Dagur - 14.05.1992, Blaðsíða 7

Dagur - 14.05.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 14. maí 1992 - DAGUR - 7 Tónlist Sungið saman Efnt var til mikillar samkomu í íþróttaskemmunni á Akureyri laugardaginn 9. maí. Þar voru mættir til leiks fjölmargir kórar til þess að taka lagið saman með almennum samkomugestum og minnast þess, að í ár er svokallað „ár söngsins". Það er sannarlega góðra gjalda vert að helga ár söngnum og von- andi árangursríkt til framtíðar. Engin tónlistariðkun liggur nær manninum en söngurinn. Hver maður fæðist með það, sem til iðkunar hans þarf, þó að vissu- lega skilji á milli í ýmsu hvað snertir getuna til að gera svo vel að af beri. Á kórasamkomunni í íþrótta- skemmunni á Akureyri komu fram átta kórar af Eyjafjarðar- svæðinu, kirkjukórar og aðrir, og voru þó engan veginn allir mættir til leiks. Kórarnir voru: Kirkju- kór Svarfdæla, Kirkjukór Stærri- Árskógskirkju, Mánakórinn, Kór Glerárkirkju, Kór Akureyr- arkirkju, Kór aldraðra og Kór Grundarkirkju. Við bættist Mos- - a an songsms fellskórinn, sem var á ferð um Eyjafjörðinn og bað leyfis að fá að vera með. Hér var ekki um raunverulega tónleika að ræða, þó að frammi- staða margra kóranna, sem fram komu, væri góð og jafnvel fylli- lega tónleikahæf. Erindið var fyrst og fremst það að vekja athygli á söng sem slíkum og fjöldasöng sérstaklega og þá ekki síst þeim söngarfi, sem þjóðin á í ættjarðarlögum sínum og þjóð- lögum. Þessi tónlist, sem var bókstaf- lega allra fyrir ekki löngu, er nefnilega með sem næst óskiljan- legum og afar óæskilegum hraða að hverfa. Þegar menn koma saman nú á dögum er iðulega næsta erfitt að koma upp sam- söng af nokkru tagi, þar sem lög- in og ljóðin eru ekki lengur töm hvað þá raddanir þeirra, sem fyrri tíða fólk - og það engan veginn löngu liðið - hafði margt á valdi sínu. Erindi sínu náði kórasamkom- an í íþróttaskemmunni vel. Aðsókn var góð og þátttaka í fjöldasöng mjög almenn. Söng- gleði allra, jafnt kórfélaga sein almennra samkomugesta, var greinileg og sýndi Ijóslega, hver ánægjuauki samvinna í söng- menntinni getur verið og er öll- um þeim, sem taka þátt í henni. Getan til þessa er fólgin í því, að þjóðin eigi sér sameiginlegan og alþýðlegan tónlistararf, sem haldið er við og aukið er við í samfellu. Þessi þáttur er engu síður mikilvægur í uppeldi hverr- ar nýrrar kynslóðar en margt það, sem kennt er í skólum landsins, á barnaheimilum og í félagsstarfi. Hann má ekki glatast og þó að ár söngsins geti ekki af sér annað en viðurkenningu þessa sannleika og vakningu til þess að vinna að framgangi þess- ara mála víðtækt og markvisst og meðal annars með því að rifja upp og festa laga- og ljóðaarf þjóðarinnar, hefur það skilað sinu. Haukur Ágústsson. Tónleikar í Gmndarkirkju Sunnudaginn 3. maí efndi Tón- listarskóli Eyjafjarðar til tónleika í Grundarkirkju. Á tónleikunum komu fram eldri nemendur skól- ans og léku á ýmis hljóðfæri. Tónlistarskóli Eyjafjarðar er ekki gamall að árum. Hann getur þó þegar státað af góðum árangri í starfi sínu, það sýndu nemendur hans greinilega með frammistöðu sinni á tónleikunum í Grundar- kirkju. Því má reyndar ekki gleyma, að nokkrir af einmitt elstu nemendum skólans hófu tónlistarnám sitt við Tónlistar- skóla Akureyrar, en fluttu sig við stofnun skólans í Eyjafirði. Það breytir því hins vegar ekki, að áfram hefur