. Á myndinni standa þær mæðgur, Elísabet með
Margréti Ósk, við hlið gamla mannsins sem var hinn brattasti í veislunni þótt
sjónin hafi gefið sig fyrir nokkrum árum. Honum voru færðar gjafir, ma. frá
hreppsnefnd Svarfaðardals sem kom með skrautritað skjal þar sem braut-
ryðjandanum eru færðar þakkir fyrir ómetanlegt framlag sitt til vegagerðar
í Svarfaðar- og Skíðadal, en Óskar var vegavinnuverkstjóri í hálfa öld.
Mynd: -PH
Starfsfólk Söltunarfélags Dalvíkur:
Hafnaði vaktavinniikerfi í gær
Starfsfólk Söltunarfélags Dal-
víkur hf. hafnaði í gær í
atkvæðagreiðslu að taka upp
vaktavinnukerfi í fyrirtækinu á
grundvelli rammasamnings um
vaktavinnu í fiskvinnslu, sem
undirritaður var af fulltrúum
fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambandsins og Sam-
taka fiskvinnslustöðva 26. apríl
sl.
Þessi rammasamningur var
kynntur á fundi með starfsfólki
Söltunarfélagsins í gær og voru á
þeim fundi Björn Snæbjörnsson,
varaformaður Einingar, Matt-
Torkennilegar flíkur með Álafoss merki:
Ólögleg notkun á vörumerki Foldu
- þess krafist að flíkurnar verði innkallaðar
Fyrirtæki á landsbyggðinni
hefur orðið uppvíst að því að
selja prjónaflíkur undir merki
Álafoss, sem Folda hf. á Akur-
eyri hefur einkaleyfi á. Lög-
fræðingur Foldu hefur krafist
þess að viðkomandi fyrirtæki
innkalli vörurnar hið snarasta
ella muni Folda leita réttar
síns, sem mun vera ótvíræður í
þessu máli samkvæmt vöru-
merkjalögum.
Starfsmenn Foldu hf. voru að
skoða flíkur í verslun einni í
Reykjavík og sáu þá torkenni-
lega jakka sem voru með Álafoss
merkinu og kunnuglegu mynstri.
Við nánari skoðun kom í ljós að
þarna voru maðkar í mysunni.
Baldvin Valdemarsson, fram-
kvæmdastjóri Foldu hf., staðfesti
í samtali við Dag að Álafoss
merkið hefði greinilega verið
notað í óleyfi. I þessa verslun í
Reykjavík komu 40 jakkar en
sennilega væri þetta ekki mikið
magn en nóg til þess að skaðinn
er skeður. „Við lítum á þetta sem
mjög alvarlegt mál og fengum
lögfræðing til að hafa samband
við framleiðandann og krefjast
þess að flíkurnar yrðu innkallað-
ar. Verði það ekki gert þá förum
við væntanlega út í harðari
aðgerðir,“ sagði Baldvin.
Hann sagði að vörumerkjarétt-
ur væri mjög vel varinn í lögum
og samkvæmt vörumerkjalögun-
um væri einkaréttur Foldu til að
nota Álafoss merkið ótvíræður.
Vörumerkjaréttur veitir eiganda
vernd gegn því að aðrir noti
heimildarlaust í atvinnuskyni
vörumerki er villst verður á og
merki hans. Þetta á við um hvers
konar notkun og í lögunum er
heimild til að leggja skaðabóta-
ábyrgð og refsiábyrgð á þann sem
brýtur þessi lög.
Baldvin sagði að ákveðið hefði
verið að gefa viðkomandi sauma-
stofu kost á að innkalla vörurnar,
en hverfi varan ekki af markaðin-
um muni Folda nýta rétt sinn til
fullnustu. Hann vildi ekki upp-
lýsa hvaða saumastofa ætti í hlut
eða tjá sig frekar um málið. SS
hildur Sigurjónsdóttir, sem á sæti
í stjórn fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambandsins, og Finnbogi
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Söltunarfélagsins. Að kynningu
lokinni var leynileg atkvæða-
greiðsla starfsfólks um samning-
inn og var honum hafnað með 16
atkvæðum gegn 9.
