Dagur - 14.05.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 14. maí 1992
Fréttir
Frá stóðhestasýningunni á Hólum.
Bæjarstjórnarfandur á Sauðárkróki:
Harðar umræður um málefhi Skjaldar
- forseti sakaður um að bregðast trausti
Fram kom í blaðinu í gær að
heitar umræður hefðu orðið á
bæjarstjórnarfundi á Sauðár-
króki sl. þriðjudag. Tók það
bæjarfulltrúa rúmar þrjár
klukkustundir að afgreiða eina
bæjarráðsfundargerð, þar sem
komið var inn á kaup Þormóðs
ramma hf. á meirihluta hluta-
fjár í fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtækinu Skildi hf. á Sauðár-
Stóðhestasýning að Hólum í Hjaltadal:
Tveir stóðhestar yfír átta
- athygli vekur lélegur árangur á tamningastöð staðarins
Stóðhestasýning Norðurlands
var haldin að Hólum í Hjalta-
dal laugardaginn 9. maí.
Dæmdir voru 32 stóðhestar
þriggja vetra og eldri auk sjö
hryssna. Tólf stóðhestar voru
fulldæmdir, en tuttugu fengu
byggingardóm.
Fimm sex vetra hestar voru
dæmdir og fengu fullnaðardóm.
Sokki frá Sólheimum fékk 8,11 í
aðaleinkunn. Hann fékk mjög
góða byggingareinkunn, 8,58, en
7,64 fyrir hæfileika. Sokki er
undan Krumma og Sokku frá
Sólheimum.
Huginn frá Höskuldsstöðum,
undan Gusti frá Sauðárkróki og
Kommu frá Höskuldsstöðum,
fékk hæstu aðaleinkunn, 8,02, í
flokki fimm vetra hesta. Hann
fékk 8,15 fyrir byggingu og 7,89
fyrir hæfileika.
Einungis einn fjögurra vetra
stóðhestur fékk fullnaðardóm.
Höldur frá Brún, undan Hrammi
frá Akureyri og Ósk frá Brún
fékk 7,94 í aðaleinkunn. Hann
fékk 7,90 fyrir byggingu og 7,97
fyrir hæfileika. Af máli þeirra
sem fylgdust með sýningunni á
Höldi þá var hesturinn van-
dæmdur. Dómurinn var harður
og ósanngjarn.
í vetur var starfrækt tamninga-
stöð að Hólum og hluti þeirra
stóðhesta sem voru sýndir voru af
stöðinni. Árangur Hólamanna
þótti sérstaklega lélegur er lýtur
að fjögurra vetra stóðhestum og
eldri stóðhestar frá stöðinni
sýndu engar framfarir. „Tamn-
ingin kom illa út og enginn foli
fjögurra vetra var sýningarhæfur
vegna ónógs undirbúnings.
Tamningastöðin að Hólum er
rekin af Hólabúinu með fulltingi
hrossaræktunarsambandanna á
Norðurlandi. Tilhögun tamning-
arinnar gekk ekki upp og nýrra
leiða verður að leita. Fundað
verður um málið í júlí og ákveðið
um framhaldið," segir Sigurður
Ingimarsson, bóndi að Flugu-
mýri.
„Nemendur að Hólum voru
með folana í tvo mánuði og Egill
Þórarinsson, tamningamaður,
tók síðan við. Þá áttu folarnir að
„blómstra“, sem ekki varð. Von-
brigði þeirra er áttu fola á stöðinni
hljóta að vera mikil. Dæmið gekk
ekki upp og tamningastöð sem
þessi hlýtur að hæta störfum af
sjálfdáðum,“ segir Einar G.
Gíslason frá Syðra-Skörðugili.
Að lokum má geta þess, að
sjö hryssur voru fulldæmdar.
Einkunnir voru ekki til að hrópa
húrra fyrir. Efst stóð Gola frá
Nesjum, undan Stormi frá Bjarn-
arnesi og Stjörnu frá Austurhóli,
með 7,78 í aðaleinkunn. ój
Austur-Húnavatnssýsla:
Stefiiumótunarverkefiii í ferdamálum
Um síðustu helgi var fyrsti
vinnufundurinn í stefnumótun-
arverkefni í ferðamálum í
Austur-Húnavatnssýslu. Það
voru Iðnþróunarfélag Norður-
lands vestra og Átaksverkefnið
Framtak, sem áttu frumkvæð-
ið að verkefninu.
Stefnumótunarverkefnið er
unnið í samvinnu við Ferðamála-
félag Austur-Húnvetninga og
fleiri hagsmunaaðila í ferðaþjón-
ustu í Austur-Húnavatnssýslu.