verið byggt og það í Eyjafjarðarskólanum, svo að núverandi staða þessara nemenda er verk þess skóla. Nokkrir nemendur sýndu sér- staklega athyglisverða getu á hljóðfæri sín. Þar má geta Vil- hjálms Inga Sigurjónssonar, sem lék tvö verk á trompet. Frammi- staða Vilhjálms Inga var verulega góð. Tónn hans hreinn og örygg- ið í flutningi verulegt. Eins lék Gunnur Ýr Stefánsdóttir fallega á þverflautu og réði merkilega vel við töluvert hraðán flutning. Skemmtilegt var að hlusta á Unni Björk Gylfadóttur leika á alt- blokkflautu sína smáverk eftir Bach. Margir líta á þetta hljóð- færi sem barnaglingur og tengja það mest forskóla í tónlistar- námi. Leikur Unnar Bjarkar sýndi, að hljóðfærið er sannar- lega annað og meira en leikfang eitt. Þá lék Vigdís Garðarsdóttir verk eftir Clementi á píanó og gerði það af eftirtektarverðu öryggi þrátt fyrir allt að því of mikinn hraða í flutningi. Nokkrir söngvarar komu einn- ig fram á tónleikunum í Grundar- kirkju. Af þeim má nefna Stefán Birgisson, sem stóð sig í heild tekið með prýði þrátt fyrir nokk- uð hik í byrjun. Fleiri komu fram á nemenda- tónleikum Tónlistarskóla Eyja- fjarðar. Flestir stóðu vel fyrir sínu og gáfu fyrirheit um frekari afrek á tónlistarsviðinu þegar ár líða fram. Kennarar skólans aðstoðuðu nemendur sína við flutning með undirleik á gítar, harmoniku og píanó en skólastjóri tónlistarskól- ans, Atli Guðlaugsson, kynnti atriði. Tónleikarnir voru bæri- lega sóttir. Fleiri hefðu þó mátt eru. koma til þess að hlýða á þá. Þeir voru fyllilega kvöldstundar virði, eins og nemendatónleikar jafnan Haukur Ágústsson. PORTIÐ nýju slökkvistöðinni við Árstíg Broddur- minjagripir og veggpiattar, brenndir - prjónuð barnaföt - spil - bækur - plötur - myndir - lax - brauð - lakkrís — postulínsvörur- keramik — kartöflur o.fl. o.fl. Komið og skoðið Söluaðilar Opið laugardaga frá kl. 11-16 Sófa- útsölunni lýkur á föstudag Opið laugardaga til kl. 16.00. AUS5MHI HÚSGAGNAVERSLUN STRANDGÖTU 7 - 9 • AKUREYRI SÍMAR 21790 & 21690 Almennt kennaranám KENNARA- HÁSKÓLI ÍSLANDS með fjarkennslusniði til B.Ed.-prófs. Ný 90 eininga námsbraut í almennu kennaranámi til B.Ed.-gráðu við Kennaraháskóla íslands hefst í byrj- un árs 1993 og lýkur haustið 1996. Þessi námsbraut verður aðeins boðin einu sinni. Námsbrautin verður skipulögð með fjarkennslusniði að hluta og er ætluð kennaraefnum sem eiga erfitt með að sækja nám í Reykjavík. Námið er einkum ætlað kennaraefnum er hyggja á kennslu í grunn- skólum á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur er til 15. september nk. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum og önnur gögn sem umsækjendur telja að skipti máli. Inntöku- skilyrði eru stúdentspróf eða önnur próf við lok fram- haldsskólastigs svo og náms- og starfsreynsla sem tryggir jafngildan undirbúning. Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu Kennaraháskólans við Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími 91-688700 og á fræðsluskrif- stofum í öllum fræðsluumdæmum. Rektor. Nettó flytur Nettó verslun okkar að Höfðahlíð 1 verður lokað laugardaginn 16. maí og starfsemin flutt að Óseyri 1 b. Um leið og við þökkum viðskiptin að Höfðahlíð 1 bjóðum við ykkur velkomin í nýja Nettóverslun að Óseyri 1 b föstudaginn 22. maí kl. 12.00. Nettó allra hagur Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.