Til greina kemur að taka upp
vaktavinnukerfi í fiskvinnslu hjá
Fiskiðjunni-Skagfirðingi á Sauð-
árkróki. Undanfarna daga hafa
annars vegar fulltrúar fyrirtækis-
ins og hins vegar Verkamanna-
félagsins Fram og Verkakvenna-
félagsins Öldunnar rætt þessi mál
og sagði Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar-Skag-
firðings, í gær að vonandi myndu
niðurstöður fást á þessum sól-
arhring. óþh
f HólsQöll:
Útígengnar kindur
vel á sig komnar
Tveir útigengnir gemlingar
sáust á Hólsfjöllum um helg-
ina. Þó ekki sé einsdæmi að fé
hafi fundist útigengið á fjöllun-
um voru gcmlingarnir í mjög
góðum holdum og fallegir sem
aftur segir sína sögu um veður-
farið á liðnum vetri.
Sigurður Leósson, fyrrum
bóndi í Hólsseli, sá gemlingana
tvo skammt norðvestur af
bænum. Hann segir ekki hafi ver-
ið að sjá að kindurnar hefðu það
slæmt, að minnsta kosti hefði
holdarfarið gefið slíkt til kynna.
„Það hefur auðvitað komið fyrir
að fé hafi gengið úti áður yfir vet-
urinn en það er óvenjulegt að sjá
það svona vel á sig komið,“ sagði
Sigurður og bætti við að úr þessu
sé vart ástæða til að ná geml-
ingunum í hús enda verstu
vetrarverður væntanlega að baki.
JÓH
Grálúðuveiðar:
„Engiim kraftur
í þessu miðað
við árstíma"
- segir Árni Pórðarson,
1. stýrimaður á Víði EÁ
„Togarar Útgerðarfélags
Akureyringa hf. eru flestir fyr-
ir vestan land að grálúðuveið-
um, en annað er ekki að fá sem
stendur á togslóð,“ segir Þor-
leifur Ananíasson, útgerðar-
stjóri.
Svalbakur EA og Árbakur EA
lönduðu í síðustu viku grálúðu.
Afli Árbaks var 73 tonn og Sval-
baks 66 tonn. Heldur þótti aflinn
rýr þar sem grálúðuveiði ætti nú
að standa sem hæst. í gærmorgun
kom Kaldbakur EA til löndunar
eftir 11 daga veiðiferð. Aflinn,
160 tonn, var að mestu grálúða.
Víðir EA, togari Samherja hf.
kom einnig inn í gærmorgun eftir
nær mánaðar úthald. Aflinn,
grálúða, sem var fryst um borð er
206 tonn.
„Dauft er yfir veiðum. Nei,
það er enginn kraftur í þessu
miðað við árstíma. Grálúðan er
dreifð um allt svæðið og við erum
að taka hana á 700 upp á 400 feta
dýpi,“ sagði Árni Þórðarson, 1.
stýrimaður á Víði EA. ój
Dalvík:
Lúbarinn hf. tekur Víkurröst á leigu
Bæjarráð Dalvíkur hefur sam-
þykkt að taka leigutilboði
Viðars Valdimarssonar fyrir
hönd Lúbarsins hf. í Víkurröst
og hefur falið bæjarstjóra að
ganga til samninga við hann.
Tvö tilboð bárust í leigu á Vík-
urröst, annað frá Viðari f.h.
Lúbarsins hf. og hitt frá Júlíusi
Snorrasyni, veitingamanni á
Sæluhúsinu. Tilboð Viðars gerir
ráð fyrir 607 þúsund króna árs-
leigu, en að öðru leyti samkvæmt
auglýstum leiguskilmálum. Til-
boð Júlíusar gerði hins vegar ráð
fyrir 300 þúsund króna ársleigu,
sem myndi breytast samkvæmt
byggingavísitölu, en að öðru leyti
samkvæmt auglýstum leiguskil-
málum.
Tilboðin voru rædd í bæjar-
stjórn Dalvíkur 28. apríl sl. og
var þá samþykkt með fjórum
atkvæðum meirihlutans eftirfar-
andi tillaga Trausta Þorsteinsson-
ar, forseta bæjarstjórnar: „Með
tilliti til framkominna efasemda
um að rétt hafi verið staðið að
ákvörðun um auglýsingu á
útleigu Víkurrastar og upplýs-
inga um að leigutaki hafi þegar
ráðstafað húsinu, beinir bæjar-
stjórn því til bæjarráðs að taka
málið upp að nýju.“ Bæjarráð
fjallaði síðan um málið á fundi 5.
maí sl. og þar var ákveðið að
taka tilboði Viðars Valdimars-
sonar. Sú ákvörðun verður vænt-
anlega staðfest á fundi bæjar-
stjórnar Dalvíkur í dag. óþh