Um stjórn þess og framkvæmd
sjá Kristján B. Garðarsson, iðn-
ráðgjafi, Baldur Valgeirsson,
starfsmaður Framtaks og Emil
Thoroddsen, en hann hefur áður
verið leiðbeinandi í svona verk-
efnum á vegum Iðntæknistofnun-
ar íslands.
Að sögn Kristjáns snýst verk-
efnið um að skilgreina markmið
fyrir greinina til næstu ára og
draga fram núverandi mynd af
stöðu ferðaþjónustu í héraðinu,
meta hana og finna hugsanlegar
leiðir að skilgreindum markmið-
um.
Vinnuhópurinn sem vinnur að
þessu stefnumótunarverkefni tel-
ur um 15 manns og segir Kristján
að hópurinn sé mjög áhugasamur
og hafi starfað ötullega á fyrsta
vinnufundinum sem haldinn var á
Skagaströnd, dagana 8. og 9.
maí.
Næsti vinnufundur verkefnis-
ins verður á Blönduósi 4. júní nk.
og verður þar gengið frá skipu-
lagi upplýsingaöflunar sem fram
mun fara meðal ferðamanna í
sumar. SBG
Eftirlit á þjóðvegum frá Akureyri:
Óvíst hvemig málum verður háttað
I sumar er ráðgert að lögreglu-
menn frá Akureyri annist eftir-
lit á þjóðvegum á Norðurlandi.
Ekki er vitað enn sem komið
er hversu eftirlitiö verður
vítækt.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn, segir að lög-
reglan á Akureyri hafi fengið í
fyrra sérstaka bifreið til hraða-
mælinga og almenns eftirlits á
þjóðvegum norðan heiða. Bíllinn
er af gerð Volvo 740.
„Fjárveitingavaldið sker stöð-
ugt niður jafnt hjá lögreglu sem
öðrum opinberum fyrirtækjum.
Ljóst er að bíllinn verður nýttur
til eftirlits á þjóðvegum út frá
Akureyri, en enn er ekki vitað
hvernig útgerðinni verður háttað.
Á næstu dögum fáum við upp-
gefna þá fjárhæð sem varið verð-
ur til verkefnisins og þá verður
hægt að skipuleggja starfsemina í
sumar,“ sagði Ólafur Ásgeirsson.
ój
Aðalfundur S.H.:
Tvær breytingar á stjóminni
Tvær breytingar urðu á stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna á aðalfundi fyrirtæksins
fyrir helgi. Einar Oddur Krist-
jánsson, frá Hjálmi á Flateyri
og Sighvatur Bjarnason, frá
Vinnslustöðinni í Vestmanna-
eyjum voru kjörnir í stjórnina.
Þeir félagar taka sæti Guðfinns
Einarssonar og Guðmundur
Karlssonar, sem ekki gáfu kost á
sér til endurkjörs.
Núverandi stjórn SH skipa:
Jón Ingvarsson, formaður, Ólaf-
ur B. Ólafsson, Aðalsteinn
Jónsson, Einar Oddur Kristjáns-
son, Finnbogi Jónsson, Gunnar
Ragnars, Haraldur Sturlaugsson,
Jón Páll Halldórsson, Lárus Ægir
Guðmundsson, Magnús Kristins-
son, Pétur Þorsteinsson, Rakel
Olsen, Sighvatur Bjarnason og
Svavar B. Magnússon. -KK
króki. Á tímabili leit út fyrir að
vantrauststillaga á forseta
bæjarstjórnar yrði lögð fram
vegna þessa máls.
„Ég tel að með framferði sínu í
þessu máli hafi forseti bæjar-
stjórnar brugðist því trausti sem
honum hefur verið sýnt af bæjar-
fulltrúum og bæjarbúum. Hann
ber ekki hag bæjarins ofar sínum
pólitísku forsendum í máli þessu.
Kannski er núna mál til komið að
forseti bæjarstjórnar segi af sér
þeirri trúnaðarstöðu sem hann
gegnir,“ sagði Stefán Logi Har-
aldsson, oddviti framsóknar-
manna í bæjarstjórn, m.a. í máli
sínu og bætti við að hann bæri
ekki ýkja mikið traust til meiri-
hluta bæjarstjórnar eftir þetta
mál og samskipti síns flokks við
meirihlutann yrðu ekki söm og
áður.
Þrátt fyrir hörð orðaskipti á
fundinum kom ekki til að þess að
vantrauststillaga á forseta yrði
flutt. Ásökunum á sínar hendur
svaraði forseti bæjarstjórnar m.a.
þannig: „Það var talað um að ég
hefði tekið þátt í að selja meiri-
hlutann í Skildi hf. til Siglufjarð-
ar. Það er alls ekki rétt. Ég hef
engan atkvæðisrétt í þessum
fyrirtækjum fyrir sunnan sem
seldu sín hlutabréf. Hins vegar er
það rétt að ég vissi af þessu, ein-
faldlega vegna þess, að eins og
hér hefur komið fram, þá voru
haldnir fundir hjá nokkrum af
stærstu hluthöfum Skjaldar og
þeim hluthöfum sem aðallega
hafa hagsmuna að gæta vegna
fyrirtækisins.“ Auk þess ítrekaði
hann að meirihluti bæjarstjórnar
Sauðárkróks hefði ekkert haft
um það að segja að umrædd
skipti áttu sér stað á hlutabréfum
í Skildi og Þormóði ramma.
Þegar þessi eina fundargerð
bæjarráðs frá 4. maí. sl. hafði
verið afgreidd var ákveðið að
fresta fundi til morguns og var
honum framhaldið eftir hádegi í
gær. SBG
Vordagar í Suimuhlíð
- tilboð, kynningar og uppákomur
Vordagar hefjast í verslunar-
miðstöðinni Sunnuhlíð á
Akureyri í dag, fimmtudaginn
14. maí, og standa þeir fram á
laugardag. Þær fjölmörgu
verslanir sem eru undir einu
þaki í Sunnuhlíð verða með
ýmis vortitboð og þá verða
kynningar og uppákomur í
gangi alla dagana.
Eftir hádegi í dag, eða kl. 14-
18, kynna fyrirtæki og samstarfs-
hópar kvenna fjölbreytta fram-
leiðslu sína í samvinnu við Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar. Þar
má nefna gjafavörur, minjagripi,
draumableiuna og leðurvörur frá
Teru á Grenivík. Klukkan 16
leikur Hornaflokkur Tónmennta-
skóla Akureyrar undir stjórn
Roars Kvam.
Á föstudaginn verður sambæri-
leg kynning á sama tíma og kl.
16.30 munu vortónarnir streyma
úr gullbarka Bergþórs Pálssonar
við undirleik Jónasar Þóris.
Trúðurinn Skralli skemmtir
börnunum á fimmtudag og föstu-
dag. Á laugardag kl. 11 verður
tískusýning þar sem verslanirnar
Ynja, Vaggan og Habró munu
kynna sumarlínuna í dömu- og
barnafatnaði.
Vordagana þrjá verða ýmis til-
boð í gangi. Kjötiðnaðarstöð
KEA býður til grillveislu, kaffi-
hlaðborð verður uppi í kaffiterí-
unni alla daga, vormarkaður
verður í Blómabúðinni Laufás
þar sem ýmsar vörur verða á til-
boðsverði og þannig mætti lengi
telja.
Sem fyrr segir verða Vordagar
í Sunnuhlíð á fimmtudag, föstu-
dag og laugardag. SS
Bygging vegskála
við Strákagöng:
Samið við Berg M
Vegagerð ríkisins ætlar að
ganga til samninga við Bygg-
ingafélagið Berg hf. á Siglu-
firði um byggingu vegskála við
Strákagöng. Trésmíðaverk-
stæði Sigurðár Konráðssonar á
Siglufirði, sem átti lægra til-
boðið í verkið, dró tilboð sitt
til baka.
Kostnaðaráætlun í þetta verk
var 18,7 milljónir króna, en til-
boð Byggingafélagsins Bergs hf.
var 18,8 milljónir króna. Tilboð
Trésmíðaverkstæðis Sigurðar
Konráðssonar var hins vegar tæp-
ar 14,6 milljónir króna.
Byggingu vegskálans skal lokið
31. ágúst nk. og verður göngun-
um ekki lokað meðan á fram-
kvæmdum stendur. óþh
Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu stendur fyrir sölu á merki hjarta-
sjúklinga, rauða hjartanu, dagana 15. og 16. maí nk. Merkið er á prjóni til
að stinga í barminn og kostar 300 krónur, sem er sama verð og í síðustu
merkjasöiu, 1990. AUur ágóði rennur til hjartadeildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri. A myndinni eru Gísli J. Eyland, formaður Félags hjartasjúk-
linga og Barði Benediktsson, ritari að afhenda Jóni Þór Sverrissyni, hjarta-
sérfræðingi fyrsta merkið á Akureyri. Kjörorðið er: „Vinnum saman -
Verndum hjartað.“ Mynd. Golli